Morgunblaðið - 01.08.2002, Page 30
LISTIR
30 FIMMTUDAGUR 1. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ÁGÚSTA Skúladóttir leikstjóri og Neil Haigh
leikari lögðu land undir fót um síðustu helgi og
héldu á árlegu Fringe-leiklistarhátíðina í Edin-
borg. Saman mynda þau, ásamt Katrínu Þor-
valdsdóttur, leikfélagið The Icelandic Take
Away Theatre. Ætlunin er að sýna Engla al-
heimsins Einars Más Guðmundssonar, í leikgerð
Neils, og var sýningin valin úr stórum hópi um-
sækjenda til að koma fram á einum af þremur
stærstu sýningarstöðum hátíðarinnar í ár, Guild-
ed Balloon eða Gylltu blöðrunni. Frumsýnt er á
morgun og standa sýningar fram til 26. ágúst.
Sýna á einum af virtustu
sýningarstöðunum
„Neil varð hluti af The Icelandic Take Away
Theatre fyrir fjórum árum, þegar leikfélagið
sýndi Dóttur skáldsins í London,“ svarar Ágústa
aðspurð hvernig samstarf þeirra sé tilkomið.
Söguna af leikgerð Engla alheimsins segja þau
hafa hafist fyrir þremur árum þegar Neil var
beðinn að lesa úr bókinni á menningarhátíð í
Beckenham í London. „Þetta var íslensk hátíð og
ég var beðinn að gera eitthvað úr bókinni. Það
var í fyrsta sinn sem ég fékk tækifæri til að vinna
með þessa sögu. Þá var sýningin aðeins fimmtán
mínútur,“ segir Neil, en sýningin sem sýnd verð-
ur í Edinborg nú er klukkustund að lengd. „Til
að byrja með ætlaði ég bara að lesa upp úr bók-
inni og skrifaði niður valda kafla til að flytja. Það
gekk svo vel að við ákváðum að gera úr þessu
heila leikgerð, sem var sýnd í leikhúsi í York-
shire, og gekk einnig mjög vel. Í kjölfar þess vor-
um við beðin að koma með sýninguna á leiklist-
arhátíð í Búdapest. Sýningin hlaut þar verðlaun
gagnrýnenda (critic’s award). Eftir alla þess vel-
gengni ákváðum við að sækja um á Edinborg-
arhátíðinni og komumst að í Gylltu blöðrunni á
Fringe-hátíðinni.“
Neil og Ágústa segja það nokkurn heiður að
vera valinn á þennan sýningarstað. „Þó að þar
séu mjög margar sýningar í gangi eru forsvars-
menn fremur strangir á það hvern þeir velja til
að koma þar fram. Það var því mjög gaman að
þau skyldu biðja okkur að koma og sýna á þess-
um stað,“ segir Neil. „Hátíðin sjálf er mjög
spennandi,“ bætir Ágústa við. „Þeir eiga von á
300–400.000 áhorfendum og þar eru mörg
hundruð sýningar í gangi, allt frá stærri sýn-
ingum niður í minnstu sýningar. Umhverfið er
alveg meiriháttar.“
Ágústa segir tækifærið nú mikilvægt fyrir The
Icelandic Take Away Theatre, en þetta er ekki í
fyrsta sinn sem leikfélagið heldur á Edinborg-
arhátíðina. „Við Vala Þórsdóttir fórum með
Lemon sisters út fyrir fimm árum, sem var frá-
bær upplifun. Edinborgarhátíðin er mjög góður
staður til að kynna vinnuna á Englandi, þannig
að það er aldrei að vita hvað kemur út úr því.“
Sagan kemst til skila
„Ágústa keypti handa mér Engla alheimsins í
enskri þýðingu, sem mér þykir mikið til koma,“
segir Neil um það af hverju Englar alheimsins
hafi orðið fyrir valinu. „Fljótlega eftir að við fór-
um að vinna með söguna sáum við að hún gæti
hentað mjög vel sem efniviður í einleik, vegna
allra mismunandi persónanna sem koma fyrir í
henni, sem er um leið haldið saman af þessum
eina manni og sjúkdómi hans.“
Neil segist færa sig milli persóna í leikritinu
en alltaf koma aftur í hlutverk Páls. Hann segir
leikmynd og leikhluti, sem Guðrún Øyahals hef-
ur hannað, hjálpa sér mikið við að koma á fram-
færi þessu ólíka fólki. Ágústa bætir því við að
sagan sé ákaflega sterk og enska þýðingin góð,
sem hafi án efa hjálpað sýningunni að ná þeim
árangri sem raun ber vitni. „Bæði Einar Már og
þýðandinn Bernard Scudder hafa verið okkur
mikið innan handar,“ segir hún. „Ef dæma má út
frá viðtökum sem leikritið hefur fengið virðist
sem fólk skilji alveg um hvað sagan snýst, þrátt
fyrir að hún sé einungis klukkutími og þar að
auki ekki á upphaflegu tungumáli bókarinnar.
