Morgunblaðið - 01.08.2002, Side 48
FRÉTTIR
48 FIMMTUDAGUR 1. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
HÓPUR breskra fornleifafræð-
inga telur sig hafa fundið vísbend-
ingu um að Evrópubúar hafi stundað
tafl allt frá sjöttu öld. Taflmaður úr
fílabeini fannst í júlí við uppgröft í
hinni fornu borg Butrint þar sem nú
er Suður-Albanía, skammt frá landa-
mærum Grikklands. Fornleifafræð-
ingarnir telja hann allt að 500 árum
eldri en taflmenn sem áður hafa
fundist í Evrópu. Forystumenn
hópsins, sem er frá East Anglia-há-
skólanum á Bretlandi, segja að þessi
fundur sýni að skákin eigi sér mun
lengri sögu í Evrópu en fram til
þessa hefur verið talið. Skák er talin
eiga rætur að rekja til Indlands á
sjöttu öld. Þaðan er hún talin hafa
borist til Evrópu í gegnum Persíu
(Íran). Elstu heimildir um skák í
Norður-Evrópu eru frá síðari hluta
tíundu aldar. Við lok elleftu aldar var
skák orðin vel þekkt sem dægra-
stytting meðal aðalsmanna út um
alla Evrópu.
Taflmaðurinn sem fannst í Butrint
er fjórir sentimetrar á hæð og er að-
eins lítillega skemmdur. Prófessor
Richard Hodges, sem er einn af for-
ystumönnum leiðangursins, segir að
líklega sé um kóng eða drottingu að
ræða. Hann dregur þá ályktun af
krossi efst á taflmanninum, en verið
er að kanna málið betur. Hann segir
einnig að sagnfræðingar telji að skák
hafi orðið vinsæl í Evrópu á tólftu öld
og vísar í því sambandi til hins
merkilega fundar á Lewis-eyju þar
sem fjöldi haganlega gerðra tafl-
manna úr rostungstönn fannst árið
1831. Talið er að þeir séu frá tólftu
öld og jafnvel er talið hugsanlegt að
þeir hafi verið smíðaðir hér á landi.
Þess má geta að afsteypa af Lewis–
taflmönnunum er nú til sýnis á hinni
stórmerkilegu sýningu Þjóðmenn-
ingarhússins sem helguð er skákarfi
Íslendinga og 30 ára afmæli einvígis
þeirra Fischers og Spasskys. Þar má
einnig sjá forna taflmenn (hneftafl)
sem fundust hér á landi og eru meðal
helstu dýrgripa Þjóðminjasafnsins.
Fróðlegt verður að fylgjast með
fréttum af fundinum í Butrint, en t.d.
hefur ekki komið fram hvort fleiri at-
riði styðja það að hér sé raunveru-
lega um taflmann að ræða, en forn-
leifafræðingarnir virðast sannfærðir
um að svo sé.
Jón Garðar gerði jafntefli
við John van der Wiel
á Lost Boys-mótinu
Þeir Jón Garðar Viðarsson og
Gylfi Þór Þórhallsson taka nú þátt í
hinu árlega Lost Boys-skákmóti í
Amsterdam. Fimm umferðum er
lokið. Jón Garðar hefur 2½ vinning
og er í 38.–58. sæti, en Gylfi hefur ½
vinning og er í 97.–99. sæti. Í annarri
umferð gerði Jón Garðar jafntefli við
hollenska stórmeistaran John van
der Wiel (2.506).
Helgi Áss lenti
í 2.–14. sæti í Dresden
Helgi Áss Grétarsson fór taplaus í
gegnum alþjóðlega skákmótið í
Dresden og hafnaði í 2.–14. sæti með
7 vinninga í 9 skákum. Lenka Ptacni-
kova hlaut 5½ vinning og hafnaði í
54.–85. sæti. Alexander Graf (2.624)
sigraði á mótinu og fékk 8 vinninga.
Politiken Cup
Þeir Guðmundur Kjartansson og
Dagur Arngrímsson stóðu sig báðir
með prýði á Politiken Cup-skák-
mótinu í Kaupmannahöfn. Guð-
mundur hlaut 6 vinninga í 11 um-
ferðum og hafnaði í 59.–83. sæti.
Dagur hlaut 5½ vinning og hafnaði í
84.–107. sæti. Þeir Sergei Tiviakov
(2.628), Alexander Beliavsky (2.652)
og Ruben Felgaer (2.509) sigruðu á
mótinu, fengu 8½ vinning.
Stefán og Magnús Örn fengu
5½ vinning í Tékklandi
Þeir Stefán Kristjánsson og
Magnús Örn Úlfarsson stóðu sig
best Íslendinganna á Opna tékk-
neska meistaramótinu sem fram fór í
Pardubice í Tékklandi. Þeir enduðu
báðir með 5½ vinning af 9. Loka-
staða íslensku skákmannanna í A-
flokki varð sem hér segir:
52.–83. Stefán Kristjánsson,
Magnús Örn Úlfarsson 5½ v.
