Morgunblaðið - 01.08.2002, Page 12
FRÉTTIR
12 FIMMTUDAGUR 1. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
S
UMARSTARFI Jafningjafræðsl-
unnar fer senn að ljúka en alls hafa
um 2.000 ungmenni á aldrinum 14
til 22 ára sótt fræðslu um sjálfs-
myndina og fleira hjá Jafningja-
fræðslunni í júní og júlí. Á þessu tímabili hefur
Jafningjafræðslan frætt allan 9. bekk Vinnu-
skóla Reykjavíkur auk unglinga úr vinnuskól-
um nágrannasveitarfélaganna og ungmenna í
störfum hjá Landsvirkjun og Kirkjugörðum
Reykjavíkur.
Um 20 manns á aldrinum 16 til 25 ára hafa
starfað hjá Jafningjafræðslunni í sumar, að
sögn Ingibjargar Daggar Kjartansdóttur,
framkvæmdastjóra Jafningjafræðslunnar. Sá
hópur hefur þó ekki lokið störfum því í þessari
viku fer hann hringinn í kringum landið og
fræðir allt að 1.000 ungmenni um mikilvægi
þess að hafa góða sjálfsmynd. Meðal við-
komustaða eru Borgarnes, Höfn í Hornafirði,
Hella, Kirkjubæjarklaustur, Sauðárkrókur,
Siglufjörður, Seyðisfjörður og Akureyri. Þetta
er annað árið í röð sem Jafningjafræðslan fer í
slíka hringferð um landið en Essó, Landsbanki
Íslands og Toyota gera, að sögn Ingibjargar
Daggar, þessa ferð mögulega með því að
styrkja verkefnið.
Ingibjörg Dögg segir ferðina í fyrra hafa
tekist vonum framar. „Það er draumur okkar
að sveitarfélögin taki vel í þetta og taki sig
jafnvel til og stofni jafningjafræðslu í sínu
sveitarfélagi eins og nú hefur verið gert í
Fjarðabyggð,“ segir hún.
Ungur fræðir ungan
í Jafningjafræðslunni
Jafningjafræðslan var sett á laggirnar árið
1996, en hún starfar m.a. á vegum Hins húss-
ins, menningar- og upplýsingamiðstöðvar ungs
fólks í Reykjavík. „Við vinnum eftir þeirri hug-
myndafræði að ungir fræði unga,“ útskýrir
Ingibjörg Dögg. „Það sem felst m.ö.o. í okkar
hugmyndafræði er að opna umræður með
ungu fólki, um þau málefni sem á því hvíla.“
Fyrstu ár Jafningjafræðslunnar var að-
allega lögð áhersla á að fræða ungmenni um
skaðsemi áfengis og fíkniefna en að sögn Ingi-
bjargar Daggar var í sumar ákveðið að fara
inn á nýjar brautir og fræða ungt fólk um mik-
ilvægi góðrar sjálfsmyndar. „Við fundum það í
starfi okkar í fyrra að krakkar voru farnir að
velta sjálfsmyndinni mikið fyrir sér. Þeir virt-
ust gera sér grein fyrir því hvaða afleiðingar
það gæti haft að hafa slæma sjálfsmynd og
vildu læra leiðir til að bæta hana,“ sagði Ingi-
björg Dögg.
Ingibjörg Dögg segir að slæm sjálfsmynd
geti m.a. leitt af sér áfengis- og vímuefna-
neyslu, óábyrga kynlífshegðun, ofbeldi, einelti
og fleira í þeim dúr. „Ég tek þó fram að Jafn-
ingjafræðslan er fyrst og fremst forvarnar-
verkefni gegn áfengis- og vímuefnaneyslu
unglinga þótt við höfum tekið þann pól í hæð-
ina að vinna meira út frá sjálfsmynd unglinga.“
Ræða opinskátt við jafningja
Ingibjörg Dögg segir að dæmigerður dagur
með þeim hópi sem Jafningjafræðslan sé að
fræða byrji á því að hrista hópinn saman með
leikjum og öðru sem skemmtilegt þykir. „Síð-
an setjumst við í hring og hefjum umræður,“
útskýrir hún. Fræðslan getur tekið frá þremur
klukkutímum upp í heilan vinnudag; allt eftir
því hvað sveitarfélögin, sem ráða Jafningja-
fræðsluna til verkefnsisins, vilja. Auk þess sem
rætt er um sjálfsmyndina er rætt um kynlíf,
ást, ofbeldi og fordóma svo dæmi séu nefnd.
„Það er ótrúlegt hvað kemur út úr þessu. Ég
held að þessir krakkar fái alltof sjaldan tæki-
færi til að ræða opinskátt um þessi málefni við
jafningja sína.“ Hún segir að krakkarnir séu
opinskáir og tilbúnir að læra meira.
