Morgunblaðið - 20.08.2002, Síða 2
FRJÁLSÍÞRÓTTIR
2 B ÞRIÐJUDAGUR 20. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK
VALA Flosadóttir úr ÍR vann
öruggan sigur í kúluvarpi og há-
stökki í bikarkeppninni. Vala varp-
aði kúlu 12,99 metra og stökk 1,65 m
í hástökki en varð önnur í „sinni
grein“, stangarstökki.
GÓÐUR árangur Völu í kúluvarpi
og hástökki á þó ekki að koma sér-
staklega á óvart því hún á best 1,82
m í hástökki og þá keppti hún aðeins
í sjöþraut þegar hún var yngri og á
m.a. stúlknametið (17–18 ára) í sjö-
þraut 4.911 stig en það setti Vala ár-
ið 1996. Einnig á hún meyjarmetið
(15–16 ára) í sjöþraut 4.377 stig.
VALA sagði í samtali við Morg-
unblaðið um helgina að hún hefði
ekkert spáð alvarlega í það að taka
þátt í tugþraut kvenna þegar keppni
í þeirri grein hefst á næsta ári. Með
því að keppa í þremur greinum hafi
hún fyrst og fremst verið að vinna
stig fyrir sitt félag, ÍR.
VALA sagði ekki loku fyrir það
skotið að hún taki þátt í a.m.k.
þremur alþjóðlegum mótum í stang-
arstökki á næstu vikum, í Svíþjóð,
Póllandi og í Þýskalandi áður en við
taka æfingar fyrir innanhúss keppn-
istímabilið.
JÓNAS H. Hallgrímsson, frjáls-
íþróttamaður úr FH, gat ekki tekið
þátt í bikarkeppninni með félögum
sínum um helgina þar sem hann er
farinn til Bandaríkjanna þar sem
hann hefur á næstunni nám í Uni-
versity of Southern California. Jón-
as er einn efnilegasti þrístökkvari
landsins, varð m.a. í þriðja sæti á
Norðurlandameistaramóti ung-
menna á dögunum, stökk 14,79 m.
SILJA Úlfarsdóttir hlaupakona
úr FH hélt til Bandaríkjanna á
sunnudaginn, daginn eftir bikar-
keppnina, þar sem hún hyggst taka
upp þráðinn frá því í vor í háskóla-
námi sínu við Clemson-háskóla í N-
Karólínuríki. Vignir Stefánsson,
eiginmaður Silju og júdókappi, var
einnig með í för en hann stundar
nám við sama skóla og einnig stunda
þau íþróttir sínar með skólaliðinu.
EINAR Karl Hjartarson, Íslands-
methafi í hástökki úr ÍR, er einnig á
leið til Bandaríkjanna í háskólanám.
Hann sest á skólabekk í Dallas.
UPP kom eitt kærumál í Bikar-
keppni FRÍ í framhaldi af því að
kvennasveit ÍR í 4x100 m boðhlaupi
var dæmd úr leik vegna rangar
skiptingar. ÍR-ingar sættu sig ekki
við dóminn. Fengnar voru upptökur
frá RÚV frá hlaupinu og sátu menn
yfir þeim á laugardeginum. Eftir
nokkra yfirlegu var ákveðið að dóm-
urinn skyldi standa og ÍR-ingar
fengu því ekkert stig. Þegar öll
keppnin var gerð upp munaði hálfu
stigi á ÍR í fjórða sæti og Breiða-
bliki í þriðja sæti.
ÍRIS Svavarsdóttir, úr FH, lét
slitin liðbönd ekki aftra sér frá því
að keppa í hástökki. Hún vann eitt
stig fyrir sitt félag, lyfti sér yfir 1,50
EMMA Ania, sprettahlaupari í
FH, vann öruggan sigur í 100 og 200
m hlaupi kvenna í bikarkeppninni á
11,50 og 23,70 sek.. Ania hefur auð-
veldlega unnið öll spretthlaup hér
heima í sumar og standa íslenskar
stúlkur henni nokkuð á sporði. Ania
er breskur ríkisborgari en hefur
dvalið hér á landi sl. ár ásamt ís-
lenskum sambýlismanni sínum og
æft með FH-ingum.
ÓÐINN Björn Þorsteinsson,
kringlukastari úr FH, heldur í haust
utan til Svíþjóðar þar sem hann
hyggst æfa undir stjórn Vésteins
Hafsteinssonar, Íslandsmethafa.
