Morgunblaðið - 01.08.2002, Blaðsíða 54
DAGBÓK
54 FIMMTUDAGUR 1. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Funchal kemur og fer í
dag. Knorr, Hjalteyrin,
Libra og Goðafoss koma
í dag. Aros More, Can-
igo og Arnarfell fara í
dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Árni Friðriksson og Sat-
úrnus komu í gær. Sig-
hvatur Bjarnason kem-
ur í dag. Brúarfoss fer í
dag frá Straumsvík.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9 og
kl. 13 vinnustofa, bað.
Árskógar 4. Kl. 9–12
baðþjónusta, kl. 9 leik-
fimi, kl. 9.45–10 helgi-
stund, kl. 11 boccia, kl.
13.30 gönguhópur,
lengri ganga. Bingó
verður næst spilað 9.
ágúst kl. 13.30. Púttvöll-
urinn er opinn kl. 10–16
alla daga. Allar upplýs-
ingar í s. 535 2700.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–
16 hárgreiðsla, kl. 8.30–
14.30 böðun, kl. 9–16
handavinna, kl. 9–17
fótaaðgerð. Þriðjudag-
inn 20. ágúst kl. 8 verður
farin skoðunarferð um
Vík og nágrenni. Ekið
upp í Heiðardal og um
Reynishverfið. Kvöld-
verður í Drangshlíð
austur undir Eyjafjöll-
um. Leiðsögumaður
Hólmfríður Gísladóttir.
Hafið með ykkur nesti
og góðan fatnað.
Skráning og greiðsla í
síðasta lagið þriðju-
daginn 13. ágúst.
Allir velkomnir. Uppl.
og skráning í síma
568 5052.
Félagsstarfið Dalbraut
18–20. Kl. 9–12 aðstoð
við böðun, kl. 9–16.45
hárgreiðslustofan opin.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 böðun, kl. 9
fótaaðgerð, kl. 10 hár-
snyrting, kl. 11 leikfimi,
kl. 13 föndur og handa-
vinna.
Félag eldri borgara
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Á morg-
un, föstudag, púttað á
Hrafnistuvelli kl. 14–16.
Félagsheimilið Hraunsel
verður lokað vegna sum-
arleyfis starfsfólks til 11.
ágúst. Orlofsferðir að
Hrafnagili við Eyjafjörð
19.–23. ágúst, greiða
þarf gíróseðla sem fyrst.
Orlofsferð að Höfða-
brekku 10.–13. sept.
Skráning og upplýsingar
kl. 19–21. í s. 555 1703,
555 2484 og 555 3220.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Kaffistofan
opin virka daga frá kl.
10–13. Kaffi, blöðin og
matur í hádegi. Félagið
hefur opnað heimasíðu
www.feb.is. Hringferð
um Norðausturland 17.–
24. ágúst. Uppselt. Farið
verður í Land-
mannalaugar 6. ágúst.
Ekið inn Dómadal niður
hjá Sigöldu. Leið-
sögumaður Tómas Ein-
arsson. Brottför frá
Glæsibæ kl. 8. Sækja
þarf miðana fyrir
fimmtudaginn 1. ágúst.
Fræðslu- og menning-
arferð í Skálholt 9.
ágúst. Leiðsögumaður
Pálína Jónsdóttir.
Skráning hafin á skrif-
stofu FEB. Fyrirhug-
aðar eru ferðir til Portú-
gals 10. september í 3
vikur og til Tyrklands 1.
október í 10 daga fyrir
félagsmenn FEB, skrán-
ing er hafin, takmark-
aður fjöldi. Skráning
hafin á skrifstofunni í
síma 588 2111. Silf-
urlínan er opin á mánu-
og miðvikudögum frá kl.
10–12 í s. 588 2111.
Skrifstofa félagsins er
flutt í Faxafen 12, sama
símanúmer og áður. Fé-
lagsstarfið er áfram í
Ásgarði Glæsibæ. Upp-
lýsingar á skrifstofu
FEB.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–17 hár-
greiðsla, kl. 9–16 böðun.
Gerðuberg, félagsstarf.
