Morgunblaðið - 30.05.2002, Page 65

Morgunblaðið - 30.05.2002, Page 65
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. MAÍ 2002 65 MYNDIN heitir P.S., er hálftíma löng og höfundur hennar er Árni Ólafur Ásgeirsson, íslenskur kvik- myndagerðarmaður sem stendur á þrítugu. En í Cannes er myndin sögð pólsk. Ástæðan? Árni stundaði nám við Pólska kvikmyndaskólann í Lodz, myndin er útskriftarverkefni hans, fjármögnuð af skólanum, allt samstarfsfólkið pólskt, að undan- skildum leikmyndahönnuðinum Eggerti Ketilssyni, og myndin er á pólsku. Hún er í hópi 16 stuttmynda sem taka þátt í sérstakri skóla- myndakeppni sem heitir Cinéfonda- tion og hefur verið við lýði síðan 1998. Fyrstu verðlaun í keppninni eru peningaverðlaun að verðmæti rúmlega 1,2 milljóna króna, önnur verðlaun 960 þúsund krónur og þar að auki skuldbindur hátíðin sig til þess að sýna fyrstu mynd sigurveg- arans í fullri lengd. Og það er dóm- nefnd skipuð valinkunnum kvik- myndagerðarmönnum, með Martin Scorsese í broddi fylkingar, sem vel- ur sigurmyndina. Árni sendi mynd sína inn í febrúar og var hún valin úr hópi einna 750 sem sendar voru inn. Myndin er orð- in ársgömul og hefur þegar verið sýnd í kvikmyndahúsi á Íslandi. „Cannes er fyrsta hátíðin sem ég sendi myndina á og þessi tilnefning á örugglega eftir að greiða leið hennar á aðrar enda verða útsendarar frá þeim viðstaddir sýninguna,“ segir Árni í samtali við blaðamann í garði Norrænu kvikmyndastofnananna, á annarri hæð húsbyggingar sem stendur við La Croisette breiðgöt- una í Cannes. Árni brautskráðist sem kvik- myndagerðarmaður frá Pólska kvik- myndaskólanum síðasta vor, eftir fimm ára nám. „Ég byrjaði í skól- anum 1995. Fyrsta árið nam ég pólsku og kvikmyndagerðarnámið varði í fjögur ár.“ Í sama skóla og Kieslowski og Polanski – Hvers vegna Pólski kvikmynda- skólinn? „Ævintýraþrá. Mig langaði í aust- urátt, til að kynnast nýju fólki. Hafði kynnt mér skólann, leist vel á og sótt því bara um.“ – Hafa einhverjir nafntogaðir kvikmyndagerðarmenn stundað þar nám? „Já, Kieslowski og Polanski m.a.“ – Var inntökupróf í skólann? „Já ég sendi inn fyrstu stuttmynd sem ég gerði ásamt félaga mínum Róberti Douglas (Íslenski draumur- inn). Hún hét Gaddavír í gelgjunni og fékk á sínum tíma 3. verðlaun á Stuttmyndadögum í Reykjavík. Ég var alveg pottþéttur á því að skóla- yfirvöld myndu falla fyrir þessari snilld en þau rifu hana gjörsamlega í tætlur. Ég var þó tilbúinn að viður- kenna mistökin og það réð trúlega úrslitum um að mér var boðin inn- ganga í skólann samt sem áður.“ – Hvernig var að búa í Póllandi? „Ég bjó í Lodz sem er milljón manna borg, sú næststærsta í Pól- landi á eftir Varsjá. Hún er iðnaðar- borg og hafði upp á voðalega lítið að bjóða þegar ég kom þangað fyrst. Þá voru t.d. bara tvö kaffihús þar, sem voru ekki einu sinni þétt setin því fólk fór yfirhöfuð voðalega lítið út úr húsi. Síðan þá hefur borgin skánað mjög mikið.“ – En þú hefur samt ekkert hugsað þér að setjast þar að til frambúðar? „Nei, borgin hefur ekkert upp á að bjóða eftir að náminu lýkur. Það fara allir til Varsjár en mig langaði ekki þangað. Ég er fluttur heim.“ Draumur og Maður – Um hvað fjallar svo P.S.? „Hún er mynd um unga pólska konu sem hefur búið í Lundúnum í tvö ár og hefur ákveðið að ganga að eiga breskan mann. En áður verður hún að snúa aftur til heimalandsins, í litla þorpið sem hún ólst upp í til að uppfylla fjölskylduhefð sem er í því fólgin að allar konur í fjölskyldunni hafa gifst í sama brúðarkjólnum. Svo kemur í ljós hvers vegna hún fór og hún neyðist til að gera upp fortíð sína.