Morgunblaðið - 01.08.2002, Blaðsíða 14
SVEITARSTJÓRN Hrunamanna-
hrepps hefur ákveðið að ráða Ágúst
Kr. Björnsson sem sveitarstjóra
Hrunamannahrepps. Formlega verð-
ur gengið frá
ráðningu hans á
sveitarstjórnar-
fundi næstkom-
andi miðvikudag.
Ágúst er 45 ára,
byggingartækni-
fræðingur að
mennt. Hann hef-
ur mestan hluta
frá árinu 1995
verið sveitar-
stjóri Súðavíkur-
hrepps og stjórnað þar uppbyggingu
byggðarinnar og flutningi þorpsins
um set. Áður starfaði hann sem verk-
efnisstjóri á útboðssviði hjá Ríkis-
kaupum og við stjórnun byggingar-
og jarðvinnuverka hjá Hagvirki hf.
Ágúst Kr. var valinn úr hópi 43 um-
sækjenda sem sóttu um sveitarstjóra-
starfið. Ágúst er í sambúð með Hildi-
gunni Guðmundsdóttur kennara.
Ágúst mun hefja störf hjá Hruna-
mannahreppi eftir miðjan ágúst nk.
Ágúst Kr.
Björnsson
Nýr sveit-
arstjóri í
Hruna-
manna-
hreppi
♦ ♦ ♦
FRÉTTIR
14 FIMMTUDAGUR 1. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
JOSEPH Ralston, yfirhershöfðingi
Atlantshafsbandalagsins (NATO) í
Evrópu, segir að starfsemin á
Keflavíkurflugvelli verði nær
óbreytt og þótt stefnubreytingar í
þeim efnum væru að vísu ekki á
sínu verksviði myndi hann ekki
hafa frumkvæði að því að starf-
semin þar verði skert.
Þetta kom fram á fundi Ralston
og Halldórs Ásgrímssonar utanrík-
isráðherra en frá og með 1. októ-
ber mun varnarliðið heyra undir
evrópsku herstjórnina.
Ralston sagðist telja að í þess-
um breytingum fælist ákveðið
tækifæri og hann væri hingað
kominn til þess að hlusta á skoð-
anir íslenskra stjórnvalda svo
tryggja megi að breytingin geti
gengið eins auðveldlega fyrir sig
og hugsast getur.
Margt mælir með óbreyttum
herstyrk í Evrópu
Ralston sagði að í öllum aðal-
atriðum yrði starfsemin á Kefla-
víkurflugvelli óbreytt, stefnubreyt-
ingar í þeim efnum væru að vísu
ekki á sínu verksviði en hann tók
jafnframt fram að hann myndi
ekki hafa frumkvæði að því að
starfsemin þar verði skert. Ral-
ston sagði að í hvert sinn sem fjár-
veitingar væru ákveðnar væru
málefni af þessu tagi tekin til
skoðunar. „En aðeins 8% af her-
styrk Bandaríkjamanna, um 115
þúsund manns, heyra undir evr-
ópsku herstjórnina. Undir þessa
herstjórn fellur 91 land eða um
helmingur landa heimsins og mín
skoðun er sú að 8% sé alls ekki
óraunhæf eða of há tala. Og sé
horft til Mið-Austurlanda sérstak-
lega er þessi herstyrkur auðvitað
mun nær en ef hann væri í Banda-
ríkjunum. Ég tel því ýmis rök
hníga að því að við höldum í þenn-
an styrk sem heyrir undir evr-
ópsku herstjórina, þ.m.t. Ísland,
auk þess sem landfræðileg staða
þess er ákaflega mikilvæg.“
Utanríkisráðherra segir að
breytingin muni verða til þess að
Íslendingar verði miklu tengdari
stofnunum NATO og stofnun
Bandaríkjanna í gegnum Evrópu.
Færir okkur nær
evrópskri öryggispólitík
„Hún færir okkur nær evrópskri
öryggispólitík að mínu mati en
tengsl okkar við Bandaríkin verða
jafnsterk og áður og byggjast á
varnarsamningnum sem orðinn er
meira en 40 ára gamall. Að því er
varðar viðbúnað á Keflavíkurflug-
velli er um það samningur sem
rann út fyrir rúmi ári og fram-
undan eru viðræður um það mál,
þótt þær hafi ekki verið dagsettar.
