Morgunblaðið - 21.08.2002, Blaðsíða 19
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚST 2002 19
ORMSTEITI 2002 á Fljótsdals-
héraði er nú haldið í tíunda sinn.
Þetta er hartnær tveggja vikna
hátíð sem er í senn héraðs- og
uppskeruhátíð. Að Ormsteiti
standa sveitarfélögin á Fljótsdals-
héraði, fyrirtæki og stofnanir á
svæðinu og fjölmargir einstakling-
ar, sem leggja hönd að fram-
kvæmd hátíðarinnar. Lára Vil-
bergsdóttir listhönnuður er
framkvæmdastjóri og aðalskipu-
leggjandi Ormsteitis 2002.
Í forgrunni Ormsteitisins var
starfrækt opin listasmiðja undir
stjórn bandarísku fjöllistakonunn-
ar Holly Huges. Í smiðjunni var
Lagarfljótsormurinn endurskapað-
ur og fór fyrir sérstakri Orms-
göngu úr miðbæ Egilsstaða yfir í
Egilsstaðavík á sunnudagseftir-
miðdag. Þar var í víkinni kveikt
bál og gerdeigsormar bakaðir yfir
hægum eldi. Til meðlætis var
græn glassúrídýfa og sérstakur
ormadjús.
Íbúaþing á Austur-Héraði var
hluti af dagskrá Ormsteitis á mið-
vikudagskvöld, en hin eiginlega
hátíð hófst formlega sl. föstudag.
Lára segir mikla úrkomu hafa sett
svip sinn á opnunarhátíðina, en á
henni var bæjarstjóri Austur-Hér-
aðs sl. 4 ár, Björn Hafþór Guð-
mundsson, kvaddur með virktum,
ef ekki regnvotum tárum, og þakk-
að farsælt starf í þágu bæjar-
félagsins. Hann flytur sig nú um
set í bæjarstjórastöðu á Djúpa-
vogi. Lára segir að um kvöldið hafi
verið boðið upp á síðsumarsiglingu
með farþegaskipinu Lagarfljót-
sorminum og rómantíska tónleika í
Atlavík sem kölluðust Hríslan og
lækurinn. Þar voru ástarvísur Páls
Ólafssonar fluttar af Þórarni
Hjartarsyni.
Tónleikana sóttu um 100 manns
og eftir þá upphófst fjöldasöngur
við varðeld í blíðu veðri.
Möðrudalsættin
málar Herðubreið
Hver dagur er tileinkaður sér-
stöku svæði og laugardagur var
tileinkaður Norður-Héraði. Var
m.a. opið hús í dýragarði og hand-
verkshúsi í Klausturseli á Jökuldal
og gestum boðið í opnun viðbygg-
ingar við Sænautasel á Jökuldals-
heiði. Þá upphófst það sem kall-
aðist Möðrudalsgleði og
Stórvalsstemmning. „Þar mættu
allir listamenn Möðrudælinga,“
segir Lára, „ungir sem aldnir, með
olíu- og vatnsliti í farteskinu og
máluðu Herðubreið af kappi.
Verkin voru hengd upp í Fjalla-
kaffi í Möðrudal. Svo var grillað og
spilað á harmonikku og dansað á
pallinum. Þetta verður endurtekið
að ári með enn meiri bravúr.
Þarna voru grilluð 50 kg af lamba-
kjöti og um 100 manns settust að
snæðingi. Það sáust ótvíræðir
Stórvalstaktar í myndlistinni og
þetta var allt saman ansi hreint
skemmtilegt.“
Um helgina var stórt knatt-
spyrnumót á Vilhjálmsvelli, dans-
leikur með Sálinni í Valaskjálf,
fjölbreytt dagskrá á Hallormsstað
og fyrsta Íslandsmeistaramótið í
skógarhöggi, svo eitthvað sé nefnt.
Fegurðarsamkeppni gæludýra var
á mánudag haldin í þriðja sinn við
mikinn fögnuð yngri kynslóðarinn-
ar einkanlega og þriðjudagur var
tileinkaður Fellahreppi.
Það væri að æra óstöðugan að
telja upp alla þá dagskrárliði Orm-
steitis sem menn geta tekið þátt í.
Þó skal sérstaklega nefnt að í dag
er nýbúadagur og er þá öllum
þeim sem hafa búið skemur en eitt
ár á Austur-Héraði boðið í kynn-
isferð um Egilsstaði og að henni
lokinni í formlegt kaffiboð, þar
sem nýr bæjarstjóri og fjölskylda
hans verða meðal gesta, enda
nýbúar samkvæmt skilgreining-
unni.
Útimarkaður verður í Egils-
staðabæ frá miðvikudegi og fram á
helgina og á föstudag verða haldn-
ar hverfahátíðir víðs vegar um bæ-
inn, sem enda með allsherjar
íþróttamóti milli hverfanna á
„Villa-Park“. Á laugardag er svo
herleg bæjarhátíð á Egilsstöðum,
þar sem markaðir, tívolí, skraut-
sýningar, tónlist og gamanmál
krauma allan liðlangan daginn og
menn geta undir kvöldið snætt
heilgrillað hreindýr í miðbænum.