Verður hann væntanlega hluti af
fimm manna hópi kringlukastara
sem ætlar að æfa hjá Vésteini en
annar Íslendingur er í hópnum,
Magnús Aron Hallgrímsson, úr
Breiðabliki.
SIGURÐUR T. Sigurðsson, Ís-
landsmeistari í stangarstökki karla
úr FH og félagi hans, Finnbogi
Gylfason, hafa tekið þátt í að vinna
bikarkeppni karla fimmtán ár í röð
með FH.
Þórey reyndi síðan við Norður-landamet, 4,51 en lánaðist ekki
að komast yfir þá hæð. Árangur Þór-
eyjar var tvímælalaust hápunktur
bikarkeppninnar. Það er ekki á
hverjum degi sem reynt er að bæta
Norðurlandamet á frjálsíþróttmót-
um hér á landi.
Norðurlandametið á Vala Flosa-
dóttir, ÍR, sem einnig tók þátt í bik-
arkeppninni og varð að sætta sig við
annað sætið, stökk 4 metra. „Ég kom
ekki með neitt annað markmið til
keppninnar en að hafa gaman af því
að taka þátt í keppninni og vinna
mína grein fyrir mitt félag. Ég var
með stutta atrennu, tólf skref í stað
fimmtán, þar sem hliðarvindur var
nokkur og erfitt að ráða við stang-
irnar. Síðan gengu hlutirnir bara
upp og úr varð minn besti árangur í
sumar, það var bara virkilega gaman
að þessu,“ sagði Þórey sem segir
keppnistímabilið hvergi nærri vera á
enda hjá sér þótt farið sé að líða á
sumarið. Auk þess að keppa á móti
hér heima á næstunni ætlar Þórey að
leggja land undir fór og keppa í
Gautaborg í Svíþjóð eftir viku og síð-
an eru framundan mót í Þýskalandi
og á Ítalíu í byrjun september.
„Ég er ekkert að hætta á næst-
unni þótt komið sé fram í ágúst.
Keppnistímabilið hófst seint hjá mér
vegna meiðsla og því er ég alveg klár
í að lengja það nokkuð enda finn ég
að formið batnar með hverju mótinu
sem ég tek þátt í,“ sagði Þórey en
margir spá því að henni takist að slá
Norðurlandamet Völu áður en sumr-
inu lýkur. Um það vildi Þórey sem
minnst segja. Það yrði bara að koma
í ljós.
„ÉG hef beðið lengi eftir þessum árangri og það er ef til vill ástæð-
an fyrir því að ég hef ekki stokkið fyrr í sumar yfir þessa hæð, ég hef
verið of spennt og ætlað mér á stundum um of,“ sagði Þórey Edda
Elísdóttir, stangarstökkvari úr FH, sem vann öruggan sigur í stang-
arstökki í bikarkeppninni, stökk 4,41 metra og náði þar með sínum
besta árangri á þessu sumri.
Árangur Þóreyjar hápunkturinn
HSK varð síðan í fimmta sæti með80,5 stig og Ármann rak lestina,
hlaut, 75 stig. Þess má geta að þetta
var í fimmtánda sinn í
röð sem karlasveit
FH vinnur karla-
keppnina. Ragnhild-
ur sagði aðgóður sig-
ur karlaliðsins hafi verið umfram þær
væntingum sem hún gerði fyrir
keppnina, þar sem nokkuð hefði verið
um meiðsli í henni auk þess sem hinn
efnilegi Jónas Hlynur Hallgrímsson
sé farinn til náms í Bandaríkjunum.
„Það lýsir kannski fyrst og fremst
stemmningunni hjá okkur að það
kemur ævinlega maður í manns stað
og menn leggja sig alltaf fullkomlega
fram í keppni sem þessari,“ sagði
Ragnhildur sem sagðist hafa verið
spennt fyrir keppnina en þegar ljóst
var eftir fyrri keppnisdag að hennar
lið hafði ágæta forystu þá hafi henni
verið öllu rórra.