Þær viðræður verða á milli okkar
og stjórnvalda í Bandaríkjunum. Á
þessu stigi sjáum við enga ástæðu
til að ætla að þar verði einhverjar
meiriháttar breytingar á.“
Halldór segir ljóst að öryggis-
hagsmunir Íslendinga tengist Evr-
ópu mjög mikið og gert sé ráð fyr-
ir að hlutverk stöðvarinnar í
Keflavík verði ekki minna við
þessa breytingu. „Framtíðin á eft-
ir að leiða í ljós hvaða breytingar
þetta hefur í för með sér en vissu-
lega er þetta mikil breyting á
okkkar málum. En við erum
ánægð með að þetta skuli gerast
undir stjórn Ralstons vegna þess
að hann þekkir afskaplega vel til
hér á landi og er kunnugur okkar
sjónarmiðum og aðstæðum.“
Utanríkisráðhera fundar með Joseph Ralston, yfirhershöfðingja NATO í Evrópu
Mun ekki hafa frumkvæði að
skerðingu umsvifa í Keflavík
Morgunblaðið/Sverrir
Joseph Ralston yfirhershöfðingi og Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra.
LÁTINN er Grétar S.
Norðfjörð, fyrrverandi
aðalvarðstjóri í lög-
reglunni í Reykjavík.
Grétar fæddist í Flat-
ey á Breiðafirði hinn 5.
febrúar árið 1934.
Hann hóf starfsferil
sinn hjá lögreglunni í
Reykjavík árið 1959 og
lauk námi frá Lög-
regluskóla ríkisins árið
1964. Hann starfaði
við öryggisgæslu í
aðalstöðvum Samein-
uðu þjóðanna árin
1967 til 1973 og var
síðan lögreglumaður í Útlendinga-
eftirliti. Samtímis vann hann að
skipulagningu sérstaks forvarna-
starfs á vegum lögreglunnar. Hann
var yfirmaður Grenndareftirlits
miðborgar og frá árinu 1996 gegndi
hann stöðu aðalvarðstjóra á C-vakt
lögreglunnar og var
fyrsti aðalvarðstjóri á
Miðborgarstöð 1. sept-
ember 1997.
Grétar var frum-
kvöðull að stofnun
Íþróttafélags lögregl-
unnar í Reykjavík sem
varð grunnurinn að
stofnun Íþróttasam-
bands lögreglunnar.
Auk þess var Grétar
knattspyrnudómari í
37 ár, dæmdi í 1. deild
í 25 ár og var alþjóða-
dómari í 17 ár. Fyrir
störf sín á sviði
íþrótta- og félagsmála var Grétar
sæmdur ýmsum viðurkenningum,
m.a. heiðursmerki forseta Íslands,
Hvítu rósinni, árið 1982.
Grétar lætur eftir sig eiginkonu,
Jóhönnu Norðfjörð, tvær uppkomn-
ar dætur og eitt barnabarn.
Andlát
GRÉTAR S.
NORÐFJÖRÐ Morgunblaðið/Helgi Garðarsson
Góð veiði hjá trillubátum
Eskifirði. Morgunblaðið.
HANN hefur verið að gera það
gott, trillusjómaðurinn Friðrik
Rósmundsson á Sæfaranum. Hann
hefur landað fullfermi dag eftir
dag á Eskifirði og er hér að landa
4,5 tonnum eftir 12 tíma veiðiferð.
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
hefur hafnað beiðni lögmanns Þor-
finns Ómarssonar um að afturkalla
ákvörðun menntamálaráðherra þess
efnis að víkja Þorfinni tímabundið úr
embætti framkvæmdastjóra Kvik-
myndasjóðs Íslands. Ráðuneytið
hafnar því að brotin hafi verið rann-
sóknarregla og andmælaregla við
meðferð málsins og að rökstuðning
hafi skort við ákvörðun ráðherra.
