Morgunblaðið - 01.08.2002, Page 28
LISTIR
28 FIMMTUDAGUR 1. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
WORLD PRESS PHOTO
S Ý N I N G
Sýning á bestu fréttaljósmyndum ársins
2001 stendur yfir í Kringlunni
frá 26. júlí til 6. ágúst.
Samhliða sýningunni verður sýning á
úrvali mynda ljósmyndara
Morgunblaðsins.
ÍSLENSKA
AUGLÝSINGASTOFAN
Verðlaunamynd ársins 2001, Erik Refner, Danmörk.
SÍÐASTLIÐINN laugardag opn-
aði Hulda Vilhjálmsdóttir myndlist-
arsýninguna „Hvaða dyr?“ í Galleríi
Sævars Karls. Hulda útskrifaðist
frá málaradeild Listaháskóla Ís-
lands árið 2000 og er þetta þriðja
einkasýning hennar. Á sýningunni
eru aðallega olíumálverk, en að auki
sýnir hún skúlptúr, myndbandsverk
og myndskreytta ljóðabók, en ljóðin
í bókinni tengjast málverkunum.
Efnistök Huldu teljast til ex-
pressjónismans en eru jafnframt
barnaleg (naíf). Fígúrur í myndun-
um eru flatar og ókláraðar, striginn
er gjarnan ber og aðeins málaður
að hluta og notar listakonan texta í
málverkin ekki ólíkt því sem David
Hockney gerði á sjöunda áratugn-
um. Vinnubrögð hennar eru þó
fjarri því að vera jafnvönduð eða
„akademísk“ og hjá Hockney, held-
ur eru þau hroðvirknisleg og jafnvel
ósjálfráð.
Verkin eru feminísk í anda „Bad
girls“ (slæmar stelpur) sem voru
áberandi í myndlist, skáldskap og
popptónlist síðastliðins áratugar.
Þær þóttu beinskeyttar og voru lítið
gefnar fyrir viðkvæmni eða tepru-
skap. Ekki er úr vegi að nefna ís-
lensku listakonuna Rósku í því sam-
bandi og segja má að hún sé okkar
„Bad girl“ á áttunda og níunda ára-
tugnum. Í alþjóðlegri samtímalist
eru Sue Williams og Sarah Lucas
eflaust helsta ímynd „slæmra
stelpna“ og eru þekktar fyrir djörf
og ruddaleg verk, þótt Sue Williams
hafi róast talsvert með árunum og
vinni nú frekar falleg abstraktmál-
verk.
Verk Huldu birtast mér sem per-
sónulegur reynsluheimur listakon-
unnar. Barnaleg efnistökin saman
við ádeilið myndefni geta verið ögr-
andi og er það helsti styrkur mál-
verkanna. Verkin eru þó misjöfn og
hallast ég mest að málverkinu „Yfir
öllu“ sem er mynd af konu, án höf-
uðs og handa, klædd vínrauðum
blúndukjól og stendur í tveim
vatnsglösum. Henni að baki er
hringform eins og er oft í indversk-
um gyðjumyndum. Hringformið
getur líka verið hola sem kallast á
við reðurlagað formið í verkinu
„Fjall“ sem hangir á veggnum á
móti. Reðurlagaðan fjallstindinn má
sjá sem ádeilu á hefð íslenska
landslagsmálverksins, en hún bygg-
ist að mestu á málverkum eftir
karlkyns listamenn.
Skúlptúr Huldu, eða innsetning
eins og hún kýs að kalla það, er
hlutir sem hún raðar saman á af-
mörkuðum gólffleti. Skúlptúrinn er
eins og tilraun til að koma tvívíðri
mynd í þrívídd, en virkar meira sem
uppstilling, sem málverkin eru ann-
ars laus við. Sýnist mér listakonan
vera þar að fóta sig í öðrum miðlum
til að útfæra hugmyndir sínar en
hefur enn ekki sleppt sér eins og
hún gerir í málverkunum. Svipað
má segja um myndbandsverkið
„María“, sem sýnir listakonuna
ganga um bæinn í Maríugervi, biðja
bænir og lofa almættið. Gerning-
urinn er í sjálfu sér ágætur, en
myndbandið er heldur kurteisislegt
innan um önnur verk á sýningunni.
Sýningin ber þess merki að lista-
konan sé enn nokkuð leitandi, þótt
stílbrigði hennar og nálgun sé orðin
ljós. Að sama skapi verður forviti-
legt að sjá hvert leitin mun leiða
hana, því að Hulda er í örri þróun
og gæti látið mikið að sér kveða í ís-
lensku myndlistarlífi í framtíðinni.
Persónulegur
reynsluheimur
listakonu
MYNDLIST
Gallerí Sævars Karls
Sýningin stendur til 17. ágúst og er opin
á verslunartíma.
MÁLVERK OG BLÖNDUÐ TÆKNI
HULDA VILHJÁLMSDÓTTIR
Málverk Huldu Vilhjálmsdóttur
„Yfir öllu“ á sýningu hennar í
Galleríi Sævars Karls.
Jón B. K. Ransu
Á CAFÉ Milano, Faxafeni 11, stend-
ur nú yfir málverkasýning Sigur-
rósar Stefánsdóttur. Verkin eru
máluð með olíu og hafa skírskotun í
farvegi, línur og form úr landslagi
sem lýsa sýn myndlistarkonunnar á
tengingu mannsins við hina ýmsu
farvegi náttúrunnar.
Sigurrós er búsett í Kópavogi og
hefur sett upp nokkrar sýningar og
tekið þátt í samsýningum. Hún út-
skrifaðist úr málunardeild Mynd-
listarskólans á Akureyri vorið
1997.
Sýningin stendur til loka ágúst-
mánaðar og er opin virka daga kl.
9–23.30, laugardaga til kl. 18 og
sunnudaga kl. 13–18.
Málverk á Café Milano