Morgunblaðið - 01.08.2002, Blaðsíða 43
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. ÁGÚST 2002 43
✝ Bragi Einarssonfæddist í Vest-
mannaeyjum 27.
apríl 1930. Hann
lést á Landspítalan-
um við Hringbraut
24. júlí síðastliðinn.
Foreldrar Braga
voru Einar Lárus-
son, f. 20.3. 1893, d.
5.5.1963, og Sigrún
Vilhjálmsdóttir, f.
29.9. 1897, d. 19.1.
1956. Bragi var
yngstur þriggja
bræðra. Bræður
Braga eru: Lárus
Sigurfinnur Einarsson, f. 23.3.
1923, d. 18.8. 1980, og Haraldur
Arnór Einarsson, f. 17.7. 1924.
Bragi ólst upp í Vestmannaeyj-
um. Hann lauk gagnfræðaprófi,
iðnskólaprófi og sveinsprófi í
málaraiðn en meistararéttindi í
greininni öðlaðist hann 1956.
Bragi starfaði síðan
lengi við verslunar-
og málarastörf.
Hann rak ásamt
föður sínum versl-
un, glerslípun og
speglagerð í Eyjum
frá 1952–1960 en
flutti þá til Reykja-
víkur. Þar stundaði
hann einnig versl-
unarstörf og iðn-
grein sína og rak
síðan eigin heild-
sölu um skeið.
Bragi starfaði síð-
ustu árin nær ein-
göngu að málefnum Félags ís-
lenskra hugvitsmanna. Bragi
bjó lengst af á Óðinsgötu 20, en
síðustu mánuði ævi sinnar bjó
hann á Dvalarheimilinu Felli.
Útför Braga fer fram frá
Fossvogskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 15.
Mig langar að kveðja frænda
minn, Braga Einarsson, með
nokkrum orðum. Eins og frændum
sæmir umgengumst við reglulega
þegar ég var barn og unglingur.
Mér finnst samt eins og raunveru-
leg kynni okkar Braga hafi ekki
hafist fyrr en áhugi hans á hugviti
kviknaði af fullri alvöru. Sá áhugi
fylgdi honum til dauðadags og lit-
aði persónuleika hans svo sterkt að
ekki er hægt að minnast hans
öðruvísi en fjalla um þá hlið hans.
Þær voru ófáar stundirnar sem við
áttum saman yfir kaffibolla heima
hjá mér þar sem Bragi ræddi um
hugmyndir sínar og annarra. Það
var einn af hans draumum að sjá
Íslendinga standa framar á sviði
nýsköpunar og uppfinninga en þeir
gera í dag. Starf Braga með Félagi
íslenskra hugvitsmanna var honum
uppspretta margra hugsana. Ég
fékk að fylgjast með úr fjarlægð
þegar félagið var stofnað, þegar
það kom sér upp skrifstofu og
starfi hans þar. Bragi batt miklar
vonir við þetta félag sem ekki rætt-
ust allar en eiga vonandi eftir að
gera það síðar. Það gladdi Braga
óumdeilanlega ef hann gat orðið
öðrum að liði við úrvinnslu hug-
mynda eða leiðbeint við öflun
einkaleyfa og pappírsvinnu af ýms-
um toga. Eins minnist ég þeirrar
stundar þegar Bragi færði mér
nokkur eintök af bókinni sinni sem
hafði hlotið nafn í höfuðið á honum
og var kölluð „Bókin hans Braga“.
Bók sem dreift var til fjölmargra
grunnskólanema og verður vonandi
það fræ sem þarf til að komandi
kynslóðir læri að meta og hafa trú
á eigin hugmyndum. Vinna Braga
vegna nýsköpunarkeppni grunn-
skólanna var honum mjög kær og
þeir einstaklingar sem hann kynnt-
ist í gegnum þá vinnu. Bragi teikn-
aði upp innsendar hugmyndir nem-
enda af stakri prýði og hafði
skýrar skoðanir á gæðum hug-
myndanna. Mér fannst einnig eft-
irtektarvert að heyra hvernig
Bragi talaði um nemendur sína.
Inn á milli voru nemendur sem
enginn í skólakerfinu virtist hafa
trú á en það voru hans uppáhalds-
nemendur og hafði Bragi mörg orð
um hversu hugmyndaríkir sumir
þeirra voru. Vonandi eiga einhverj-
ir af þessum nemendum hans eftir
að auðga íslenskt þjóðfélag með
nytsömum, einkaleyfishæfum hug-
myndum.
