Morgunblaðið - 20.08.2002, Qupperneq 5
KNATTSPYRNA
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. ÁGÚST 2002 B 5
Arsenal fékk óskabyrjun gegnBirmingham því Frakkinn
Thierry Henry skoraði fyrra mark
leiksins á 9. mínútu með góðu skoti
úr aukaspyrnu. Stundarfjórðungi
síðar var komið að landa Henrys,
Sylvain Wiltord, sem bætti við öðru
marki eftir glæsilegan sprett þar
sem hann lék m.a. á þrjá varnar-
menn Birmingham, en nýliðarnir
misstu leikmann af velli á 73. mínútu
þegar senegalski leikmaðurinn Al-
iou Cisse fékk sitt annað gula spjald.
Með sigrinum setti Arsenal nýtt
met því liðið hefur nú unnið 14 leiki í
röð auk þess sem það hefur ekki
tapað í 22 leikjum í röð. Arsene
Wenger, kanttspyrnustjóri liðsins,
var að vonum ánægður með sigur-
inn og metið. „Metið sannar að liðið
er á miklum skriði og nýtur þess að
spila eins og það gerir nú. Við byrj-
uðum vel í leiknum en við náðum
ekki að nýta öll færi okkar, kannski
vegna þess að það var heitt í dag og
tímabilið er rétt að byrja, en við
fengum ekki á okkur mark og upp-
skárum þrjú stig,“ sagði Wenger.
Starfsbróðir Wengers hjá Man-
chester United, Alex Ferguson,
hafði ekki eins mikla ástæðu til þess
að gleðjast þrátt fyrir að lið hans
hefði sigrað West Bromwich Albion
1:0 á Old Trafford á laugardag. Lið-
ið átti í mesta basli með WBA og það
var ekki fyrr en Derek McInnes,
fyrirliða WBA, var vikið af leikvelli
á 64. mínútu sem United tókst að
brjóta liðið á bak aftur. Þar var á
ferðinni varamaðurinn Ole Gunnar
Solskjær á 79. mínútu, en þetta var
100. markið sem hann skoraði fyrir
liðið.
Leikmenn Liverpool fóru illa með
nokkur dauðafæri gegn Aston Villa í
leik liðanna á sunnudag. Það kom þó
ekki að sök því Norðmaðurinn John
Arne Riise skoraði eina mark leiks-
ins fyrir Liverpool skömmu eftir
leikhlé.
Flestar sóknir Liverpool strönd-
uðu á Peter Enckelman, markverði
Aston Villa, sem átti mjög góðan
leik og varði nokkrum sinnum
meistaralega, m.a. vítaspyrnu frá
Michael Owen. Owen lék í fremstu
víglínu hjá Liverpool ásamt Seneg-
alanum El-Hadji Diouf og þótti sá
síðarnefndi standa sig mun betur.
Chelsea stal sigrinum
Liðsmenn Charlton hafa eflaust
nagað sig í handarbökin eftir við-
ureign liðsins og Chelsea á laugar-
dag. Charlton náði tveggja marka
forystu eftir hálftímaleik en tapaði
leiknum 3:2 á lokamínútunum.
Paul Konchesky kom Charlton yf-
ir á 7. mínútu en var rekinn af velli
19 mínútum síðar. Richard Rufus
bætti engu að síður öðru marki við á
33. mínútu áður en Gianfranco Zola
minnkaði muninn fyrir Chelsea
skömmu fyrir leikhlé. Á síðustu sex
mínútum leiksins skoruðu Carlton
Cole og Frank Lampard svo sitt
markið hvor og tryggðu Chelsea
sigurinn.
Eiður Smári Guðjohnsen, sem er
nýstiginn upp úr meiðslum, kom inn
á sem varamaður hjá Chelsea fyrir
Emmanuel Petit þegar tæpur hálf-
tími var eftir af leiknum. Claudio
Ranieri, knattspyrnustjóri Chelsea,
lofaði Eið og félaga hans Carlton
Cole fyrir frammistöðu þeirra. „Ég
þurfti á tveimur frískum framherj-
um að halda í dag en ég vissi að Eið-
ur og Carlton Cole gætu ekki spilað
heilan leik þar sem þeir eru ekki í
góðri leikæfingu. En ég sendi þá inn
á í stuttan tíma og það varð okkur til
happs,“ sagði knattspyrnustjórinn.