Ingibjörg Dögg segist hafa tekið eftir því í
starfi sínu með ungmennum undanfarin ár að
svo virðist sem ungt fólk viti ekki hvernig eigi
að bæta sjálfsmyndina. „Þau vita að það er
ekki gott að vera með slæma sjálfsmynd en
þau eru sér ekki meðvitandi um hvernig þau
geti bætt hana.“
Við gerum
öll mistök
En hvernig er hægt að bæta slæma sjálfs-
mynd?
„Það er nú engin töfralausn til á því,“ byrjar
Ingibjörg Dögg og heldur áfram: „Ef ungling-
ur er t.d. með mjög slæma sjálfsmynd getur
verið erfitt fyrir hann einan að bæta hana.
Stundum getur því verið gott að leita sér hjálp-
ar, annaðhvort hjá einhverjum sem stendur
honum nærri eða hjá fagaðila.“ T.d. sé hægt að
leita sér hjálpar hjá Hinu húsinu.
Ingibjörg bendir þó á í þessu sambandi að
það sé alltaf gott að hugsa jákvætt og reyna að
breyta neikvæðum hugsunum gagnvart sjálf-
um sér og umhverfinu í jákvæðar hugsanir.
Hún tekur fram að svo virðist sem mikið af
ungu fólki hugsi ekki nógu jákvætt um sjálft
sig. „Stundum biðjum við unglinga að skrifa
niður nokkra kosti sína. Mörgum finnst það
hins vegar ótrúlega erfitt og segjast ekki geta
fundið neitt jákvætt eða eru mjög feimnir við
að segja frá kostum sínum.“ Ingibjörg Dögg
segir að til að styrkja sjálfsmyndina sé einnig
nauðsynlegt að kunna að taka hrósi og læra af
mistökum og geta hlegið að þeim. „Þetta er
mikilvægt því við gerum öll mistök.“
2.000 ungmenni á aldrinum 14–22 ára sækja fræðslu hjá Jafningjafræðslunni
Rætt um mikil-
vægi þess að ungt
fólk hafi jákvæða
sjálfsmynd
Morgunblaðið/Golli
Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, fram-
kvæmdastjóri Jafningjafræðslunnar.
Hjá Jafningjafræðslunni vinna 20 ungmenni á aldrinum 16 til 25
ára. Arna Schram ræddi við framkvæmdastjóra Jafningja-
fræðslunnar, Ingibjörgu Dögg Kjartansdóttur.
arna@mbl.is
FRIÐRIK Sophusson, forstjóri
Landsvirkjunar, segir að það sé al-
gjörlega ótímabært að fjalla um
dómstólaleiðir fáist ekki fram-
kvæmdaleyfi fyrir Norðlingaöldu-
veitu, aðspurður um lagalega stöðu
Landsvirkjunar ef þær aðstæður
sköpuðust að leyfið fengist ekki.
Gísli Már Gíslason, prófessor og
formaður Þjórsárveranefndar,
sagðist í frétt í Morgunblaðinu sl.
laugardag ekki sjá betur en að fara
þyrfti dómstólaleiðina til að
hnekkja ákvörðunum sveitar-
stjórna og Náttúruverndar ríkisins
og jafnvel með einhvers konar
eignaupptöku.
Friðrik segir ekki tímabært að
ræða um það hvað gert verði á
þeim tíma sem gefa þarf út fram-
kvæmdaleyfi fyrir veituna. Í fyrsta
lagi sé eftir að fá úrskurð um mat á
umhverfisáhrifum og í öðru lagi
eigi eftir að gera breytingar á frið-
lýsingu Þjórsárvera. Norðlinga-
ölduveita þurfi sömuleiðis að vera
komin á skipulag áður en til þess
komi að gefa út framkvæmdaleyfi.
Friðrik segir að svo virðist sem
Gísli Már hafi gleymt þeirri stað-
reynd að leyfisveitingar beggja
þeirra stjórnvalda sem hann minn-
ist á, sveitarfélaganna og Náttúru-
verndar, séu kæranlegar til æðra
stjórnvalda áður en dómstólar fari
að fjalla um málið. Óvíst sé að til
þess komi.
„Við verðum að hafa í huga að
tvö sveitarfélög og iðnaðarráðu-
neytið, ásamt Náttúruvernd ríkis-
ins, koma að málinu með leyfisveit-
ingar.
Öðru verður ekki trúað þegar
þar verður komið sögu en að leyf-
isveitingar, eða synjun þeirra,
byggist á málefnalegum og lög-
mætum sjónarmiðum. Allt tal um
dómstólaleiðina er því gjörsamlega
ótímabært,“ segir Friðrik.
Landsvirkjun fer í mál telji
fyrirtækið á sér brotið
Hann segir að Gísli Már sé að
gefa sér marga leiki fram í tímann
og athyglisvert sé að hann geri ráð
fyrir að bæði mat á umhverfisáhrif-
um vegna Norðlingaölduveitu og
friðlýsingin fari í gegn.
