Morgunblaðið - 01.08.2002, Síða 8
FRÉTTIR
8 FIMMTUDAGUR 1. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Mannrækt á Hellnum
Hinn óskilyrti
kærleikur
Um verslunarmanna-helgina verðurhaldið á Hellnum
fimmtánda mótið Mann-
rækt undir Jökli.
„Mótin hafa breyst gífur-
lega mikið samhliða breyt-
ingum tíðarandans,“ sagði
Guðlaugur Bergmann er
hann var inntur eftir sögu
þessara mannamóta, en
hann stendur fyrir mótinu
ásamt fleirum.
„Fyrstu tvö mótin voru
haldin á Arnarstapa, síðan
voru þrenn hjón sem
keyptu jörðina í Brekkubæ
á Hellnum og í framhaldi af
því fluttust mótin 1989 að
Hellnum. Árið 1990 komum
við, ég og Guðrún Berg-
mann kona mín, inn í móts-
haldið. Þá var stofnað
hlutafélag um jörðina sem heitir
Snæfellsás ehf og urðum við hlut-
hafar í því. Um tuttugu manns
voru hluthafar í félaginu. Árið 1995
var stofnað Snæfellsáss-samfélag.
Markmið okkar í því samfélagi var
að koma upp vistvænu, sjálfbæru
og andlegu samfélagi hér á Helln-
um.“
– Hvernig hefur þessi starfsemi
gengið?
„Við erum ekki nema sex eftir í
Snæfellsáss-samfélaginu. Við
hjónin lögðum til 1994 að við flytt-
um vestur til þess að fyrrnefnd
hugsjón yrði að veruleika. Við töld-
um að þetta gæti ekki gengið upp
nema að einhver úr hópnum bú-
settist hér vestra til þess að vinna
að þessum málum. Það varð til
þess að fimm aðrir fluttu nokkru
seinna á svæðið. Við byggðum okk-
ur öll hús hérna. Það voru þrjár
fjölskyldur og ein einhleyp kona.
SG-hús á Selfossi byggðu fyrir
okkur vistvæn hús eftir stöðlum
sem við fengum frá Findhorn í
Skotlandi, en það er elsta vistvæna
samfélagið í heiminum. Við sáum
fljótlega að það væri ekki hægt að
reka mannræktarmiðstöð hér, það
gengi ekki upp. Þá fórum við út í
rekstur á gistiheimili, sem nú hef-
ur undið upp á sig þannig að við
getum tekið á móti 25 manns og er
allur húsakostur okkar orðinn eins
vistvænn og hægt er. Við fengum
umhverfisverðlaun Ferðamálaráðs
fyrir árið 2000 og 9. júlí sl. fengum
við fullnaðarvottun frá Greenglobe
21, en það eru stærstu vottunarfyr-
irtæki í heimi. Þau votta aðeins
ferðaþjónustu og skylda starfsemi
og voru stofnuð 1992, þegar merk-
asti samningur sem þjóðir hafa
gert með sér, Dagskrá 21, var sam-
þykkt í Ríó. Það má því segja að
okkur hafi tekist hluti af ætlunar-
verki okkar með þessum árangri.
En við hættum þó aldrei við mann-
ræktarmótin og hér hafa verið
haldin mörg námskeið gegnum ár-
in sem að hafa að gera með mann-
rækt á breiðum grundvelli.“
– Hvað fer fram á þessum mann-
ræktarmótum?
„Eins og ég sagði hefur það
breyst með árunum, einkum sl. tvö
ár, vegna þess að við
rekum umfangsmikið
gistiheimili á svæðinu.
Við ákváðum þess
vegna fyrir tveimur ár-
um að hætta að selja
inn á svæðið og gefa
fólki kost á að koma og gista eða
tjalda á svæðinu og taka þátt í
þeirri dagskrá sem við setjum upp
hverju sinni.“
– Hvað er á dagskrá núna?
„Við erum með jóga, gönguferð í
orkulínuna milli Hellna og Stapa
og þar er síðan hugleitt. Á dagskrá
er og grasaferð, ævintýraferð með
börnunum sem ég er svo lánsamur
að hafa tekið að mér alla tíð. Við
leyfum alltaf börnunum að vera
með okkur í öllu sem fram fer. Þá
er námskeið í jafnvægi í gegnum
orkustöðvarnar. Einnig námskeið í
blóðflokkamataræði. Hægt er að fá
einkatíma í nuddi, heilun, spila-
lestri og ráðgjöf. Við verðum með
helgistund við Maríulindina. Við
erum og með námskeið sem heitir:
Hláturinn lengir lífið og síðan er-
um við með helgiathöfn sem heitir:
Hvernig varðveita konur eldinn. Á
laugardags- og sunnudagskvöld
eru kvöldvökur, þar er friðarat-
höfn, losunarathöfn, dans og söng-
ur. Jón Jóhann er með svitahofið
sitt hér að vanda og það verður
hægt að fá léttar veitingar hjá okk-
ur.“
– Hafa þessi mót verið vel sótt?