Það er ákaflega gaman að finna hvað hún kemst
vel til skila.“
Þau segja valið á efnisatriðum úr bókinni oft á
tíðum hafa verið erfitt. „Upphaflega handritið
var sennilega að tveggja klukkustunda sýningu,“
segir Neil og Ágústa bætir við: „Við vorum eins
og barn með konfektkassa, máttum bara velja
nokkra mola úr. Það eru svo margir frábærir
staðir í bókinni, en augljóslega gátum við ekki
notað þá alla.“
Sýningin hefur enn sem komið er ekki verið
sýnd opinberlega á Íslandi. „Við vonum að þegar
við komum aftur frá Edinborg getum við sýnt
hér á Íslandi,“ segir Neil. „Það er næsta skrefið
sem við tökum með Engla alheimsins.“
Engl-
arnir
fljúga
til Edin-
borgar Morgunblaðið/Arnaldur
Ágústa Skúladóttir og Neil Haigh heyra til The Icelandic Take Away Theatre.
Ljósmynd/Eduardo Perez
Neil í einleiknum Englar alheimsins, sem frumsýndur verður á Edinborgarhátíðinni á morgun.
The Icelandic Take Away
Theatre frumsýnir á morgun
leikgerð sína á Englum alheims-
ins á Edinborgarhátíðinni. Inga
María Leifsdóttir náði í skottið
á leikaranum Neil Haigh og
leikstjóranum Ágústu Skúla-
dóttur, áður en þau héldu utan.
ingamaria@mbl.is
NÁMSKEIÐ í fiðlu-, víólu- og kamm-
ermúsíkleik verður haldið í Listahá-
skóla Íslands, Sölvhólsgötu 13, dag-
ana 6.–12. september nk. Leið-
beinendur eru hjónin Ervin Schiffer
og Kati Sebestyen. Þau eru ungversk
að uppruna en hafa verið búsett og
starfað í Hollandi og Belgíu um ára-
tugaskeið. Þau hafa kennt við tónlist-
arháskóla í þessum löndum m.a. Þór-
unni Ósk Marinósdóttur og Guð-
mundi Kristmundssyni víóluleikurum
og Kristjáni Matthíassyni fiðluleik-
ara, en öll starfa þau nú með Sinfóníu-
hljómsveit Íslands.
Kati Sebestyen er prófessor í fiðlu-
leik við Tónlistarháskólann í Tilburg
og Konunglega tónlistarháskólann í
Brussel og Ervin Schiffer er prófess-
or við sömu skóla og Sweelinck-tón-
listarháskólann í Amsterdam að auki.
Þar fyrir utan eru þau bæði prófess-
orar við Tónlistarkapelluna svoköll-
uðu í Brussel en það er skóli ætlaður
fyrir sérstaklega hæfileikaríkt ungt
tónlistarfólk. Þau eru einnig bæði
meðlimir í Haydn-kvartettinum.
Námskeiðið er samstarfsverkefni
Félags íslenskra hljómlistarmanna,
Listaháskóla Íslands og fyrrverandi
nemenda þeirra hjóna. Það er ætlað
nemendum á efri stigum úr öllum tón-
listarskólum landsins, nemendum á
háskólastigi og atvinnufólki, einstak-
lingum jafnt sem kammermúsíkhóp-
um. Námskeiðið verður í formi Mast-
er-class og einkatíma. Boðið verður
upp á meðleikara á píanó í Master-
class fyrir hvern og einn.
Umsóknareyðublöð fást hjá Þór-
unni Ósk Marinósdóttur en umsókn-
arfrestur er til 15. ágúst.
Námskeið í
fiðlu-, víólu-
og kammer-
músíkleik
SAUTJÁNDA ráðstefnan um germ-
anska setningarfræði (17th Compar-
ative Germanic Syntax Workshop)
verður haldin í stofu 101 í Odda dag-
ana 9.–10. ágúst nk. Ráðstefnan er á
vegum Íslenska málfræðifélagsins
og Hugvísindastofnunar Háskóla Ís-
lands. Gestafyrirlesarar eru Luigi
Rizzi, háskólanum í Siena á Ítalíu, og
Hubert Haider, háskólanum í Salz-
burg, en alls munu 16 málfræðingar
frá 10 löndum halda fyrirlestur. Auk
þeirra mun nokkur hópur fræði-
manna koma frá útlöndum til að taka
þátt í ráðstefnunni. Á nýrri heima-
síðu ráðstefnunnar, http://www.hug-
vis.hi.is/cgsw, er að finna dagskrá,
útdrætti og ýmsar aðrar upplýsingar
um ráðstefnuna. Það eru engin þátt-
tökugjöld en þeir sem hafa hug á að
taka þátt í ráðstefnunni eru beðnir
að hafa samband við Jóhannes Gísla
Jónsson (jgjonsson@centrum.is)
sem allra fyrst.