133.–183. Páll Þórarinsson 4½ v.
184.–229. Arnar E. Gunnarsson,
Jón Árni Halldórsson, Halldór
Brynjar Halldórsson, Bragi Þor-
finnsson og Sigurbjörn J. Björnsson
4 v.
230.–260. Einar K. Einarsson 3½
v.
Röð efstu manna á mótinu varð
þessi:
1.–7. Vladislav Borovikov (2.570),
Peter Acs (2.560), Zbynek Hracek
(2.600), Dmitry Jakovenko (2.552),
Valery Neverov (2.587), Ernesto In-
arkiev (2.545), Vladimir Burmakin
(2.574) 7 v.
Í B-flokki var árangur Íslending-
anna þessi:
Haraldur Baldursson og Sverrir
Norðfjörð 4½ v.
Harpa Ingólfsdóttir 3½ v.
Óskar Haraldsson og Sigurður
Ingason 3 v.
Anna Björg Þorgrímsdóttir 2½ v.
Hrannar Baldursson sigraði
á fimmta Halló!-mótinu
Hrannar Baldursson sigraði á
fimmta mótinu í Bikarsyrpu Halló!
sem fram fór á ICC um síðustu helgi,
en hann býr í Mexíkó. Alls tóku 30
skákmenn þátt í mótinu. Sjötta mót-
ið í Halló!-syrpunni fer fram 25.
ágúst. Úrslit fimmta mótsins:
1. Hrannar Baldursson 7½ v. af 9
2.–3. Björn Ívar Karlsson, Andri
Áss Grétarsson 6½ v.
4.–6. Björn Þorfinnsson, Snorri
Guðjón Bergsson, Áskell Örn Kára-
son 6 v.
7.–9. Davíð Kjartansson, Rúnar
Sigurpálsson, Guðmundur Gíslason
5½ v.
10.–13. Jóhann H. Ragnarsson,
Róbert Harðarson, Davíð Ólafsson,
Gunnar Björnsson 5 v.
14.–16. Ingvar Ásmundsson,
Bragi Halldórsson, Sæberg Sigurðs-
son 4½ v.
o.s.frv.
Skákstjóri var Sickacen, en hon-
um til aðstoðar var Gunnar Björns-
son. Röð efstu manna í Bikarsyrp-
unni er nú þessi:
1. Björn Þorfinnsson 29½ v.
2. Snorri Guðjón Bergsson 26 v.
3. Hrannar Baldursson 24 v.
4.–5. Magnús Magnússon, Rúnar
Sigurpálsson 23½ v.
Fornar minjar
finnast um tafl-
mennsku í Evrópu
SKÁK
Butrint, Albanía
TAFLMAÐUR FRÁ SJÖTTU ÖLD
Júlí 2002
Daði Örn Jónsson
Reuters
Í SÍÐUSTU fimmtudagskvöldgöngu
þjóðgarðsins á Þingvöllum í sumar
mun dr. Ólína Þorvarðardóttir, skóla-
meistari og sérfræðingur í galdra-
málum, fræða vegfarendur um
galdramál 17. aldar og framkvæmd
brennudóma á Alþingi. Göngurnar
hafa verið afar vel sóttar. Fjöldi
manns hefur mætt í allar göngurnar
og notið leiðsagnar fræðimanna og
landvarða en í sumar göngurnar
komu yfir 200 manns.
Alþingi var sá vettvangur réttar-
kerfisins þar sem dæma skyldi í lífs-
og ærusökum á Íslandi. Heimildir
sanna þó að oft varð misbrestur á
þessu og að landsmenn kunnu lögin
ekki til hlítar. Margir meintir galdra-
menn voru því brenndir á báli í héraði
án þess að mál þeirra kæmu til Al-
þingis fyrr en að aftöku afstaðinni.
Þannig voru ellefu Íslendingar
brenndir héraðsbrennu en níu voru
dæmdir og brenndir á Þingvöllum „að
mörgum góðum mönnum nærverandi
jafnt innan vébanda sem utan“ eins
og stundum segir í Alþingisbókum.
Safnast verður saman við útsýnis-
skífuna á Hakinu í kvöld þar sem
gengið er niður í Almannagjá kl.
20:00. Þaðan verður gengið niður Al-
mannagjá og staldrað við á þeim stöð-
um þar sem brennudómar voru upp-
kveðnir og þeim framfylgt, Lögréttu
og Brennugjá. Gangan tekur um tvo
tíma.