Lokað vegna sum-
arleyfa, opnað aftur
þriðjudaginn 13. ágúst.
Á vegum Íþrótta- og
tómstundaráðs eru sund
og leikfimiæfingar í
Breiðholtslaug kl. 9.30
mánudaga, miðvikudaga
og föstudaga. Umsjón
Brynjólfur Björnsson
íþróttakennari.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnustofan opin.
Hárgreiðslustofan er
lokuð til 6. ágúst.
Hraunbær 105. Kl. 9–
16.30 bútasaumur, kl. 10
boccia, kl. 14 félagsvist.
Miðvikudaginn 7. ágúst
verður farið í Þórsmörk.
Lagt af stað frá
Hraunbæ kl. 10:30. Súpa
og brauð á Hlíðarenda á
Hvolsvelli. Í Þórsmörk
verður farið í stuttar eða
langar gönguferðir.
Hafa þarf með gönguskó
og nesti. Leið-
sögumaður: Hólmfríður
Gísladóttir. Skráning á
skrifstofu eða í síma:
587 2888.
Hvassaleiti 56–58. Kl.
kl. 14 félagsvist. Fótaað-
gerð, hársnyrting. Allir
velkomnir.
Norðurbrún 1. Vinnu-
stofur lokaðar fram í
ágúst. Ganga kl. 10.
Vesturgata 7. Kl. 9 fóta-
aðgerðir og hárgreiðsla,
kl. 9.15–12 aðstoð við
böðun, kl. 9.15–15.30
handavinna, handa-
vinnustofan opin án leið-
beinanda fram í miðjan
ágúst. ,
Vitatorg. Kl. 9.30 morg-
unstund og handmennt,
kl. 10 leikfimi, boccia kl.
10.45, kl. 13 brids,
frjálst.
Hana-nú Kópavogi
Gönguferð um
Kvennaslóðir í Kvos-
inni sem vera átti
í dag fellur niður af
óviðráðanlegum að-
stæðum.
Minningarkort
Heilavernd. Minning-
arkort fást á eftirtöldum
stöðum: í síma 588-9220
(gíró) Holtsapóteki,
Vesturbæjarapóteki,
Hafnarfjarðarapóteki,
Keflavíkurapóteki og
hjá Gunnhildi Elíasdótt-
ur, Ísafirði.
Parkinsonsamtökin.
Minningarkort Park-
insonsamtakanna á Ís-
landi eru afgreidd í síma
552-4440 frá kl. 13–17.
Eftir kl. 17 s. 698-4426
Jón, 552-2862 Óskar eða
563-5304 Nína.
Minningarkort Samtaka
sykursjúkra fást á skrif-
stofu samtakanna
Tryggvagötu 26,
Reykjavík. Opið virka
daga frá kl. 9–13, s. 562-
5605, bréfsími 562-5715.
Minningarkort Krabba-
meinsfélags Hafn-
arfjarðar (KH)
er hægt að fá í Bókabúð
Böðvars, Reykjavík-
urvegi 64, 220 Hafn-
arfirði s. 565-1630
og á skrifstofu KH, Suð-
urgötu 44, II. hæð, sími
á skrifstofu 544-5959.
Krabbameinsfélagið.
Minningarkort félagsins
eru afgreidd í síma 540
1990 og á skrifstofunni í
Skógarhlíð 8. Hægt er
að senda upplýsingar í
tölvupósti (minn-
ing@krabb.is).
Minningarkort Sjálfs-
bjargar, félags fatlaðra
á höfuðborgarsvæðinu,
eru afgreidd í síma 551-
7868 á skrifstofutíma og
í öllum helstu apótekum.
Gíró- og kreditkorta-
greiðslur.
Minningarkort For-
eldra- og vinafélags
Kópavogshælis
fást á skrifstofu end-
urhæfingardeildar
Landspítalans, Kópa-
vogi (fyrrverandi Kópa-
vogshæli), síma 560-
2700, og skrifstofu
Styrktarfélags van-
gefinna, s. 551-5941,
gegn heimsendingu
gíróseðils.
