Morgunblaðið - 01.08.2002, Qupperneq 16
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
16 FIMMTUDAGUR 1. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
BORGARRÁÐ hefur staðfest nýtt-
deiliskipulag fyrir Grjótaþorp en-
samkvæmt því er meðal annars ráð-
gert að reisa allt að 80 herbergja
hótel á horni Aðalstrætis og Fisch-
ersunds.
Borgarráð samþykkti með fjórum
samhljóða atkvæðum að staðfesta
samþykkt skipulags- og byggingar-
nefndar frá því í júní, þó með breyt-
ingu er varðar hæð og þakform hót-
elbyggingarinnar. Í auglýstri tillögu
hafði verið gert ráð fyrir nokkru
hærra húsi með flötu þaki, sem
nefndin hafnaði í lokaafgreiðslu
sinni og samþykkti í staðinn að húsið
skyldi verða lægra og með hallandi
þaki eins og gert hafði verið ráð fyr-
ir í deiliskipulagi frá 1986.
Að sögn Salvarar Jónsdóttur,
sviðsstjóra skipulags- og byggingar-
sviðs, er með samþykkt borgarráðs
verið að samræma bókun skipulags-
og byggingarnefndar, athugasemdir
frá íbúum og styrkja miðborgina.
Nokkrar athugasemdir bárust frá
íbúum um að verið væri að taka mið
af Morgunblaðshúsinu við Aðal-
stræti 6 í nýju deiliskipulagi á þessu
sögulega svæði. Undir þær athuga-
semdir tók skipulagsfulltrúi að-
nokkru leyti og benti á að hægt væri
að setja hallandi þak á húsið og
halda sömu nýtingu en skipulags- og
byggingarnefnd samþykkti að
breytt yrði aftur til upphaflegrar til-
lögu.
Undanfarið hafa lóðarhafar
fundað með fulltrúum frá skipulags-
og byggingarsviði þar sem reynt
hefur verið að finna lausn sem sætt
gæti bæði sjónarmið.
Stefnt að því að hótelið verði
tilbúið næsta sumar
Samkvæmt tillögunni sem sam-
þykkt var í borgarráði er gert ráð-
fyrir nokkru lægra húsi en tillagan
með flötu þaki segir til um og 25 cm
hærra húsi en upphaflega tillagan
gerði ráð fyrir. Til að ná fram þeirri
nýtingu sem talin er nauðsynleg hef-
ur halli þaksins verið aukinn og sett
á húsið „mansard-þak“ eða brota-
þak, að sögn Salvarar. Í minnisblaði
frá arkitekt hjá skipulags- og bygg-
ingarsviði segir að brotaþak eigi sér
mikla hefð í íslenskri byggingar-
sögu. Þau komi til sögunnar á seinni
helmingi nítjándu aldar til að auka
nýtingu á rishæðum og nokkur slík
dæmi sé að finna í nágrenni Aðal-
strætis.
Að sögn Gísla Guðmundssonar-
byggingarstjóra er ráðgert að hót-
elið verði fullklárað með sumrinu en
það mun verða til húsa í nýbyggingu
við Aðalstræti 4 og tveimur gömlum
húsum í Fishersundi þar sem dans-
staðurinn Clinton var meðal annars
áður til húsa. Eigandi húsanna er
Lindarvatn ehf. Gert er ráð fyrir að
nýbyggingin verði fimm hæðir auk
riss en að gömlu húsin tvö haldi
sinni upprunalegu mynd en verði
tengd saman með tengibyggingum.
Verið er að rífa út úr gömlu hús-
unum en í ljós hefur komið að grind
húsanna er ótrúlega heilleg.
Mótmæla stækkun
til austurs út í Fógetagarð
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks sátu
hjá við afgreiðslu deiliskipulagstil-
lögunnar. D-listi óskaði bókað að-
hann styddi í meginatriðum deili-
skipulagstillögu um Grjótaþorp en
að þeir væru mótfallnir því að reitur
Grjótaþorps væri stækkaður til
austurs út í Fógetagarð til að koma
að tröppum í tengslum við fornminj-
ar við Aðalstræti.
„Sú tillaga sem nú hefur verið
samþykkt hefur í för með sér veru-
lega röskun á gömlum kirkjugarði
og fornminjum sem umgangast þarf
af virðingu og alúð,“ segir m.a. í bók-
un D-lista.
Með staðfestingu á deiliskipulag-
stillögunni hefur borgarráð meðal-
annars staðfest að stígur sem liggur
frá Garðastræti, meðfram Unuhúsi
að Mjóstræti, verði kallaður Skálda-
stígur. Að sögn Salvarar er lagt til
að hann verði látinn óhreyfður og
áfram opinn almenningi.
Samkvæmt tillögu er stefnt að því að byggja stein-
steypt hús á fimm hæðum auk riss sem vísar út að
Ingólfstorgi. Gömlu húsin tvö í Fischersundi verða
tengd saman við nýbygginguna með tengibyggingu.
