Morgunblaðið - 21.08.2002, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 21.08.2002, Blaðsíða 36
MINNINGAR 36 MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ Sekkur sól í haf mundar máninn staf og hefur næturför englar svífa um heim sofðu nú og geymdu fegurst ljóð í þínu hjarta Nóttin á þig nú máninn rís og þúsund stjörnur birtast brátt rökkvar heimi í sofðu vært því hlýr er svefninn þeim sem mega sofa Senn mun dagur nýr sofðu vært því hlýr er svefninn þeim sem mega sofa (Karl Olgeir Olgeirsson.) Elsku amma mín, um leið og ég kveð þig með söknuð í hjarta ylja ég mér við allar þær góðu minn- ingar sem þú hefur gefið mér. Þegar ég loka augunum sé ég ljóslifandi fyrir mér hveitiskúffuna í eldhúsinu í Bifröst, og gamla brotna bollann, þar sem ég gat un- að mér stundunum saman, meðan þú eldaðir alvöru kálböggla og afi lagði kapal. Að laumast í mysuost- inn þinn, sem bragðaðist eins og besta rjómakaramella, lyfta upp LAUFEY ÞÓRÐARDÓTTIR ✝ Laufey Þórðar-dóttir fæddist í Borgarholti í Miklaholtshreppi á Snæfellsnesi 12. júlí 1907. Hún lést á Hrafnistu í Reykjavík 13. ágúst síðastliðinn og var útför henn- ar gerð frá Ás- kirkju 20. ágúst. skálinni með heklinu og dúknum af frysti- kistunni til þess að kanna hvort þar leyndist nokkuð íspinni. Kúra uppi í rúmi hjá mömmu með bestu dúnsæng í heimi, leika sér í stóru stólunum, leð- urstólnum hans afa og mjúka græna stólnum hennar ömmu. Hjá ömmu og afa var ég alltaf örugg, alltaf glöð og ham- ingjusöm. Þar var alltaf hlýtt og notalegt, og þar leið öllum vel. Al- veg eins og mamma var vön að loka augunum og fara í huganum upp í Heiðmörk þegar eitthvað bjátaði á, þá get ég lokað augunum og heimsótt þig og afa í Bifröst. Eftir langa og stranga göngu kveður þú okkur, elsku amma mín, en minningarnar um þig verða okkur ævilangt veganesti. Rakel. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfin úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Elsku amma mín er nú látin á nítugasta og sjötta aldursári. Til- finningarnar sem bærast innra með mér eru ljúfsárar. Loksins fékk hún hvíldina blessunin, lúin á sál og líkama. Um leið er sorgin yfirþyrmandi, sorgin yfir að hún amma mín sem hefur verið svo stór hluti af lífi mínu alla tíð sé nú horfin af braut. Ég kynntist þess- ari merku konu snemma. Sem barn átti ég ávallt skjól í fangi hennar, húð hennar var einhvern veginn svo sérstaklega mjúk og faðmur hennar traustur. Hjá henni átti ég einnig skjól sem unglingur sama hvað á bjátaði. Sem fullorðin manneskja átti ég vináttu hennar að auki, vináttu sem var gagn- kvæm og traust. Hún amma var einstök kona. Einstök í raunverulegum skilningi þessa orðs, hún var nefnilega eng- um lík. Samt er svo skrítið að ætla sér að skilgreina þessa merku konu í orðum. Það er einhvern veginn ekki hægt. Hún bara var. Amma hafði til að bera þessa líka einstöku ró, jafnvægi og hógværð alla tíð. Eiginleika sem nútíma- maðurinn fer jafnvel á hin ýmsu námskeið til að öðlast. Amma var líka svo óumræðilega góð og hlý, gerði aldrei kröfur til neinna, var nægjusöm og sýndi þakklæti í samskiptum við aðra. Með fasi sínu og framgöngu allri kenndi hún