Morgunblaðið - 21.08.2002, Page 4

Morgunblaðið - 21.08.2002, Page 4
FRÉTTIR 4 MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ Á MILLI sextán og sautján þús- und ungmenni hefja nám í fram- haldsskólum landsins í þessari viku. Þar af eru um fjögur þús- und nýnemar, að sögn Karls Kristjánssonar, deildarstjóra í framhaldsskóladeild mennta- málaráðuneytisins. Samtals eru tæplega 30 framhaldsskólar á landinu. Flestir hefja skólarnir starf í þessari viku, en Mennta- skólinn á Akureyri byrjar um miðjan september. Það þýðir að hann verður með kennslu lengra fram á vorið en aðrir framhalds- skólar. Á skiptibókamörkuðunum var víða margt um manninn í gær. Í Pennanum-Eymundssyni í Austur- stræti var Ágústa Ósk Óskars- dóttir að kaupa skólabækurnar með aðstoð bróður síns, Sigurðar Þórs Óskarssonar. Ágústa Ósk stefnir á að klára stúdentinn úr FB nú í vetur en Sigurður Þór er að fara í 9. bekk. Ágústa Ósk er á heilbrigðis- sviði og sagðist sjá fram á að eyða um 20 þúsund krónum í skólabækur, jafnvel þótt hún væri aðeins í fjórum fögum. „Það verð- ur ágætt að takast á við námið aftur. Mig langar í Kennaraskól- ann að því loknu en ég er að vinna á sambýli fyrir fatlaða núna og líkar það mjög vel, svo það er aldrei að vita nema ég fari í þroskaþjálfarann,“ sagði hún. Sigurður Þór sagðist enn óviss hvaða skóli yrði fyrir valinu eftir tvö ár. „Mig langar í skóla með pínu leiklist, kannski MH eða Versló,“ benti hann á. 25–30 þúsund krónur í bókakostnað Salka Guðmundsdóttir, starfs- maður Pennans-Eymundssonar, taldi að mest yrði að gera um næstu helgi en hún sagðist sjá aukningu dag frá degi. „Það er örlítil hækkun á einhverjum bók- um en við vinnum að mestu leyti eftir sama verðlista. Ef krökkum tekst að vera sniðugir og kaupa mikið notað fer þetta samt upp í 25–30 þúsund,“ lagði hún áherslu á. Ragnhildur Thorlacius, starfs- maður Máls og menningar á Laugavegi, sagði að byrjað hefði verið að taka við bókum á mánu- daginn fyrir viku og sala hafist um svipað leyti. „Fólk byrjaði að kaupa af krafti á mánudag og það verður örugglega mikið að gera út þessa viku. Ég hef verið hér í tvö ár og þetta er aðeins jafnara núna,“ bætti hún við. Að sögn Ragnhildar er ein- göngu tekið við mjög vel með förnum bókum og benti hún á að nemendur fengju um 40% til baka af verði nýrra bóka. Hún sagði flesta reyna að kaupa notaðar bækur þótt einn og einn keypti eingöngu nýjar. Ásta Sigríður Fjeldsted, ný- stúdent úr MR, var að reyna að koma hluta skólabóka síðasta vetrar í verð. Hún sagðist hafa verið dugleg að nýta sér skipti- bókamarkaðina þegar hún var í menntaskóla. „Ég ætla að kaupa nýjar bækur nú í haust þegar ég byrja í verkfræði því ég er búin að vera svo dugleg að fara á skiptibókamarkaði í gegnum ár- in,“ undirstrikaði Ásta Sigríður. Hún benti á að hún ætlaði að halda eftir stærðfræði- og eðlis- fræðibókunum úr menntaskóla. Guðbjörg Hlín Guðmundsdóttir, nemandi á myndlistarbraut í FB, sagði að bókakaupin væru ekki gerð í einni ferð. Hún sagðist vera með nokkrar bækur sem hún ætlaði að koma í verð en var ekki viss hvað yrði úr. „Stundum er ekki tekið við einhverjum bók- unum og maður þarf að fara ann- að,“ benti hún á. Hún sagðist greiða efnisgjald fyrir myndlist- arvörurnar en hún þyrfti að út- vega sér blýanta og strokleður sjálf. Í Griffli í Skeifunni var fullt út úr dyrum