Morgunblaðið - 01.08.2002, Side 4
FRÉTTIR
4 FIMMTUDAGUR 1. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ENGAR breytingar verða á
bensínverði hjá ESSO um þessi
mánaðamót en ákvarðanir um
verðbreytingar hjá Skeljungi
og Olís munu liggja fyrir í dag.
Magnús Ásgeirsson hjá Olíu-
félaginu/ESSO segir að að svo
komnu máli hafi verið ákveðið
að breyta ekki verði. „Þróun á
mörkuðunum hefur verið upp á
við en gengisþróun hefur unnið
með okkur. Almennt hefur ver-
ið mjög kyrrt á mörkuðunum
undanfarnar vikur, verðið þó
heldur á leið upp. Það kom svo-
lítið skot í fyrradag en ég á
ekki von á það verði til lengd-
ar.“
Óbreytt
verð á bens-
íni hjá ESSO
MORGUNBLAÐIÐ mun
koma út þriðjudaginn 6.
ágúst, daginn eftir frídag
verslunarmanna, og er það
liður í að fjölga útgáfudögum.
Auglýsendur þurfa að
panta og skila inn auglýsing-
um fyrir það blað í síðasta
lagi föstudaginn 2. ágúst.
Auglýsingadeildin verður op-
in frá kl. 9–12 á frídegi versl-
unarmanna fyrir tilkynning-
ar. Símanúmerið er 569-1111.
Fréttavefur Morgunblaðs-
ins á Netinu, www.mbl.is,
mun halda úti fréttaþjónustu
yfir alla verslunarmannahelg-
ina. Þá er hægt að koma
ábendingum um fréttir á
framfæri í síma 861-7970 alla
helgina.
Útgáfudögum
Morgunblaðs-
ins fjölgar
RANGHERMT var í frétt
Morgunblaðsins í gær að íbúar
bæjanna Áss I og II í Hegra-
nesi í Skagafirði væru í far-
banni vegna salmonellusýking-
ar á bænum. Aðeins húsdýrin
eru í banni, og mega þar með
ekki yfirgefa jörðina, og að
sama skapi má engin mjólk
eða aðrar afurðir fara af bæn-
um.
Að sögn yfirdýralæknis,
Halldórs Runólfssonar, er
málið enn í rannsókn og er
niðurstaðna að vænta í fyrsta
lagi í næstu viku.
Orðið farbann hefur þótt
skjóta skökku við þegar um er
að ræða aðgerðir sem þessar.
Hefur sumum þótt nær að
nota orðið sóttkví.
Yfirdýralæknir bendir á, í
þessu sambandi, að sóttkví sé
mun víðtækari og alvarlegri
einangrun en farbann. Í
reglum um farbann vegna
salmonellusýkinga, frá í maí
2000, kemur fram að allur
flutningur dýra til og frá búi
sé bannaður, þar með talið til
slátrunar.
Hauglosun er ekki leyfð
nema í samráði við héraðs-
dýralækni og heilbrigðiseftirlit
og öll umferð manna og tækja
skal takmörkuð eins og kostur
er. Tæki skulu einnig þvegin
og sótthreinsuð eins og kostur
er. Hægt er að veita undan-
þágu frá farbanninu fyrir ein-
staka dýrahópa, enda sé þá að
fullu sannreynt að hópurinn
beri ekki smit.
Salmonella
í Skagafirði
Aðeins
húsdýrin
í farbanni
UNDIRBÚNINGUR fyrir hátíða-
höld víða um land um verslunar-
mannahelgina er nú í fullum gangi
en á annan tug skipulagðra hátíða
fer fram um helgina. Birgir Guð-
jónsson, formaður Þjóðhátíðar-
nefndar í Vestmannaeyjum, segir að
undirbúningur fyrir Þjóðhátíð sé á
lokastigi. Hann segist ekki hafa
heyrt annað en að sala á miðum til
Eyja gangi vel en hefur þó ekki tölu
á hversu margir miðar hafa selst.
„Hingað er komið töluvert af gest-
um og fólk er farið að skoða sig um
og velja tjaldstæði,“ sagði Birgir.
