Morgunblaðið - 01.08.2002, Blaðsíða 61
Sérð þú kex
á borði?
Glæsilegir vinningar
Komdu við í næstu verslun
og taktu þátt í skemmtilegum leik
Hverfisgötu 551 9000
www.regnboginn.is
Sýnd kl. 10.20. B.i. 10.
2 FYRIR EINN
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
2 FYRIR EINN
Sýnd kl. 5.30 og 8. B.i. 10.
SÍÐUSTU SÝNINGARSÍÐUSTU SÝNINGAR
Sýnd kl. 6.30, 8.30 og 10.30.
Sýnd kl. 6, 8.30 og 10.45.
FRUMSÝNING
Sexý og Single
yfir
28.000.
MANNS
Búðu þig undir geggjaða gamanmynd í
anda There´s Something About Mary!
Cameron Diaz hefur aldrei verið betri.
Þegar ný ógn steðjar að
mannkyninu hefst barátta
upp á líf og dauða.
STÓRKOSTLEGAR TÆKNIBRELLUR
OG BRJÁLAÐUR HASAR.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. ÁGÚST 2002 61
NÚ hafa Samfélagið og Íslenska
kvikmyndasamsteypan ehf. gert
með sér samstarfssamning um
dreifingu innlendra og erlendra
kvikmynda hins síðarnefnda. Sýn-
ingar munu verða í Sambíóunum og
Háskólabíói en aukinheldur munu
Sammyndbönd hafa umsjón með
útgáfu myndanna á myndbandi og
DVD.
Fyrirhuguð er og útgáfa á eldri
íslenskum myndum á DVD-mynd-
diskum og fyrsta myndin, Englar
alheimsins eftir Friðrik Þór
Friðriksson, verður gefin út í sept-
ember.
Úrval listrænna mynda
Þá munu þessir tveir aðilar taka
að sér rekstur kvikmyndaklúbbsins
Filmundar, sem hefur rekið sína
starfsemi í Háskólabíói, sem Sam-
félagið rekur nú. Filmundur mun,
nú sem endranær, leggja áherslu á
að glæða íslenska kvikmyndamenn-
ingu og leitast verður við að koma
til móts við áhugafólk um kvik-
myndir með fjölbreyttum nýjum
myndum frá hinum og þessum
löndum sem hafa vakið athygli á
helstu kvikmyndahátíðum sem
haldnar eru.
Einnig er stefnt að því að fá
athyglisverða kvikmyndagerðar-
menn í heimsókn og koma á litlum
kvikmyndahátíðum, nokkrum sinn-
um á ári.
Vetrardagskrá Filmundar verður
kynnt frekar þegar líður að hausti.
„Jú, þetta er einkar ánægjulegt,“
sagði Árni Samúelsson, forstjóri
Samfélagsins, í samtali við Morg-
unblaðið.
„Íslenska kvikmyndasamsteypan
hefur verið leiðandi fyrirtæki í ís-
lenskri kvikmyndagerð sl. 10 ár en
frá henni hafa komið vinsælar
myndir eins og Djöflaeyjan og
Englar alheimsins. Fyrirtækið er
einnig þekkt og virt á erlendri
grundu enda hefur það tekið þátt í
viðamiklum alþjóðaverkefnum á
borð við Breaking the Waves og
Dancer in the Dark. Nú er það að
færa út kvíarnar í innkaupum og
dreifingu erlendra mynda og tengsl
Íslensku kvikmyndasamsteypunnar
við framleiðendur vandaðra kvik-
mynda munu tryggja að athyglis-
verðar myndir komast fyrir augu
íslenskra áhorfenda. Við fögnum
því sérstaklega að geta tryggt
áhorfendum okkar fjölbreytt úrval
listrænna kvikmynda frá öllum
heimshornum.“
Friðrik Þór Friðriksson, leik-
stjóri og eigandi ÍKS, er og ánægð-
ur með samstarfið:
„Samfélagið er stærsti bíóhúsa-
eigandi landsins með fimm bíó og
átján sali um allt land og þeir hafa