Tveir fyrrverandi þjálfarar enska
landsliðsins, Terry Venables og
Kevin Keegan, leiddu saman lið sín,
Leeds og Manchester City, á laug-
ardag í Leeds og þar fóru heima-
menn með sigur af hólmi, 3:0. Nick
Barmby, Mark Viduka og Robbie
Keane gerðu mörkin.
Terry Venables viðurkenndi eftir
leikinn að lið hans hefði verið heppið
að sigra Manchester City. „Þetta
var mjög opinn leikur, eiginlega of
opinn fyrir minn smekk. Mér fannst
Manchester City spila vel og við
vorum mjög heppnir á stundum,“
sagði Venables. Keegan sagði hins
vegar að lið hans hefði ekki átt skilið
að tapa 3:0. „Það var margt jákvætt
í leik okkar og stærstan hluta leiks-
ins spiluðum við betur en þeir og
fengum betri færi. En þeir skoruðu
fyrsta markið sem er svo mikil-
vægt,“ sagði Keegan.
Franskur sigur hjá Fulham
Guðni Bergsson lék allan tímann í
vörn Bolton sem fékk heldur háð-
uglega útreið gegn Fulham. Eftir að
Michael Ricketts hafði skorað fyrsta
mark leiktíðarinnar í ensku knatt-
spyrnunni úr vítaspyrnu fyrir Bolt-
on á 4. mínútu leiksins var komið að
þremur Frökkum í liði Fulham að
láta ljós sitt skína.
Louis Saha jafnaði leikinnn á 11.
mínútu úr vítaspyrnu og Sylvain
Legwinski bætti við öðru marki fyr-
ir Fulham á 33. mínútu. Fimm mín-
útum síðar skoraði Steve Marlet
þriðja mark Fulham í þriðju víta-
spyrnu leiksins og Legwinski skor-
aði svo annað mark sitt tíu mínútum
fyrir leikslok. Fulham virðist því
kunna vel við sig á Loftus Road,
heimavelli QPR, en þar spilar liðið
heimaleiki sína á meðan verið er að
vinna að endurbótum á Craven
Cottage.
Blackburn og Sunderland skildu
jöfn, 0:0, og sömu sögu er að segja af
viðureign Southampton og Middles-
brough. Everton og Tottenham
skildu einnig jöfn, en hvort lið skor-
aði tvö mörk á Goodison Park í Liv-
erpool.
Reuters
Sylvain Wiltord, t.h., fagnar marki sínu með samherja sínum Thierry Henry gegn Birmingham.
Mark Wiltord innsiglaði sigur meistaranna, 2:0, en Henry kom þeim á bragðið á 9. mínútu.
Meistarar
Arsenal
byrja vel
ARSENAL hóf titilvörnina í ensku úrvalsdeildinni af miklu öryggi
þegar liðið lagði nýliða Birmingham City 2:0 á Highbury í Lundúnum
á sunnudag. Þá unnu Liverpool og Manchester United andstæðinga
sína 1:0 og Terry Venables fékk óskabyrjun með Leeds sem sigraði
Manchester City 3:0.
Lárus Orri lék allan leikinn og varmjög fastur fyrir í vörninni.
Segja má að varnarmenn WBA hafi
tekið upp þráðinn
frá því á síðustu leik-
tíð en eftir leiktíðina
í vor kom í ljós að
WBA fékk á sig fæst
mörk allra liða í deildunum fjórum á
Englandi og þar spilaði Lárus Orri
stórt hlutverk.
Alex Ferguson, knattspyrnustjóri
Manchester United, hrósaði liði
WBA í hásterkt eftir leikinn. Hann
sagði að erfitt hefði verið að brjóta á
bak aftur sterka vörn nýliðanna og
með sama áframhaldi yrði erfitt fyr-
ir önnur lið að sækja sigur gegn
þeim.
„Ég var heilt yfir mjög sáttur við
minn leik en það var svekkjandi að
ná ekki stigi. Ég er alveg öruggur á
því að jafntefli hefði orðið niðurstað-
an ef við hefðum ekki misst mann út
af 25 mínútum fyrir leikslok,“ sagði
Lárus Orri við Morgunblaðið en
hann var að leika í ensku úrvals-
deildinni í fyrsta sinn.
