Morgunblaðið - 18.08.2002, Síða 12
12 C SUNNUDAGUR 18. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Til sölu PT Cruiser
Ltd. 7/2000, Silfurgrár, ekinn 26 þ. km. Sjálf-
skiptur, gler sóllúga, leðursæti, álfelgur, rafm.
rúður, rafm. sæti, ABS bremsur, loftkæling,
útvarp, CD og kassettutæki, þakbogar, spól-
vörn, hiti í sætum og speglum o.fl.
Verð: aðeins 2.950.000,- Uppl. í síma 896-4411.
FÉLAGSSTARF
Háskólatónleikar
Tónleikanefnd HÍ efnir til hádegistónleika í vet-
ur eins og undanfarin ár. Nokkrar breytingar
verða á tónleikahaldinu. M.a. verður tónleikum
fækkað og þeir verða nú skipulagðir í samvinnu
við Félag íslenskra tónlistarmanna. Þeir, sem
hafa áhuga á að koma fram á tónleikunum,
geta nálgast umsóknareyðublöð á aðalskrif-
stofu HÍ eða á heimasíðu skólans á slóðinni
www.hi.is/stjorn/sam/tonleikar.html .
Umsóknarfrestur er til 16. september.
Umsóknir berist Margréti Jónsdóttur, herbergi
414 í Árnagarði, sími 525 4439 eða 861 7348,
netfang mjons@hi.is .
Sjálfstæðisflokkurinn
Síðsumarferð
sjálfstæðismanna
Hin árlega síðsumarferð sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík
verður farin laugardaginn 24. ágúst að Búðum á Snæfellsnesi.
Lagt verður af stað frá Valhöll, Háaleitisbraut 1 kl. 10.00.
Við komuna að Búðum verður meðal annars boðið upp á grillveislu,.
leiki fyrir börnin, hesta, kirkjan skoðuð undir leiðsögn Kristjönu Sig-
urðardóttur og fleira áhugavert gert.
Gert er ráð fyrir að heimkoma verði um kl. 19.00.
Verð er kr. 1.500 ( rútan og grillveislan) en frítt fyrir börn 12 ára og
yngri.
Þátttaka tilkynnist til skrifstofu Sjálfstæðisflokksins í síma 515 1700
fyrir kl. 16.00 miðvikudaginn 21. ágúst.
Sjálfstæðismenn, fjölmennum og eigum saman skemmtilegan
dag.
Sjálfstæðisfélögin í Reykjavík.
Skólaskrifstofa Hafnarfjarðar
Skólabyrjun
Formlegt skólastarf nemenda í grunnskólum
Hafnarfjarðar hefst sem hér segir:
Lækjarskóli 22. ágúst*
Aðrir skólar 23. ágúst
Nemendur mæti í skólana samkvæmt þess-
ari tímatöflu:**
Kl. 9:00 7. og 8. bekkur (fædd ´90 og ´89)
Kl. 10:00 6. og 9. bekkur (fædd ´91 og ´88)
Kl. 11:00 5. og 10. bekkur (fædd ´92 og ´87)
Kl. 13:00 1. og 4. bekkur (fædd ´96 og ´93)
Kl. 14:00 2. og 3. bekkur (fædd ´95 og ´94)
*Ath. Nemendur í 5.—10. bekk í Lækjarskóla
mæta í gamla skólann en nemendur í 1.—4.
bekk í nýja skólann.
** Nemendur í Áslandsskóla mæti allir
kl. 18:00.
Fræðslustjórinn í Hafnarfirði.
Hlíðarnar
Glæsileg 4ra herb. íbúð m/húsgögnum í Hlíð-
unum til leigu í eitt ár. Hentugt fyrir fyrirtæki.
Umsóknir sendist til augldeildar Mbl. merktar:
„H—12629“, fyrir 22. ágúst.
BÍLAR
KENNSLA
Upphaf haustannar 2002
í Flensborgarskólanum
Skólinn verður settur í Íþróttahúsinu við
Strandgötu þriðjudaginn 20. ágúst
kl. 12.00.
Að lokinni skólasetningu verða stundatöflur
afhentar. Þeir nemendur, sem eiga eftir að
greiða endurinnritunargjald, eru minntir á að
þeir þurfa að ganga frá greiðslu þess um leið
og stundatafla er afhent.
Nemar, sem eru að innritast í fyrsta sinn, hitta
sína umsjónarkennara strax að lokinni skóla-
setningu og fá sérstaka kynningardagskrá til
kl. 16.00.
Miðvikudaginn 21. ágúst verður kennt sam-
kvæmt sérstakri hraðtöflu frá kl. 8.05 til 12.10.
Kennarar eru boðaðir til skipulagsvinnu mánu-
daginn 19. ágúst kl. 10.00.
Almennur kennarafundur er boðaður þriðju-
daginn 20. ágúst kl. 9.00.
Skólameistari.