„Það er aldrei margt miðað við
stórmótin, enda getum við ekki
tekið á móti nema 200 til 300
manns í mesta lagi. Þess vegna
höfum við ekki verið að auglýsa
mikið. Gistiheimilið okkar er þegar
troðfullt yfir helgina en við bjóðum
upp á svefnpokapláss og tjald-
stæði.“
– Hverjir hafa mestan áhuga á
þessum mótum?
„Fólk sem hefur áhuga á mann-
rækt á breiðum grundvelli. Andleg
vinna byggist ekki aðeins á því að
sitja í lótusstellingum og hugleiða,
hún hefur með það að gera að vinna
úr vandamálum til þess
að maður geti orðið heilli
maður. Allir hafa ein-
hver vandamál sem þeir
þurfa að vinna úr. Ég hef
oft lýst þessu eins og
þegar ostruskelin fær
sandkorn inn í sig. Sandkornið
meiðir hana og særir en hún tekur
þráð og byrjar að vefa utan um
kornið þar til hún er búin að búa til
fallega perlu. Á sama hátt þurfum
við að taka þau korn sem meiða
okkur og vefja utan um þau falleg-
um þræði sem er hinn óskilyrti kær-
leikur. Höfuðmerki hans er fyrir-
gefningin, heimsins fremsti heilari.
Guðlaugur Bergmann
Guðlaugur Bergmann fæddist
í Hafnarfirði 20. október 1938.
Hann lauk prófi úr Verslunar-
skóla Íslands 1958 og stundaði
verslunarstörf eftir það um ára-
bil. Hann stofnaði heildversl-
unina G. Bergmann þegar hann
var tvítugur en þekktastur er
hann fyrir rekstur Karnabæjar,
tískuverslunar, en þær versl-
anir urðu átta þegar mest var.
Nú rekur hann ásamt konu sinni
og fleirum gistiheimili að
Brekkubæ og ferðaþjónustuna
Leiðarljós og bókaútgáfuna
Leiðarljós. Guðlaugur er kvænt-
ur Guðrúnu Bergmann og eiga
þau tvo drengi. Guðlaugur á
þrjú börn frá fyrri samböndum.
Fyrirgefningin
er heimsins
fremsti
heilari
Þið standist sko allar kröfur, herrar mínir, rétt flokksskírteini, úr minni sveit og með
norskt víkingablóð í æðum, og dollara sem Samherji hefur nælt sér í erlendis.
HOLLENSKA aðalkonsúlatið á Ís-
landi hefur látið embætti ríkislög-
reglustjóra vita af kvörtunum Ís-
lendinga sem hafa fengið tölvupóst
frá „Werken bij de lotto“ í Hollandi,
þar sem upplýst er að viðkomandi
hafi unnið háa fjárhæð í bandarísk-
um dollurum, t.d. 1.500.000 dollara.
Ríkislögreglustjóri varar við þessu.
Á vefsvæði ríkislögreglustjóra
kemur fram að í tölvupóstinum er
gefið upp nafn og símanúmer í Hol-
landi sem viðkomandi er beðinn að
hringja í án tafar. Um leið er lögð rík
áhersla á að hinn „heppni vinnings-
hafi“ láti engan vita af þessu óvænta
happi, ella missi hann af vinningn-
um. Þegar fólk hefur haft samband
til að nálgast „stóra vinninginn“ hef-
ur verið farið fram á að vinningshaf-
inn greiði 3.000 evrur, um 250 þús-
und krónur, eða aðra fjárhæð, áður
en hægt er að leggja „vinninginn“
inn á reikning viðkomandi.
Ríkislögreglustjórinn varar fólk
við hvers kyns gylliboðum af þessu
tagi, þar sem verið er að bjóða fólki
háar fjárhæðir fyrir lítið eða ekki
neitt. „Tilgangur slíkra gylliboða er
ýmist sá að komast yfir bankareikn-
ingsnúmer hins „heppna vinnings-
hafa“ í því skyni að misnota hann síð-
ar og/eða fá frá „vinningshafanum“
einhverja fjárhæð, til að unnt sé að
senda honum „stóra vinninginn“.
Þarf ekki að orðlengja, að enginn
hefur orðið ríkur með þessum hætti,
nema þeir sem standa að svikunum.
Alræmd eru svonefnd „Nígeríubréf“
sem borist hafa Íslendingum í mikl-
um mæli á undanförnum árum og
virðist hér vera á ferðinni svikamylla
af svipaðri gerð, í þeim tilgangi að
virkja græðgina í hrekklausu fólki,“
segir á vef ríkislögreglustjóra.
Varað við gylliboðum