Morgunblaðið - 30.05.2002, Síða 68
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 30. MAÍ 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
Lágmúla og Smáratorgi
opið kl. 8-24
alla daga
MUNUR á hæsta og lægsta verði
körfu með um það bil 35 tegundum af
grænmeti og ávöxtum er 88%, sam-
kvæmt nýrri verðkönnun ASÍ. Bónus
er með lægsta verðið og hæsta verðið
er í Sparkaupum á Seyðisfirði.
Bónus er eina verslunin þar sem
karfan kostar undir 2.000 krónum,
eða 1.799 krónur. Sparkaup.is kemur
næst, en þar kostar karfan 2.151 kr.,
eða 20% meira en í Bónus. Nettó er í
þriðja sæti, þar kostar karfan 2.205
krónur, og er munurinn því 23% í
samanburði við Bónus. Karfan í
Krónunni kostar 2.297 krónur, sem
er 28% meira en í Bónus. Karfan
kostar undir 2.500 krónum í fimm
verslunum, það er fyrrgreindum fjór-
um búðum og Kaskó í Keflavík, þar
sem hún kostar 2.381 krónu. Dýrasta
karfan í könnuninni var í Sparkaup-
um á Seyðisfirði, þar sem hún kostaði
3.388 krónur, samkvæmt niðurstöð-
um ASÍ. Verðlagseftirlit ASÍ fram-
kvæmdi verðkönnun á 62 tegundum á
grænmeti og ávöxtum og hnetum á
öllu landinu 24. apríl síðastliðinn og
er verð í fyrsta skipti vegið eftir
neyslu á viðkomandi tegundum, sam-
kvæmt skiptingu Hagstofu, segir
ASÍ.
Verð var kannað í Bónus Holta-
görðum og á Ísafirði, 10–11 í Glæsibæ
og á Akureyri, Nýkaupum í Kringl-
unni, Hagkaupum í Skeifunni og á
Akureyri, Krónunni í Skeifunni og á
Selfossi, Nóatúni í Nóatúni og í
Keflavík, 11–11 á Laugavegi og í
Vestmannaeyjum, Nettó í Þöngla-
bakka og á Akranesi, Sparkaupum í
Stigahlíð og á Seyðisfirði, versluninni
Strax í Hófgerði og á Siglufirði, Spar-
verslun.is í Bæjarlind, Samkaupum
við Miðvang og á Egilsstöðum, Fjarð-
arkaupum í Hafnarfirði, Úrvali á Dal-
vík og á Húsavík, Kjarvali í Hvera-
gerði og í Vík í Mýrdal, Kaskó í
Keflavík, Kaupfélagi Skagfirðinga á
Sauðárkróki og KÁ á Selfossi.
Fjarðarkaup 11%
ódýrari en Hagkaup
Ávaxta- og grænmetiskarfan kost-
ar frá 2.503 krónum og upp í 2.900
krónur í sex verslunum. Er þar um að
ræða Fjarðarkaup, Úrval, Hagkaup,
Samkaup Hafnarfirði, 10–11 og KÁ á
Selfossi. „Fjarðarkaup og Hagkaup
hafa lengi barist á Stór-Reykjavíkur-
svæðinu og er munurinn þar á milli
11%, Fjarðarkaupum í hag. Karfan í
Fjarðarkaupum kostar 2.503 en 2.702
í Hagkaupum,“ segir ASÍ.
Níu verslanir eru í dýrasta flokkn-
um, þar sem karfan kostar 2.900
krónur eða meira, og er um að ræða
verslanirnar Nóatún, Kaupfélag
Skagfirðinga á Sauðárkróki, Sam-
kaup á Egilsstöðum, 11–11, Kjarval,
Strax, Sparkaup í Stigahlíð og Spar-
kaup á Seyðisfirði. Fimmtán prósent-
um munar á dýrustu og ódýrustu
versluninni í þessum flokki.
Nýkaup var enn starfandi þegar
könnunin var gerð og kemur fram að
karfan hafi mælst 12% dýrari þar en í
Hagkaupum, sem tekið hafi við af
Nýkaupum. Sú breyting virðist því
neytendum í hag.