Félag MND-sjúklinga
selur minningarkort á
skrifstofu félagsins á
Norðurbraut 41, Hafn-
arfirði. Hægt er að
hringja í síma 565-5727.
Allur ágóði rennur til
starfsemi félagsins.
Minningarsjóður
Krabbameinslækninga-
deildar Landspítalans.
Tekið er við minning-
argjöfum á skrifst.
hjúkrunarforstjóra í
síma 560-1300 alla virka
daga milli kl. 8 og 16.
Hrafnkelssjóður (stofn-
aður 1931), minning-
arkort afgreidd í símum
551-4156 og 864-0427.
Minningarkort
Minningarsjóðs Maríu
Jónsdóttur flugfreyju
eru fáanleg á eftirfar-
andi stöðum:
Á skrifstofu Flugfreyju-
félags Íslands, s. 561-
4307/fax 561-4306, hjá
Halldóru Filippus-
dóttur, s. 557-3333, og
Sigurlaugu Halldórs-
dóttur, s. 552-2526.
Minningarkort Minn-
ingarsjóðs hjónanna
Sigríðar Jakobsdóttur
og Jóns Jónssonar á
Giljum í Mýrdal við
Byggðasafnið í Skógum
fást á eftirtöldum stöð-
um: Í Byggðasafninu hjá
Þórði Tómassyni, s. 487-
8842,
Í dag er fimmtudagur 1. ágúst,
213. dagur ársins 2002. Bandadag-
ur. Orð dagsins: Glatt hjarta
veitir góða heilsubót, en dapurt
geð skrælir beinin.
(Orðskv. 17, 22.)
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 stór að flatarmáli, 8
tími, 9 reiður, 10 munir,
11 aflaga, 13 fífl, 15
draugs, 18 lægja, 21 glöð,
22 skjögra, 23 kross-
blómategund, 24 saurlífi.
LÓÐRÉTT:
2 óhóf, 3 stór sakka, 4
synja, 5 snaginn, 6 reykir,
7 vex, 12 ber, 14 hnöttur,
15 næðing, 16 þungbær
reynsla, 17 sjófugl, 18
vísa, 19 beindu að, 20
tómt.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 SPRON, 4 herma, 7 tásan, 8 gömul, 9 díl, 11
stal, 13 brot, 14 jullu, 15 skrá, 17 roks, 20 emm, 22 Pap-
ey, 23 játar, 24 rorra, 25 rúman.
Lóðrétt: 1 sætis, 2 rispa, 3 nánd, 4 hagl, 5 rúmar, 6 atlot,
10 íslam, 12 ljá, 13 bur, 15 súpur, 16 rípur, 18 ostum, 19
sárin, 20 eyða, 21 mjór.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Gæt tungu þinnar
ÁGÆTU Víkurbúar og
aðrir landsmenn. Mig lang-
ar að minna ykkur á það
hversu ljótt það er að tala
illa um náungann og niðr-
andi til hans, hvort sem það
sem sagt er er satt eða log-
ið. Það er opinber æruaf-
taka. Margir sem fyrir
þessu verða geta leitt það
hjá sér, enda eiga þeir oft-
ast marga góða að sem geta
stutt við bakið á þeim, til
dæmis fjölskyldu. En aðrir,
sem betur fer ekki margir
hér í Vík, hafa ekki þann
möguleika.
Allir ættu að geta ímynd-
að sér hvers lags víti það er
fyrir manneskju sem ekki
getur borið hönd fyrir höf-
uð sér að verða fyrir að-
kasti og niðurlægingu frá
öðrum, oftast fólki sem hef-
ur gripið einhverjar gróu-
sögur á lofti og reynir svo
að skemmta sér og öðrum á
kostnað sögupersónunnar
sem oftar en ekki er veik
fyrir á einhverju sviði. Ég
geri mér vonir um að svona
háttalag sé í heimsku fram-
ið fremur en illkvittni.
Víkurbúi.
Ógnvaldar
Öskjuhlíðarinnar
KANÍNUR eru yndislegar,
en heilmikil skaðdýr og
grafa jörðina sundur og
saman. Skelfilegt er að sjá
jörðina eftir þær sundur-
grafna. Ef þær myndu
ílengjast í Öskjuhlíðinni
yrði hún sundurgrafin eftir
nokkur ár. Þær drepa ekki
neitt, en skemma mikil
ósköp og skilja eftir illa
leikna jörð.
