Morgunblaðið - 30.05.2002, Page 39

Morgunblaðið - 30.05.2002, Page 39
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. MAÍ 2002 39 MARGIR Íslendingar muna þá tíð þegar farið var með farþegaskipi til Evrópu, með Gullfossi eða Heklunni, afslöppun í þægilegu umhverfi þar sem farþegar gátu viðrað sig á sól- dekki í sjávarloftinu, notið veitinga og góðrar þjónustu um borð. Sofið í þægulegum klefum meðan skipin liðu áfram á öldum hafsins. Hvern þyrstir ekki í að þetta gæti orðið að veruleika á ný? Það var því afar ánægjulegt að vita til þess að Katrín Fjeldsted skyldi vekja þetta mál upp á Alþingi, þá að merkilegt að engar undirtektir skuli vera af hálfu annarra þing- manna. Um alllangt skeið hefur erlent skipafélag siglt frá Færeyjum til Austfjarða yfir hásumarið, en þar er um erlent skipafélag að ræða þar sem allar ákvarðanir um siglingar eru teknar erlendis, og þar hafa ís- lensk yfirvöld ekkert að segja, nema kosta móttökuaðstöðu, hve lengi og hvernig þeim siglingum er og verður háttað er alfarið í höndum Færey- inga, og byggist á þeirra áætlunum. Við Íslendingar eigum að eiga okkar ferju og farþegaskip, sem siglt gæti allan ársins hring, með breyti- legu rekstrarplani, þar sem yfir sumarið yrði siglt frá Reykjavík vikulega til austurstrandar Bret- lands, þaðan til Hollands eða Norð- ur-Þýskalands, þarna er gert ráð fyrir ekjuskipi með farþegarými og sölum sem gerði ferðir áhugaverðar, skip sem hefði siglingahraða um 20 sml á klst, með vikulegar ferðir til áðurnefndra staða. Þannig sparaðist mikill akstur innanlands til Aust- fjarða,og langur akstur frá Hirtshals eða Bergen. Miðað við að fjölskylda fari með bíl sinn og eyði sínu fríi í Suður-Evr- ópu, u.þ.b. 3 vikum, með skipi frá Reykjavík til Mið-Evrópu tæki ferð til Suður-Evrópu um 4 daga hvora leið og hafi þar með 13 daga til ráð- stöfunar í fríi.En með ferju frá Aust- fjörðum til Danmerkur að meðtöld- um akstri frá Rvík til Austfjarða tæki þessi ferð 6 daga hvora leið þá hafi sama fjölskylda eingöngu 9 daga til ráðstöfunar á áfangastað. Á vetrum gæti þetta skip með auk- inni nýtingu siglt með flutningabíla og gáma fram og til baka. Þar gætu útflutningsfyrirtæki og fiskvinnslustöðvar sent afurðir sínar á markað með eigin bílum, og nýtt þá í bakaleið til innflutnings á vörum til eigin nota og annarra. Þarna eru miklir möguleikar á lækkun flutn- ingskostnaðar með kældar vörur, s.s. ferskan fisk og fiskafurðir, svo og ferskt grænmeti og ávextir í bíl- um með hita- og kælibúnað. Þá er möguleiki á svokölluðum innkaupaferðum, þar sem innkaup gætu átt sér stað í fleiri en einni borg. Þar yrði hver ferð með lengri viðverum í hverri höfn fyrir sig, og gætu verið 10–14 daga ferðir. Þar gæti verið um að ræða ferð til Ed- inborgar og/eða New- castle, Amsterdam/ Rotterdam og Ham- borgar, þar sem svona ferð væri í senn inn- kaupaferð og afslöppun á haustmánuðum. Ekki má gleyma því öryggi sem þessu fylgir, s.s ef flug legðist af tíma- bundið af einhverjum ástæðum sem gætu verið s.s.í líkingu við það sem gerðist í New York og Washington 11. sept sl. Í dag hvílir allur okk- ar farþegaflutningur frá Íslandi á einum þræði eins og Katrín nefndi réttilega, sem er Flug- leiðir, hvað ef það leggst niður, Eim- skip með farþegarými fyrir 4 far- þega á tveggja vikna fresti. Ferja u.þ.b. 120 til 150 metra löng kostar sitt, en nýtist allt árið þar sem við sjálfir Ís- lendingar tökum ákvörðun um tilhögun þess. Nýja ferju- bryggjan á Seyðisfirði kostaði mikið en nýtist aðeins nokkra mánuði á ári. Það hlýtur að verða að vera for- gangsverkefni stjórn- valda að tryggja að ferju- og farþegasigl- ingar verði hafnar á ný frá Reykjavík til Evrópu í samvinnu við Eimskip eða Samskip eða ein- hverja þá aðila sem hefðu til þess burði og áhuga enda verði verkefnið styrkt fyrstu árin til þess að tryggja framgang þess. Þetta myndi auka verulega straum farþega sem fara fram á þægindi um borð, sem ekki eru fyrir hendi í þeirri erlendu ferju sem stundar sumarsigliningar og er okkar eina sjóleið frá Íslandi í dag. Með þessu er ég ekki að kasta rýrð á ferjusiglingar Færeyinga til Aust- fjarða, en eingöngu að bæta við þess- um möguleika, og að tryggja sigling- ar allt árið, og þar með þá möguleika sem felast í sjóleiðinni til Evrópu. Ég vil hvetja alla alþingismenn til þess að veita þessu framtaki Katrínar Fjeldsted brautargengi. Katrín Fjeldsted reifaði þetta svo vel í grein sinni sem birtist í Mbl. 24. febrúar sl. Og á hún þar miklar þakkir skilið. Sjóleiðin til Evrópu Guðjón Jónsson Siglingar Við Íslendingar, segir Guðjón Jónsson, eigum að eiga okkar ferju og farþegaskip, sem siglt gæti allan ársins hring. Höfundur er fyrrverandi skipstjórnarmaður. M O N S O O N M A K E U P lifandi litir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.