Morgunblaðið - 01.08.2002, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. ÁGÚST 2002 55
DAGBÓK
Mikið af blússum og buxum
fyrir verslunarmannahelgina
Nýbýlavegi 12, Kópavogi,
sími 554 4433.
Verð frá kr. 1.790
Meiri
lækkun
Ítölsk barnafataverslun
Laugavegi 53, s. 552 3737
Síðustu dagar
útsölunnar
fyrir krakka frá 0-12 ára
50%
afsláttur
ER brids öðruvísi íþrótt á
sumrin en veturna? Spurn-
ingin virðist fráleit, en þó er
tvennt sem gæti bent til að
henni bæri að svara játandi.
Annars vegar hafa forystu-
menn bridsmála á heimsvísu
komið spilinu á framfæri
sem sýningaríþrótt á vetr-
arólympíuleikum. Hins veg-
ar er hið séríslenska fyrir-
bæri sem nefnist einfaldlega
„sumarbrids“, en sumir
halda því fram að þar sé spil-
að sérstakt afbrigði af brids.
Norður
♠ 1097
♥ K1084
♦ 82
♣KDG7
Suður
♠ ÁKDG3
♥ Á73
♦ ÁD754
♣–
„Við erum að æfa fyrir
bikarleik,“ heilsaði Kristján
Blöndal umsjónarmanni, án
þess þó að vera spurður, en
kannski var augnaráðið
spyrjandi. Kristján og
Matthías Þorvaldsson tóku
slag saman í sumarbrids í
Síðumúlanum á mánudags-
kvöldið og umsjónarmaður
fylgdist með þeim um stund.
Kristján var í suður. Hann
vakti á sterku laufi og vestur
kom inn á einu hjarta. AV
sögðu svo aldrei meira og
Kristján og Matthías þreif-
uðu fyrir sér með slemmu, en
ákvaðu að láta fjóra spaða
duga. Vestur kom út með
hjartadrottningu. Hvernig
myndi lesandinn spila?
Kristján fór vandlega yfir
stöðuna, enda hver slagur
dýrmætur í tvímenningi.
Hann íhugaði að taka á
hjartakóng í borði og svína
tíguldrottningu. En svíning-
in var líkleg til að misheppn-
ast eftir innákomuna og þá
myndi austur líka fá stungu í
hjarta. Kristján hafnaði því
þessari leið. Hann tók á ás-
inn heima, aftrompaði svo
AV í þremur umferðum og
spilaði hjarta á áttuna. Áætl-
unin var að spila laufkóngi og
henda tígli heima og henda
síðan þremur tíglum niður í
DG í laufi og fjórða hjartað:
Norður
♠ 1097
♥ K1084
♦ 82
♣KDG7
Vestur Austur
♠ 85 ♠ 642
♥ DG62 ♥ 95
♦ 93 ♦ KG106
♣108642 ♣Á953
Suður
♠ ÁKDG3
♥ Á73
♦ ÁD754
♣–
Þessi áætlun strandaði
óvænt á því að austur fékk
slag á hjartaníuna! En spilið
lá að öðru leyti vel og Krist-
ján fékk 12 slagi. Það var þó
tær botn, því aðrir sagnhafar
höfðu fengið 13 slagi, hvort
sem þeir spiluðu geim eða
slemmu.
Kannski er sumarbrids
ekki rétti staðurinn til að æfa
sig fyrir bikarleik – og þó,
Bikarinn er líka á sumrin!
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
LJÓN
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert maður hugsjóna og
raunsæis. Þú vilt að aðrir
viti afstöðu þína og getur
útskýrt mál þitt á
áhrifamikinn hátt.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Rómantískt samband veldur
einhverjum ruglingi í dag.
Það er erfitt að komast að því
hvað er raunverulegt og hvað
þú vonar að sé raunverulegt.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Viðræðum við foreldri eða yf-
irvald miðar ekkert í dag.
Hvorugt ykkar skilur eða
kann að meta hvað hinn er að
segja.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú skalt standast freist-
inguna að gera eitthvað á
svikulan eða kæruleysislegan
hátt í dag. Þú átt ekki eftir
bera sigur úr býtum heldur
einungis flækja málin.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Reyndu að forðast verslunar-
ferðir í dag og ekki eyða pen-
ingum í munaðarvörur. Fjár-
hagsvit þitt er ekki upp á sitt
besta og þú gætir því séð eftir
eyðslunni á morgun.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Dagurinn í dag er ruglings-
legur og býr yfir mikilli
óvissu. Ekki fallast á skoðan-
ir annarra einungis vegna
þess að þú veist ekki hvað þú
átt að gera. Vertu sterkur
fyrir.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Skortur á sjálfstrausti gæti
látið þig efast um sjálfan þig í
dag. Líttu framhjá þessum
tilfinningum því þær eiga eft-
ir að líða hjá innan tíðar.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Vinur gæti blekkt þig í dag.
