Morgunblaðið - 21.08.2002, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 21.08.2002, Blaðsíða 41
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚST 2002 41 ÖKUMENN Gerum fimmtudaginn 22. ágúst að slysalausum degi í umferðinni Lögreglustjórinn í Reykjavík Reykjavíkurborg Seltjarnarnesbær Dómkirkjan: Hádegisbænir kl. 12:10. Léttur málsverður á eftir. Prestarnir taka við fyrirbænum í síma 520-9700. Háteigskirkja: Kvöldbænir kl. 18:00. Neskirkja: Bænamessa kl. 18:00. Sr. Örn Bárður Jónsson. Seltjarnarneskirkja: Hádegistíð kl. 12:00. Tíðagjörð þar sem textar Biblíunn- ar eru sungnir og íhugaðir í bæn og lof- gjörð til Drottins. Helstu þættir þessa helgihalds kynntir og æfðir í upphafi stundarinnar, sem tekur u.þ.b. 20 mínút- ur. Verið hjartanlega velkomin. Breiðholtskirkja: Kyrrðarstund í dag kl.12.10. Tónlist, altarisganga, fyrirbænir. Léttur málsverður í safnaðarheimilinu eftir stundina. Seljakirkja: Kyrrðar- og bænastund í dag kl. 18. Beðið fyrir sjúkum. Allir hjartanlega velkomnir. Tekið á móti fyrirbænaefnun í kirkjunni í síma 567 0110. Vídalínskirkja. Foreldramorgnar verða í sumar í safnaðarheimili Kirkjuhvoli kl. 10– 12. Við hittumst og spjöllum. Heitt á könn- unni og djús fyrir börnin. Öll foreldri vel- komin með eða án barnanna. Hafnarfjarðarkirkja. Kyrrðarstund í kirkj- unni kl. 12, íhugun, altarisganga, fyrir- bænir. Léttur hádegisverður kl. 13 í Ljós- broti Strandbergs. Víðistaðakirkja. Foreldramorgnar á fimmtudögum kl. 10–12. Þorlákskirkja. Barna- og foreldramorgnar í dag kl. 10–12. Landakirkja Vestmannaeyjum. Kl. 11.00. Helgistund á Hraunbúðum. Allir velkomnir. Sr. Kristján Björnsson. Kletturinn, kristið samfélag. Kl. 20.30 Bænahópar í heimahúsum. Upplýsingar í síma 565 3987. Kefas. Vatnsendabletti 601: Samveru- stund unga fólksins kl. 20.30. Mikil lof- gjörð og Orð Guðs rætt. Allt ungt fólk vel- komið. Morgunblaðið/Arnaldur Kópavogskirkja. Safnaðarstarf KIRKJUSTARF PRÝÐISVEIÐI er í Þistilfirðinum um þessar mundir, þannig er komið vel á þriðja hundrað laxa á land úr Hafralónsá og hefur verið sérlega líf- leg veiði síðan um verslunarmanna- helgina þegar stór ganga kom í ána. Þá var holl að hætta veiðum í Sval- barðsá með 24 laxa eftir þrjá daga og fimm daga holl í Sandá fyrir skömmu var með á fimmta tug laxa. Líflegt er einnig í Hölkná. Það er sammerkt með Þistilfjarðaránum í sumar að þær eru allar að fara yfir tölur síðasta árs og aflinn byggist að langmestu leyti upp á smálaxi. Lítið er um tveggja ára lax og það rétt sést til fáeinna boltafiska. Hópurinn í Svalbarðsá sem um ræðir sá þó þrjá 20 punda plús og setti veiði- maður í hópnum í einn þeirra í Stóra- fossi. Var með hann lengi vel og var kominn með hann hálfan á land er lín- an hrökk í sundur rétt við kjaft laxins. Tók hann þá mikinn kipp, rétti sig við og þeysti á vit frelsisins á ný. Í Svalbarðsá er allmikill lax, en nær allur í tiltölulega fáum hyljum í ofan- verðri ánni. Svipað er uppi á teningn- um í Sandá, lítið af laxi neðarlega en þeim mun meira ofarlega. Fréttir úr ýmsum áttum Um 140 laxar eru sagðir komnir úr Svartá og þar hefur verið þokkalegur reytingur. Mjög góður veiðitími í ánni er enn eftir þannig að menn eiga allt eins von á góðri lokatölu úr ánni. Um 160 laxar hafa veiðst í Lang- holtinu í Hvítá og ekki ósvipuð tala í Ölfusá við Selfoss. Þetta eru góðar tölur miðað við síðustu sumur og t.d. besta tala í Langholtinu í mörg ár. Þar er mikill lax, m.a. talsvert af nýj- um fiski, að sögn veiðimanna sem renndu þar á sunnudaginn. Enn er sjóbleikjuveiðin róleg í Víði- dalsá, að sögn Ragnars á Bakka. Ný- lega voru þar menn með 14 fiska á báðar stangir eftir daginn en bót í máli að yfirleitt veiðist stór bleikja. „Það hafa