Morgunblaðið - 01.08.2002, Síða 6
FRÉTTIR
6 FIMMTUDAGUR 1. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
VILHJÁLMUR Egilsson, formað-
ur efnahags- og viðskiptanefndar
Alþingis, segist draga þá ályktun
af niðurstöðu Fjármálaeftirlitsins
að upphaflegt tilboð Búnaðarbank-
ans í tengslum við hlutafélagavæð-
ingu SPRON sé fallið um sjálft
sig. Álitamálið sem menn standi
frammi fyrir í dag varði hins vegar
hvernig beri að túlka lagaákvæði
um hámarksatkvæðisrétt í spari-
sjóði.
Skv. lögum um viðskiptabanka
og sparisjóði er einstökum stofn-
fjáreigendum aldrei heimilt að
fara með meira en 5% af heildar-
atkvæðamagni í sparisjóði og
hugsanlega má líta svo á að mati
Vilhjálms að hópur stofnfjáreig-
enda sem komnir eru í samnings-
samband við þriðja aðila um fram-
sal stofnfjárbréfa geti ekki farið
með meira en 5% atkvæðamagn
sameiginlega. Mikilvægt sé að fá
skýr svör Fjármálaefitlitsins um
þetta fyrir fund stofnfjáreigenda í
SPRON 12. ágúst. Var þetta til
umræðu á fundi efnahags- og við-
skiptanefndar í fyrradag.
,,Ég tel að sá þáttur í upphaf-
legu tilboði og áformum Búnaðar-
bankans sem snýr að hlutafjár-
væðingu SPRON og sameiningu
SPRON sem hlutafélags við Bún-
aðarbankann sé fallinn um sjálfan
sig og gangi ekki upp,“ segir Vil-
hjálmur. ,,Málið snýst að mínu
mati ekkert um það lengur. Það er
því ekkert gat í lögunum vegna
þeirra breytinga sem gerðar voru
2001,“ segir hann.
,,Það datt engum í hug að það
myndi einhver sjá sér hag í því
að kaupa stofnfé dýrum dómum
til þess að ná völdum í sparisjóð-
um með þessum hætti. Þess
vegna voru menn ekkert að hafa
áhyggjur af því. En það sem mál-
ið veltur á núna er að mínum
dómi túlkun á ákvæðum um há-
marksatkvæðisrétt í sparisjóði,“
segir Vilhjálmur og vitnar í
þessu sambandi í 35. grein laga
um viðskiptabanka og sparisjóði
en þar segir: ,,Stofnfjáreigendur
skulu eiga jafnan hlut nema sam-
þykktir heimili annað. Stofnfjár-
eigendur skulu eiga jafnan at-
kvæðisrétt nema öðruvísi sé
ákveðið í samþykktum sparisjóðs.
Þó er einstökum stofnfjáreigend-
um aldrei heimilt, fyrir sjálfs sín
hönd eða annarra, að fara með
meira en 5% af heildaratkvæða-
magni í sparisjóði, sbr. þó 98. gr.
ef sveitarfélag er eini stofnfjáreig-
andinn. Óheimilt er að fara með
atkvæðisrétt samkvæmt þeim
stofnfjárbréfum sem sparisjóður á
sjálfur, sbr. 19. gr. Þar sem talað
er um heildaratkvæðamagn í
sparisjóði í lögum þessum er átt
við heildaratkvæðamagn að frá-
dregnum atkvæðum samkvæmt
þeim stofnfjárbréfum sem spari-
sjóður á sjálfur.“
Vilhjálmur segir að fá þurfi skýr
svör við þeirri spurningu hvort
hópur stofnfjáreigenda, sem eru í
samningssambandi við þriðja aðila,
geti reiknað sitt atkvæðavægi á
5%. ,,Ef komið er á samningssam-
band við þriðja aðila, þ.e.a.s. Bún-
aðarbankann, um þeirra atkvæði
þá er spurningin sú hvort ekki
beri að líta svo á að allur sá pakki
megi bara vera 5%. Þetta á jafnt
við um þá sem eru komnir í samn-
ingssamband við Búnaðarbankann
og eins þá sem komnir eru í samn-
ingssamband við félag sem starfs-
mennirnir eru að stofna.
Ég tel að það þurfi að koma al-
gjörlega skýrt fram hjá Fjármál-
eftirltinu hvort svona tengsl, sem
eru augljós, þar sem fyrir liggja
tilboð og samningssamband er á
milli þessara aðila, hefur áhrif á
talningu á hámarksatkvæðarétti.
Ef Fjármálaeftirlitið metur það
svo að þegar svona samningssam-
band er til staðar verði að líta á
allan hópinn sem einn aðila, þá
mundi það þýða að sá aðili getur
ekki farið með meira en 5%,“ segir
hann.
