Morgunblaðið - 20.08.2002, Blaðsíða 16
ÚRÚGVÆSKI markvörðurinn
Fabian Carini mun ekki ganga til liðs
við Arsenal eins og til stóð þar sem
félaginu tókst ekki að semja við
Carini um kaup og kjör. Carini held-
ur því aftur til Ítalíu þar sem hann er
samningsbundinn Juventus, en
ítalska liðið hafði ætlað að lána Ars-
enal markvörðinn í eitt ár. Ensk dag-
blöð greina hins vegar frá því að
Carini muni í staðinn ganga til liðs við
Manchester United þar sem Fabien
Barthez, aðalmarkvörður liðsins, sé
meiddur og ekki vitað hvenær hann
muni ná sér.
FRANSKI sóknarmaðurinn Lilian
Laslandes er að öllum líkindum á leið
frá enska liðinu Sunderland eftir
heldur dapurt ár hjá félaginu þar sem
hann skoraði aðeins eitt mark í 13
leikjum. Franska liðið Bastia mun
vilja fá leikmanninn lánaðan út tíma-
bilið með það fyrir augum að kaupa
hann í lok þess standi hann sig vel.
Laslandes gekk til liðs við Sunder-
land frá Bordeaux í fyrra en hafði
hótað að hætta að leika knattspyrnu
ef hann kæmist ekki burt frá enska
liðinu á þessu sumri.
NÍGERÍUMAÐURINN Taribo
West kom í gær til Manchester á
Englandi þar sem hann mun æfa
næstu 10 dagana með Manchester
City og reyna að fá Kevin Keegan,
knattspyrnustjóra liðsins, til að gera
við sig samning. West hefur verið
samningslaus frá því hann var rekinn
frá þýska liðinu Kaiserslautern í apr-
íl fyrir að fara ekki að fyrirmælum
lækna liðsins. Gangi hann til liðs við
City verður það í annað sinn sem
hann leikur í ensku úrvalsdeildinni,
en hann lék með Derby County
stærstan hluta keppnistímabilsins
2000–2001.
ÞÝSKI framherjinn Oliver Bier-
hoff gekk um helgina til liðs við
ítalska liðið Chievo. Bierhoff, sem er
34 ára, gerði eins árs samning við
ítalska liðið en hann lék á síðustu leik-
tíð með franska liðinu Mónakó.
Chievo er fjórða ítalska liðið sem
Bierhoff leikur með, því hann hefur
áður leikið í framlínu Ascoli, Udinese
og AC Milan.
LANDI Bierhoffs, sóknarmaður-
inn Marco Bode, ákvað hins vegar á
sunnudag að leggja knattspyrnus-
kóna á hilluna eftir að honum mis-
tókst að semja við nokkur lið í Lund-
únum, þ.á m. Fulham. Bode, sem er
33 ára, lék með þýska liðinu Werder
Bremen í 14 ár en í vor hafnaði hann
nýjum fjögurra ára samningi við fé-
lagið þar sem hann vildi ljúka ferl-
inum á Englandi. Bode varð Evrópu-
meistari með Þjóðverjum árið 1996
og var í þýska landsliðinu sem lenti í
öðru sæti á HM í sumar.
ÚKRAÍNSKI sóknarmaðurinn hjá
AC Milan á Ítalíu, Andriy Shevch-
eko, gæti þurft að fylgjast með fé-
lögum sínum af áhorfendabekkjun-
um næstu tvo mánuðina. Hann er
meiddur á vinstra hné og fer líklega í
aðgerð í Belgíu í vikunni.
KÖRFUBOLTASTJARNAN
Shaquille O’Neal hjá LA Lakers lét
ekki sjá sig á körfuboltahátíð í Or-
lando sem bar hans eigið nafn. Hátíð-
in stóð í tvo daga með námskeiði og
leik þar sem stjörnur á borð við Vince
Carter mættu til leiks. Þátttakendur
borguðu yfir tuttugu þúsund krónur
fyrir herlegheitin en Shaq þáði hins
vegar um fjórar milljónir króna fyrir
viðvikið sem aldrei varð. Ekki hefur
fengist skýring á fjarveru O’Neals.
KAJSA Bergqvist, Evrópumeist-
ari í hástökki kvenna frá Svíþjóð,
stökk 2,05 m á alþjóðlegu móti í Pos-
nam í Póllandi á sunnudag. Þetta er
þriðji besti árangur sem náðst hefur í
hástökki kvenna í sex ár. Bergqvist
gerði síðan þrjár árangurslausar til-
raunir til að bæta heimsmetið um
einn sentimetra, stökkva 2,10.
