Vísir - 11.09.1980, Blaðsíða 4

Vísir - 11.09.1980, Blaðsíða 4
4 vtsm Fimmtudagur 11. september 1980 Firmakeppni K.R. i knattspyrnu utanhúss 1980 Hin árlega firmakeppni knattspyrnudeildar K.R. verður haldin helgina 20.-21. september, og verður keppt í riðlum, en úrslitakeppni verður viku síðar. Keppt utanhúss. Skulu 7 leikmenn vera í hverju liði, auk 4 skiptimanna. Leiktimi er 2x15 mínútur. Þátttaka skal tilkynnt í síma 22195, þriðjudag, miðvikudag og föstudag, frá kl. 2 til 4 e.h. fyr- ir 18. september. Knattspyrnudeild K.R. Sendill á vélhjóli Vísir óskar eftir að ráða röskan sendil, sem hefur vélhjól til umráða. Vinnutími frá kl. 13-17, eða eftir samkomulagi Hafið samband í síma 86611. Æ-AY/S' Sendlar óskast á afgreiðsluna Vinnutimi frá k/. 12-18 eða eftir samkomulagi. Uppl. á afgreiðslunni Stakkholti 2-4 eða i sima 28383 LAUGAVEGUR Fjársterkur aðili óskar eftir verslunar- húsnæði á jarðhæð við Laugaveg, til kaups eða ieigu. Tilboð sendist augld. Visis, Siðumúla 8 fyrir 15. sept. merkt ,,Laugavegur” Hefur Maoisminn runniD sitt skeið í Kína? áW Mao-dýrkunin á enda Meö skipan Zhao Ziyang í embætti forsætisráöherra þykir ýmsum, sem heita megi, aö Mao- timabiliö sé á enda i Kina. Nær engir eru orönir eftir af gömlu Maoistunum i æöri embættum, og i stefnu sinni i efnahagsmálum 'nefur Deng Xiaoping varafor- maður gengiö nær þvert á stefnu Maos i umbótum sinum. Siöasta ár hefur mátt sjá, að hverju dró, meö þvf aö slagorð Maos og kenningar hurfu smám saman af veggjum, „Rauöa kveriö” meö spakmælum hans sást æ sjaldnar og byrjað var að draga i efa viskuna og heilræðin, sem Mao miölaöi af visdómi sin- um. Mínus fyrír Hua Jafnvel Hua Guofeng, sem erföi formannssæti Maos,hefur neyðst til þess aö viöurkenna opinber- lega, aö siöustu æviár sin hafi Mao ekki verið sá maður, sem hann áöur var. „Hann átti oröiö erfitt um mál og hreyfingar,” svaraöi Hua skriflega fyrirspurn júgóslavnesks dagblaös, sem birtisvariöi siðasta mánuði. Hua hefur meira aö segja neyöst til þessaögenga svo langt aö viöur- kenna, aö Mao heitinn beri sjálfur ábyrgö á nokkrum „alvarlegum mistökum”. Fram til þess haföi þótt nægja, aö kenna „fjögurra-manna-klik- unni” um spellvirkin sem hún var sögð hafa unniö, og undir þau var flokkaö nær flest allt þaö, sem úr- skeiöis haföi fariö. Meö þvi aö lækka sjálft goöiö á stallinum er um leiö þó vegið aö valdatilkomu Hua sjálfs. Eins og menn muna erföi hann fyrst sæti Sjú Enlæs, fyrrum forsætisráð- herra, sem allir vissu þó, aö haföi veriö ætlaö Deng Xiaoping, sem fjórmenningaklikan útskúfaöi. Siöan erföi Hua formennsku Maos og naut þar ummæla, sem hann og stuöningsmenn hans hermdu upp á Mao sjálfan. — „Meö þig viö stjórn, get ég veriö rólegur”. átti Mao aö hafa sagt viö Hua, og eölilega vogaöi enginn sér á þeim tima aö standa gegn hinsta vilja formannsins heitins. — Blasir þá viö hættan fyrir Hua, ef almennt veröurálitið, aö Mao karlinn hafi verið oröinn elliær á þeim tima, sem hann mælti þau orö viö arf- takann. Viö þaö bætist siöan, aö fyrir skemmstu samþykkti miðstjórn