ávallt verið í fararbroddi hvað varð-
ar gæði salanna og aðbúnað. Það
felst styrkur í því fyrir okkar kvik-
myndir að hafa gert eins góðan
samning og raun ber vitni við Sam-
félagið og hafa aðgang að þessu öfl-
uga „batteríi“ sem þeir eru búnir
að byggja upp. Samningurinn er
styrk stoð við áætlanir okkar um
aukin umsvif í dreifingu á erlendum
myndum og gerir okkur kleift að
koma að alls konar myndum í sýn-
ingar hér heima án þess að taka of
mikla áhættu, sem annars hefði
aldrei borgað sig. Samfélagið hefur
þannig stuðlað að aukinni fjöl-
breytni í bíómennningunni með
þessum samningi og ég er viss um
að almenningur mun fagna því. Í
gegnum árin hafa alltof margar
góðar myndir ekki komast upp á
tjald hér heima og ég hef fulla trú á
að nú verði bót á. Fyrirhuguð út-
gáfa eldri íslenskra kvikmynda er
þá sérstakt ánægjuefni enda marg-
ar eigulegar myndir í safni okkar,
en við eigum réttinn á yfir 50 titl-
um. Englar alheimsins, sem kemur
út í september á DVD-mynddiski,
verður mjög eigulegur diskur með
hellingi af aukaefni og svo munu
fleiri fylgja í kjölfarið.“
Fálkar í september
Fyrsta kvikmynd ÍKS sem verð-
ur sýnd undir nýja samningnum er
24 Hour Party People eftir Michael
Winterbottom, sem frumsýnd verð-
ur 6. september. Fjallar hún um
tónlistarlíf Manchesterborgar sem
spratt upp úr pönkinu og gat af sér
sveitir eins Joy Division, Happy
Mondays og Smiths.
Fálkar, nýjasta kvikmynd Frið-
riks Þórs, með Keith Carradine í
aðalhlutverki, verður svo frumsýnd
27. september.
Samfélagið og Íslenska kvikmyndasamsteypan efh. fara í samstarf
Morgunblaðið/Arnaldur
Friðrik Friðriksson og Árni Samúelsson.
Stefnt
að auk-
inni fjöl-
breytni
Sýnd í lúxus kl. 6, 8 og 10.10. B. i. 16. Vit 411
1/2
SV Mbl
1/2
Kvikmyndir.is
Kvikmyndir.com
ÓHT Rás 2
SG DV
23 þúsund áhorfendur
SÍMI 587-8900 ÁLFABAKKI www.sambioin.is
Fyrir 1250 punkta
færðu bíómiða.
Sýnd kl. 10.10. B.i. 14. Vit 393.
HETJA MUN RÍSA UPP...
...Á AFTURLAPPIRNAR.
Sýnd kl. 4 og 6. Íslenskt tal. Vit nr. 410.
Sýnd kl. 4, 6 og 8. Enskt tal. Vit nr. 407.
kvikmyndir.is
Sýnd kl. 8 og 10.20. B.i. 16 ára Vit 408Sýnd kl. 6, 8 og 10.10. Vit 406
Þau hafa 45 mínútur
til að bjarga heiminum.
En þau þurfa 46 mínútur
Sýnd kl. 4 og 6. Vit 398
Einnig sýnd í lúxussal VIP
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20.
B.i. 16 ára Vit 400Sýnd kl. 8 og 10.10. Vit 395.
Pétur Pan-2
Fyndnasta myndin í bænum í
dag frá Barry Sonnenfeld,
leikstjóra Get Shorty. Með
topp leikurum í öllum
hlutverkum, þar á meðal
Johnny Knoxville úr sjónvarpsþáttunum JackAss.
Þessi mynd mun koma þér skemmtilega á óvart,
ekki missa af henni!
RICHARD GERE LAURA LINNEY
1/2
Kvikmyndir.is
Kvikmyndir.is
HL. MBL
DV
Kvikmyndir.com
Hið yfirnáttúrulega mun gerast.
Sýnd kl. 4. Íslenskt tal. Vit 358.
Sýnd kl.. 3.50. Ísl tal. Vit 338
DV
Kvikmyndir.is
DV
SÍÐUSTU DAGAR ÚTSÖLUNNAR
50-70% AFSLÁTTUR
BOSS BÚÐIN KONUR KRINGLUNNI
alltaf á föstudögum