Morgunblaðið - 01.08.2002, Qupperneq 40
UMRÆÐAN
40 FIMMTUDAGUR 1. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
sokkar, sokkabuxur, undirföt
oroblu@islensk-erlenda.is
Fitness
saumlausu
líkamsræktarfötin
sem beðið hefur
verið eftir eru nú
komin í 3 litum
og nokkrum gerðum
í verslanir Lyf og heilsu.
ÞAÐ hefur verið
ótrúlegt að fylgjast
með atburðum úr
fjármálalífi þjóðarinn-
ar í sumar. Ef menn
hefðu ekki vitað bet-
ur, þá hefði mátt ætla
að um væri að ræða
nýjasta „sumarsmell-
inn“ frá kvikmynda-
borginni, Hollywood;
svo ótrúlegar hafa
uppákomurnar verið.
Uppákomunum má
skipta upp í þrjá meg-
inkafla – sem þó skar-
ast meira og minna
innbyrðis, enda aðal-
hlutverkin í mörgum
tilvikum í höndum sömu einstak-
linga.
Kaflarnir eru þessir helstir og
eru þó úr ýmsu að velja:
1. Tilraunir einstaklinga sem
gerðir eru út af örkinni, m.a. af
fjármálastofnun í eigu ríkisins til
að brjóta niður Sparisjóðina í land-
inu og kaupa þá fyrir slikk. Og til
þess er notuð gamalkunnug að-
ferð; bera fé á einstaklinga og
kaupa áhrif þeirra og völd. Í raun
er þó verið að reyna að kaupa
eignir af einstaklingum sem þeir
eiga ekki og geta þar af leiðandi
ekki selt. Og í ofanálag er það
þingmaður Sjálfstæðisflokksins
sem frumkvæðið á í farsanum og
hefur jafnframt leikið aðalhlut-
verkið. Samfylkingin varaði mjög
við því að svona kynni að fara,
þegar Alþingi samþykkti lög sem
heimiluðu hlutafélagavæðingu
Sparisjóðanna. Og til að bæta gráu
ofan á svart, er það viðskiptabanki
í meirihlutaeigu ríkisins, sem
stendur á bakvið uppákomuna.
Hvers vegna viðskiptaráðherra
kippir ekki í taumana og segir
hingað og ekki lengra, er óskilj-
anlegt.
2. Opinberuð hafa verið sam-
skipti bankastofnana við íslenskt
stórfyrirtæki, Norðurljós, sem
mun talsvert skuldsett. Í þeirri
uppákomu hefur verið upplýst að
einn tiltekinn banki, virðist hafa
staðið í viðræðum við samkeppn-
isaðila um að keyra
Norðurljós í gjald-
þrot, þannig að þessi
samkeppnisaðili á
markaði gæti síðan
gengið inn og fengið
fyrirtækið fyrir lítið.
Það væri þá komið í
hendur aðila sem
væru valdhöfum
þóknanlegri en þeir
sem nú ráða för hjá
Norðurljósum.
3. „Rangir“ aðilar
gerðu tilboð í hlut rík-
isins í Landsbanka Ís-
lands; einstaklingar
sem hafa ekki verið í
vinahópi valdahaf-
anna. Það olli miklu fjaðrafoki og
lyktaði með því að hlutirnir voru
auglýstir enn og aftur með von um
að „réttir“ aðilar birtust við sjón-
deildarhringinn. Það hefur nú
gerst. Það er ekki sama Jón og
séra Jón, þegar núverandi ríkis-
stjórn metur þá aðila sem vilja
kaupa eignir ríkisins, sem hafa
verið falar um langt skeið. Helm-
ingaskiptaregla Sjálfstæðisflokks-
ins og Framsóknarflokksins, lifir
enn þrátt fyrir allt tal um opnum
fjármálamarkaðsins og meinta
aukna samkeppni á þeim vettvangi
sem öðrum. Allt skal njörvað niður
á hefðbundna bása, þar sem einka-
vinir geta setið við kjötkatla, en
aðrir eiga að vera sáttir við þá
brauðmola sem falla af borðum
klíkuvina.
Skammt á veg kominn
Já, það er með ólíkindum hvað
íslenskt samfélag er komið
skammt áveg, þegar skoðuð er lýð-
ræðisþróun og samkeppnisvæðing.
Allt tal um frelsi, víðsýni og raun-
verulega markaðs- og samkeppni-
svæðingu er hjóm eitt, þegar veru-
leikinn er skoðaður. Einkavæðing
stjórnarflokkanna, sem í orði
kveðnu á að miða að því að auka
samkeppni og efla frumkvæði og
kraft í íslensku atvinnulífi, hefur
gjörsamlega snúist í andhverfu
sína. Örfáir einstaklingar skulu
halda um alla þræði – og vera í
sambandi við rétta pólitíska vald-
hafa. Valdablokkin skal blíva.