Bíddu í einn dag eða tvo áður
en þú dregur meiriháttar
ályktanir því þú getur ekki
öðlast fullvissu um málið.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Forðastu hlutverk fórnar-
lambsins og píslarvottarins í
dag. Þú þarft ekki að fórna
sjálfum þér að kröfu annarra.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Forðastu deilur um trúarleg
málefni og stjórnmál í dag.
Það er erfitt fyrir þig að vita
hverju þú trúir þessa stund-
ina.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Ekki taka fólk með stór lof-
orð á orðinu. Fólk lofar þér
miklu en á ekki eftir að
standa við orð sín þegar til
kastanna kemur.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Vertu varkár í samtölum þín-
um við ástvini í dag. Mikil
hætta er á misskilningi og því
er þetta mjög slæmur dagur
fyrir mikilvægar samræður.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Ekki láta vinnufélaga eða yf-
irmann setja þig í hlutverk
fórnarlambsins. Þú verður að
standa á rétti þínum til að
missa ekki trúna á sjálfan þig.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
LJÓÐABROT
SUMARKVÖLD 1908
Sezt í rökkurs silkihjúp
sæll og klökkur dagur.
Er að sökkva’ í sævar djúp
sólar nökkvi fagur.
Fjöru boga bröttum í
bárur soga, renna.
Öll í loga eru ský,
áll og vogur brenna.
Ólöf Sigurðardóttir
Árnað heilla
50 ÁRA afmæli. Mánu-daginn 5. ágúst er
fimmtugur Bárður Guð-
mundsson, Selfossi. Heldur
hann herlega veislu í Golf-
skálanum á Selfossi á frídegi
verslunarmanna kl. 18.
70 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 1.
ágúst, er sjötugur Sigurður
Sigurðsson, fyrrverandi
lögregluvarðstjóri í Húna-
vatnssýslum, Hjallavegi 14,
Hvammstanga. Eiginkona
hans er Sigríður Ása Guð-
mundsdóttir. Sigurður er að
heiman í dag.
50ÁRA afmæli. Í dag, 1.ágúst, er fimmtugur
Jóhannes Kristjánsson,
bóndi og hótelhaldari að
Höfðabrekku, Mýrdal.
Vegna anna er veisluhöldum
frestað til 5. okt. og verður
þá haldin veisla að Höfða-
brekku.
75 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 1.
ágúst, er 75 ára Sigdór Ólaf-
ur Sigmarsson skipstjóri,
Bergstaðastræti 48a,
Reykjavík.
50 ÁRA afmæli. Sunnu-daginn 4. ágúst verð-
ur Friðsemd Hafsteinsdótt-
ir, Heiðvangi 12, Hellu,
fimmtug. Af því tilefni ætla
hún og eiginmaður hennar
Jón Thorarensen að vera
með opið hús frá kl. 20 til 2 í
hestamannaskálanum á
Gaddstaðaflötum. Vonast
þau til að sjá sem flesta ætt-
ingja og vini. Athugið að
vera hlýlega klædd.
1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. d4 cxd4 4. Rxd4
Rf6 5. Rc3 e5 6. Rdb5 d6 7. Bg5 a6 8.
Ra3 b5 9. Bxf6 gxf6 10. Rd5 Bg7 11. c3
f5 12. Bd3 Re7 13. Rxe7 Dxe7 14. 0–0
0–0 15. Rc2 f4 16. a4 bxa4 17. Hxa4 Dg5
18. f3 Bf6 19. Bc4 Kh8 20. Hf2 Be7 21.
Rb4 Staðan kom upp í Eurotelmótinu
sem lauk fyrir nokkru í Prag. Garry
Kasparov (2838) hafði svart gegn Judit
Polgar (2677). 21... d5! 22. Bxd5 Bc5
23. Bxa8 Hg8 24. Kf1 24. Df1 var einn-
ig slæmt vegna 24. Bh3 25. Kh1 Bxf2
26. Dxf2 Bxg2+ og svartur stendur til
vinnings. 24... Bxf2 25. Ke2 Dxg2 26.