Ormsteiti endar á sunnudag með
fjölbreyttri dagskrá í Fljótsdal.
Sjá nánar um Ormsteiti á vefslóð-
inni www.egilsstadir.is.
Tíunda Ormsteitið teygir anga sína um allt Fljótsdalshérað
Ormadjús og heilgrillað hreindýr
Egilsstaðir
Morgunblaðið/Steinunn Ármannsdóttir
Héraðs- og uppskeruhátíðin Ormsteiti er nú haldin í tíunda sinn á
Fljótsdalshéraði. Svo dögum skiptir verður mikið um dýrðir og ýmislegt
óvenjulegt stendur fólki til boða. Heldur var þungt í lofti á opnunarhá-
tíðinni sl. föstudag, en þó hýrt yfir mannskapnum.
UM HELGINA hefur einhver átt í
erfiðleikum með sjálfan sig og látið
það bitna á Námafjalli. Þannig hef-
ur sá böðlast um mjúkar leirhlíðar
fjallsins á bíl sínum og skilið eftir
ljótar slóðir sem ekki hverfa nema á
mörgum árum sé ekkert að gert.
Þetta sáu árvökulir landverðir
Náttúruverndar eins og aðrir og
rökuðu á mánudag yfir sárin í fjalls-
hlíðinni. Fyrir þá sem borga fyrir
að skoða og njóta íslenskrar nátt-
úru er það mikilvægt að þvílíkur
sóðaskapur sjáist ekki, því slíkt er
vörusvik.
Aðspurðar sögðu þær landverðir
Elva og Hildur að þessu líkt sjái þær
sjaldan hér í sveit, sem betur fer.
Morgunblaðið/BFH
Subbulegur
akstur
Mývatnssveit
Á ARNARSTAPA hafa verið miklar
framkvæmdir við höfnina í sumar.
Grjótgarðurinn var lengdur um 35
metra og eldri hluti hans lagaður til.
Er þeirri framkvæmd að mestu lok-
ið, aðeins á eftir að ganga frá þar
sem garðurinn kemur að Hafnarhús-
inu. Á næstunni verður lokið við að
steypa þekjuna en hún mun breikka
nokkuð.
Samhliða þessum breytingum á
garðinum hefur verið unnið að dýpk-
un hafnarinnar, en höfnin þótti mis-
djúp eða allt frá nokkrum tugum
sentimetra niður á u.þ.b. tvo metra.
Eftir dýpkun verður dýpið í innsigl-
ingunni orðið 2,5 metrar og höfnin
sjálf orðin tveggja metra djúp. Til að
þetta gæti orðið varð að fjarlægja á
milli 4.500 og 5.000 rúmmetra af efni
upp úr höfninni og er það bæði sand-
ur og eins klappir sem sprengja
þurfti úr botninum.
Eins og gefur að skilja hefur ekki
verið hægt að hafa báta í höfninni
meðan á framkvæmdunum hefur
staðið og hafa þeir dreifst á hafn-
irnar í Rifi og í Ólafsvík auk þess
sem bátar af Skaganum hafa farið á
Akranes.
Þessa dagana er verið að hefja
framkvæmdir við að minnka brekk-
una niður að höfninni, stórvirkar vél-
ar munu vinna við að rífa niður
klöppina og að því loknu verður lagt
bundið slitlag á veginn. Ekki er
nokkur vafi á að aðkoman að hafn-
arsvæðinu verður mun meira aðlað-
andi eftir breytingu en verið hefur.
Björn Arnaldsson, hafnarstjóri
Snæfellsbæjar, sagði að vonir stæðu
til að hægt yrði að klára þessar fram-
kvæmdir allar fyrir 1. september.
Stapahöfn stækkar
Morgunblaðið/Alfons Finnsson
Ólafsvík
UNNIÐ er nú af fullum krafti við
skólalóð Grunnskólans í Borg-
arnesi. Framkvæmdir hófust um
mitt sumar og á þeim að vera lok-
ið þegar skóli hefst 27. ágúst. Það
er HH vélaleiga sem sér um verk-
ið en búið er að helluleggja bæði
með stein- og gúmmíhellum, verið
að setja upp ný leiktæki og körfur
og auk þess að malbika. Kristján
Gíslason skólastjóri segir þetta
bæta úr brýnni þörf, því síðasta
vetur hafi nánast ekki verið nein
aðstaða fyrir nemendur til útivist-
ar. Þetta sé þó einungis fyrir
yngsta stig og miðstig, en á næsta
ári er ætlunin að útbúa upphit-
aðan gervigrasvöll við skólann. Á
árinu þar á eftir verður svo lokið
við lóðina unglingamegin.
Morgunblaðið/Guðrún Vala
Unnið við skólalóðina
Borgarnes