„Þó svo að knattspyrnustjórinn
Gary Megson hafi ekki verið ánægð-
ur í leikslok þá held ég að lið okkar
hafi komist mjög vel frá leiknum
þrátt fyrir tapið. Megson fannst við
ekki halda boltanum nægilega vel
innan liðsins og honum fannst vanta
meiri grimmd í liðið. Þá sagði hann
við okkur strax eftir leikinn að mun-
urinn á úrvalsdeildinni og þeirri
fyrstu væri kannski ekki eins mikill
og margir héldu. Við gerum okkur
alveg grein fyrir því að tímabilið
verður erfitt fyrir okkur en það kem-
ur ekkert lið til með að fá auðveld
stig frá WBA.“
Var ekki svolítið sérstakt að hefja
ferilinn í ensku úrvalsdeildinni á
móti stjörnum prýddu liði Man-
chester United á Old Trafford?
„Það er ekki hægt að segja annað
en að þetta hafi verið alvöru byrjun
því það eru allt stórstjörnur í Unit-
ed-liðinu.Völlurinn og umgjörðin á
Old Trafford eru engu lík og að sjálf-
sögðu var gaman að taka þátt í leikn-
um sem mikið var búið að tala um.
Maður finnur fyrir því að leikmenn í
þessari deild eru mun sneggri en
þeir í neðri deildunum, ekki bara á
fæti heldur líka í hugsun. Þú þarft að
vera með 100% einbeitingu á móti
svona körlum og fyrir hver mistök
sem maður gerir er hættara við að
þeir refsi þér.“
Lárus Orri lék í stöðu miðvarðar í
þriggja manna varnarlínu nýliða
WBA sem var að leika í efstu deild
ensku knattspyrnunnar í fyrsta sinn
í 17 ár.
Hef haldið með Arsenal
„Ég var svona mest í baráttunni
við Giggs og Keane og mér gekk
bara nokkuð vel á móti þeim. United
lék með einn mann í fremstu víglínu
en það var ekki fyrr en Solskjær
kom inn á að Ferguson setti tvo
framherja í liðið og því miður náði
þessi ótrúlegi Norðmaður að skora
markið sem réði úrslitum.“
Lárus Orri segir að frá því að
hann var smástrákur hafi hann hald-
ið með liði Arsenal. „Það hefði verið
gott að taka stig frá keppinautum
Arsenal en ég reikna eins og flestir
með að slagurinn um titilinn komi til
með að standa á milli Arsenal, Man-
chester United og Liverpool. Ég á
ekki von á því að við blöndum okkur í
þennan pakka en kannski á næsta
ári. Okkar markmið eru skýr. Við
ætlum að halda okkur uppi og til
þess að svo eigi að takast verðum við
að berjast með kjafti og klóm í
hverjum leik.“
Lárus Orri verður í eldlínunni
með íslenska landsliðinu á Laugar-
dalsvellinum annað kvöld þegar Ís-
lendingar mæta Andorramönnum og
á laugardaginn er fyrsti heimaleikur
WBA í úrvalsdeildinni þegar liðið
fær Leeds í heimsókn. Þriðjudaginn
27. ágúst er svo komið að leik sem
Lárus Orri getur vart beðið eftir en
þá sækja nýliðarnir heim meistarana
og liðið sem Lárus hefur haft miklar
taugar til, Arsenal á Highbury.
Eldskírn Lárusar
Orra á Old Trafford
LÁRUS Orri Sigurðsson fær undantekningalaust góða dóma fyrir
frammistöðu sína með WBA í 1:0 tapi liðsins á móti Manchester
United á Old Trafford um helgina. Hann var til að mynda valinn mað-
ur leiksins hjá Sunday People og í Sunday Mirror fær Lárus Orri 8 í
einkunn og hjá The Times fékk hann næsthæstu einkunn leikmanna
WBA, 7. Nýliðarnir veittu stórliðinu frá Manchester mikla keppni en
það var ekki fyrr en 12 mínútum fyrir leikslok sem bjargvætturinn
Ole Gunnar Solskjær skoraði sigurmarkið og um leið sitt 100. mark
fyrir félagið.
Guðmundur
Hilmarsson
skrifar
Fyrstur til að sjá rautt
VARNARMAÐURINN Paul Konchesky kom heldur betur við sögu
hjá liði sínu Charlton á laugardag þegar það tók á móti Eiði Smára
Guðjohnsen og samherjum á heimavelli. Hann skoraði fyrsta mark
liðsins í tapi þess, 3:2, á 7. mínútu. Átján mínútum síðar var hann
svo rekinn af leikvelli, fyrstur manna á þessari leiktíð í ensku úr-
valsdeildinni.