Ráðstefna um
germanska
setningarfræði
NÚ stendur yfir sýning Jóns Hans
Ingasonar og Einars A. Melax á veit-
ingastaðnum Krákunni í Grundar-
firði. Sýninguna opnuð þeir félagar í
tilefni af hátíðinni Á góðri stundu sem
haldin var í Grundarfirði á dögunum.
Á sýningunni eru 50 verk, ljósmyndir
eftir Jón Hans og málverk eftir Ein-
ar. Ljósmyndir sínar hefur Jón Hans
tekið á ferðalögum sínum. Einar Mel-
ax starfaði á árum áður með súrreal-
istahópnum Medúsu og fyrirtækinu
Smekkleysu, m.a. að myndlist og
bókaútgáfu. Hann hefur gefið út tvær
ljóðabækur og tvær litabækur auk
fjölda myndverka frá samsýningum
Medúsu-hópsins. Á sýningunni á
Krákunni gefur að líta vatnslita-
myndir auk nokkurra olíumálverka
frá árunum 1985–88, en Einar hefur
ekki fengist við myndlist síðan. Sýn-
ingin er sölusýning og verður opin
fram í miðjan ágúst.
Ljósmyndir og
málverk á
Krákunni
SÖNGDÚETTINN Vocalísa held-
ur tónleika í Hóladómkirkju kl. 17
á sunnudag og er það liður í dag-
skránni Til móts við söguna –
Hólar í Hjaltadal sem stendur yfir
á Hólum fram á sunnudag.
Söngdúettinn var stofnaður í
San Francisco fyrir fimm árum af
tveimur sópransöngkonum, þeim
Berglindi Björgúlfsdóttur og
Joyce S. Liu. Þær hafa lagt sig
eftir að syngja eldri tónlist, frá
tímum endurreisnar og barokks.
Tónleikarnir í Hóladómkirkju
marka upphaf söngferðar þeirra
um landið þar sem þær munu
flytja í kirkjum dagskrá er nefn-
ist Himnanna drottning – Ave
María og eru tónleikarnir tileink-
aðir heilagri jómfrú. Viðfangs-
efnið er „Ave Maríur“, annar
kristilegur latneskur eða íslensk-
ur texti helgaður Maríu mey. Með
í för er Sigrún Magnea Þórsteins-
dóttir organisti, en hún lauk kant-
orsprófi frá Tónskóla Þjóðkirkj-
unnar undir handleiðslu Harðar
Áskelssonar.
Efnisskráin verður blanda af ís-
lensku og erlendu efni: Gregor-
ískur sálmasöngur eftir tvær
nunnur: Hildegard von Bingen
sem starfaði í Þýskalandi á 12.
öld og Chiara Margarita Cozzol-
ani sem samdi tónlist í
ítalska klaustrinu
Santa Radegonda á 17.
öld, auk þess brot úr
enskum sálmasöng frá
miðöldum eftir ókunn-
an höfund, lofsöngvar
eftir Vivaldi, Maríu-
bænir og ljóð eftir
Strozzi, Saint-Saëns,
Sigvalda Kaldalóns og
Eyþór Stefánsson.
Einnig verður frum-
flutt verk eftir Hreið-
ar Inga Þorsteinsson.
Fornleifarannsóknir
kynntar
Tónleikunum fylgir
lítil sýning Soffíu Sæmundsdóttur
myndlistarmanns sem hefur unnið
verk tileinkuð heilagri Maríu sér-
staklega af þessu tilefni. Soffía
hefur um árabil sýnt verk sín inn-
an lands og utan og verið fulltrúi
Íslands í alþjóð-
legum sýningum.
Verk hennar hafa
gjarnan á sér þjóð-
legan blæ og í þeim
er trúarlegur
strengur.
Meðal þess sem
boðið er uppá á Hól-
um er gönguferð
með fornleifafræð-
ingi um minjasvæðið
kl. 17 í dag og kl. 15
á laugardag. Þá
verður gengið til
móts við Galdra-Loft
kl. 22 annað kvöld
og í fótspor Guð-
mundar góða á laug-
ardag kl. 11 og kl. 14 verður sýn-
ing Búálfa á gömlum vinnu-
brögðum með tengingu við
íslenskt mál. Kl. 21 verður kvöld-
vaka þar sem Þórarinn Hjart-
arson syngur ljóð Páls Ólafssonar.
Ave Maríur í
Hóladómkirkju
Berglind
Björgúlfsdóttir
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