Hann segist ekki geta spáð fyrir um
hversu margir sæki þjóðhátíð í ár,
en það verði þó sennilega ekki færri
en í fyrra en þá hafi verið 8.000 gest-
ir á hátíðinni. Þjóðhátíð hefst í dag
klukkan hálfþrjú með setningu og
messu í dalnum.
Á Akureyri verður fjölskylduhá-
tíðin Ein með öllu haldin um
helgina. Að sögn Haraldar Ingólfs-
sonar, hjá kynningarþjónustunni
Fremri á Akureyri sem sér um
skipulagningu hátíðarinnar, er nógu
að sinna þessa dagana við að ljúka
skipulagningu, en allt hefur gengið
vel hingað til. Haraldur segist ekki
geta sagt til um hversu margir
verða á Akureyri um helgina en að
reynt verði að bjóða upp á skemmt-
un fyrir alla fjölskylduna.
Sigurður Sigurðarson, forsvars-
maður Kántríhátíðarinnar á Skaga-
strönd, segir allt vera í fullum gangi
við undirbúning fyrir helgina. Ekki
sé hægt að segja til um hversu
margt fólk verði á hátíðinni, en vonir
standi til þess að fimm til sex þús-
und manns mæti enda verði fjöldi
atriða í boði.
Í Galtalækjarskógi stendur IOGT
fyrir hátíð um helgina sem fyrri ár
og segir Sigvaldi Bjarnason, land-
vörður í Galtalæk, undirbúningi
vera að ljúka en að hátíðin hefjist í
kvöld með gömlu dönsunum. Hann
segir aðstandendur vonast eftir að
gestir í Galtalæk verði 6.000 eða
fleiri, en miðasala sé rétt að fara í
gang og því ekki hægt að áætla
fjölda gesta strax.
Samkvæmt upplýsingum frá
Veðurstofu Íslands lítur út fyrir að
frá föstudegi til mánudags verði
hæðarhryggur fyrir austan og norð-
austan Ísland en lægð vestur af
landinu. Suðaustlægar áttir, yfirleitt
fremur hægar, verði ríkjandi. Hiti á
landinu verður á bilinu 10–20 stig á
föstudag en 10–22 stig hina dagana
og er gert ráð fyrir að hlýjast verði
norðaustan- og austanlands alla
dagana. Á föstudag er gert ráð fyrir
fremur hægri suðaustlægri átt,
skýjuðu að mestu en þurru að kalla
en síðan rigningu um nóttina vest-
anlands, og annars verði skýjað með
köflum. Á laugardag er spáð suð-
austan 5–10 og súld með köflum á
vestanverðu landinu, skýjað verður
að mestu suðaustanlands en annars
bjart með köflum. Á sunnudag og
mánudag er gert ráð fyrir suðlæg-
um áttum, rigningu eða súld með
köflum vestan til, skýjuðu en úr-
komulitlu suðaustanlands og annars
skýjuðu með köflum. Veðurstofan
bendir á að spár geti breyst og því
sé nauðsynlegt að fylgjast vel með
þeim.
Hátíðahöld verða víða um land um helgina
Undirbúningur
víðast á lokastigi
ALFREÐ Þorsteinsson, stjórnar-
formaður Orkuveitu Reykjavíkur,
segir að kostnaður við nýjar höfuð-
stöðvar Orkuveitunnar við Réttar-
háls hafi ekki farið mikið fram úr
áætlun en upplýsingar um umfram-
kostnað verði ekki veittar fjölmiðlum
fyrr en eftir stjórnarfund hinn 23.
ágúst nk.