Stýrimannskólinn í Reykjavík,
sími 551 3194, fax 562 2750,
netfang: styr@ismennt.is,
veffang: styrimannaskoli.is
Skólasetning 2002
Upphaf haustannar 2002
Miðvikudagur 21. ágúst
Kl. 10.00:
Skólinn settur í Hátíðarsal Sjómannaskólans
á 2. hæð.
Kl. 11.00
Nemendum afhentar stundaskrár, vinnuáætlun
haustannar, námskrá o.fl. í stofu 302.
Fimmtudagur 22. ágúst:
Töflubreytingar hjá áfangastjóra í stofu 310.
Föstudagur 23. ágúst:
Kennsla hefst samkvæmt stundaskrám.
Skólameistari.
Frá Menntaskólanum
við Hamrahlíð
Innritun
Dagskóli
Allir nýir nemendur á haustönn 2002 eru
boðaðir í skólann til fundar við rektor og
umsjónarkennara í hátíðasal skólans miðviku-
daginn 21. ágúst stundvíslega kl. 15:00.
Eldri nemendur eiga að sækja stundatöflur
dagana 21. og 22. ágúst kl. 18—20. Skráning
í töflubreytingar verður á sama tíma.
Nemendur eru minntir á að framvísa verð-
ur kvittunum fyrir skólagjöldum.
Skólasetning haustannar verður kl. 8:10 föstu-
daginn 23. ágúst og í framhaldi af henni hefst
kennsla samkvæmt stundaskrá.
Öldungadeild
Innritað verður dagana 19.—21. ágúst. Nánari
upplýsingar eru í Fréttapésa öldunga á heima-
síðu skólans.
Kennarafundur verður haldinn miðvikudaginn
21. ágúst kl. 8.30.
Heimasíða MH er: http://www.mh.is/
sími: 595 5200.
Rektor.
Til nemenda
Borgarholtsskóla
Upphaf skólastarfs verður sem hér segir:
Dagskóli:
Nýnemar eru boðaðir á kynningarfund kl. 10:00
miðvikudaginn 21. ágúst.
Aðrir nemendur sæki stundaskrár kl. 10:00—
12:00 fimmtudaginn 22. ágúst.
Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá föstudag-
inn 23. ágúst.
Kvöldskóli:
Innritun í kvöldskóla verður sem hér segir:
Föstudaginn 23. ágúst kl. 17:00—19:00.
Laugardaginn 24. ágúst kl. 10:00—13:00.
Dagana 26. til 29. ágúst kl. 10:00—15:00
Föstudaginn 30. ágúst kl. 17:00—19:00
Laugardaginn 31. ágúst kl. 10:00 —13:00
Kennsla í kvöldskóla hefst mánudaginn
2. september
Nánari upplýsingar á heimasíðu skólans,
www.bhs.is .
Skólameistari.
BARNAVERNDARSTOFA
Námskeið 22.-23. ágúst 2002
Áhættumat á kynferðisafbrotamönnum
Fyrirlesarar:
● Dr. Richard Beckett, ráðgefandi klínísk-
ur réttarsálfræðingur.
● Dr. Jón Friðrik Sigurðsson, sérfræðing-
ur í klíniskri sálfræði og réttarsálfræði.
Á þessu tveggja daga námskeiði verða kynnt
þau meginatriði sem nauðsynleg eru til þess
að framkvæma ítarlegt áhættumat á kynferðis-
afbrotamönnum. Kynntur verður mælikvarðinn
Risk Matrix 2000 sem notaður er til þess að
meta áhættu af kynferðisafbrotamönnum í
Bretlandi. Þessi mælikvarði nær yfir stöðuga
áhættuþætti og breytanlega áhættuþætti. Farið
verður yfir helstu breytanlegu áhættuþættina
og hvernig þeir eiga við þá sem misnota börn.
Sýnt verður hvernig hægt er að nota þessa
þætti til þess að meta áhættu, meðferðarþörf
og árangur meðferðar. Stuðst verður við dæmi
úr kynferðisafbrotamálum til þess að fá betri
skilning á þeim meginhugtökum sem farið
verður yfir á námskeiðinu.
Stjórnandi námskeiðs verður Bragi Guðbrands-
son, forstjóri Barnaverndarstofu.
Námskeiðið verður haldið í Þingholti á Hótel
Holti 22. og 23. ágúst frá kl. 9-17. Þátttökugjald
er 20.000 kr. Innifalinn er þriggja rétta hádegis-
verður báða dagana ásamt morgun- og eftir-
miðdagskaffi.
Ath. að þátttaka er takmörkuð við 50 manns og
eru því áhugasamir beðnir að skrá sig sem fyrst
hjá Herdísi í síma 530 2602 eða herdis@bvs.is .
Viltu læra táknmál?
Námskeið í táknmáli hefjast 2. september.
Skráning og nánari upplýsingar í síma 562 7702
eða shh@shh.is .
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR