Morgunblaðið - 01.08.2002, Side 60
60 FIMMTUDAGUR 1. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
JÁ, HÚN fer að skella á þessi mesta
ferðahelgi sumarsins og kveður þá
víða við spurningin: „Hvert á að fara
um helgina?“
Morgunblaðið kynnti sér helstu
dagskrárliði á sex stærstu hátíðum
helgarinnar.
Ein með öllu / Akureyri
Það er áhugamannafélagið Vinir Ak-
ureyrar sem stendur fyrir „Einni
með öllu“ sem skipulögð er af kynn-
ingarþjónustunni Fremri.
„Ein með öllu“ er fjölskylduhátíð
sem fram fer í hjarta Akureyrar.
Sem vant er á fjölskylduhátíðum
er reynt að hafa dagskrána sem fjöl-
breyttasta svo ungir sem aldnir geti
þar fundið eitthvað við sitt hæfi. Ak-
ureyri býður upp á margbreytilega
dagskrá, til að mynda trúða, töfra-
menn, brúðuleikhús og ratleik. Tívolí
UK verður á staðnum og hægt verð-
ur að leigja sér körtubíla og sjóskíði
og bregða sér í „paintball“. Þær
hljómsveitir sem skemmta munu
gestum og bæjarbúum eru ekki af
lakara taginu og má þar nefna Sálina
hans Jóns míns, SSSól, Hljóma,
Dúndurfréttir og Úlfana auk þess
sem hljómsveitin Gis & The Big City
frá Los Angeles sér fyrir rísandi
„kántrí“-stemmingu. Þá eru ótaldir
allir þeir möguleikar til afþreyingar
og skemmtunar sem að jafnaði
standa til boða á Akureyri allt sum-
arið.
Haraldur Ingólfsson, starfsmaður
hjá Fremri, segir gesti ekki þurfa að
greiða aðgangseyri þegar komið er
til Akureyrar né á dagskrá Ráðhús-
torgsins, en starfmenn skemmti-
staða muni trúlega rukka eitthvað
inn á stærri böll á kvöldin.
Galtalækur
Síðastliðin 35 ár hefur myndast sterk
hefð fyrir útihátíð í Galtalækjarskógi
um verslunarmannahelgina og verð-
ur helgin í ár þar engin undantekn-
ing.
Það eru hinir einu sönnu Stuð-
menn sem munu leiða hátíðina í ár,
en ásamt þeim munu koma fram
hljómsveitirnar Í svörtum fötum,
XXX Rottweilerhundar og Botnleðja
auk Jóns Gnarr, Helgu Brögu,
Diddú og Álftagerðisbræðrum svo
fátt eitt sé nefnt. Einnig býðst hátíð-
argestum að taka þátt í poppmessu,
barnadansleikjum og harmonikku-
böllum og fylgjast með flugeldasýn-
ingu, varðeldi, trúðum og hinum
ýmsu furðuverum.
Sem fyrr verður lögð áhersla á
vímulausa skemmtun fyrir fjöl-
skyldumeðlimi á öllum aldri.
Börn yngri en 12 ára fá ókeypis
inn á svæðið, 13-15 ára greiða 5.000
krónur og 16 ára og eldri 5.800 krón-
ur í forsölu.
Kántríhátíð á Skagaströnd
Fjölskylduhátíðin á Skagaströnd fer
sem fyrr fram undir formerkjum
„kántrí“-tónlistarinnar þó að dag-
skráin á hátíðinni sé hin fjölbreytt-
asta. Fjöldi hljómsveita og tónlistar-
manna mun koma fram á hátíðinni
og nægir þar að nefna Ber, Big City
frá Bandaríkjunum, hljómsveit Geir-
mundar Valtýssonar, hljómsveit
Magnúsar Kjartanssonar, Björgvin
Halldórsson, Helgu Möller, Johnny
King og Heru Björk, að ógleymdum
Hallbirni sjálfum Hjartarsyni.
„Gospel“-messa, „kántrí“-dansar og
fjölbreytt barnadagskrá mun einnig
seta svip sinn á hátíðina.
Sigurður Sigurðarson, fram-
kvæmdastjóri Kántríhátíðar, segir
aðgangseyri á hátíðina vera 3.900
krónur fyrir fólk eldra en 12 ára, en
fjölskyldufólk greiði ekki fyrir nema
eitt barna sinna yfir 12 ára aldri.
Neistaflug í Neskaupstað
Neistaflugið hefur verið haldið í
Neskaupstað síðan árið 1993 og er
þetta því í tíunda sinn sem blásið
verður til hátíðarinnar. Það er Blús-,
rokk- og jazzklúbburinn á Nesi sem
hefur veg og vanda af skipulagi há-
tíðarinnar.
Sem fyrr er það fjölskyldan sem
verður í fyrirrúmi á Neistaflugi, að
sögn Sævars Jökuls Solheim, annars
skipuleggjenda hátíðarinnar.
Hljómsveitirnar Írafár, Manna-
korn og Í svörtum fötum sjá um tón-
listarflutning á hátíðinni sem mun
sem fyrr fara fram undir öruggri
handleiðslu Gunna og Felix. Þeir
Pétur Pókus, Karíus og Baktus og
Jóhannes eftirherma mæta á svæðið,
en einnig verður boðið upp á fasta
liði frá fyrri árum, til dæmis Barðar-
neshlaupið, blak- og golfmót, úti-
dansleik, leiktæki, dorgkeppni,
brunaslöngufótbolta, varðeld,
brekkusöng og flugeldasýningu svo
fátt eitt sé nefnt.