Síðustu mánuði ævi sinnar dvaldi
Bragi á Dvalarheimilinu Felli. Þótt
hann væri orðinn þreklítill og veik-
ur breytti það engu um áhuga hans
á hugviti. Hann hélt sínu striki og
gaf börnum starfsmanna teikni-
áhöld og rissblöð og reyndi að
kenna þeim þrívíddarteikningar.
Bragi trúði því að sambýlingar sín-
ir lumuðu á góðum hugmyndum.
Galdurinn væri bara að fá þá til að
hætta að lifa í fortíðinni og beina
sjónum til framtíðar. Ef til er vist
eftir dauðann efast ég ekki um að
þar stendur Bragi í ströngu við að
sannfæra þá sem þar eru um
mikilvægi nytsamra hugmynda auk
þess sem hann veltir fyrir sér leið-
um til að bæta það sem hægt er að
bæta.
Haraldur Arnar Haraldsson.
Það lágu skilaboð frá Braga á
skrifborðinu um miðjan júlí. „Bragi
biður að heilsa.“ Ég hafði verið er-
lendis. Það var sunnudaginn 28.
júlí sem ég hugsaði mér að heim-
sækja Braga. Eftir þá ákvörðun,
tek ég upp Morgunblaðið frá laug-
ardeginum og minningasíður opn-
ast. Dánartilkynning Braga blasti
við. Það var þá Bragi sem var að
benda mér á að ég gæti ekki heim-
sótt hann í efninu þann daginn, að-
eins í anda. Kannski var það Bragi
sjálfur sem kom því við, að sunnu-
dagsblaðið kom ekki, til þess að ég
mætti endurlesa laugardagsblaðið
og þar með dánartilkynningu hans!
Bragi var sérstakur maður, enda
hugvitsmaður eins og Leonardo da
Vinci og götu-heimspekingur eins
og Sókrates. Ég kynntist honum á
Tækniskólaárum mínum fyrir um
11 árum. Mér hafði verið bent á að
ræða við hann, því ég var að
springa af hugmyndum sem ég
sjálf gat vart gert skil á. Saman
sátum við sunnudag eftir sunnu-
dag, mánuð eftir mánuði í kaffi nið-
ur á Listasafni Íslands og skipt-
umst á hugmyndum og hugarorku
á meðan sonur minn Kristján sat
niðri í barnahorninu og virkjaði
listræna hæfileika og kom reglu-
lega upp til að afhenda listaverkin
sín. Bragi var svo skýr í huga að
hann þurfti ekki auto cad tölvu.
Hann einfaldlega sá allt í þrívídd
og gat snúið þeim hlut sem hann
var að hugsa um eins og þrívídd-
argrafík í tölvuforriti. Bragi náði
til vídda sem við hin náum aldrei
til. Vídda þar sem lausnirnar er að
finna. Þess vegna var Bragi sér-
stakur og margir mega öfunda
hann af hans tæra huga. En Bragi
hafði ekki það fé sem þurfti til að
einkaleyfa allar hans frábæru hug-
myndir, en ég er sannfærð um að
Bragi kom mörgum hugmyndum
og lausnum niður í okkar hugar-
heim, til að hver og einn mætti
sækja þær, ef hann hefði vit og
getu til þess.
Bragi bar ávallt litla minnisbók á
sér. Hún var aldrei sú sama og síð-
ast þegar maður hitti hann. Sú bók
gat verið númer 627 en sú síðasta
622, 5 bækur á milli. Bragi teikn-
aði, skissaði og skráði allar lausnir
sem komu niður í huga hans í þess-
ar litlu bækur, rétt eins og Leon-
ardo da Vinci. Öll lögmál koma þar
fram. Þannig þokaðist hver hug-
mynd áfram til lausnar. Þessar
litlu skissubækur eru dagbækur
mikils hugvitsmanns. Ég ætla að
vona að þær verði teknar til hand-
argagns ásamt öðrum gögnum
hans af Hugvitsmannafélaginu eða
Þjóðarbókhlöðunni sem gersemar
og gagnasafn, rétt eins og skissu-
teikningar Leonardo da Vinci.
Margir kannast e.t.v. við útgáfu
lítillar rúðustrikaðrar minnisbókar
innbundna í gorma, með teikningu
af ljósaperu og blýanti í mannslíki.