FÓLK
BJÖRN Þorleifsson og Auður Anna Jónsdóttir unnu til gullverðlauna
á opnu móti í taekwondo sem fram fór í Kaupmannahöfn um helgina.
Auður sigraði Norðurlandameistarann, Christinu Rasmussen frá
Danmörku, 7:3 í úrslitum en þá hafði hún þegar unnið Söru Hassles
frá Svíþjóð, 9:3.
Björn sigraði á mótinu annað árið í röð en í -78 kg flokki í ár, í fyrra
sigraði hann hins vegar í -72 kg flokki. Muhamed Dahmani frá Dan-
mörku gaf úrslitaviðureignina vegna meiðsla en áður hafði Björn
sigrað Andreas Lefort, 11:4.
Ragnhildur Bjarnadóttir vann silfurverðlaun í sínum flokki á
mótinu og Ásdís Kristinsdóttir hlaut brons.
Björn fékk einnig verðlaun fyrir drengilega keppni og framúrskar-
andi tækni. Þjálfari hópsins er Jón Ragnar Grímsson yfirþjálfari úr
Ármanni og Björk. Landslið Norðmanna fór með sigur af hólmi í liða-
keppninni.
Aðalástæðan fyrir uppsögninni ersú að ég bý í Svíþjóð, þar á ég
fjölskyldu en ég vinn að hluta til á
Íslandi. Þetta geng-
ur ekki upp til
lengdar og því miður
eru ekki forsendur
fyrir hendi að ég
flytji hingað heim og sinni starfi
landsliðsþjálfara í fullu starfi eins
og upphaflega var áætlað,“ segir
Vésteinn.
Vésteinn hefur verið landslið-
þjálfari undanfarin tvö ár en hafði í
þrjú ár á undan verið umsjónarmað-
ur með afrekshópi FRÍ, svokölluð-
um Syndey-hópi. Vésteinn hefur
undanfarin ár búið í Svíþjóð, en það-
an er eiginkona hans. Þau hafa kom-
ið sér fyrir í Helsingborg ásamt
börnum sínum tveimur. Vésteinn
segir að gríðarlegt álag sé á fjöl-
skyldunni vegna tíðra ferðalaga
vegna starfsins og m.a. hafi hann
undanfarna þrjá mánuði aðeins ver-
ið heima hjá sér í 15 daga. Nú sé
mælirinn fullur, hann geti ekki verið
svona mikið fjarri fjölskyldunni, það
sé einfaldlega ekki hægt að bjóða
upp á það. Hann hyggist nú róa á
önnur mið.
Ætlaði að flytja heim
Þegar hann var ráðinn landsliðs-
þjálfari fyrir tveimur árum stóð til
að hann flytti heim þannig að auð-
veldara væri að halda utan um starf-
ið. „Til stóð að ég kæmi heim með
fjölskylduna í ársbyrjun 2001 og
færi í fullt starf sem landsliðsþjálf-
ari. Með starfinu var mér ætlað að
fylgja eftir afreksstefnu FRÍ, sem
samþykkt var eftir Ólympíuleikana.
Unnið var í að fá peninga til þess að
fylgja stefnunni eftir, það lánaðist
ekki og þar með voru forsendurnar
fyrir ráðningu minni, og ekki síst
flutningi heim, brostnar. Málin tóku
því aðra stefnu en ég, fjölskyldan og
fleiri höfðum ætlað. Eftir nokkurn
tíma var ég spurður hvort ég væri
tilbúinn að fylgja afreksstefnunni úr
hlaði í hálfu starfi og búa þar með
áfram í Svíþjóð. Ég skrifaði upp á
samning um það til sex mánaða. Síð-
an eru liðin hart nær tvö ár og
samningurinn hefur verið fram-
lengdur munnlega með reglulegu
millibili,“ segir Vésteinn sem segist
hafa tekið þessa ákvörðun að vel at-
huguðu máli.
„Margt hefur gengið ágætlega en
annað miður. Mér hefur tekist að
halda í horfinu. Metnaður minn er
hins vegar meiri en bara að halda í
horfinu. Ég vil gera meira þannig að
við getum sótt fram á veginn og hlúð
betur að afreksmönnum framtíðar-
innar en nú er gert. Það verður á
hinn bóginn ekki mögulegt nema til
komi mun meiri peningar í sjóði
Frjálsíþróttasambandsins um leið
og landsliðsþjálfari þarf að vinna
mun meira en ég hef þó gert í hálfu
starfi. Ég geri mér grein fyrir að
maður þarf alltaf að vinna meira en
maður fær greitt fyrir, það þekki ég
frá fornu fari. En hins vegar tel ég
að lengra verði ekki komist með
landsliðþjálfara í hálfu starfi sem
búsettur er í Svíþjóð og um leið fyrir
mann sem hefur ríkan metnað fyrir
hönd frjálsíþrótta á Íslands. Ég er
ósáttur við að sinna starfi sem ég
get ekki tekið þeim tökum sem ég
vil taka það,“ segir Vésteinn en jafn-
hliða starfi sínu hér er hann þjálfari
nokkurra kringlukastara, er um-
boðsmaður fyrir frjálsíþróttamenn
auk þess að halda reglulega fyrir-
lestra um íþróttaþjálfun víðsvegar í
Svíþjóð. Að þessu hyggst hann ein-
beita sér ennfrekar nú.