manni svo margt, margt sem ekki verður komið í orð en vegur samt svo þungt, einhver hljóðlát innræting, kannski það að vera manneskja. Stundum fannst manni kostir ömmu sem hér hafa verið taldir fullmiklir af hinu góða og gætu flokkast sem ókostir á köflum. Kannski hafa þeir á stundum verið henni fjötur um fót í lífsgæðakapp- hlaupi og persónulegum sigrum út á við. Amma var til að mynda listamaður af Guðs náð. Hún hekl- aði óteljandi dúka, gardínur og rúmteppi, verk sem liggja víða um heim. Hún hafði meðal annars fengið viðurkenningu frá Álafossi, sem þá var og hét, fyrir hönnun og hekl á þrískiptri dragt. Þá var frú Vigdísi Finnbogadóttur, í lok for- setatíðar sinnar, færður forláta dúkur eftir ömmu sem gjöf frá heimilisfólki á Hrafnistu í Reykja- vík. Ömmu var þetta mikill heiður. Það eru ákveðin forréttindi að fá að alast upp með ömmu og afa. Það eru líka forréttindi að fá að verða fullorðin og eiga enn ömmu og afa. Með ömmu Lúllu er kyn- slóð af því aldna fólki sem að mér hefur staðið horfin. Eftir stendur óumræðilegt þakklæti. Guð blessi minningu ömmu minnar. Kveðja frá langömmu- stúlkunum, Elva Jóhanna. Örlögum sínum ræður enginn og ævilok verða ekki umflúin. Þó er það oftar en ekki svo að dauðinn birtist okkur að óvörum, harður, óskiljanlegur og miskunnarlaus þegar hans er síst von og kemur þeim ástvinum sem eftir lifa í opna skjöldu. En dauðinn á sér líka aðra birt- ingarmynd, bjarta og líknandi. Það er þegar hann kemur sem lang- þráð hvíld og lausn frá líkamlegum vanmætti og þjáningum. Þannig trúi ég að hann hafi sótt að móð- urömmu minni þegar hún kvaddi þennan heim hinn 13. ágúst sl. 95 ára, södd lífdaga. Amma í Ólafsvík var gædd tign látleysis, hún var sönn fyrirmynd um óeigingirni og gjafmildi, ein þeirra sem gefa alla ævina af heil- um hug skilyrðis- og tilgerðarlaust og ætlast aldrei til launa. Hún átti svo sannarlega innri frið sem margur gæti öfundað hana af. Amma og afi í Ólafsvík. Þau voru svo sjálfsagður hluti tilveru minnar. Það er ekki fyrr en nú þegar ég er sjálf orðin fullorðin að ég geri mér æ betur grein fyrir hversu mjög þau hafa mótað upp- vaxtarár mín og hversu dýrmætt það er að hafa borið gæfu til að njóta umhyggjunnar í samvistum við þau. Í huga mér eru þau sem tvær hliðar á sama peningnum, ólík en samt svo lík. Hjónaband þeirra einkenndist af ást og einlægri virðingu hvors fyrir öðru, á þeirra heimili ríkti jafnvægi, þar sem hið gamla hefðbundna fjölskyldu- munstur og verkaskipting kynjanna var í hávegum höfð, allt fylgdi föstum reglum og bæði undu glöð og sátt við sín hlutverk. Í hjónabandi þeirra endurspegl- aðist það jafnvægi og sú ró sem einkenndi öll þeirra samskipti gagnvart hvort öðru og okkur hin- um sem umgengumst þau. Minningarnar um þau eru svo óendanlega margar og þau voru ófá skiptin sem ég dvaldi hjá ömmu og afa. Hvort sem um helg- ardvöl eða heilt sumar var að ræða stóð heimili þeirra mér alltaf opið. Bernskan; hlýr og opinn faðmur ömmu og bænirnar hans afa fyrir svefninn. Viðkvæm unglingsárin þegar Reykjavíkurbarnið í leit að sjálfsmynd fann ró og stöðugleika hjá ömmu sinni og afa í Ólafsvík. Þær eru svo margar