Kd3 Be3 27. Bd5 Dxh2 28. Kc4 Hg1 29.
Dd3 Bh3 30. Kb3 Bf1 31. Dc2 Dxc2+
32. Kxc2 Kg7 33. c4 Be2 34. Hxa6
Bd1+ 35. Kd3 Bxf3 36. Rc6 Hd1+ 37.
Kc3 Bg4 38. Rxe5 Bd4+ 39. Kc2 Bxe5
40. Ha7 He1 41. Hxf7+ Kg6 42. c5
He2+ 43. Kc1 f3 44. Bc4 Hxe4 45. Bd5
Hf4 og hvítur gafst upp.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
50 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 1.
ágúst, er fimmtugur Þor-
steinn Már Aðalsteinsson
framkvæmdastjóri, Mímis-
vegi 17, Dalvík. Eiginkona
hans er Sigríður S. Rögn-
valdsdóttir.
Hann og fjölskylda hans
taka á móti gestum í Norð-
urströnd laugardaginn 10.
ágúst eftir kl. 19.30.
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Samþykki
afmælisbarns þarf að fylgja
afmælistilkynningum og/
eða nafn ábyrgðarmanns
og símanúmer. Fólk getur
hringt í síma 569-1100, sent
í bréfsíma 569-1329, eða
sent á netfangið ritstj
@mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1,
103 Reykjavík
NÝJASTA tölublaði tímaritsins Sam-
úels verður dreift á sölustaði nú fyrir
verslunarmannahelgina.
Með Samúel verða þrjú fylgirit að
þessu sinni: Sérrit um Formúlu 1-
kappaksturinn; fyrsta tölublað nýs
tímarits sem heitir Líkami og sál og
Heitustu staðirnir, bæklingur um
mat, drykk og skemmtun.
Meðal efnis í Samúel að þessu sinni
er viðtal við Birgittu Haukdal söng-
konu og viðtal við systkinin Árna og
Hrönn um sjónvarpsþáttagerð.
Fylgirit með
Samúel
LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir eftir
vitnum að ákeyrslu á Mazda-fólksbif-
reið 29. júlí sl. milli kl. 6 að morgni og
18.15 á bifreiðastæði við Fjörgyn í
Grafarvogi. Bifreiðin er hvít að lit
með einkanúmerinu HJ 61 og var
kyrrstæð og mannlaus.
Tjónvaldur fór af vettvangi án þess
að tilkynna um tjónið til hlutaðeigandi
eða lögreglu. Því er hann eða aðrir
sem geta gefið frekari upplýsingar
beðnir að snúa sér til umferðardeildar
lögreglunnar í Reykjavík.
Lýst eftir
vitnum
SKRÁNING er hafin á námskeiðið
Sjálfstyrking unglinga. Foreldra-
húsið – Vímulaus æska hefur verið
með þessi námskeið í þrjú ár og eru
þau haldin í Vonarstræti 4b. Nám-
skeiðið stendur í tíu vikur og er ætl-
að unglingum á aldrinum 13–16 ára.
Einnig er boðið upp á framhalds-
námskeið. Námskeiðinu er ætlað að
efla sjálfstraust og félagslega hæfni
unglinganna
Gerð eru tilfinningaverkefni og
unglingunum er kennt að skilgreina
eigin tilfinningar. Það að þekkja eig-
in tilfinningar og hvernig viðkom-
andi einstaklingi líður getur hjálpað
til við að öðlast betra líf. Uppbygging
sjálfsvirðingarinnar er einn af lykil-
þáttum námskeiðsins og að efla
sjálfstraustið, samkvæmt því sem
fram kemur í fréttatilkynningu.
Listnám: Unglingarnir fá að taka
þátt í myndlist, dansi, leikrænni
tjáningu, sjálfstæðri listsköpun og
orðlist. Hér læra þau sjálfstæð
vinnubrögð og að framkvæma.
Án vímu: Unglingunum er kennt
að skemmta sér án vímu, farið er úr
húsi, farið á kaffihús og út í náttúr-
una. Unglingunum er kennt að setja
mörk, t.d. gagnvart vinum sínum og
öðrum áreitum úr samfélaginu. Far-
ið verður yfir það með þeim hvernig
þeim gekk að standa með sér og
hvernig þeim líður þá.
Foreldrum er boðið að fylgjast
með og hitta ráðgjafa. Allar nánari
upplýsingar eru í Foreldrahúsinu.
Sjálfstyrking
unglinga – lífsleikni