og þar voru félagarnir Geir Herbert Geirsson og Krist- inn Guðmundsson að rýna í bóka- lista. Geir Herbert er að hefja nám í Kvennaskólanum en Krist- inn í MR. Báðir höfðu þeir sótt bókalistana á Netið. „Þetta leggst ágætlega í mig, gaman að fara í nýjan skóla,“ sagði Kristinn og Geir Herbert tók í sama streng. Hann sagðist þegar hafa eytt um 50 þúsund krónum í bókakaup en hefði þó ekki keypt allt. „Það fer eftir bókum hvort maður kaupir þær nýjar eða gamlar. Ég vil til dæmis hafa stærðfræðibækurnar nýjar,“ bætti hann við. Þarf að vakna snemma til að ferðast til Reykjavíkur Eyjólfur Gíslason og Ellen Agatha Jónsdóttir voru einnig í Griffli. Eyjólfur er að hefja nám í Verslunarskólanum í haust en Ellen Agatha á enn ár eftir í grunnskóla. Bæði eru þau úr Keflavík. „Skólinn byrjar næsta mánudag. Jú, ég er svolítið spenntur, þetta er heilmikil breyting. Mér líst nokkuð vel á það sem ég er að fara að læra,“ sagði Eyjólfur og hafði litlar áhyggjur af því að þurfa að vakna snemma til að ferðast til Reykjavíkur á hverjum morgni í vetur. „Það er svolítið langt að sækja skólann en pabbi vinnur í bænum þannig að ég fæ far með honum,“ benti hann á og taldi að hann þyrfti að nota að minnsta kosti 50 þúsund krónur í skóla- bækur. Lára Ómarsdóttir, starfsmaður í Griffli, hafði í nógu að snúast í öllum hamaganginum. „Þetta hef- ur verið að stigmagnast og það varð sprenging í vikubyrjun,“ sagði hún. Hún sagðist telja að foreldrar bæru margir kostnað- inn af bókakaupunum. „Ætli meðalnemandi sem kaupir blöndu af notuðu og nýju eyði ekki um 20–30 þúsund krónum. Sumir fá inneignarnótu upp á allt að 20 þúsund krónum. Það er verið að koma með gamlar bækur frá systkinunum og meira að segja mömmu og pabba,“ lagði hún áherslu á. Eyjólfur Sverrisson sagðist þurfa að vakna snemma til að ferðast frá Keflavík en hann var í Griffli ásamt Ellen Agöthu Jónsdóttur. Ágústa Ósk Óskarsdóttir fékk liðtæka hjálp við bókakaupin frá bróður sínum Sigurði Þór Óskarssyni, sem stefnir á framhaldsskóla eftir tvö ár. Morgunblaðið/Þorkell Ragnhildur Thorlacius tók við bókum af Ástu Sigríði Fjeldsted. Kraftur kom í söluna á mánudag og búist er við að annir verði út vikuna. Framhaldsskólar að hefja starfsemi Um 17 þúsund nemendur á skólabekk STARFSHÓPUR um samgöngur til Vest- mannaeyja leggur til í fyrri áfangaskýrslu af tveimur að ferðum í vetraráætlun Herjólfs verði fjölgað og að ráðist verði í nauðsyn- legar endurbætur á Bakkaflugvelli. Áætlaður kostnaður vegna þessara tillagna starfshóps- ins er talinn vera um 190 milljónir króna, þar af um 160 milljónir vegna Bakkaflug- vallar. Þá leggur starfshópurinn til að ef óvissa eykst um framtíð áætlunarflugs milli Reykjavíkur og Eyja verði kannað rækilega hvort útboð á flugleiðinni verði hagkvæmt. Kostnaður vegna þessa er ekki metinn. Starfshópurinn var skipaður af Sturlu Böðvarssyni samgönguráðherra í maí sl. og honum ætlað að fjalla um samgöngur til Vestmannaeyja „með þarfir fólks og atvinnu- lífs í huga“, eins og það var orðað í skip- unarbréfi. Í hópinn voru skipaðir fulltrúar Eyjamanna, Siglingastofnunar, Vegagerðar- innar og Flugmálastjórnar. Formaður er Kristján Vigfússon frá Siglingastofnun. Fleiri sigla með Herjólfi Starfshópurinn ákvað að skipta tillögum sínum í tvennt og birta tvær skýrslur, ann- ars vegar þá skýrslu sem nú er komin og hins