Guðrún.
Frábær þjónusta
Radíónausts
VIÐ hjónin ferðuðumst um
landið á húsbíl, en sjón-
varpið í bílnum bilaði. Við
fórum með sjónvarpið í
Radíónaust á Akureyri þar
sem maður að nafni Viðar
afgreiddi okkur. Hann reif
sjónvarpið í sundur, lóðaði,
skipti út, bætti og hvaðeina.
Einnig virkaði fjarstýring-
in ekki, en Viðar sagði allt
hægt ef viljinn væri fyrir
hendi og lagaði einnig fjar-
stýringuna. Viðar var ákaf-
lega hress og dásamlegur,
gat lagað allt saman og
þegar að því kom að borga
urðum við agndofa, því
verðið var mjög sann-
gjarnt. Við viljum koma á
framfæri innilegu þakklæti
og benda fólki á frábæra
þjónustu.
Axel og Ingveldur.
Góð þjónusta
á póststöðinni
FYRIR skömmu fórum við
hjónin austur í Vík í Mýr-
dal. Við gistum á Hótel
Lundi eina nótt, en upp-
götvuðum þegar við kom-
um aftur í bæinn að við
höfðum gleymt að skila
lyklinum að herberginu.
Það dróst að koma lyklin-
um til skila, en dag nokk-
urn fékk ég óvænt frí í
vinnunni og ákvað að nota
þjónustuna í nýja pósthús-
inu í Nettó í Mjódd. Ég
kímdi við afgreiðslustúlk-
una hvort hún „gæti ekki
gengið með þennan lykil
austur til Víkur“. Við hlið-
ina á mér stóð kona sem
svaraði að bragði: „Ég er
að fara austur á morgun, –
á ég ekki að taka lykilinn og
skila honum fyrir þig?“ Ég
varð mjög hissa, þáði boðið
og gekk brosandi út. Svona
góða þjónustu hef ég aldrei
fengið hjá póstinum áður.
Jón S. Guðlaugsson,
Engjaseli 87.
Ekki til eftirbreytni
FYRIR rúmri viku hugðist
ég snæða á veitingastaðn-
um Energia í Smáralind.
Þegar inn var komið sá ég
þjónustustúlkuna sitja við
borð inni í matsal, og var
hún í ofanálag að reykja
sígarettu. Mér þótti þetta
skjóta skökku við á veit-
ingastað sem er auglýstur
sem umhverfisvænn,
hreinn og heilsusamlegur.
Ég missti lyst á að snæða
þarna og snæddi annars
staðar.
Olga Pálsdóttir.
Tapað/fundið
Hefurðu ekið
fram á sængur?
ÉG var á suðurleið að norð-
an, og ók yfir Kjöl. Ein-
hvers staðar á leiðinni hef-
ur svartur poki með
tveimur sængum og nokkr-
um koddum horfið úr
geymslukassa ofan á bíln-
um. Utan um aðra sængina
var Pókémon-ver, en rautt
og grænt rósótt sængurver
um hina. Finnandi vinsam-
lega hafi samband við
Huldu í síma 586 3187.
Tölvuíhlutir gefins
ÉG Á gamla tölvuíhluti sem
ég þarf að koma í lóg. Þeir
sem vilja þiggja þessa íhluti
eða vita um einhvern sem
getur notað þá mega hafa
samband í síma 846 7119.