Aðgangur er ókeypis á svæðið og
sömuleiðis tjaldstæðin og ætti það að
gera það að verkum að hátíðin verði
öllum aðgengileg.
Síldarævintýri á Siglufirði
Verslunarmannahelgarhátíðin á
Siglufirði, sem kennd er við síldina,
var fyrst haldin árið 1991.
Fjölbreytt dagskrá verður í boði á
Siglufirði og ættu allir að geta fundið
þar eitthvað við sitt hæfi.
Hljómsveitirnar Íslendingar, Von
og Flauel leika öll kvöldin ásamt
fleirum og skemmtikraftarnir Laddi,
Pálmi Gestsson, Halldóra Geirharðs-
dóttir, Þórunn Lárusdóttir og Stefán
Karl Stefánsson sjá um að kitla hlát-
urtaugarnar. Hestaleiga, bátsferðir,
barnaböll og eftirhermur eru einnig
hluti af dagskránni. Síldarminjasafn-
ið verður opið alla helgina og lista-
konan Halla Har verður með gler- og
myndlistarsýningu.
Að sögn Brynjars Sindra Sigurð-
arsonar, framkvæmdastjóra Síldar-
ævintýris, er hátíðin fyrst og fremst
fjölskylduhátíð og miðast dagskráin
við að allir geti fundið eitthvað við
sitt hæfi. Enginn aðgangseyrir er á
Síldarævintýrið.
Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum
Þjóðhátíðin í Eyjum er í huga
margra hápunktur sumarsins og
hafa meðal annars verið opnaðar ófá-
ar heimasíður spenntra gesta, þar
sem taldar eru niður mínúturnar þar
til þjóðhátíðin brestur á.
Að vanda skartar hátíðin rjóma ís-
lenskra hljómsveita og þetta árið
munu leika fyrir dansi Á móti sól, Í
svörtum fötum, Hljómar, Írafár og
Land og synir, en það er einmitt
söngvari Lands og sona, Hreimur,
sem á heiðurinn af þjóðhátíðarlaginu
í ár.
Kvöldvökur verða haldnar öll
kvöldin þar sem fram munu koma
Jón Gnarr, Daysleeper og Opus
2002. Börnin verða að sjálfsögðu
ekki skilin útundan en Brúðubíllinn,
Venni töframaður, Kiðlingarnir og
Söngvakeppni barnanna sjá til þess
að hafa ofan af fyrir þeim.
Verslunarmannahelgin
Hinir síungu og sívinsælu Stuðmenn láta sig ekki vanta í Galtalæk. Helga Braga Jónsdóttir skemmti Akureyringum á síðasta ári.
birta@mbl.is
Fyrir 1250 punkta
færðu bíómiða.
Sýnd kl. 8 og 10.20. B.i. 16 ára Vit 400
Sandra Bullock í
spennumynd sem
tekur þig heljartaki!
kvikmyndir.is
HETJA MUN RÍSA UPP...
...Á AFTURLAPPIRNAR.
1/2
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 4, 6 og 8. Vit 398
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10. Vit 406
SÍMI 588-0800 KRINGLAN www.sambioin.is
Sýnd kl. 4. Vit nr. 370.
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 6. Vit 393.
Sýnd kl. 10. B.i. 14. Vit 393.
Þau hafa 45 mínútur til að bjarga
heiminum. En þau þurfa 46 mínútur
Fyndnasta myndin í bænum í dag frá
Barry Sonnenfeld, leikstjóra Get Shorty.
Með topp leikurum í öllum hlutverkum,
þar á meðal Johnny Knoxville úr
sjónvarpsþáttunum JackAss.
Þessi mynd mun koma þér skemmtilega á
óvart, ekki missa af henni!
Kvikmyndir.is
DV
S
ag
a
u
m
s
tr
ák
1/2
SV Mbl
1/2
Kvikmyndir.is
Kvikmyndir.com
ÓHT Rás 2
23 þúsund áhorfendur
www.sambioin.is
Fyrir 1250 punkta
færðu bíómiða.
Hið yfirnáttúrulega mun gerast.
1/2
Kvikmyndir.is
Kvikmynd eftir Ágúst Guðmundsson
Ugla Egilsdóttir vann tilverðlauna á
dögunum sem besta aðalleikona.
Aðrir leikarar: Margrét Vilhjálmsdóttir,
Hilmir Snær Guðnason,
Kristbjorg Kjeld ofl
i i
l il i il l
ll i .
i l i : il j l i ,
il i ,
i j j l l
Sýnd kl. 6.Sýnd kl. kl. 6 og 8. Með íslensku tali.
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10. B.i. 16 ára.
SG DV
DV
HL. MBL
Með hinum frábæra
Frankie Muniz úr
„Malcolm in the Middle“
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Sýnd kl. 8.
RICHARD GERE LAURA LINNEY
Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 10. B. i. 16.
1/2
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.
m ávah lá tur
vegna fjölda áskorana.
Kvikmyndir.is
DV
Reiðnámskeið fyrir 10-15 ára.
Allt um hesta og hestamennsku. Dvalið er í 6
daga heimavist. Hestbak alla daga, kvöldvaka,
sund, borðtennis, ratleikur þrautareið og margt
fleira! Upplýsingar og bókanir í síma 486 4444.
Næsta námskeið er frá 6.—11. ágúst.
www.vortex.is/reidskoli/
Reiðskólinn Hrauni -
þar sem hestamennskan hefst.
Reiðskólinn á Hrauni, Grímsnesi
Moggabúðin
Derhúfa, aðeins 800 kr.