Borið var saman verð milli versl-
ana í sömu verslanakeðju á tveimur
mismunandi stöðum að þessu sinni og
mældist marktækur munur á verði
hjá Samkaupum Hafnarfirði og á Eg-
ilsstöðum en þar munar 322 krónum
á körfunni, eða 12%. Munurinn á
Sparkaupum í Stigahlíð og á Seyð-
isfirði er nokkru minni, 234 krónur,
eða 7%. Er verð í báðum tilfellum
hærra úti á landi.
ASÍ gerir verðkönnun á ávöxtum og grænmeti í 18 verslunum víða um land
Um 88% munur er á
hæsta og lægsta verði
Verðkönnun /28–29
BOÐAÐ verður til hluthafafundar
í SR-mjöli hf. í kjölfar kaupa Síld-
arvinnslunnar hf. í Neskaupstað
og Samherja hf. á Akureyri á ráð-
andi hlut í félaginu fyrr í vikunni.
Síldarvinnslan og Samherji eign-
uðust fyrr í vikunni samtals tæp-
lega 42% í félaginu, Síldarvinnslan
um 29% hlut og Samherji hf. tæp
13%. Þorsteinn Már Baldvinsson,
forstjóri Samherja, sagði í samtali
við Morgunblaðið í gær að orðið
hefði samkomulag um að boða til
hluthafafundar í SR-mjöli eftir
eignarhaldsbreytingarnar, en end-
anleg dagsetning lægi þó ekki fyr-
ir.
Þorsteinn Már segir ljóst að
fiskmjölsverksmiðjum hér á landi
eigi eftir að fækka í nánustu fram-
tíð. „Það eru mjög margar
bræðslur á Íslandi miðað við ná-
grannalöndin. Þeim fylgir mjög
dýr endurnýjun á búnaði og við-
hald er sömuleiðis mjög kostnað-
arsamt. Ég hef lengi verið þeirrar
skoðunar að verksmiðjunum muni
fækka og þær sem eftir verði muni
stækka. Ég er hins vegar ekki
tilbúinn til að segja til um það á
þessu stigi málsins hvaða verk-
smiðjum verður lokað.“
Sterk eignarhaldstengsl
Síldarvinnslan og Samherji
tengjast sterkum eignarhalds-
böndum. Fjórir hluthafar eiga
meira en 10% hlutafjár í Síldar-
vinnslunni, en þeir eru Snæfugl
ehf., sem á 18,86% hlut, Burðarás
ehf., sem á 18,05% hlut, og Sam-
vinnufélag útgerðarmanna, sem á
15,8% hlut. Samherji keypti í gær
hlutabréf í Síldarvinnslunni fyrir
um 38 milljónir króna að nafnverði
og á því nú um 16,3% hlut í félag-
inu. Fimmti stærsti hluthafi Síld-
arvinnslunnar er Kaldbakur fjár-
festingarfélag hf., sem á 5,7% hlut.
Samherji á ríflega helmingshlut í
Snæfugli og um 17% hlut í Kald-
baki.
SR-mjöl hefur á undanförnum
árum fjárfest mikið í útgerðar-
félögum til að tryggja fyrirtækinu
hráefni og kvótastaða félagsins í
uppsjávartegundum hefur aukist
mikið í kjölfar þessara fjárfest-
inga. Fyrirtækið ræður nú beint
eða óbeint yfir um 11% loðnukvót-
ans, rúmum 20% kolmunnakvót-
ans, 12% kvótans í norsk-íslensku
síldinni og ríflega 4% kvótans í Ís-
landssíld. Með ráðandi hlut í SR-
mjöli má því ætla að Síldarvinnsl-
an og Samherji, sem fyrir voru tvö
af öflugustu uppsjávarútgerðarfyr-
irtækjum landsins, ráði nú beint
eða óbeint yfir mjög stórum hluta
af veiðiheimildum í uppsjávarfiski.
Hluthafafundur verður
haldinn hjá SR-mjöli
Síldarvinnslan/C1
KYLFINGAR landsins flykkjast nú
út á golfvelli til að sýna tilþrif á
teigum og flötum á gaddaskóm með
kylfur sínar af öllum gerðum. Golf-
íþróttin er ein útbreiddasta íþróttin
í heiminum og nýtur gríðarlegra
vinsælda á Íslandi, enda eru góðir
vellir víða.