vegar skýrslu um framtíðarsýn sam- gangna til og frá Eyjum, sem skila á fyrir lok þessa árs. Í áfangaskýrslunni nú kemur m.a. fram að flutningar með Herjólfi hafi aukist verulega á undanförnum árum. Árin 1997 til 2001 fóru um 80–103 þúsund farþegar árlega með ferj- unni, 20–25 þúsund fólksbílar, tjaldvagnar og fellihýsi og um 3 þúsund flutningabílar ár- lega. Til að mæta aukinni eftirspurn leggur starfshópurinn til þær úrbætur að ferðum verði fjöldað í þeirri vetraráætlun Herjólfs sem tekur gildi í september nk. og gildir til loka apríl 2003. Fyrstu skref verði tekin með fjölgun ferða á fimmtudögum og mánudögum í september, október og nóvember og síðan aftur í mars og apríl. Næstu skref verði fólg- in í fjölgun ferða skipsins á sunnudögum í sömu mánuðum. Starfshópurinn miðar við að sumaráætlun Herjólfs, sem nú er í gangi, verði í það minnsta óbreytt næsta sumar en taki gildi frá 1. maí 2003. Að mati starfshópsins er áætlaður kostn- aður vegna fjölgunar ferða Herjólfs talinn 22–23 milljónir króna á ársgrundvelli í fyrsta áfanga en hækkar í rúmar 30 milljónir þegar næsta áfanga hefur verið bætt við. Athugasemdir hafa verið gerðar við aðstöðuna á Bakkaflugvelli Í áfangaskýrslunni kemur fram að Bakka- flugvöllur í Landeyjum sé orðinn fimmti um- ferðarmesti flugvöllur landsins í farþegum talið. Flugfélag Vestmannaeyja hefur stund- að þar flug milli lands og Eyja um nokkurra ára skeið. Á síðasta ári fóru um 20 þúsund farþegar um völlinn og fyrstu sex mánuði þessa árs varð 20% fjölgun á farþegum mið- að við sama tíma í fyrra. Aðstöðuleysi er talið helsta vandamálið á Bakkaflugvelli og hafa Vinnueftirlit ríkisins og Heilbrigðiseftirlit Suðurlands gert at- hugasemdir við vinnuaðstöðu flugumferðar- stjóra og aðstöðu flugfarþega, að því er fram kemur í skýrslunni. Starfshópurinn leggur til að ráðist verði í nauðsynlegar endurbætur á Bakkaflugvelli sem allra fyrst. Forgangs- verkefni verði bygging nýrrar flugstöðvar ásamt tilheyrandi kostnaði við aukið starfs- mannahald. Áætlaður framkvæmdakostnaður vegna þessa er 35 milljónir vegna nýrrar flug- stöðvar en aukinn rekstrarkostnaður gæti orðið um 5 milljónir á ári. Ef allt er talið, m.a. vegagerð að flugvellinum, gæti heild- arkostnaður orðið um 160 milljónir. Flugsamgöngur til Reykjavíkur sagðar í verulegri kreppu Farþegum í áætlunarflugi milli Eyja og Reykjavíkur hefur fækkað verulega undan- farin ár og hefur sú þróun haldið áfram á þessu ári. Farþegum sem fóru um Vest- mannaeyjaflugvöll fækkaði um 32% á síðasta ári. Þá fóru 57 þúsund farþegar um völlinn en mestur var fjöldinn árið 1999, þegar hann fór í 89 þúsund manns. Fram kemur í skýrslunni að Eyjamenn telji flugsamgöngur við höfuðborgina vera í verulegri kreppu. Færri nýti sér þjónustuna og inn í það spili hátt verð flugfargjalda hjá Íslandsflugi. Að mati starfshópsins eru far- gjöldin orðin mjög há í samanburði við önnur flugfargjöld innanlands og síðan segir í skýrslunni: „Má segja að flugið hafi verðlagt sig að verulegu leyti út af markaðnum fyrir allan almenning.“ Starfshópur sem ráðherra skipaði um samgöngur til Vestmannaeyja skilar áfangaskýrslu Herjólfur sigli oft- ar og Bakkaflug- völlur verði bættur Útboð á flugleiðinni Vestmannaeyjar-Reykjavík verði kannað ef óvissa eykst um áætlunarflugið

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.