Morgunblaðið - 01.08.2002, Side 22
LANDIÐ
22 FIMMTUDAGUR 1. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Er veggjakrot
vandamál?
Við höfum
lausnina. Seljum
hreinsilög
á 5 l brúsum.
Lynghálsi 4,
sími 588 8881.
DVALARHEIMILIÐ Ás fagnaði 50
ára starfsafmæli um síðastliðna
helgi. Afmælið hófst með móttöku
sem haldin var í Ásbúð, Bröttuhlíð,
föstudaginn 26. júlí. Boðið var upp
á veitingar, tónlist og ræðuhöld. Í
móttökuna mætti m.a. Jón Krist-
jánsson heilbrigðisráðherra. Opið
hús var laugardaginn 27. júlí. Þar
gafst gestum tækifæri á að skoða
starfsemi Áss. Hjúkrunarheimilið
var til sýnis og önnur hús heim-
ilisfólks, svo og garðyrkjustöðin í
Heiðmörk 32. Boðið var upp á grill-
aðar pylsur og ís, lúðrasveit spilaði,
haldið var opið púttmót, trúðar
komu í heimsókn og sýndu listir sín-
ar og fleira. Afmælishátíðinni lauk
síðan sunnudaginn 28. júlí með há-
tíðarmessu í Hveragerðiskirkju.
Umsjón hátíðarinnar var í höndum
Félags fyrrverandi sóknarpresta.
Séra Sigurður Haukur Guðjónsson
predikaði og séra Tómas Guð-
mundsson, fyrrverandi prófastur,
þjónaði fyrir altari. Tónlistarflutn-
ingur fór fram í kirkjunni nokkru
áður en guðsþjónustan hófst, með
orgelleik, einsöng og fiðluleik. Org-
anisti og umsjónarmaður tónlistar-
flutnings var Kjartan Ólafsson.
Að sögn Gísla Páls Pálssonar,
framkvæmdastjóra í Ási, hófst
rekstur Dvalarheimilisins Áss
formlega 26. júlí árið 1952. Í upp-
hafi voru heimilismenn fjórir en
þeim fjölgaði fljótt. Sýslunefndin
lagði til heimilisins húsið í Hvera-
hlíð 17 ásamt þremur öðrum húsum
en Grund keypti og byggði fleiri
hús næstu árin.
Veruleg aukning varð á starf-
seminni í Ási á árunum 1960–1980
og fjölgaði heimilismönnum jafnt
og þétt. Mörg hús voru keypt við
Frumskóga, Bláskóga, Hverahlíð
og Bröttuhlíð. Byggðar voru 15
hjónaíbúðir við Bröttuhlíð og
Klettahlíð. Föndurskálinn í Frum-
skógum var byggður auk þess sem
verulegar endurbætur voru gerðar
á þeim húsum sem voru keypt. Upp
úr 1980 fækkar heimilismönnum í
Ási nokkuð allt til ársins 1995 en
þeim fór smám saman fjölgandi eft-
ir það.
Garðyrkjustöð og trésmíðaverk-
stæði er ef til vill ekki hefðbundinn
hluti af rekstri elliheimilis. Engu að
síður hefur Ás rekið hvort tveggja
um áratuga skeið. Á trésmíðaverk-
stæðinu hafa ýmsir hlutir verið
smíðaðir bæði fyrir Grund og Ás.
Má þar nefna glugga, hurðir, inn-
réttingar og fleira. Í garðyrkjustöð-
inni er ræktað grænmeti og blóm
sem notuð eru á dvalarheimilinu.
Þá hafa þeir heimilismenn í Ási,
sem það vilja og geta, unnið létt
störf í garðyrkjustöðinni. Þessi
þáttur starfseminnar er mjög mik-
ilvægur og nauðsynlegt að geta
boðið heimilisfólkinu upp á þessi
fjölbreyttu störf. Þá hafa blómin
sett hlýjan og fallegan svip á Ás.
Rannsóknastofnunin í Neðra-Ási
var stofnuð í lok sjöunda áratug-
arins. Hlutverk hennar er að sinna
ýmiss konar rannsóknum sem
varða íslenska náttúru og fleira því
tengdu. Alls hafa verið gefin út yfir
50 vísindarit og skýrslur á vegum
stofnunarinnar. Samstarf Neðra-
Áss, Háskóla Íslands, fyrirtækisins
Prokaria, Hveragerðisbæjar og
Garðyrkjuskóla ríkisins um rekstur
Rannsókna- og fræðaseturs Há-
skóla Íslands í Hveragerði hefur
staðið yfir undanfarin ár. Þannig
hefur þáttur Neðra-Áss sem vís-
indastofnunar verið tryggður til
framtíðar. Þetta samstarf hefur
gengið með ágætum og starfsemin
er í dag rekin í húsnæði rannsókn-
arstofnunarinnar í Heiðmörk 34 í
Hveragerði.
Þessi mikla uppbygging í Ási er
fyrst og fremst einum manni að
þakka, Gísla Sigurbjörnssyni for-
stjóra. Með mikilli vinnuhörku, út-
sjónarsemi og óbilandi trú á Hvera-
gerði náði hann að virkja aðra með
sér í þetta uppbyggingarstarf. Lík-
legt er að í huga hans hafi Hvera-
gerði verið fyrsta flokks bær fyrir
þessa starfsemi. Þá má ekki gleyma
konu hans, frú Helgu Björnsdóttur,
sem stóð sterk við hlið hans alla ævi
og studdi hann til góðra verka. Frá
upphafi hefur snyrtimennska ein-
kennt starfsemina í Ási. Þar kemur
einkanlega til áhersla Gísla á fagurt
umhverfi og góða umgengni. Á
göngu sinni um garðana í Ási tíndi
hann ávallt upp það rusl sem varð á
vegi hans og oftar en ekki setti
hann það í vasann og fann því svo
stað í ruslafötu.