Morgunblaðið/Jim Smart
Að sögn arkitekta og annarra sem komið hafa að verk-
inu eru gömlu húsin mjög heilleg á að líta. Undanfarnar
vikur hefur verið unnið að því að rífa út úr húsunum.
Allt að 80 herbergja
hótel rísi við Aðalstræti 4
Reykjavík
Borgarráð staðfestir nýtt deiliskipulag fyrir Grjótaþorp
LOKADAGUR Sumarskólans var
haldinn í Austurbæjarskóla í gær
þar sem nemendur á öllum aldri og
kennarar í morgunhópunum gerðu
sér glaðan dag.
Í Sumarskólanum er boðið upp á
íslenskunámskeið fyrir útlendinga
en skólinn hefur verið starfræktur í
tíu sumur og er þar um að ræða
samvinnuverkefni Námsflokka
Reykjavíkur, Fræðslumiðstöðvar
Reykjavíkur og ÍTR. Í júlí voru þátt-
takendur tífalt fleiri en fyrsta sum-
arið eða á fjórða hundrað.
Börn og fullorðnir hafa í sumar
verið í námi alla virka morgna en
stór hópur fólks hefur verið þrjú
kvöld í viku. Þá hafa unglingar sótt
síðdegistíma. Í tilkynningu frá Sum-
arskólanum segir að margir noti
sumarfríið til að bæta kunnáttu sína
í íslensku en aðrir vinni fulla vinnu
með náminu. Á veturna halda Náms-
flokkarnir íslenskunámskeið sem
einnig hafa verið mjög vel sótt en
alls sóttu um 1.700 manns nám-
skeiðin í fyrra.
Að sögn Guðrúnar Halldórs-
dóttur, forstöðumanns Námsflokka
Reykjavíkur, var kennt á síðasta
degi skólans en að auki voru börn og
fullorðnir meðal annars með ýmsar
uppákomur í kennslustofunum. Þá
var efnt til pylsuveislu á lóð skólans.
Lokadagur
Sumarskólans
Morgunblaðið/Jim Smart
Reykjavík
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
samning við Minjavernd hf. um
leigu á Geysishúsinu, Aðalstræti 2,
til 20 ára fyrir starfsemi Höfuð-
borgarstofu. Húsnæðið sem um
ræðir er 370m², þar af 68m² í nýrri
tengibyggingu milli Aðalstrætis og
Vesturgötuhúss.
Í húsinu verður rekin Upplýs-
ingamiðstöð ferðamála á jarðhæð
en skrifstofur í tengslum við ferða-
og markaðsmál og umsjón við-
burða verða á 2. hæð.
Við afhendingu hússins er gert
ráð fyrir að leigusali hafi lokið
fullnaðarviðgerð hins gamla húss
og frágangi við nýja tengibygg-
ingu.
Í greinargerð borgarstjóra sem
fylgir tillögu um leigusamninginn
segir meðal annars að rekstur
Upplýsingamiðstöðvar ferðamála í
Reykjavík, sem falli undir Höf-
uðborgarstofu, geri mjög ákveðnar
kröfur til staðsetningar og aðgeng-
is. Húsnæðið verði að vera mið-
svæðis, aðgengilegt og vel sýnilegt
gangandi vegfarendum. Bent er á
að gestakomur í Upplýsingamið-
stöðina séu um 120 þúsund á ári
og að núverandi húsnæði hafi fyrir
löngu sprengt utan af sér starf-
semina.
Þar segir ennfremur að stað-
setning Höfuðborgarstofu í
Geysishúsi verði ótvíræð lyftistöng
fyrir Kvosina og liður í þeirri
stefnu borgaryfirvalda að styrkja
innviði miðborgarinnar. Hið nýja
hlutverk Geysishúss muni einnig
verða hvatning fyrir þjónustufyr-
irtæki af margvíslegu tagi að flytja
starfsemi sína í nábýli við Upplýs-
ingamiðstöðina.
Vakin er athygli á því að Höf-
uðborgarstofa á forgangsrétt að
hinu leigða húsnæði eftir að samn-
ingsbundnum leigutíma lýkur sem
og að húsnæði á 2. hæð tengibygg-
ingar ef þörf er á stækkun.
Starfsemi Höfuð-
borgarstofu verður
í Geysishúsi
Morgunblaðið/Golli
Gestakomur í Upplýsingamiðstöð ferðamála eru um 120 þúsund á ári. Með
samningnum mun Upplýsingamiðstöðin flytja starfsemi sína í Geysishús.
Reykjavík
Gjafavara – matar- og kaffistell .
All ir verðflokkar.
- Gæðavara
Heimsfrægir hönnuðir
m.a. Gianni Versace.
VERSLUNIN
Laugavegi 52, s. 562 4244.