Kylfingarnir, sem voru á Graf-
arholtsvelli, nutu sín til hins ýtrasta,
léttklæddir í ágætisveðri en ekki
fylgdi sögunni hvort og þá hver
þeirra hafi verið undir vallarpari og
þaðan af síður hvort púttarinn hafi
verið að ná erni eða skolla.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Púttað í
Grafarholti
TILKYNNT var í gær að Ólafur
Stefánsson, handknattleiksmaður
hjá Magdeburg, hafi verið kjörinn
besti leikmaður
þýsku deilda-
keppninnar ann-
að árið í röð af
þjálfurum og
fyrirliðum liða í
úvalsdeildinni
þar í landi en
einnig taka
landsliðsþjálf-
arar Þjóðverja í
karla- og
kvennaflokki
þátt í valinu. Líkt og í fyrra hafði
Ólafur nokkra yfirburði í kjörinu
en á eftir honum komu tveir
fremstu handknattleiksmenn
Svía, Stefan Lövgren og Peter
Gentzel. Það er þýska handknatt-
leikstímaritið Handball Magazin
sem stendur fyrir valinu og þykir
nafnbótin vera mesti heiður sem
handknattleiksmanni hlotnast í
Þýskalandi ár hvert. Ólafur var
hógværðin uppmáluð þegar
Morgunblaðið náði tali af honum í
gærkvöldi, þar sem hann var
staddur í Grikklandi í æfingabúð-
um með íslenska landsliðinu.
„Þetta hjálpar manni ekkert í
leikjum,“ sagði Ólafur sem þá
hafði nýlokið við að skora ellefu
mörk í 28:25 sigri Íslendinga á
Grikkjum í vináttulandsleik í
bænum Kolindros skammt frá
Saloniki í Grikklandi. Vildi sem
minnst úr þessu gera og sagðist
hafa heyrt af þessari niðurstöðu
fyrir hálfum mánuði. Enginn ann-
ar íslenskur handknattleiksmaður
hefur hlotið þessa nafnbót.
Ólafur
bestur
annað
árið í röð
Ólafur
Stefánsson
Ólafur Stefánsson bestur / B1
FYRIRHUGAÐ er að opna þrjár til
fjórar verslanir í nýrri verslanakeðju
á lágvöruverðsmarkaði á höfuðborg-
arsvæðinu í sumar, með áherslu á
sérvöru og matvöru. Matthías Sig-
urðsson, fyrrverandi framkvæmda-
stjóri Nóatúns, stendur á bak við
verslanakeðjuna, ásamt fleiri at-
hafnamönnum.
Að sögn Matthíasar verður í versl-
ununum kynnt ný viðskiptahugmynd
á íslenskum markaði og þannig sé
samkeppni ekki beint að einstökum
verslunum sem fyrir eru á markaðn-
um. Hann segir að viðbrögð mark-
aðarins og viðtökur viðskiptavina
muni ráða endanlegum fjölda versl-
ana. Verslanakeðjan verður rekin í
samvinnu við erlenda verslanakeðju,
sem byggist á svipuðum hugmynd-
um, en Matthías vill ekki upplýsa að
svo stöddu hver hún er. Hann segir
að málin skýrist á næstu vikum og að
fyrstu verslanirnar verði opnaðar
fyrrihluta sumars.
Ný verslana-
keðja opnuð
í sumar
GENGI bréfa deCODE, móður-
félags Íslenskrar erfðagreiningar,
lækkaði um 27 sent á bandarískum
hlutabréfamarkaði í gær, eða um
4,65%, og stendur hluturinn í 4,65
Bandaríkjadölum og hefur aldrei
farið lægra. Lægst fór gengi bréf-
anna í 4,44 dali á hlut í gær. Fyrir
daginn í gær var lægsta gengi bréfa í
deCODE 4,78 dollarar á hlut en á
síðustu 12 mánuðum hefur gengið
farið hæst í 15,15 dollara á hlut.
Gengi deCODE
aldrei lægra
♦ ♦ ♦