Morgunblaðið - 20.08.2002, Síða 9

Morgunblaðið - 20.08.2002, Síða 9
KNATTSPYRNA MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. ÁGÚST 2002 B 9 H# #!  "  %      !  7        .  3  '      #"              D 2 F    !  2 $ %   #!  !     (9 :;<B<B  /* 2   )$!    *  "  @ ( *!   ,  D"  7    ) *3 @    @  * ! *    ) *1   7   = )!1 9 1 ))  >.;  $ ,7 8   );+,,+ $!5! -      )+  8#   ):;)9 2  ( . $     #!/ C     %  %  D *! )     9 @ 7! < < < .. .; - A (9 :;<B<B /!/!  J      4 )  +*  @4 9#3! 2 G / , )G  4  "#     1D! D 2 F     ED   B &'   4C5/)7  *9 7): @ !9 7): .:&5+07 .:.5/67 ; ; A C 1  GRINDVÍKINGARNIR Ólafur Örn Bjarnason og Sinisa Kekic fengu fyrir leikinn við FH á sunnu- daginn afhent gullúr fyrir hundrað meistaraflokksleiki fyrir félagið.  PAUL McShane varð að horfa úr stúkunni á félaga sína í Grindavík berjast við FH því hann tók út leik- bann.  VIGNIR Helgason og Ray Jóns- son voru heldur ekki með því meiðsli hrjá þá.  MICHAEL Jónsson lék sinn fyrsta leik fyrir Grindavík í Síma- deildinni á sunnudaginn. Hann er bróðir Rays, varnarmanns Grind- víkinga.  ÞRÍR FH-ingar þurftu að fylgjast með félögum sínum úr stúkunni í Grindavík því Hilmar Björnsson, Magnús Einarsson og Baldur Bett tóku allir út leikbann.  ÁRMANN Ævarsson lék sinn fyrsta deildarleik með meistara- flokki Þórs á móti Fram en hann spilar með 2. flokki og hefur einu sinni komið inn á í sumar, í bik- arleik á móti Tindastóli. FÓLK Lið KA hefur komið skemmtilegaá óvart á leiktíðinni og er ekki að sjá að þar fari lið sem kom upp úr 1. deild á sl. leiktíð. Þrjá fastaleikmenn vantaði í liðið að þessu sinni, Kristján Sigurðsson og Neil McGowan sem tóku út leikbann og Ásgeir Ásgeirsson, sem er meiddur. Skemmst er frá því að segja að þeir leikmenn sem leystu þá af hólmi skiluðu hlutverkum sínum með sóma og ber þar helst að nefna Róbert Skarphéðinsson, sem var af- ar duglegur og útsjónarsamur á miðsvæðinu. Dean Martin var fremstur á miðjunni að þessu sinni með Róbert og Þorvald Makan fyrir aftan sig. Má segja að lið KA-manna hafi leikið 4-2-4 á löngum köflum í leiknum og blásið var til sóknar, þrátt fyrir að í upphafi hafi liðið stillt upp með 4-3-3. Skagamenn áttu hinsvegar fyrstu færi leiksins og Kári Steinn Reyn- isson þrumaði framhjá á 11. mínútu eftir lipurt samspil Skagamanna. Þrátt fyrir að augljóst væri að KA- menn væru aðeins með tvo leik- menn á miðjunni áttu heimamenn erfitt með að ná að brjótast í gegn- um vörn KA. Af og til sýndu leik- menn ÍA góða spretti en oftar en ekki mistókst sendingin sem gat splundrað vörn gestana. Fjórir leikmenn KA fengu nánast að fljóta í þær stöður sem voru laus- ar í það skiptið í framlínu liðsins og hafa fáir knattspyrnumenn hlaupið eins mikið á Akranesvelli og Dean Martin gerði á laugardag. Hann var ávallt að og síógnandi. Lítið markvert gerðist fyrstu 20. mínútur leiksins en Hjálmur Dór Hjálmsson tók innkast á 22. mínútu og boltinn fór augljóslega í hönd Steins Viðars Gunnarssonar sem stökk upp og ætlaði að skalla knött- inn. Hjörtur Hjartarson skoraði örugglega úr vítaspyrnunni. KA menn voru mun meira með boltann það sem eftir lifði leiksins en beittu mikið af sendingum þvert á völlinn eða frá miðsvæðinu og til varnarmanna sinna. Leikmenn ÍA höfðu því nægan tíma til þess að skipuleggja varnarleik sinn. Er hálftími var liðinn af leiknum skallaði Dean Martin að marki Skagamanna, Gunnlaugur Jónsson þrumaði í samherja og mátti Ólafur Þór hafa sig allan við að bjarga marki. Elmar Dan Sigþórsson jafnaði síðan metin fyrir KA á lokasekúnd- um fyrri hálfleiks. Síðari hálfleikur hófst af krafti. Elmar Dan kannaði getu Ólafs í markinu á 50. mínútu og stóðst Ólaf- ur prófið, en hann var án vafa besti leikmaður liðsins að þessu sinni. Dean Martin komst einn í gegn á 56. mínútu en Ólafur varði. Knötturinn barst til Elmars Dans sem fékk frítt skot en það var varið á marklínu af Gunnlaugi. Hreinn fékk einn mögu- leika til viðbótar í þessari hrinu norðanmanna, en var of seinn að at- hafna sig í vítateignum. Ólafur Þórðarson gerði tvær breytingar í kjölfarið. Baldur Að- alsteinsson fór í stöðu hægri bak- varðar og Hálfdán Gíslason fór í fremstu víglínu. Bæði lið fengu ágæt tækifæri það sem eftir lifði leiks. Hálfdán fékk færi og Hjörtur Hjartarson einnig og má segja að skalli hans framhjá marki KA-manna frá markteigs- horni lýsi vel því lánleysi sem virðist ríkja hjá Hirti. Jóhann Helgason átti síðasta færi leiksins er hann þrumaði knettinum í þverslá Skagamanna af löngu færi og þar við sat. Baldur Aðalsteinsson