„Landsvirkjun hlýtur, eins og
aðrir sem gæta réttar síns, að fara
í mál telji fyrirtækið að brotið sé á
sér með ómálefnalegum og ólög-
mætum hætti. En að tala um það
langt fram í tímann finnst mér
vera út í bláinn,“ segir Friðrik
Sophusson.
Forstjóri Landsvirkjunar um fram-
kvæmdaleyfi fyrir Norðlingaölduveitu
Ótímabært að
ræða hvort
dómstólaleið
verði farin
ÍSLENDINGAR sendu í fyrsta
skipti lið á Ólympíuleikana í efna-
fræði, en þeir voru haldnir í borginni
Groningen í Hollandi 4.–14. júlí sl.
Fjórir keppendur tóku þátt fyrir Ís-
lands hönd; Erlendur Jónsson úr
MK, Lydía Ósk Ómarsdóttir, MR,
Helga Dís Flosadóttir, MR og Húni
Sighvatsson úr MH.
Með þeim í för voru Skarphéðinn
Óskarsson, efnafræðikennari í MR,
og Már Björgvinsson, aðjúnkt við
efnafræðiskor Háskóla Íslands. Auk
þess ferðaðist með hópnum Aðalheið-
ur Flosadóttir, systir Helgu Dísar.
Hún passaði son systur sinnar,
Gabríel Ísar, á meðan á keppninni
stóð. Töluverða athygli vakti að
keppandi skyldi eiga barn og var
fjallað um það í fjölmiðlum í Hollandi,
enda einsdæmi.
57 lönd tóku þátt
Þátttökulönd voru 57 talsins, að
sögn Húna Sighvatssonar. 130 nem-
endur tóku þátt í forkeppninni hérna
heima, sem er álíka og í Svíþjóð og
meira en í Sviss. Hann segir að ár-
angur íslensku keppendanna hafi
verið viðunandi, en stefnan sé að
bæta hann að ári. Húni og Helga Dís
eiga þess kost, en Erlendur og Lydía
verða orðin of gömul að ári.
Húni segir að keppnin hafi verið
afar strembin og í engu samræmi við
kennsluefni í efnafræði í framhalds-
skólum hérna heima. „Við erum langt
á eftir öðrum þjóðum, t.a.m. Indverj-
um og Kínverjum, í raungreina-
kennslu. Ég talaði við Indverja, sem
lenti í þriðja sæti, og hann sagðist
hafa lært efnafræði frá 6 ára aldri,“
segir hann. Kínverjar höfðu yfirburði
í keppninni; lentu í 1., 2., 5. og 6. sæti.
Indverji varð sem fyrr segir í þriðja
sæti og Hollendingur lenti í því
fjórða.
Um leið og hópurinn kom til Gron-
ingen var lærimeisturum og nemend-
um stíað í sundur. Nemendur gistu á
sama hóteli, en voru sviptir farsímum
og aðgangi að annarri samskipta-
tækni.
Skemmtu sér vel saman
Húni segir að uppúr standi hversu
hópurinn hafi náð vel saman, og
keppendur reyndar almennt. Að
keppninni lokinni hafi þeir eytt
nokkrum dögum í að fara yfir þraut-
irnar og kynnst vel. „Það var mjög
gaman að kynnast fólki frá svona
mörgum stöðum,“ segir hann. Kepp-
endur frá nokkrum þjóðum blönduðu
þó ekki geði við hin liðin, meðal ann-
arra Kínverjar og liðsmenn nokkurra
arabaríkja.
Aðspurður hvort hann hyggist
leggja efnafræðina fyrir sig segir
Húni að ævintýrið hafi að vissu leyti
kveikt með honum áhuga á greininni.
„En þetta var svolítið yfirþyrmandi.
Áður en við lögðum af stað þurftum
við að læra sem nemur eins árs náms-
efni í efnafræði í háskólanum á tveim-
ur vikum. Í það fóru níu klukkustund-
ir á dag,“ segir hann. Húni vill koma á
framfæri þökkum til kennaranna, eða
„lærimeistaranna“ (e. „mentors“)
eins og leiðbeinendur voru kallaðir
ytra; Más og Skarphéðins, fyrir óeig-
ingjarnt starf, en þeir hlutu enga
greiðslu fyrir framtakið.
Íslensku þátttakendurnir á Ólympíuleikunum í efnafræði, f.v.: Erlendur
Jónsson, MK, Lydía Ósk Ómarsdóttir, MR, Helga Dís Flosadóttir, MR,
með son sinn Gabríel Ísar í fanginu, Aðalheiður Flosadóttir systir hennar,
sem passaði Gabríel meðan á keppninni stóð, og Húni Sighvatsson, MH.
Nokkra athygli vakti að Helga
Dís, fyrst þátttakenda, ætti
barn. Þessi grein um Helgu Dís
birtist í hollensku dagblaði.
Ólympíuleikarnir
í efnafræði
Íslend-
ingar með
í fyrsta
skipti