Í dag eru 156 heimilismenn í Ási.
26 á hjúkrunarheimilinu, 70 dval-
arrými og 60 geðdeildarrými sem
rekin eru í samvinnu við geðdeild
Landspítalans. Það samstarf hófst á
sjöunda áratugnum og hefur í alla
staði gengið mjög vel. Geðlæknir og
geðhjúkrunarfræðingur á vegum
Landspítala – háskólasjúkrahúss
sjá um hluta þjónustunnar við þessa
einstaklinga og læknir, hjúkr-
unarfræðingar og annað starfsfólk
í Ási sér um annað sem upp á vant-
ar.
Margt gott starfsfólk hefur unnið
lengi í Ási og starfsmannavelta er
tiltölulega lítil miðað við heimili í
svipuðum rekstri. Framtíð Áss er
björt. Möguleg uppbygging í fram-
tíðinni er á þremur stöðum. Í fyrsta
lagi er gert ráð fyrir að stækka
hjúkrunarheimilið. Viðbygging við
það yrði í austurátt þar sem skrif-
stofur Hveragerðisbæjar eru í dag.
Grund hefur kauprétt á húsinu frá
árinu 2012 til ársins 2014 og myndi
það hús þá verða rifið og 26 rúma
hjúkrunardeild byggð í staðinn.
Ekki þyrfti að byggja aðra þjón-
ustuþætti svo sem hárgreiðslu, fót-
snyrtingu, sjúkraþjálfun og skrif-
stofu þar sem sú aðstaða er þegar
fyrir hendi. Þessi byggingaráfangi
yrði því mjög hagstæður hvað varð-
ar kostnað á hvert hjúkrunarrými.
Ekki veitir af fleiri hjúkrunarrým-
um því biðlistinn eftir slíkum pláss-
um er langur og lengist ár frá ári. Í
öðru lagi má nefna að við Lauf-
skóga og Frumskóga hefur verið
deiliskipulögð bygging yfir 20 íbúð-
areiningar en ekki er ákveðið hvort
eingöngu verður um einstaklings-
íbúðir eða hjónaíbúðir að ræða.
Þessar íbúðir munu síðan tengjast
þjónustukjarnanum í Ásbyrgi. Hvað
varðar framtíðaruppbyggingu má
að lokum nefna að mögulegt er að
byggja íbúðir eða einhverjar þjón-
ustubyggingar á lóð sem er norðan
megin Klettahlíðar, fyrir ofan
hjónaíbúðirnar. Engar áætlanir eru
þó um hvers konar byggingar verða
reistar á þessu svæði.
Dvalarheimilið
Ás í Hvera-
gerði 50 ára
Gísli Páll Pálsson, núverandi framkvæmdastjóri, við brjóstmynd af afa
sínum, frumkvöðlinum Gísla Sigurbjörnssyni.
Gestum var boðið upp á grillaðar pylsur í afmælinu.
Drífa Hjartardóttir alþingis-
maður og Orri Hlöðversson bæj-
arstjóri mættu í móttökuna.
Gísli Páll Pálsson, framkvæmda-
stjóri Áss, sagði frá því að í upp-
hafi hefðu heimilismenn verið 4.
Hveragerði
Í GRÍMSEY er óleyfilegt að
halda hunda og ketti. Því lyft-
ust augabrúnir þegar útgerðar-
maðurinn og aflaklóin Óli Óla
sást á gangi með að því er virt-
ist hund í bandi. En viti menn,
hundurinn reyndist vera heim-
alningurinn Birta, lamb sem
móðirin hafnaði í vor og hjónin
Halldóra og Óli tóku til sín og
fóstruðu. Birta var hin bratt-
asta þar sem hún gekk með
húsbónda sínum um „miðbæ“
Grímseyjar.
Morgunblaðið/Helga Mattína
Óli Óla með Birtu í
„miðbæ“ Grímseyjar.
Í göngu-
ferð með
lambið
Grímsey
HIN árlega viðurkenning umhverf-
isnefndar Vestmannaeyja og Rót-
arýklúbbs Vestmannaeyja var af-
hent í Bæjarveituhúsinu fyrir
skömmu. Viðurkenningar eru veittar
fyrir fallegasta garðinn, snyrtileg-
ustu eignina, best heppnuðu endur-
bætur, snyrtilegasta fyrirtækið og
snyrtilegustu götuna. Það var for-
maður umhverfisnefndar, Sigurður
Páll Ásmundsson, og formaður Rót-
arýklúbbsins, Halldóra Magnúsdótt-
ir skólastjóri, sem afhentu viður-
kenningarnar. Fallegasti garðurinn
var valinn Heiðarvegur 31, eigendur
Jóna Ólafsdóttir og Már Jónsson.
Snyrtilegasta eignin Strembugata
24, eigendur Björgvin Magnússon og
Jóna Þórunn Markúsdóttir. Fyrir
best heppnuðu endurbætur fengu
viðurkenningu hjónin Guðmundur Þ.
Eyjólfsson og Díana J. Svavarsdóttir
fyrir húseignina Kirkjuveg 57.
Snyrtilegasta fyrirtækið var valið
Dala-Rafn á Flötum 23, eigendur
Þórður Rafn Sigurðsson og Ingi-
gerður R. Eymundsdóttir. Snyrti-
legasta gatan var valin Illugagata.
Morgunblaðið/Sigurgeir
Frá afhendingu viðurkenninganna.
Fengu umhverf-
isverðlaun
Vestmannaeyjar