Sjálfstæðisflokkurinn og Fram-
sóknarflokkurinn eru sömu hafta-
flokkarnir og fyrr. Félagslegur
rekstur er þeim þyrnir í auga, því
þá búa þeir við eftirlit lýðræð-
islega kjörinna fulltrúa, Alþingis.
Sem og almennings. Um leið og
ríkisfyrirtæki er einkavætt er
þeim þröskuldum rutt úr vegi. En
það er svo langur vegur frá því að
áform stjórnarflokkanna miði að
því að almenningsvæða fjármála-
fyrirtæki og önnur þjónustufyrir-
tæki sem hafa verið í meirihluta-
eigu ríkisins. Nei, þeim skal komið
í hendur þeirra sem falla stjórn-
arherrunum í geð.
Það er í þessu samhengi auðvit-
að ekki að undra að forysta Sjálf-
stæðisflokksins leggist eindregið
gegn öllum hugmyndum um að Ís-
land sæki um aðild að Evrópusam-
bandinu, því slíkt stefnir í hættu
hinni þröngu flokkshagsmunapóli-
tík sem öllu ræður, þegar Sjálf-
stæðisflokkurinn á í hlut. Evrópu-
sambandsaðild gæti truflað gerð
hins nýja kóngulóarvefjar valdsins,
sem hugmyndafræðingar Sjálf-
stæðisflokksins spinna nú af full-
um krafti. Þar skal búin til ný
valdablokk, nátengd Flokknum
með stórum staf – það skal deilt
og drottnað og náin erlend sam-
skipti samkvæmt fyrirskrifuðum
almennum alþjóðlegum leikreglum
passa ekki inn í þá draumsýn.
Þarf ekki að snúa við blaði?
Er ekki tími til kominn að þessi
öfugþróun verði stöðvuð? Er ekki
rétt að menn skoði íslenska sam-
félagsgerð upp á nýtt? Er ekki
nauðsynlegt að fólk svari þeirri
spurningu, hvort það vilji að verð-
mæti samfélagsins verði með var-
anlegum hætti komið í hendur ör-
fárra útvalinna? Finnst fólki ekki
nóg að fiskinum í sjónum skuli
hafa verið komið á hendur kvóta-
kónga? Er almenningur sáttur við
það að fjármálastofnanir, fjöl-
miðlar, fjarskiptafyrirtæki, trygg-
ingafyrirtæki og önnur grunnþjón-
usta fari einnig í fang þeirra sem
eru meðal klíkuvina, þeirra sem
gæta sín að dansa í takt við stóra
bróður?
Já, er ekki tími til kominn að
snúið verði við blaði og sjónarmið
jafnaðarstefnunnar fái að njóta
sín, þar sem almannahagsmunir
ráða för? Þar sem menn nýta sér
kosti félagslegra lausna, þar sem
það á við, en um leið möguleika
einkarekstrar og raunverulegrar
virkrar samkeppni þar sem því
verður við komið?
Samfylkingin segir sérhyggj-
unni, þröngsýninni og árásinni á
almannahagsmuni í íslensku við-
skiptalífi stríð á hendur. Það eru
kjósendur í landinu sem ráða
miklu um það hvernig þeirri bar-
áttu mun lykta. Fyrsta prófið fer
fram í maí næstkomandi, þegar
þingkosningar fara fram. Þá er
tækifærið til að breyta þessum
grundvallarviðmiðum. Það verður
eingöngu gert með stuðningi við
jafnaðarmenn – Samfylkinguna.
Farsi á fjár-
málamarkaði
Guðmundur
Árni Stefánsson
Höfundur er alþingismaður.
Hagsmunir
Samfylkingin segir
sérhyggjunni, þröng-
sýninni og árásinni á
almannahagsmuni í
íslensku viðskiptalífi,
segir Guðmundur
Árni Stefánsson,
stríð á hendur. EINS og þekkt er
heldur Ungmennafélag
Íslands úti þróttmiklu
og mikilvægu starfi fyr-
ir ungmenni um land
allt. Einn þáttur í þessu
starfi eru íþróttamót
fyrir unglinga þar sem
keppt er í fjölmörgum
greinum.
Um verslunarmanna-
helgina verður Ung-
lingalandsmót UMFÍ
haldið í Stykkishólmi.
Framkvæmd mótsins
er að þessu sinni í hönd-
um Héraðssambands
Snæfellinga og Hnapp-
dæla (HSH). Á vegum þess hefur ver-
ið unnið mjög mikilvægt starf í þágu
ungmenna á Snæfellsnesi í áratugi og
hafa fjölmargir einstaklingar unnið
sjálfboðastarf á vettvangi ungmenna-
félaganna til að efla heilbrigt æsku-
lýðs- og íþróttastarf. Unglingalands-
mót UMFÍ hafa notið vaxandi
vinsælda sem fjölskylduhátíð. Þar
keppa ungmenni í íþróttum meðan
foreldrar og systkini fylgjast með og
njóta samverunnar í skemmtilegu
umhverfi, þar sem jafn-
framt er haldið uppi
fjölbreyttri dagskrá
fyrir fjölskyldufólk.