„Það eru ekki kröfur mínar um
laun sem gera það að verkum að
ekki er hægt að framfylgja þeirri
stefnu sem við hjá FRÍ settum okk-
ur. Það vantar einfaldlega peninga
til þess að gera virkilegt átak og
halda betur utan um allt starfið
þannig að við fáum fleiri afreks-
menn,“ segir Vésteinn og nefndi
sem dæmi að allir unglingar í af-
rekshópum unglinga innan FRÍ
yrðu að standa straum af regluleg-
um æfingabúðum sem eru þó haldn-
ar á vegum FRÍ. Svoleiðis gangi
hreinlega ekki nú um stundir þegar
samkeppni íþróttagreina er mikil.
Sama eigi við afrekshópa þeirra
eldri þótt nokkuð hafi verið hægt að
koma til móts við þá.
„Undanfarin ár hafa verið
skemmtileg, þá sérstaklega árin fyr-
ir Ólympíuleikana í Sydney. Síðast-
liðin tvö ár hefur ýmislegt gengið
vel, t.d. eru landsliðsmálin í betri
farvegi en áður. Einingin innan
hópsins er meiri en áður. En þrátt
fyrir allt dugir það mér ekki, ég hef
miklu meiri kröfur og síðast en ekki
síst vilja til að gera ennþá meira en
gert hefur verið til þess að við get-
um stigið stærri skref en til þessa
hafa verið stigin. Eins og staðan er
núna sé ég ekki að það verði hægt að
gera svo mikið meira, því miður,
nema að eitthvað mikið komi til.
Þrátt fyrir að ég sé að hætta sem
landsliðsþjálfari vil ég að sjálfsögðu
halda áfram að vinna fyrir íslenska
frjálsíþróttamenn, þótt það verði
ekki á þeim vettvangi sem ég hef
verið á síðustu ár. Ég er allur af
vilja gerður til þess að greiða götu
frjálsíþróttamanna, það hefur ekki
breyst og breytist ekki þrátt fyrir
vistaskiptin,“ segir Vésteinn sem
hyggst ennfrekar halla sér að þeim
störfum sem hann hefur sinnt í Sví-
þjóð og fyrr er getið um.
Vésteinn hættir sem
landsliðsþjálfari
Morgunblaðið/Sverrir
Vésteinn Hafsteinsson, landsliðsþjálfari í frjálsíþróttum, t.h., ásamt lærisveini sínum Magnúsi
Aroni Hallgrímssyni kringlukastara. Vésteinn hættir nú með landsliðið en ætlar eigi að síður að
halda áfram þjálfun Magnúsar, en þeir hafa verið búsettir í Svíþjóð undanfarin ár.
„ÉG hef sagt upp starfi mínu
sem landsliðsþjálfari í frjáls-
íþróttum og hætti 1. október
næstkomandi,“ sagði Vésteinn
Hafsteinsson, landsliðsþjálfari
frjálsíþrótta, er Morgunblaðið
hitti hann að máli um helgina,
en Vésteinn lagði fram uppsögn
sína á fundi með stjórn Frjáls-
íþróttasambandsins (FRÍ) á dög-
unum. Vésteinn segir að fjöl-
skylduaðstæður ráði mestu um
uppsögn sína en einnig fjár-
skortur FRÍ sem geri að verkum
að ákaflega erfitt sé að fylgja
eftir afreksstefnu þess.
Ívar
Benediktsson
skrifar
Fern verðlaun í
Kaupmannahöfn
Evrópuliðið í
vandræðum
ÖLL spjót beinast nú að Sam
Torrance, fyrirliða Ryders-
liðs Evrópu í golfi, sem mætir
því bandaríska á Belfry-
vellinum í lok september.
Kjarni liðsins, sem nú þegar
hefur verið valið, náði ekki
að komast í gegnum niður-
skurðinn á PGA-meistara-
mótinu um síðustu helgi. Má
þar nefna Colin Montgomer-
ie, Darren Clarke, Lee
Westwood og Thomas Björn.
Torrance hefur sagt að ekki
verði gerðar breytingar á lið-
inu úr þessu.