Vilhjálmur Egilsson segir álitamál hver verði atkvæðisréttur stofnfjáreigenda
Hugsanlegt að hópur-
inn geti ekki farið með
meira en 5% atkvæða
ARI Bergmann Einarsson, formaður stjórnar
Starfsmannasjóðs SPRON ehf., segir að tekist
hafi að afla bindandi sölusamninga á ríflega
þriðjungi stofnfjár í sparisjóðnum. Auk þess hafi
Starfsmannasjóðurinn undir höndum söluloforð,
umboð og loforð um stuðning við sjónarmið
starfsmanna.
Tilboðsfrestur átti upphaflega að renna út í
fyrrakvöld en stjórn Starfsmannasjóðsins hefur
ákveðið að framlengja frestinn til kl. 16 í dag,
þar sem ekki hefur enn náðst til allra stofnfjár-
eigenda.
Í fréttatilkynningu frá félaginu í gær segir að
stjórn sjóðsins telji að þetta muni nægja til þess
að tilboð Starfsmannasjóðsins nái fram að ganga
á fundi stofnfjáreigenda 12. ágúst, verði það
samþykkt af Fjármálaeftirlitinu og framsal
stofnfjárbréfa heimilað af stjórn SPRON.
,,Við teljum okkur vera komin með þá stöðu að
við þurfum ekki að hafa áhyggjur lengur að öðru
leyti en því að við bíðum þess hvort tilboðið verði
samþykkt af Fjármálaeftirlitinu,“ segir hann.
Á ekki von á svari Fjármálaeftilits
fyrir fundinn 12. ágúst
Að sögn Ara er ekki vitað hvenær afstaða
Fjármálaeftirlitisns mun liggja fyrir en það hafi
fjórar vikur til að fjalla um málið skv. lögum.
Þess sé því ekki að vænta að afstaða Fjármála-
eftirlitsins muni liggja fyrir fyrir fund stofnfjár-
eigenda 12. ágúst.
Aðspurður af hverju gera ætti ráð fyrir að
Fjármálaeftirlitið samþykkti frekar tilboð Starfs-
mannasjóðsins en yfirtökutilboð Búnaðarbank-
ans og fimm stofnfjáreigenda sagði Ari að
grundvallarmunur væri á tilboðunum, ,,sem ligg-
ur í því að við erum að tala um að kaupa ein-
ungis stofnfé SPRON og að SPRON verði rekið
áfram með sama hætti og verið hefur þannig að
honum verði ekki breytt í hlutafélag. Búnaðar-
bankinn var hins vegar að tala um að mynda hóp
30 leppa til að fara í kringum nýsett lög Alþing-
is, og reyndar með þingmann í broddi fylkingar“,
segir hann.
Stofnfjáreigendurnir fimm hafa í samráði við
Búnaðarbankann ákveðið að greiða kaupverð inn
á lokaðan reikning í eigu þess stofnfjáreiganda
sem selur strax við undirskrift og gildir það til-
boð til hádegis á föstudag. Aðspurður kveðst Ari
ekki telja að þetta útspil muni hafa nein áhrif.
,,Ég stórefast um að bankastjórar Búnaðarbank-
ans og bankaráðsformaður, sem eru miklir
sómamenn, geri sér grein fyrir þeim glannaskap
sem er í gangi,“ sagði Ari.
Hafa náð samningum um
ríflega þriðjung stofnfjár
Starfsmannasjóður SPRON telur að tilboðið nái fram að ganga
LANDMANNALAUGAR hafa náð
fyrri hita sínum og er ferðalöngum
ekkert að vanbúnaði að njóta ver-
unnar í náttúrulegri lauginni, að
sögn skálavarðar, Helga Hjörleifs-
sonar. Fréttir í lok júnímánaðar
þess efnis að laugin væri köld eru
að mati Helga oftúlkanir á nátt-
úrulegu ferli vorleysinga, sem ár-
lega kæla laugina í júnímánuði og
byrjun júlí. Snjór var lítill í vetur og
leysingar stóðu meira að segja
styttra yfir en oft áður.
Um miðjan júlí var laugin búin að
ná fyrri kjörhita sínum og orðin
heit, á bilinu 37–45 gráður.
Fjöldi ferðamanna leggur leið
sína í laugarnar, en þar eru erlend-
ir ferðamenn í meirihluta. Nokkuð
sést af Íslendingum, en margir
þeirra skella sér í jeppabíltúr hand-
an jökla um helgar. Hins vegar eru
erlendir hópar í meirihluta hvað
tjaldgesti áhrærir. Býður Helgi alla
gesti velkomna í heimsókn í Land-
mannalaugar, og eru þeir minntir
á, að hafa baðfötin meðferðis.