átti ágæta innkomu í lið ÍA. Hann talaði enn og aftur um einbeitingarleysi fyrir framan markið, en sú tugga hefur heyrst áður hjá Skagamönnum í sumar. „Miðað við leik okkar í dag þá áttum við ekkert meira skilið en eitt stig úr þessum leik. Bæði lið gátu skorað fleiri mörk og við vor- um heppnir að fá ekki á okkur mark undir lok leiksins. Það telur lítið að fá aðeins eitt stig og við erum því enn að berjast við falldrauginn“ sagði Baldur. Þorvaldur Örlygsson þjálfari KA var ánægður með leik sinna manna og þá sérstaklega í fyrri hálfleik. „Við náðum að halda knettinum í okkar liði og allt liðið var samstíga í því. Ég tel að þetta sé einn erfiðasti útivöllurinn á landinu og get því ekki slegið hendinni á móti einu stigi. Samt sem áður gátum við al- veg fengið fleiri stig og fengum ara- grúa færa sem ekki nýttust,“ sagði Þorvaldur sem lék ekki með að þessu sinni vegna meiðsla. Ágæt tilþrif á Skipaskaga ÞAÐ var ágæt knattspyrna sem leikinn var á Akranesi á laugardaginn er Íslandsmeistararnir tóku á móti KA í 14. umferð Símadeildar karla. Bæði lið reyndu eftir fremsta megni að sækja og skora mörk í stað þess að leggja áherslu á varnarleikinn en liðunum tókst þó aðeins að skora eitt mark hvoru um sig í leiknum, í fyrri hálfleik. KA er því í 4. sæti með 20 stig og siglir nokkuð lygnan sjó hvað varðar falldrauginn sem Skagamenn eiga enn eftir að hrista af sér í lokumferðunum fjór- um. Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar Við áttum sigurinn líklega inni því ísumar höfum við þrisvar tapað leik á síðustu mínútum,“ sagði Ólafur Örn Bjarnason, fyr- irliði Grindvíkinga, eftir leikinn. „Ég hefði verið sár með jafntefli því við feng- um mikið af góðum færum, sérstak- lega í fyrri hálfleik, en samt var ekki eins og við værum að vinna þennan leik fyrr en í lokin. Að mínu áttum við meira af færum þó að FH-ingar hafi verið sterkari enda auðveldara að spila á móti vindi. Við ætluðum að pressa á þá móti vindi en völlurinn er harður og erfitt að eiga við hann svo það var erfitt að spila mikið. Síðan er- um við einu marki yfir eftir hlé og þá verjast menn oft frekar en að sækja. Við erum ekkert mjög ánægðir með þennan leik og getum spilað betur en það er gott að vita að við getum unnið leik þó við séum ekki að spila vel. Við höfum breytt liðinu nokkuð, til dæmis er Kekic kominn í vörnina og við það fer tækni aftur í vörnina svo að menn verða að sækja öðruvísi, geta ekki leikið í gegn eins og áður. Menn eru frískir frammi og eiga að pressa mikið en það gekk ekki, sér- staklega ekki með vindinn í bakið eft- ir hlé,“ bætti fyrirliðinn við og er far- inn að svipast um eftir Evrópusæti. „Við vorum heppnari í dag en þó ekki því við brenndum af svo miklu af fær- um. Við fengum þó þrjú stig og erum nær baráttunni á toppnum. Eins og staðan er orðin er stefnan sett á Evr- ópusæti og það gæti gengið eftir með þriðja sætinu. Við getum ekki sett stefnuna hærra ef við ætlum ekki að spila betur en við gerðum í dag.“ Erum enn í fallbaráttu „Það var sárt að tapa þessu því við spiluðum ágætlega í seinni hálfleik eftir slappan fyrri hálfleik en vorum sjálfum okkur verstir í þessum leik,“ sagði Heimir Guðjónsson, sem átti mjög góðan leik fyrir FH á sunnu- daginn. „Við lögðum upp með að sækja upp vængina og gefa síðan með fyrir. Þeir eru veikir í því og boltinn var að detta inn í teiginn en þar vorum við ekki nógu grimmir. Við byrjuðum vel fyrstu tuttugu mín- úturnar, stjórnuðum leiknum og komum boltanum inn í vítateiginn en það vantaði grimmdina. Svo fáum við á okkur klaufalegt mark í annað skiptið í sumar og misstum við það dampinn og Grindvíkingar hefðu get- að bætt við fleiri mörkum. Við kom- um samt sterkir eftir hlé, jöfnum fljótlega og fengum ágætis færi en því miður vorum við sjálfum okkur verstir eins og hefur gerst nokkrum sinnum í sumar og á meðan það á sér stað fáum við ekki fleiri stig. Verst var að Grindvíkingar gerðu ekki út um leikinn, heldur sáum við sjálfir um það.“ Þrátt fyrir tapið er FH um miðja deild en það eru fá stig í neðstu liðin. „Við erum því í fallbaráttunni ennþá og verðum að rífa okkur upp úr henni. Það eru fjórir leikir eftir og við verðum að standa okkur í þeim því ég tel að við þurfum tuttugu stig að vera öruggir í deildinni,“ bætti Heimir við. Stefnum á Evrópusæti Stefán Stefánsson skrifar bert móti átta vikið Stef- kotið útlit svo afn- . t og voru c. Á sson sér istir tinn. æða i þó otur enda ema inni. örn- unni, mart -

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.