“ – Þú átt handritið einn eða hvað? „Já en ég naut mikillar aðstoðar aðalkennara míns Andrzej Mellin sem er minn lærifaðir. Hann kenndi mér allan grunninn á fyrsta ári og síðan valdi ég hann til að leiðbeina mér við gerð lokaverkefnisins.“ – Hefur hann átt marga nemendur sem náð hafa þessum árangri? „Nei, þetta er fyrsta myndin sem kemst til Cannes sem hann er list- rænn leiðbeinandi að en Pólski kvik- myndaskólinn hefur samt átt full- trúa í Cinéfondation-keppninni öll árin sem hún hefur verið haldin.“ – Eru allir þátttakendur í mynd- inni nemendur í skólanum? „Nei, nei. Leikararnir eru allir at- vinnuleikarar. Reyndar voru aðal- leikararnir í sama skóla og ég en auk þeirra lék í myndinni eldri kona sem er búin að vera í bransanum í 30 ár.“ Kvikmyndagerð er hópvinna – Hvað gerist svo næst hjá þér? „Í haust er ég að fara að gera stuttmynd í Danmörku fyrir danskt fyrirtæki og svo er ég farinn að skrifa handrit að mynd í fullri lengd ásamt skólafélaga mínum úr Pólska kvikmyndaskólanum, Denijal Has- anovic.“ – Það á vel við þig að skrifa með öðrum. „Já, nú orðið get það bara ekki einn, missi hreinlega geðheilsuna ef ég sit einn lengur en í tíu daga fyrir framan tölvu. Þess vegna verð ég að hafa einhvern með mér. Við Hasan- ovic erum reyndar að vinna tvö handrit saman í einu, eitt fyrir mig og eitt fyrir hann og við skiptumst á að skrifa þau og eyðum viku í hvort. Það virkar mjög vel.“ – Eftir nám í Póllandi er stílinn þinn þá ekki afgerandi pólskur? „Pólska kvikmyndahefðin er nátt- úrlega mjög sterk, en grundvallar- heimspeki hennar er að maður verð- ur að geta sagt sögur með myndum. Í skólanum megum við til dæmis ekki búa til myndir með tali fyrstu tvö árin. Spennan felst ekki í hvað leikarinn segir heldur hvað hann gerir á meðan hann segir það. Þetta gerir pólsku hefðina mun mynd- rænni en t.d. þá bresku sem á rætur sínar að rekja til leikhússins og bók- menntanna.“ Árni Ólafur Ásgeirsson á mynd í stuttmyndakeppni í Cannes P.S. frá Póllandi Árni Ólafur Ásgeirsson nam kvikmyndagerð í Póllandi og nú er út- skriftarverkefni hans, stuttmyndin P.S., tilnefnd til verðlauna í sér- stökum skólamyndaflokki í Cannes. Skarphéðinn Guðmundsson kynntist þessum efnilega kvikmyndagerðarmanni nánar í Cannes. Morgunblaðið/Halldór Kolbeins Árni Ólafur Ásgeirsson í veðurblíðunni á kvikmyndahátíðinni í Cannes. skarpi@mbl.is Sýnd kl. 6, 8 og 10. Vit 384. Stærsta bíóupplifun ársins er hafin! 1/2 kvikmyndir.is 1/2 kvikmyndir.com  Tímaritið Sánd  SV Mbl Hasartryllir ársins  kvikmyndir.is Sýnd kl. 8 og 10. Vit 377.B.i 16.  kvikmyndir.is Sýnd kl. 6. Ísl tal. Vit 358. 150 kr. í boði VISA ef greitt er með VISA kreditkorti Sýnd kl. 6. Vit 379.Sýnd kl. 8. Vit 367 Mögnuð margverðlaunuð mynd í anda PulpFictionsem er það ófyrirsjáanleg að það er hreint unum að horfa á hana. Sýnd kl. 7.15. B.i. 12. Vit 335. Sýnd kl. 7, 8.30 og 10. Stranglega bönnuð innan 16. Vit 381. Sýnd kl. 6.55. B.i. 16.Vit nr. 360. DV ÓHT Rás 2 DV Kvikmyndir.is  Mbl  Kvikmyndir.com The ROYAL TENENBAUMS Sýnd kl. 9.30. Vit 337. Hverfisgötu  551 9000 Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 10. 1/2kvikmyndir.is 1/2RadióX kvikmyndir.com  DV Yfir 35.000 áhorfendur! fi 42. f ! SándStærsta bíóupplifun ársins er hafin! 1/2 kvikmyndir.is 1/2 kvikmyndir.com  Tímaritið Sánd  SV Mbl  Rás 2 Sýnd kl. 5, 8 og Powersýning kl. 10.40. B. i. 10. www.regnboginn.is Sýnd kl. 6. Ísl. tal.  SV Mbll Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.  SV Mbl  HK DV Sýnd kl. 10.30. B. i. 16. Yfir 25.000 áhorfendur Power- sýning kl. 10.40

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.