Morgunblaðið/Rax
Landmannalaugar heitar og góðar
JÓN G. Tómasson, formaður stjórn-
ar SPRON, hefur sent eftirfarandi
orðsendingu til nefndarmanna í efna-
hags- og viðskiptanefnd Alþingis:
„Undir lok nefndarfundarins í gær
[þriðjudag] sagði Árni Tómasson
bankastjóri að hann væri reiðubúinn
til viðræðna við fulltrúa SPRON um
lausn á málum.
Í kvöldfréttum var skýrt frá nýju
staðgreiðslutilboði með samþykki
bankastjórnar Búnaðarbankans og í
Mbl. og Fréttablaðinu í dag [mið-
vikudag] birtist heilsíðuauglýsing,
sem hlýtur að hafa verið samið um
birtingu á áður en bankastjórinn við-
hafði ofangreind ummæli. Í auglýs-
ingunni er boðin greiðsla til stofn-
fjáreigenda 14. ágúst – tveimur
dögum eftir fund stofnfjáreigenda –
og með þeim fyrirvara einum að
stjórn SPRON hafi samþykkt fram-
söl – framsöl gerð á grundvelli samn-
ings sem Fjármálaeftirlitið hefur úr-
skurðað að stjórninni beri að hafna.
Þetta sýnir hvað orð bankastjór-
ans um viðræður eru marktæk. Nú
lofar Búnaðarbankinn greiðslum til
stofnfjáreigenda fyrir að fella stjórn
sparisjóðsins og þetta er bankinn
reiðubúinn að gera þvert á niður-
stöðu Fjármálaeftirlitsins, að maður
nefni nú ekki vilja Alþingis og yfir-
lýstan vilja viðskiptaráðherra.
Ætla alþingismenn og stjórnvöld
að láta þetta ganga yfir sig?“
Orðsending
til nefndar-
manna í efna-
hags- og við-
skiptanefnd
KAUP stofnfjáreigendanna fimm á
stofnfé í Sparisjóði Reykjavíkur og
nágrennis hófust í gær og í frétta-
tilkynningu frá þeim segir að kaupin
hafi gengið framar vonum.
,,Kaupin fara þannig fram að aug-
lýst hefur verið í blöðum, auk þess
sem stofnfjáreigendurnir og starfs-
menn Búnaðarbankans hafa verið
við símann í miðstöð stofnfjáreig-
enda, tekið við símtölum stofnfjár-
eigenda og hringt í þá.
Í samtölum við almenna stofnfjár-
eigendur kemur fram að margir taka
ekki í mál að afsala sér kosningarétti
á fundi stofnfjáreigenda 12. ágúst
næstkomandi. Stofnfjáreigendurnir
fimm og Búnaðarbankinn gera ekki
kröfu um afsal á kosningarétti í til-
boði sínu en með því að samþykkja
tilboð Starfsmannasjóðs Spron ehf.
afsala seljendur sér kosningarétti.
Á fundinum verður meðal annars
kosið um vantrauststillögu Sveins
Valfells á stjórn SPRON og ný
stjórn kosin ef vantraustið verður
samþykkt.
Stofnfjáreigendurnir fimm hafa í
samráði við Búnaðarbanka Íslands
ákveðið að greiða kaupverð stofnfjár
inn á lokaðan reikning í eigu þess
sem selur strax við undirskrift,“ seg-
ir í fréttatilkynningunni.
Segja stofn-
fjáreigendur
ekki vilja af-
sala sér kosn-
ingarétti
♦ ♦ ♦
FJÁRMÁLAEFTIRLITIÐ hefur
umsókn fimm stofnfjáreigenda í
Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis
(SPRON) enn til meðferðar en yfir-
lýsing eftirlitsins er svofelld: „Fjár-
málaeftirlitið vísar til greinargerðar
Jóns Steinars Gunnlaugssonar, hrl.,
sem birtist í Morgunblaðinu 31. júlí
2002, þar sem fram kemur að umbjóð-
endur hans hafi fengið samþykki
Fjármálaeftirlitsins við umsókn sinni
um að þeir teljist hæfir til að eignast
virkan eignarhlut í SPRON. Vegna
þessa vill Fjármálaeftirlitið taka fram
að það hefur umrædda umsókn enn til
meðferðar. Hefur lögmanni fimm
stofnfjáreigenda svo og Búnaðar-
banka Íslands hf. verið gerð rökstudd
grein fyrir framangreindu. Að öðru
leyti vísar Fjármálaeftirlitið til grein-
argerðar þess sem hefur verið birt op-
inberlega af hálfu aðila.“
Yfirlýsing
frá fjármála-
eftirlitinu