Í Stykkishólmi er
glæsileg aðstaða bæði
til íþróttaiðkunar og af-
þreyingar. UMFÍ hefur
lagt metnað í fram-
kvæmd þessara móta
og ekki fer á milli mála
að verslunarmanna-
helgin er kjörin til þess
að efna til Unglinga-
landsmóts UMFÍ.
Ferðamálaráð hefur að
undanförnu lagt mikið
kapp á að auka ferðalög
Íslendinga innanlands og er þess að
vænta að árangur verði af þeirri öfl-
ugu kynningu. Íslensk ferðaþjónusta
er að eflast mjög um land allt sem ein
stærsta atvinnugrein okkar. Sem ráð-
herra ferðamála fagna ég því að
UMFÍ skuli efna til fjölskyldumóts á
borð við Unglingalandsmót UMFÍ og
ganga þannig til samstarfs við ferða-
þjónustuna í landinu, sem hefur verið
að byggja upp aðstöðu, til þess að
veita þjónustu þeim fjölmörgu sem
vilja ferðast um landið, njóta fegurðar
þess og margvíslegrar afþreyingar
sem byggð hefur verið upp vítt um
landið.
Það er von mín að Unglingalands-
mót UMFÍ megi takast vel í Stykk-
ishólmi og verða ungmennafélögun-
um hvatning til þess að halda áfram
að byggja upp fjölskylduhátíðir þar
sem íþróttir og útivist eru hafðar í há-
vegum.
Unglingalands-
mót UMFÍ – eflir
ferðaþjónustu og
æskulýðsstarf
Sturla Böðvarsson
Höfundur er samgönguráðherra.
Unglingalandsmót
Í Stykkishólmi er glæsi-
leg aðstaða, segir Sturla
Böðvarsson, bæði til
íþróttaiðkunar og af-
þreyingar.
FYRIR og eftir versl-
unarmannahelgar á sér
gjarna stað umræða um
nauðganir, sem því mið-
ur virðast vera orðnar
fylgifiskur þessarar
annars skemmtilegu há-
tíðarhelgar.
Umræðan virðist þó
aðeins lúta að kvenfólki
sem verður fyrir nauðg-
un, en lítið sem ekkert
er fjallað um nauðganir
á karlmönnum.
En þótt lítið sé um
þær fjallað á opinberum
vettvangi (en þeim mun
meira um þær skrafað
manna á milli) eru
nauðganir á karlmönnum raun-
veruleg hætta og öll ástæða til að
vekja pilta til umhugsunar um að
þeir eru ekki óhultir fyrir því að
verða fórnarlömb nauðgunar sjálfir.
Nauðgun á karlmanni er síst
minni glæpur en nauðgun á kven-
manni, og gildir þá einu hvort stúlka
þröngvar pilti stórsljóvguðum af
áfengi til maka við sig
eða hvort annar karl-
maður á í hlut. Því
miður má einnig ætla
að piltar séu síður lík-
legir til að leita sér að-
stoðar í kjölfar nauðg-
unar, enda er þeim oft
innrætt félagslegt
sjálfsmat karlhetjunn-
ar sem ber harm sinn í
hljóði og lætur ekkert
á sér bíta.
Ég vil með skrifum
þessum minna þá sem
ætla að skemmta sér
ærlega um verslunar-
mannahelgina á þessa
hættu, og biðja fólk að
hafa ekki síður auga með karlkyns
en kvenkyns ferðafélögum sínum ef
þeir hafa neytt áfengis í óhófi.
Þá sem telja sig hafa orðið fyrir
nauðgun, bæði stráka og stelpur,
hvet ég til að hika ekki við að leita
sér aðstoðar og stuðnings hjá þartil-
bærum aðilum á hátíðarstöðum um
landið allt. Aðeins með stuðningi
annarra er hægt að láta sárin gróa,
og aðeins með skjótum viðbrögðum
má koma höndum yfir þann sem
glæpinn framdi.
Best er, hins vegar, að fyrirbyggja
að skemmtunin snúist upp í and-
hverfu sína, og reyna að forðast það
að lenda í aðstöðu þar sem maður er
veikur fyrir. Þar skiptir mestu að
skemmta sér á skynsaman hátt,
drekka ekki þannig að maður missi
rænu eða þannig að dómgreind
skerðist verulega.
Strákum er líka
nauðgað
Ásgeir Þ.
Ingvarsson
Nauðganir
Ég vil biðja fólk, segir
Ásgeir Ingvarsson, að
hafa ekki síður auga
með karlkyns en kven-
kyns ferðafélögum sín-
um ef þeir hafa neytt
áfengis í óhófi.
Höfundur nemur lögfræði og stjórn-
málafræði við Háskóla Íslands.
M O N S O O N
M A K E U P
lifandi litir