Sagt frá galdrabrenn-
um á Þingvöllum
IÐANDI dagar verða á Flúðum og í
nágrenni um verslunarmannahelg-
ina og verður fjölbreytt afþreying í
boði. Dagskráin er sniðin að áhuga
fjölskyldufólks.
Á Iðandi dögum verður haldin
grettukeppni, Íslandsmót í míkadó,
hjóna- og krakkafitness, hin eina
sanna furðubátakeppni, lifandi tón-
list alla helgina, gönguferðir, sund,
golf, varðeldur, markaður, hand-
verk, fjöldasöngur og ekki má
gleyma lokaumferðinnni í traktor-
storfærunni vinsælu. Þá verða ýmis
tilboð hjá ferðaþjónustuaðilum þessa
helgi. Allir eru velkomnir á Flúðir.
Iðandi dagar
á Flúðum
ÚT er komið nýtt hefti af Barnagát-
um. Efni blaðsins eru krossgátur og
aðrar þrautir, sem ætlaðar eru byrj-
endum. Lausn fylgir hverri gátu. Út-
gefandi er Ó.P. útgáfan ehf. Blaðið
fæst í öllum helstu verslunum og
söluturnum.
Barnagátur
komnar út
„ÁIN er að fara í um 900 laxa og það
gengur vel núna, nóg af fiski á báðum
svæðum og hollin eru að skila góðri
veiði. Það er þó skelfilegt hvað þessu
hefur verið misskipt í sumar, júní var
að heita ónýtur. Ég fór sjálfur í Þver-
ána seinnipart júní og það var enginn
lax og sáralítið vatn í ánni. Upp úr því
fór að ganga betur og júlí hefur allur
verið góður, sérstaklega eftir að það
rigndi upp úr þeim tíunda,“ sagði Jón
Ólafsson, einn leigutaka Þverár/
Kjarrár, í samtali við Morgunblaðið í
gærmorgun.
Þorsteinn ekki eins hress
Þorsteinn Þorsteinsson á Skálpa-
stöðum, formaður Veiðifélags Gríms-
ár, sagði veiðina ekki eins góða og
þeir hefðu vænst miðað við lýsingar
fiskifræðinga á góðum seiðaárgangi
sem fór úr ánni í fyrra og góðu gengi
annars staðar, t.d. í Norðurá.
„Það eru komnir á fjórða hundrað
laxar á land. Það er holl í ánni núna
sem er komið með 26 laxa eftir tvo
daga, á einn dag eftir. Þetta er minna
en menn hefðu viljað hérna, en samt
er ekki neinn dauði. Það er talsverður
lax í ánni en hefur tekið grannt og illa.
Menn hafa misst marga fiska. Það er
að vísu enn að ganga nýr lax, en ég á
ekki von á því að ástandið gjörbreyt-
ist, þótt auðvitað væri gaman ef það
glæddist eitthvað,“ sagði Þorsteinn í
gær.
Stærsti lax sumarsins í Grímsá var
18 punda, en mest er um ágætan eins
árs lax.
Annars staðar í Borgarfirði
Þær voru dálítið orðum auknar
fregnirnar um að Gljúfurá væri að
fyllast af fiski. Eftir stutt skot upp á
fimmtán laxa á þremur dögum á dög-
unum komu holl með vönu fólki sem
fengu aðeins tvo og þrjá laxa hvort,
en þá flóðrigndi og næsta holl fékk
kjörskilyrði og landaði átta löxum.
Síðan hefur lítið veiðst, mest fyrir litla
ástundun og óheppni veiðimanna, að
mati Birnu G. Konráðsdóttur veiði-
varðar, sem sagði menn sjá talsvert af
laxi eftir flóðið á dögunum.
Eitthvert kropp er í Reykjadalsá í
Borgarfirði, síðasta holl náði fjórum á
land og menn sjá fisk víða í ánni, en
hún er geysilega viðkvæm.
Vel hefur veiðst í Flóku og óstað-
fest tala sem barst okkur var að áin
væri komin nokkuð á annað hundrað
laxa. Fín skot eru og í Straumunum
og Brennunni, veiðast stundum fjórir
til átta laxar á dag auk sjóbirtinga.
Skin og skúrir
í Borgarfirði
Jón Ástráður Jónsson, Davíð
Eyrbekk, Sigþór Óskarsson,
Guðmundur Óskarsson, Gunnar
Óskarsson og Óskar Færseth
með 12 laxa, þar af þrjá 12
punda.
ERU
ÞEIR AÐ
FÁ’ANN?
Í DAG, fimmtudaginn 1. ágúst, frá
kl. 13–17 verður kynnt ostagerð á Ís-
landi, fyrr og nú, á Minjasafni Aust-
urlands, Egilsstöðum. Starfsfólk
Mjólkurbús Flóamanna, Egilsstöð-
um verður á staðnum.