kommúnistaflokks Kina, að per- sónudýrkun einstakra leiötoga væri ekki heppileg. Draga skyldi úr athyglinni, sem einstöku leið- togar heföu notiö. Myndir, styttur og tilvitnanir i ljóð og spakmæli Maos heföi skort „póli- tiska viröingu”, og gilt þaö sama um aöra leiötoga, eöa myndir af þeim og tilvitnanir i ræöur þeirra. — Þetta var nokkuö djarflegri stefnubreyting miöstjórnarinnar, en blasir kannski viö lesand- unum, þvi aö staöreyndin er sú, aö eini leiötoginn, sem myndir eru birtar af um alla veggi og sifellt er vitnaö i, er sjálfur flokksformaöurinn Hua Guofeng. Þegar Hua lagöi fyrir þing Kina afsagnir sex aöstoöarfor- sætisráöherra og sina eigin Ur embætti forsætisráöherra, til- kynnti hann um leiö, aö sjöunda ráöherranum væri vikiö úr em- bætti. Þaö var Chen Ynggui, sem fyrir nokkrum árum var kallaður „hetjan frá Dazhai”. Héraðs- stjórn Dazhai var þá hrósaö upp til skýja sem fyrirmyndarfram- kvæmd á stefnu Maos i land- búnaöarmálum. Ynggui naut per- sónudýrkunar, sem slagaöi hátt upp i Maotilbeiösluna. — En ný- lega var hann stimplaður sem pólitiskur svikari og allt hans starf i Dazhai kallað „áróöurs- gabb” með fölsuöum tölum i skýrslum. Varö þaö mikill minus fyrir Maoismann og nokkur min- us fyrir Hua formann, sem mjög haföilofaðframkvæmdiri Dazhai og Ynggui sjálfan. Menn Dengs í lykiiembættum Zhao Ziyang, hinn nýi forsætis- ráöherra, ereinmittúr þeim hópi. ötull framkvæmandi umbóta- stefnu Dengs i efnahags- og atvinnumálum, sem vakti á sér athygli meö árangrinum i Sichuan-héraöi, þar sem bjuggu 100 milljónir manna viö sult og seyru. A tveim árum jók hann Zhao Ziyang hinn nýi forsætis- ráöherra, en skipan hans þykir efla enn stööu og áhrif Dengs varaformanns. iönaöarframleiösluna um 81% og landbúnaöarframleiösluna um 25%. Samtimis skóp hann 600 þús- und manns atvinnu með stofnun nýrra samyrkjubúa, og veitti landbúnaöarverkafólki og bændum aukið frelsi og sjálf- stjórn til eigin ræktunar. Zhao og einstaklings- framtakiD Þessi 61 árs gamli sonur jarö- eiganda i Hunanhéraöi var á upp- leiö I kommúnistaflokknum, þegar hann féll i ónáö i menn- ingarbyltingunni og varö eitt af fórnardýrum rauöu varöliöanna. Eftirendurreisn Dengs Xiaopings reis Zhao á ný til metorða og hefur veriöáhraöriuppleiö siðan. Þaö var i april, sem hann var kvaddur til Peking frá Sichuan til varaforsætisráöherraembættis, og nú i september er hann orðinn forsætisráöherra. Lykillinn aö uppgangi Sichuan- héraös undir handleiðslu Zhaos var að örva einstaklingsfram- takið. Hann braut boðorð Maos um sama kaup til handa öllum, og launaöi mönnum meiri afköst. Hannveitti leyfi til þess, aö smá- bændur mættu framleiöa til eigin sölu I hjáverkum. Zhao er þvi ófeiminn aö gera tilraunir meö kapitaliskar aðferöir, — „Rikisafskiptin eru of viöamikil i Kina,” sagöi hann#- lega. „Þauleiöa ekki af sér áhuga eða vinnugleði.” Málverk af þeim Mao og Hua og á aö sýna þá frægu stund, þegar M aö Hua tæki formannssætiö eftir hans dag. ao lýsti vilja sinum til þess

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.