Ráðuneytið leggur áherslu á að
málið sé í lögformlegum farvegi fyrir
nefnd til að meta lausn um stundar-
sakir. Það sé hlutverk nefndarinnar
að láta í ljós rökstutt álit á því hvort
rétt hafi verið að víkja embættis-
manni frá störfum um stundarsakir.
Brottvikning Þorfinns
ekki afturkölluð
HLUTFALL þeirra sem telja dóma
vegna kynferðisbrota of væga hefur
hækkað um 3 prósentustig síðan árið
2000 samkvæmt nýlegri símakönnun
Gallup. Nú telja 96% þjóðarinnar, ef
marka má könnun Gallup, dómana of
væga en voru 93% fyrir tveimur ár-
um.
Þróunin er öfug þegar aðrir brota-
flokkar eru skoðaðir, þrátt fyrir að
talsverður meirihluti aðspurðra telji
dóma fyrir ofbeldis- og fíkniefnabrot
of væga. Fyrir tveimur árum töldu
73% dóma fyrir ofbeldisbrot of væga
en nú eru 66% á þeirri skoðun.
Sömuleiðis hefur hlutfall lækkað
meðal þeirra sem telja fíkniefna-
dóma of væga, eða úr 72% í 65% milli
áranna 2000 og 2002.
Frá þessu er greint í nýjasta
fréttabréfi Gallup.
Könnunin var gerð 10. til 25. júlí
sl. Úrtak var 3.069 manns frá 18-75
ára og var svarhlutfall 70%.
96% telja kyn-
ferðisbrota-
dóma of væga
♦ ♦ ♦
Elsti aldurs-
hópurinn telur
erfiðara að ná
endum saman
RÖSKLEGA 47% landsmanna telja
erfiðara að ná endum saman fjár-
hagslega nú en fyrir einu ári, ef
marka má símakönnun Gallup sem
greint er frá í nýjasta fréttabréfi
Gallup. 45% finna ekki fyrir neinum
mun hvað þetta snertir og 8% telja
auðveldara að ná endum saman nú
en fyrir ári.
Langflestir sem þannig segja fjár-
haginn betri nú eru á aldrinum 25–34
ára eða 16% aðspurðra. Flestir
þeirra sem telja hins vegar fjárhag-
inn verri eru í aldursflokknum 55–75
ára, eða 58%. Sé litið á kynjaskipt-
inguna sést að fleiri karlar telja auð-
veldara að ná endum saman nú en
fyrir ári, eða 9% á móti 6% kvenna.
Að sama skapi telja 58% kvenna erf-
iðara að ná endum saman nú en þá,
en karlar sem hafa þá sögu að segja
voru 38% aðspurðra.
Könnunin var gerð 10. til 25. júlí
sl. Úrtak var 3.069 manns frá 18–75
ára og var svarhlutfall 70%.
KRISTINN Gylfi Jónsson,
stjórnarformaður kjúklingabús-
ins Móa, segir tölur þær, sem
Jónatan S. Svavarsson, fram-
kvæmdastjóri Reykjagarðs,
setti fram um markaðshlutdeild
einstakra kjúklingaframleiðenda
í Morgunblaðinu í gær, vera
mjög villandi.
Segir Móa vera með
35% markaðshlutdeild
Að sögn Kristins hefur hann
tölur undir höndum, sem sýni
stöðuna eins og hún er miðað
við sölu á kjúklingakjöti und-
anfarinn mánuð. „Reykjagarður
er stærsti framleiðandinn, með
um 38% markaðshlutdeild, Móar
eru með um 35%, Ísfugl er með
um 15% og Stjörnuegg og Ís-
landsfugl á Dalvík eru með um
6% hvort,“ sagði Kristinn í sam-
tali við Morgunblaðið í gær-
kvöld.
Þessar tölur fær Kristinn með
hliðsjón af sláturtölum í júní- og
júlímánuði. „Móar sjá um slátr-
un fyrir sig sjálfa, Reykjagarð
og Stjörnuegg, og hef ég þessar
tölur vegna þessa,“ sagði Krist-
inn jafnframt.
Kjúklingaframleiðslan í landinu
Mótmælir tölum um
markaðshlutdeild