alltaf verið miklar sveiflur í bleikjuveiðinni og því minna sem veiðist því meiri er meðalþyngdin,“ sagði Ragnar og bætti við að hann vonaði að smærri bleikja færi að ganga úr þessu til að hleypa lífi í veiði- skapinn. Leiðrétting... Í veiðipistli Morgunblaðsins í gær var aðeins missagt, kom fram að í lok veiðidags sl. föstudag hefði heildar- veiði í Langá verið komin í 1.015 laxa. Rétt er að sú tala átti við Hofsá sem einnig var nefnd í pistlinum og hefur gefið magnaða veiði síðastliðnar vik- ur. Langá hins vegar náði áfanganum á mánudagsmorgninum. Í samtali við Ingva Hrafn, leigu- taka Langár, sagði hann afar gleði- legt að sjá marga 6 til 7 punda eins árs laxa í aflanum en þeir styngju mjög í stúf við hefðbundnari Langárlax á fyrsta ári úr sjó, sem yfirleitt væri þrjú til fimm pund og mjósleginn. „Aflestur hreistursýna sýnir okkur að 16% veiðinnar skila sér úr vel heppnuðum gönguseiðasleppingum. Seiðin eru séralin fyrir okkur hjá Óðni Sigþórssyni á Laxeyri, þau eru 55 grömm þegar þau koma til mín og ganga út þremur vikum seinna 80 grömm að þyngd. Þetta eru því stór og flott seiði sem skila sér síðan svona líka væn að ári liðnu,“ sagði Ingvi. Mikið af smálaxi í Þistilfirðinum Morgunblaðið/Einar Falur Kristinn Á. Ingólfsson með 7 punda hæng sem veiddist við Langholt í Hvítá. ERU ÞEIR AÐ FÁ’ANN? Draugaganga um Elliðaárdal HALDIÐ verður á slóðir drauga, álfa, skrímsla og afbrotamanna í Elliðaárdal fimmtudaginn 22. ágúst, segir í fréttatilkynningu. Lagt verður upp frá miðasölu Ár- bæjarsafns kl. 21 og tekur gangan rúmlega klukkustund. Þátttaka er ókeypis. Leiðsögumaður er Helgi M. Sigurðsson, sagnfræðingur og deild- arstjóri á Árbæjarsafni. Fyrirlestur um lýðheilsu barna MIÐSTÖÐ heilsuverndar barna hef- ur boðið sænska barnalækninum Sven Bremberg til Íslands til þess að ræða lýðheilsu barna. Hann starfar við sænsku Lýðheilsustöðina og Karolinska institutet í Stokkhólmi. Núverandi rannsóknir hans varða heilsueflingu og fyrirbyggjandi að- gerðir fyrir börn og unglinga með sérstaka áherslu á efnahagslega áhrifaþætti á heilsu þeirra og slysa- tíðni og á hvern hátt sveitarfélög bregðast við til forvarna, segir í fréttatilkynningu. Bremberg heldur fyrirlestur um lýðheilsu barna og á hvern hátt sveit- arfélög geta haft áhrif á hana með markvissum aðgerðum, t.d. í leik- og grunnskólum. Fyrirlesturinn verður haldinn í fræðslusal Heilsuverndar- stöðvar Reykjavíkur föstudaginn 23. ágúst nk. kl. 15–16 og er opinn öllu áhugafólki um málefnið. Fyrirlestur- inn verður fluttur á ensku. Djass- og blúshátíð á Selfossi HIN ÁRLEGA Djass- og blúshátíð á Selfossi verður að þessu sinni haldin í veitingahúsinu Inghóli á Selfossi dag- ana 23. og 24. ágúst. Dagskrá verður vegleg og er hátíðin tvískipt, segir í fréttatilkynningu. Föstudaginn 23. ágúst verða Djasstónleikar. Fram koma Sextett Kristjönu Stefánsdóttur en hann skipa ásamt söngkonunni þeir Agnar Már Magnússon á píanó, Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson á bassa, Erik Qvick á trommur, Ólafur Jónsson á tenórsaxófón og Birkir Freyr Matt- híasson á trompet og flygilhorn. Einnig koma fram Borgardætur ásamt Eyþóri Gunnarssyni á píanó og Þórði Högnasyni á bassa. Laugardaginn 24. ágúst eru svo blústónleikar. Fram koma Blúsmenn Andreu og Vinir Dóra. Með þeim Andreu og Halldóri leika eftirfarandi listamenn; Einar Rúnarsson á ham- mondorgel, Guðmundur Pétursson á gítar, Haraldur Þorsteinsson á bassa og Ásgeir Óskarsson á trommur. Tónleikar hefjast klukkan 21 bæði kvöldin en húsið verður opnað klukk- an 20. Miðaverð er 1.500 krónur á hvora tónleika fyrir sig. Kynnir er Jón Bjarnason og hljóðmeistari er Ari Daníelsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.