„Í stigakeppni sem þessari þá er
það liðsheildin sem skiptir máli og
hún er góð hjá okkur auk mikillar
samkenndar. Á þeim níu árum sem ég
hef stýrt FH-liðinu til sigurs í bik-
arkeppninni þá held ég að samheldn-
in og samkenndin hafi aldrei verið
meiri en nú,“ sagði Ragnhildur. „Síð-
an höfum við verið lánsöm, ekki orðið
fyrir neinum meiriháttar áföllum, svo
sem að menn felli byrjunarhæð í
stökkum, skipti rangt í boðhlaupum
eða meiðist alvarlega í keppninni
þannig að þeir verði að hætta. Allir
keppendur skila sér í mark sem er
frábært þar sem vorið og sumarið var
okkur FH-ingum erfitt þar sem mikið
var um meiðsli.
Fyrir keppnina fannst mér við fara
með nokkuð brothætt karlalið inn í
keppnina, en þegar á hólminn var
komið þá þjöppuðu þeir sem kepptu
vel saman og stóðu sig framúrskar-
andi vel,“ sagði Ragnhildur glaðbeitt
og viðurkenndi að munurinn á FH og
UMSS hafi verið meiri en hún og
fleiri hafi reiknað með fyrirfram.
Talsverð spenna var fyrir keppnina
því vitað var að UMSS myndi sækja
hart að FH-ingum og reyna að binda
enda á sigurgöngu Hafnfirðinga. Eft-
ir fyrri daginn var FH með 13,5 stiga
forskot sem var meira en margir
reiknuðu með. Þar með var ljóst að
óhapp þyrfti að koma til svo FH-ingar
héldu ekki sínu striki á síðari degi í átt
að níunda sigrinum í röð. Og Hafn-
firðingar misstigu sig ekki hætishót,
þvert á móti þá spýttu þeir frekar í
lófana en hitt og juku forskot sitt.
Þarf sterkari sveit
til að vinna
„Við þurfum að vera með aðeins
sterkara lið og sleppa betur við
meiðsli en við gerðum fyrir þessa
keppni,“ sagði hinn þrautreyndi þjálf-
ari Skagfirðinga Gísli Sigurðsson, að-
spurður hvað þyrfti til svo UMSS ætti
möguleika á að leggja FH-inga, en
Skagfirðingar gerðu harða atlögu að
Hafnfirðingum í þetta skiptið en
höfðu ekki erindi sem erfiði.
„Annars eru meiðsli einfaldlega
óhjákvæmilegur fylgifiskur þess að
vera með stóra og öfluga sveit, hjá
þeim er erfitt að komast. Við verðum
hins vegar bara að halda áfram ein-
beitt við að vinna í okkar málum, þá er
ég viss um að bikarinn fellur okkur í
skaut einn góðan veðurdag,“ sagði
Gísli sem var ánægður með frammi-
stöðu sinnar sveitar, jafnt utan vallar
sem innan. „Keppnin var hörð og mitt
fólk lagði sig virkilega fram og naut
þess að taka þátt auk þess sem það
setti sterkan svip á mótið með því að
halda uppi góðri stemmningu á hlið-
arlínunni, enda var það okkar mark-
mið að hafa ekkert síður gaman að því
að fylgjast en að taka þátt,“ sagði
Gísli og vildi koma á framfæri ham-
ingjuóskum til FH-liðsins sem glæsi-
legan sigur í bikarkeppninni níunda
árið í röð.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Sigursveit FH-inga í Bikarkeppni FRÍ. Þetta er níunda árið í röð sem Hafnfirðingar fara með sigur af hólmi í keppninni.
FH-ingum varð ekki
ógnað í bikarkeppninni
„ÞAÐ var hart sótt að okkur en þeir sem gerðu það gerðu sér ekki
grein fyrir því að við FH-ingar gefumst aldrei upp fyrr en í fulla hnef-
ana,“ sagði Ragnhildur Ólafsdóttir, þjálfari bikarmeistara FH í
frjálsíþróttum eftir að lið hennar vann Bikarkeppni FRÍ níunda árið í
röð á laugardaginn. Sveitin vann bæði í karla- og kvennakeppninni
og var 28 stigum á undan Ungmennsambandi Skagafjarðar (UMSS)
sem hafnaði í öðru sæti í heildarstigakeppninni. FH hlaut 186 stig,
UMSS 158 stig og Breiðablik hafnaði í þriðja sæti með 135,5 stig,
hálfu stigi á undan ÍR.
Ívar
Benediktsson
skrifar
■ Úrslit / B14