Morgunblaðið - 01.08.2002, Síða 26
AP
Ólöglegir verkamenn
reknir frá Malasíu
Fólk frá Indónesíu, Indlandi,
Bangladesh og Filippseyjum hefur
undanfarin ár streymt til Malasíu en
landið komst til álna á níunda ára-
tugnum og þar var því lengi næga
atvinnu að hafa. Er áætlað að um
600 ólöglegir verkamenn hafi hafst
við í Malasíu undanfarin ár, auk 770
þúsund erlendra verkamanna, sem
öll tilskilin leyfi hafa.
Stjórnvöld í Malasíu eru hins veg-
ar komin á þá skoðun að rekja megi
aukinn fjölda glæpa í landinu til
vandamála, sem tengist ólöglegum
innflytjendum, og þau hafa því
ákveðið að bregðast við vandanum
og beita ólöglega verkamenn hörðu.
Mörg nágrannaríkja Malasíu hafa
lýst áhyggjum sínum vegna ákvörð-
unar Malasíumanna enda segjast
þau ekki undir það búin að taka við
þeim mikla fjölda fólks, sem streym-
ir nú heim á leið á ný.
TALIÐ er að meira en 250 þúsund
ólöglegir innflytjendur hafi flúið
Malasíu undanfarnar vikur en í gær
rann út frestur sem stjórnvöld
höfðu gefið fólki, sem unnið hefur í
Malasíu án þess að hafa til þess til-
skilin leyfi, til að hafa sig á brott frá
landinu. Mörg hundruð þúsund
ólöglegir verkamenn hafast enn við
í Malasíu en þeir mega frá og með
deginum í dag vænta þess að verða
dæmdir til fangelsisvistar eða hýð-
ingar.
Á myndinni má sjá indónesíska
verkamenn sem í gær biðu þess í Jo-
hor Bahru að verða hleypt um borð
í ferju, sem halda átti með þá heim á
leið. Mikil örtröð myndaðist í vik-
unni við ferjuhafnir sem þessar,
enda kappkostuðu margir hinna
ólöglegu verkamanna að komast frá
Malasíu áður en nýju lögin tækju
gildi.
ERLENT
26 FIMMTUDAGUR 1. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Gasol®
Heimsendingarþjónusta ÍSAGA
nær til Stór-Reykjavíkursvæðisins.
Heimsendingargjald er kr. 500,-
Afgreiðslan Breiðhöfða 11
er opin virka daga frá kl. 8 til 17.
800 5555
Hluti af Linde Gas Group
ÍSAGA ehf. • Breiðhöfða 11
Sími 577 3000 • Fax 577 3001
www.aga.is
IS
A
-2
43
.1
–
ÍD
E
A
STJÓRNVÖLD í Úrúgvæ hafa
ákveðið að bankar í landinu verði
lokaðir a.m.k. þangað til á morgun til
þess að koma í veg fyrir að sparifjár-
eigendur tæmi reikninga sína og
varabirgðir seðlabankans gangi til
þurrðar. Íbúar landsins hafa verið
áhyggjufullir síðan innstæður í
bönkum í nágrannaríkinu Argentínu
voru frystar í desember sl., og
flykktust að hraðbönkum á þriðju-
daginn, en þeim hafði verið lokað.
Bankalokunin kom í kjölfar þess,
að ríkisstjórnin veitti 114 milljónum
dollara til þess að bjarga Banco
Montevideo í júní sl. Á föstudaginn
voru varabirgðir seðlabanka Úrú-
gvæ 725 milljónir dollara, og höfðu
þá minnkað um 76,6%, úr 3,1 millj-
arði dollara, síðan um áramót. „Við
erum í rauninni í biðstöðu,“ sagði nýr
efnahagsmálaráðherra landsins,
Alejandro Atchugarry, er hann til-
kynnti um bankalokunina í fyrradag.
Atchugarry, sem tók við af Al-
berto Bension sem sagði af sér í síð-
ustu viku, sagði að fulltrúi stjórn-
valda væri í Washington til viðræðna
um frekari framlög frá Alþjóða
gjaldeyrissjóðnum (IMF). Upphaf-
lega átti bankalokunin að standa í
sólarhring, en haft var eftir embætt-
ismönnum á þriðjudagskvöld að hún
yrði framlengd a.m.k. til föstudags.
Embættismaðurinn sagði enn-
fremur að stjórnvöld hefðu í hyggju
að endurskipuleggja frá grunni allt
bankakerfið í landinu, sem er ríkis-
rekið. Bandaríkjamenn segjast vilja
hjálpa Úrúgvæmönnum að komast
út úr kreppunni. Í yfirlýsingu frá
bandaríska fjármálaráðuneytinu
sagði, að Bandaríkjamenn hefðu
ráðgast við yfirvöld í Úrúgvæ og
IMF „um gagngera lausn á efna-
hagsvandanum undanfarið“.
Í tengslum við slíka lausn væru
Bandaríkjamenn reiðubúnir til að
veita frekari aðstoð fyrir tilstuðlan
IMF og annarra alþjóðastofnana.
Úrúgvæ hefði „staðið sig vel ... og á
skilið áframhaldandi stuðning al-
þjóðafjármálasamfélagsins fyrir að
hafa einbeitt sér að því að halda
styrkri efnahagsstefnu“.
Fengu 460 milljón dollara í júní
Úrúgvæ hefur orðið fyrir barðinu
á fjögurra ára efnahagskreppu sem
ríkt hefur í Argentínu, 70% falli arg-
entínska pesóans og gjaldfellingu
141 milljarðs dollara erlendra skulda
Argentínu. IMF veitti Úrúgvæ 460
milljóna dollara aðstoð í júní, en hún
hvarf á fimmtán dögum í aðstoð við
banka og úrúgvæska pesóann, og í
greiðslur af lánum. Fréttaskýrendur
vænta þess að IMF sendi Úrúgvæ
650 milljónir í þessum mánuði.
Seðlabanki Úrúgvæ hefur veitt
rúmlega þrem fjórðu af varabirgðum
sínum til þess að styrkja gengi pesó-
ans, en í júní hætti bankinn að sker-
ast í leikinn á fjármálamörkuðum og
lét pesóann fljóta – niðurávið. Hefur
pesóinn misst 47% af verðgildi sínu
gagnvart Bandaríkjadollaranum síð-
an í júní, og 54,5% það sem af er
árinu. Fyrstu fregnir af bankalokun-
inni höfðu samstundis áhrif á gengi
pesóans, sem fór niður í 35 á móti
dollar, og hefur aldrei farið lægra.
Alþjóðlegir fjárfestar, sem fengu
að kenna á kreppunni í Argentínu,
fara nú að öllu með gát í öðrum Suð-
ur-Ameríkuríkjum, þ. á m. Úrúgvæ
og Brasilíu, að sögn fréttaskýrenda.
Callum Henderson, markaðsgreinir
hjá Bank of America, tjáði AFP að
fjárfestar hefðu greinilega áhyggjur
af gangi mála í Brasilíu og það hefði
áhrif í öðrum S-Ameríkuríkjum, þ. á
m. Úrúgvæ, og einnig í ríkjum á borð
við Chile, þar sem efnahagsstjórnin
væri að öllu leyti mjög styrk.
Í Brasilíu hafa áhyggjur manna af
því að landið fylgi í kjölfar Argentínu
og geti ekki greitt erlendar skuldir
sínar – og ótti fjárfesta við að vinstri-
menn sigri í kosningum er fram fara
í október – orðið til þess að lækkun
hefur orðið á hlutabréfaverði og
gjaldmiðillinn, realinn, hefur lækkað
um 30% það sem af er árinu.
Áhrifa fjármálakreppunnar í Argentínu gætir út fyrir landamærin
AP
Blaðamaður hlýðir á Alejandro Atchugarry efnahagsmálaráðherra.
Auk ráðherrans voru á fundinum Julio de Brum, bankastjóri seðlabank-
ans (t.v.) og Daniel Cairo, bankastjóri Lýðveldisbankans.
Stjórnvöld í Úrúgvæ loka
öllum bönkum landsins
Leita frekari ásjár IMF í Washington
Montevideo, London. AFP.
Tímamótaviðræð-
ur við N-Kóreu
Bandar Seri Begawan. AFP.
PAEK Nam-Sun, utanríkisráðherra
Norður-Kóreu, segir að tímamóta-
viðræður sínar við Colin Powell, ut-
anríkisráðherra Bandaríkjanna, í
Brunei í gær muni leiða til formlegri
viðræðna við bandarísk stjórnvöld.
„Viðræðurnar báru að lokum ávöxt,“
sagði Paek við fréttamenn. „Norður-
Kórea og Bandaríkin samþykktu að
hefja aftur viðræður. Útkoman var
að öllu leyti viðunandi.“
En háttsettur embættismaður
sem var í för með Powell sagði að N-
Kóreumennirnir væru fullfljótir á
sér. Lagði embættismaðurinn, sem
ekki vildi láta nafns síns getið,
áherslu á að það myndi taka a.m.k.
nokkra daga að ljúka nauðsynlegum
samráðsfundum í Washington og við
bandamenn Bandaríkjamanna í Jap-
an og Suður-Kóreu áður en skrefið
yrði stigið til fulls og viðræður hafn-
ar á ný við N-Kóreu.
Þetta var fyrsti fundur fulltrúa
George W. Bush Bandaríkjaforseta
og erindreka N-Kóreu, en Bush hef-
ur lýst því yfir að N-Kórea tilheyri
„öxli hins illa“, ásamt Íran og Írak.
Bush rauf allt samband við stjórn N-
Kóreu er hann tók við völdum í fyrra.
LÍBANSKUR skrifstofumaður hóf
skothríð í byggingu menntamála-
ráðuneytisins í Beirút í gær og varð
átta starfsfélögum sínum að bana.
Árásarmaðurinn var starfsmaður
skrifstofu, sem annast greiðslur til
kennara, og hermt var að hann hefði
skotið á starfsfélaga sína vegna deilu
um lán sem hann hafði fengið.
Abdel Rahim Mrad, menntamála-
ráðherra Líbanons, sagði að árásar-
maðurinn, sem er 45 ára, hefði starfað
á skrifstofunni í 24 ár. Hann hefði
fengið lán að andvirði milljónar króna
úr sjóði, sem skrifstofan sá um, og
Myrti átta sam-
starfsfélaga sína
AP
Konur syrgja ættingja sem þær
misstu í skotárás í Beirút í gær.
reiðst þegar honum var gert að selja
bíl sinn til að endurgreiða lánið.
Árásarmaðurinn, Ahmad Ali
Mansour, var vopnaður tveimur Ka-
lashnikov-rifflum og skammbyssu
sem hann hafði falið í tösku. Nokkrir
skrifstofumannanna flúðu út á svalir
þegar skothríðin hófst en Mansour
varð tveimur þeirra að bana með því
að skjóta út um glugga.
Sjónarvottur sagði að maðurinn
hefði orðið uppiskroppa með
skotfæri, kastað byssunum frá sér,
gengið niður stiga og kveikt í sígar-
ettu. Lögreglumenn voru þá komnir á
staðinn og handtóku manninn.
Monsour er múslimi og flest fórn-
arlambanna voru kristin en Mrad
sagði að ekkert væri hæft í orðrómi
um að árásin tengdist trúardeilum.
Beirút. AP, AFP.
Reiddist er honum var gert að selja bíl sinn