Þetta er Bókin hans Braga eins og
hún heitir og var gefin út í tilefni
Nýsköpunarkeppni grunnskóla-
nemenda. Bragi var nefnilega mjög
mikill barnavinur og annt um að
ungir nemendur fengu að virkja
huga sinn í hugvit. Það var Bragi
sem ýtti hugvitsmannabekkjum
grunnskóla áfram og úr vör og
kenndi þessu unga fólki um árabil
að virkja hugvit sitt. Honum fannst
óþarfi og óvirðing gagnvart
drengjum og stúlkum þessar fornu
smíðar og saumadútl. Þetta unga
fólk, stúlkur og drengir, hefðu
meira til brunns að bera en að
prjóna endalausan trefil og skera
fígúrur úr tré. Virkt hugvit væri
framtíðin. Virkt hugvit kostar ein-
beitingu og einbeiting er sá sjálfs-
agi sem öllum mönnum er nauð-
synlegur í fortíð, nútíð og framtíð.
Einbeiting hrindir frá blekkingum
og viðhorfum og er greiðasta leið
til lausnar. Ég vona að þetta fram-
úrstefnuverkefni og framtíðarsýn
Braga í grunnskólum haldi áfram
um aldur og ævi.
Einn vetur fékk hann það verk-
efni að sinna ungum nemendum
sem ekki var útséð um að næðu
grunnskólaprófi. Við kölluðum slíkt
í gamla daga tossa. En þetta voru
ekki tossar í augum Braga, heldur
vanmetnir einstaklingar. Hann sá
hæfileika þeirra og virkjaði þá.
Þetta unga fólk þurfti ekki endi-
lega að vera með hæfileika til að
kunna mannkynsöguna aftur á bak
og áfram. En það hafði annað í sér
sem Bragi sá og hjálpaði til að
blómstra. Sumir af þessum nem-
endum Braga verða e.t.v. vélvirkj-
ar, tískuhönnuðir eða eldklárir bif-
vélavirkjar og þúsundþjalasmiðir
þegar fram í sækir. Burtséð frá
einkunnum þá útskrifuðust þessir
nemendur með sjálfstraust á sjálf-
an sig og framtíðina. Það var
Braga að þakka.
Þannig var Bragi, fordómalaus.
Hann sá inn í sál okkar og virkjaði
hana niður á efnissviðið. Hógvær
til orðs og æðis var hans eiginleiki.
Ábendingar hans voru svo hógvær-
lega og blíðlega settar fram að
kalla mætti hann „ljósmóður“ hug-
mynda og hugvits fyrir þá sem
fengu tækifæri til að vinna með
honum. Þannig er og á góður kenn-
ari að vera. Ég verð ævinlega
þakklát fyrir að hafa kynnst
Braga. Það þarf vart að kveðja
Braga. Við hittumst í andanum um
aldir alda.
Sigfríð Þórisdóttir.
BRAGI
EINARSSON
ÆSKILEGT er að minning-
argreinum fylgi á sérblaði
upplýsingar um hvar og hve-
nær sá, sem fjallað er um, er
fæddur, hvar og hvenær dá-
inn, um foreldra hans, systk-
ini, maka og börn, skólagöngu
og störf og loks hvaðan útför
hans fer fram. Ætlast er til að
þessar upplýsingar komi að-
eins fram í formálanum, sem
er feitletraður, en ekki í grein-
unum.
Formáli minn-
ingargreina
Sími 562 0200
Erfisdrykkjur
www.solsteinar.is sími 564 4566
Legsteinar
í Lundi
við Nýbýlaveg, Kópavogi
! "#$
!
" #$ %%
%!
&'( )
&'*(+,
&'! )
&'!
)
+,,
&'! )
) - ,.
/
0!
,#'
%,
- , )
1!
&/
& 2)
&' 3
4. #
5
6/
)
,"
) '
#
, 3
$
7.)
-
) 5
/
,
* *+
),
* * *+ /
& '
! !
&8
/
9:;< 0"/
' " '(
#
0$( "#$
$ ,'
=>
?@ "),
5
)'(+'
A
)'(+'
)'(+'
-
$
' /
(
A
694: +
0$( "#$
)
!*
+
!,
!*
#" "%
-
.
/
. .
,'
5 )
,
,' 5
, )
- ,.
,'
5
,')
),
* *+ /
(
A
<?
69
A
'" ,
B
"#
,0*
?(
) /
& '
.
&
& :<
4A
9
!
*0,,'
1 2
3
2
4 !*
5 +
&'*(+
0$
5
),
! $
2 /