Dýrahald
Svört og
hvít læða týnd
LÍTIL svart/hvít-flekkótt
læða týndist frá Laugar-
nestanga 62 fyrir tæpri
viku. Hún er með rauða ól
og bjöllu, en merking innan
á ólinni gæti verið farin að
mást. Hún er innikisa,
mjög mannelsk og hennar
er sárt saknað. Þeir sem
vita um ferðir hennar vin-
samlega hringi í síma
553 9003.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI er ekkert hrifinn afnýjung sem Landssíminn
kynnti á dögunum sem fólst í því að í
stað gamla góða „tut-tut-tut-tut“-
sónsins sem heyrðist þegar hringt
var í símanúmer sem var á tali kom
rödd í símann og las upp tilkynningu
um að „þetta símanúmer“ væri á tali
og bauð síðan Víkverja að ýta á ein-
hvern takka og panta símtal frá þeim
sem var á hinum endanum. Símtals-
pöntunin kostaði reyndar einhverjar
krónur. Að mati Víkverja er þetta
hin mesta öfugþróun og breytingin
varla til bóta fyrir viðskiptavinina.
Áratugareynsla af símnotkun hér á
landi hefur kennt landsmönnum að
þekkja muninn á því hvenær er á tali
og hvenær hringir og þeir þurfa ekki
símsvara til að segja sér þessi aug-
ljósu sannindi. Víkverji telur víst að
hugmyndin að þessu hafi kviknað hjá
sölumönnum Landssímans sem vilja
auka notkun á símtalspöntunum.
Þetta er sem sagt lítt dulbúin auglýs-
ing sem er laumað að grandalausum
símnotendum. Víkverji kærir sig
ekki um auglýsingar í símanum sín-
um og hringdi í þjónstuver Lands-
símans og bað um lausn undan þess-
ari plikt. Það var auðsótt mál en um
leið var honum tilkynnt að þá væri
ekki hægt að panta símtal. „Ekkert
mál,“ sagði Víkverji.
x x x
Á HÁLENDI Íslands er allraveðra von, jafnt að sumarlagi
sem um vetur, eins og berlega kom í
ljós um síðustu helgi þegar talsverð-
ur snjór féll í Nýjadal á Sprengi-
sandi. Sjálfur fór Víkverji í bakpoka-
ferð um hálendið í sumarfríinu og
bjó sig vel. Hið sama var hins vegar
ekki að segja um nokkra franska
ferðamenn sem urðu á vegi Víkverja.
Ferðamennirnir voru í tveimur hóp-
um og er óhætt að segja að búnaður
þeirra hafi verið æði misjafn. Í öðr-
um hópnum voru a.m.k. tveir sem
höfðu ekki talið þörf á regngalla fyrir
sumarfríið á Íslandi. Frakkarnir í
hinum hópnum voru með regnfatnað
en sumir voru þó aðeins með svokall-
aða regnslá sem veitir litla vörn fyrir
íslenskri rigningu sem kemur úr öll-
um áttum, lóðrétt, lárétt og frá hlið.
Hópurinn hafði lokið við nokkurra
daga göngu í 700–1.000 metra hæð
og hafði rignt á þau mestallan tím-
ann. Voru þau að vonum frekar nið-
urlút eftir gönguna. Víkverji innti ís-
lenskan fararstjóra hópsins eftir því
hverju þessi lélegi búnaður sætti og
var tjáð að franskar ferðaskrifstofur
sem seldu í bakpokaferðina hér á
landi segðu fólkinu að búa sig líkt og
það ætlaði í göngu í 1.000 metra hæð,
í Frakklandi. Aðstæður þar í landi
eru afar frábrugðnar heiðarlöndum
Íslands og morgunljóst að búnaður
sem dugir í 1.000 metra hæð í Frakk-
landi nægir ekki í sömu hæð hér á
landi. Þessar villandi upplýsingar
urðu síðan til þess að frönsku ferða-
langarnir bjuggu sig ekki betur en
raun bar vitni og urðu þar af leiðandi
hundblautir og kaldir. Víkverja
finnst algjör óþarfi hjá ferðaskrif-
stofunum að leggja viðlíka raunir á
ferðamennina. Þetta er þó varla gert
vísvitandi og líklega þekkja starfs-
menn ferðaskrifstofanna ekki betur
til hér á landi. Beinir Víkverji því til
ferðamálayfirvalda að láta útbúa
einn lítinn bækling, t.d. á íslensku,
ensku, þýsku og frönsku, um hvernig
fólk eigi að búa sig til hálendisferða á
Íslandi og dreifi honum til ferða-
skrifstofa sem selja í slíkar ferðir.