Uppákoman er styrkt af Osta- og
smjörsölunni sf., en boðið verður upp
á sýnishorn af íslenskum ostum fyrir
gesti og gangandi til að bragða á. All-
ir eru velkomnir.
Þjóðháttadagar
á Minjasafni
Austurlands
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi yfirlýsing frá Halldóri
Þorgeirssyni f.h. Kvikmyndafélags-
ins Umba.
„Að gefnu tilefni vill Kvikmynda-
félagið Umbi benda á að ummæli Vil-
hjálms Egilssonar um úthlutun kvik-
myndasjóðs séu honum sjálfum til
vansa.
Úthlutunarnefnd var á engan hátt
stillt upp við vegg af hálfu Kvik-
myndafélagsins Umba. Það að kvik-
mynd fari í gang áður en styrkur
komi til frá kvikmyndasjóði eru eng-
inn nýmæli og setur það því engar
kvaðir á úthlutunarnefnd. Úthlut-
unnarnefnd Kvikmyndasjóðs hefur
bæði veitt styrki og hafnað til mynda
sem komnar eru í gang við úthlutun.
Eina tilraun til þess að stilla út-
hlutunarnefnd upp við vegg var gerð
af formanni stjórnar Kvikmynda-
sjóðs er hann mætti á fund úthlut-
unarnefndar. Úthlutunarnefnd er
skipuð með það að markmiði að
starfa sjálfstætt án áhrifa frá stjórn
sjóðsins og leggja hlutlaust mat á
þau verkefni sem eru í pottinum.
Formaður sjóðsins veit manna
best að sjóðurinn styrkir ekki sjón-
varpsmyndir og fjölmörgum verk-
efnum hefur verið synjað á þeim
grundvelli. Því til stuðnings viljum
við benda á nýlega skýrslu sem var
til umfjöllunar í fréttum fyrir tæpum
mánuði síðan.
Það er gleðiefni að pólitískt skip-
aður formaður kvikmyndasjóðs skuli
sýna áhuga á að veita fé til sjón-
varpsverkefna en nær væri að hann
tæki það mál upp á þingi heldur en
að reyna upp á sitt eindæmi að
breyta sjóði sem samkvæmt lögum
er ætlaður í annað.
Ef til vill væri ráð að Alþingi veitti
fé í eigin kvikmyndasjóð, þannig að
þingmenn gætu framleitt myndir
fyrir land og þjóð.“
Segir ummæli formanns-
ins honum til vansa
ALVIÐRA efnir, í samvinnu við
UMFÍ, til skógargöngu um Þrastar-
skóg laugardaginn 3. ágúst.
Þrastarskógur er talinn til fegurstu
skóga landsins og býr yfir mikilli fjöl-
breytni í gróðurfari og fuglalífi, segir í
tilkynningu frá Alviðru. Mæting er í
Alviðru, fræðslusetri Landverndar
við Sog í Ölfusi, fyrir klukkan 14 en
gangan tekur um tvo tíma.
Böðvar Pálsson, bóndi á Búrfelli,
mun leiða gönguna og gleðja gesti
með harmonikuleik. Gangan er létt og
á flestra færi og það verður boðið upp
á kakó, ketilkaffi og kleinur.
Þátttökugjald er 700 krónur fyrir
fullorðna, það er ókeypis fyrir börn og
veitingar eru innifaldar.
Skógarganga
um
Þrastarskóg
FÖSTUDAGINN 2. ágúst næstkom-
andi kl. 11 heldur Rúnar Unnþórs-
son fyrirlestur um verkefni sitt til
meistaraprófs í verkfræði. Verkefnið
heitir „A Tabular Reinforcement
Approach to Generalized Scheduling
using Forgetting Mechanisms“ eða
„Lærdómur og bestun á verkniður-
röðunarvandamálum“. Fyrirlestur-
inn verður fluttur í stofu 158 í VR-II
við Hjarðarhaga 2–6.
Fyrirlestur
í verkfræði
HINN 24. júlí sl. um kl. 15 varð
árekstur á gatnamótum Reykjanes-
brautar og Smiðjuvegar. Skullu þar
saman bifreiðarnar MD-832, sem er
grá Opel-fólksbifreið, og AH-187,
sem er rauð Renault-sendibifreið.
Opel-bifreiðinni var ekið norður
Reykjanesbraut en sendibifreiðinni
ekið af Smiðjuvegi áleiðis norður
eftir Reykjanesbrautina. Umferð
um gatnamótin er stjórnað með
ljósum. Ágreiningur er um stöðu
ljósanna er áreksturinn átti sér
stað. Þeir sem geta gefið frekari
upplýsingar eru beðnir að snúa sér
til umferðardeildar lögreglunnar í
Reykjavík.
Lýst eftir vitnum