Skv. áætlun átti byggingin að
kosta 2,3 milljarða króna en í Morg-
unblaðinu í gær var greint frá því að
ljóst er að kostnaðurinn muni fara
fram úr þessari upphæð. Guðmund-
ur Þóroddsson, forstjóri Orkuveit-
unnar, segir að meginástæðan fyrir
auknum kostnaði sé tafir vegna þess
að danskt fyrirtæki, sem framleiðir
utanhússklæðningu á annað húsið,
afhenti ekki klæðninguna á réttum
tíma. Aðspurður segir hann að dag-
sektir leggist á danska fyrirtækið en
sektirnar dugi þó ekki fyrir kostnaði
vegna tafanna. Fleira hefur orðið til
þess að byggingarkostnaður fór
fram úr áætlun en eðlilegt sé að
stjórn fyrirtækisins fái nákvæmar
upplýsingar um umframkostnað á
undan fjölmiðlum.
Höfuðstöðvar
Orkuveitu Reykjvíkur
Ekki mikið
fram úr
áætlun
LEIFUR Eiríksson, bifvélavirki
og starfsmaður vélaverkstæðisins
Kistufells, fagnar því þessa dag-
ana að 50 ár eru liðin frá því að
hann hóf störf hjá verkstæðinu,
en hann er jafnframt elsti starfs-
maður fyrirtækisins og hefur
starfað þar frá upphafi. Alls eru
nú 56 ár síðan Leifur hóf störf við
greinina en hann nam bifvéla-
virkjun í Iðnskólanum í Reykja-
vík.
„Fyrstu sex árin sem ég var í
faginu var ég hjá Hrafni Jóns-
syni, en þar var ég líka lærlingur.
Ég útskrifaðist úr Iðnskólanum
1949 og tók sveinspróf ári síðar,
en 4. ágúst 1952 hóf ég störf hjá
Kistufelli sem þá hafði einungis
verið starfrækt í nokkra mánuði,“
segir Leifur.
Hann segist vera ánægður með
starf sitt, sem felst í viðgerðum á
vélum bíla, báta og vinnuvéla, og
eru vélarnar sem hann fær til við-
gerðar af öllum stærðum og gerð-
um.
Þrátt fyrir að hann sé orðinn
74 ára er hann ekki á leiðinni að
hætta. „Mér hefur líkað mjög vel
í þessu starfi, annars væri ég
löngu hættur. Ég hef ekki hugsað
mér að hætta strax, ég kann
hreinlega ekki að slæpast og veit
ekki hvað það er,“ segir Leifur.
Helsta áhugamál Leifs fyrir utan
starfið er hestamennska, en hann
á hesta sem hann sinnir í frí-
stundum. Auk þess á hann sumar-
bústað og segir gott að fara
þangað og dytta að honum þegar
tími gefst til.
Leifur segir að ýmsar breyt-
ingar hafi orðið á fyrirtækinu og
starfsumhverfi frá því að hann
hóf störf. Kistufell var lengi vel
til húsa í Brautarholti 16 en flutti
fyrir nokkrum árum upp á Tang-
arhöfða 13, þar sem það er nú að
finna. Þá hafi nokkrar breytingar
orðið á starfsfólki og stjórn-
endum fyrirtækisins á síðustu 50
árum eins og gefur að skilja.
Kistufell var upphaflega stofn-
að af bræðrunum Guðmundi Jón-
assyni og Jónasi Jónassyni. Sonur
Guðmundar, Skúli, er nú forstjóri
fyrirtækisins, en hann var ein-
ungis 10 ára patti þegar Leifur
hóf störf hjá Kistufelli og man
Leifur eftir því þegar Skúli kom
sem krakki til að fylgjast með
starfinu og verkstæðinu og skoða
tækin, áður en hann hóf svo sjálf-
ur nám í bifvélavirkjun.
Leifur segist telja að ekki séu
margir bifvélavirkjar á sínum
aldri starfandi við fagið í dag.
„Ég gæti vel ímyndað mér að ég
væri elsti starfandi bifvélavirki á
landinu, að minnsta kosti er ég
meðal þeirra elstu,“ segir Leifur
að lokum.
Leifur Eiríksson, elsti starfandi bifvélavirki á landinu?
Morgunblaðið/Kristinn
Við þennan rennibekk hefur Leifur starfað síðastliðin 38 ár, en hann hefur verið starfsmaður Kistufells í 50 ár.
Hefur unnið á sama
vélaverkstæði í hálfa öld