ógleymanlegu stundirnar sem ég á og geymi í minningunni. Amma og afi í Ólafsvík voru al- veg einstakar manneskjur. Stoðir sem veittu skjól á hverju sem gekk. Umvefjandi kærleikur þeirra mun halda áfram að fylgja mér um ókomna tíð þó að nú skilji leiðir. Ég fæ aldrei að fullu þakkað þá ómetanlegu menntun sem þau veittu mér í lífsins skóla, á sinn látlausa og yfirvegaða hátt. Blessuð sé minning ömmu og afa í Ólafsvík. Ruth Gylfadóttir. Elsku hjartans Ragna Dóra, það er litla systir sem kveður að sinni. Ég sit hér og reyni að pára eitthvað niður á blað en öll orð virðast innantóm og merkingarlaus. Þú varst einstök kona, framúrskarandi í þínum störfum, ótrúleg móðir, sannur og traustur vinur, góð dóttir og síðast en ekki síst uppáhalds systir mín. Þú sagðir gjarnan í seinni tíð að ég væri afritið, það er ekki leiðum að líkjast. Ég hefði gjarnan kosið að hafa fyrirmyndina hjá mér um stund lengur, til að segja mér til og gera góðlátlegt grín að mér. En einhvern veginn held ég nú samt RAGNA DÓRA RAGNARSDÓTTIR ✝ Ragna DóraRagnarsdóttir fæddist á Akureyri 15. janúar 1959. Hún lést á heimili sínu 2. ágúst og var útför hennar gerð frá Ak- ureyrarkirkju 9. ágúst. að þú eigir eftir að skipta þér af svo lengi sem ég dreg andann. Þú hafðir einstakt lag á því að láta mig gera þá hluti sem ég vissi ekki að væru á mínu færi. Einhvern tím- ann, fyrir margt löngu, baðst þú um fasta fléttu og sagðir mér að flétta og fyrir þín orð var það gert. Þú hafðir alltaf óbil- andi trú á mér og oft hefði ég átt að hlusta betur, en hey! ég væri nú léleg litla systir ef ég hefði allt- af hlýtt. Það verður skrítið og erf- itt að halda áfram án þín, en sú trú að þú sért að fylgjast með okkur hinum gerir skrefin sem framund- an eru ögn léttari. Þú varst borin til grafar á föstudaginn í 11 stiga hita og smá súld, Eyjafjörðurinn grét með mér og okkur hinum. Ég elska þig í frumeindir og takk fyrir að vera til. Í guðs friði systir góð, Sóley. Árið var 1982 og ég þá í þeirri aðstöðu að liggja veik á geðdeild Landspítalans, deild 33C. Dag einn birtust tveir hjúkrunarnemar að norðan, en Ragna Dóra var annar þeirra. Á þessum tíma voru mun meiri fordómar gagnvart geðveiki en nú er og var starfsfólkið því miður ekki undanskilið. Einnig létu „vinirnir“ sig hverfa einn af öðrum. En Ragna var ekki þannig. Ég samþykkti þar að þær Ragna og Jóhanna fengju að skrifa rit- gerð um veikindi mín, minnug þess hvað það gat verið leiðinlegt í menntaskóla að skrifa ritgerð ef maður hafði ekki almennilegar heimildir. Mér líkaði svo vel við þessar tvær stelpur að ég ætlaði svo sannarlega að verða þeim úti um almennilegar heimildir með því að segja þeim sögu mína. Ég á aldrei eftir að gleyma því þegar Ragna bauð mér í heimsókn heim til sín (geðsjúklingnum sjálf- um). En þar var drukkið kaffi og spjallað fram á rauða nótt. Það sýnir best að hún var meiri mann- eskja en margur annar. Leiðir okkar lágu því miður ekki saman aftur, en ég á aldrei eftir að gleyma viðkynnum okkar. Algóður guð sé með ástvinum hennar, vinum og kunningjum. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum.) Margrét Gunnarsdóttir. Þá er komið að kveðjustundinni. Ég kynntist Rögnu Dóru fyrir réttum fjórum árum þegar við hóf- um saman störf hjá Krabbameins- félagi Akureyrar og nágrennis. Við höfðum vitað hvor af annarri í mörg ár, m.a. vegna þess að báðar höfðum við unnið á Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Akureyri um langt skeið. Ég held að hvorug okkar hafi haft nákvæma hugmynd um það starf eða þau verkefni sem við vor- um um það bil að fara að takast á við, og svona eftir á að hyggja, var það kannski eins gott. Við komumst þó strax að því að þær hugmyndir sem við höfðum um starfsemi Krabbameinsfélags- ins fóru mjög vel saman. Við vorum alveg hjartanlega sammála um það að húsnæði fé- lagsins skyldi vera þannig að þeg- ar einstaklingur kæmi þar inn tæki á móti honum hlýlegt og notalegt umhverfi. Við skyldum gera allt sem við gætum til að veita það sem við kölluðum okkar í milli „andlega að- hlynningu“. En fyrst og fremst reyndum við að hafa í huga þá gullvægu reglu að til að geta sinnt því, yrðum við fyrst og fremst að hafa „stór eyru og lítinn munn“. Á skrifstofunni okkar hangir uppi eftirfarandi: Dagurinn í dag er dagurinn þinn, Þú getur gert við hann hvað sem þú vilt. Gærdaginn áttir þú, honum getur þú ekki breytt. Um morgundaginn veist þú ekki neitt. En daginn í dag átt þú, gefðu honum allt sem þú megnar Svo að einhver finni í kvöld að það er gott að þú ert til Ragna Dóra hafði sjálf upplifað það að greinast með krabbamein, þá 36 ára gömul, hafði farið í gegn- um hefðbundið ferli skurðaðgerðar og lyfjameðferðar og gat því svo vel miðlað af reynslu sinni og þekkingu bæði til mín að annarra sem til okkar leituðu. Í hennar huga var þörfin fyrir stuðning við þann sem greinist og fjölskyldu viðkomandi einstaklings mjög brýn, og sú aðstoð þarf að koma strax í upphafi. Ef ég vitna í orð hennar sjálfrar, þá segir hún á ein- um stað í fyrirlestri sem hún hélt um þessi mál: „Er maður einhverntíma tilbúinn eða undirbúinn til að takast á við þá erfiðu staðreynd að maður sé með lífshættu- legan sjúkdóm? Ég var það alla vega ekki. Þessi ótíðindi komu eins og kjarn- orkusprengja inn í líf mitt og umturnaði því á þann hátt að líf mitt og strákanna minna verður aldrei aftur eins. Við segj- umst gjarnan vera í skóla lífsins þegar við tökumst á við hin ýmsu verkefni sem lífið úthlutar okkur, en ég segi að þetta veikindatímabil var Háskóli lífs mín og fjölskyldu minnar og mér fannst við öll fullung fyrir þetta háskólanám.“ Annað var það sem þú lagðir mikla áherslu á, og það var endur- hæfing fyrir einstaklinga sem greinst hafa með krabbamein. Þú sagðir stundum að sú endurhæfing ætti að hefjast daginn sem grein- ingin kæmi, og þá sem andlegur stuðningur, síðan tekur við mis- langt ferli inn og út af sjúkrastofn- unum þar sem mjög vel er hugsað um þig af fagfólki sem þar vinnur, en þegar því ferli lýkur þá tekur ekkert við, ekkert kerfi sem segir, jæja nú er erfiðri mðeferð lokið og nú tekur við endurhæfing. Endur- hæfing sem hjálpar þér til að verða þátttakandi í lífinu á ný. Í stórum dráttum má segja að þetta voru okkar baráttumál. Stundum fannst okkur hindranirn- ar á veginum óyfirstíganlegar, en þá sagði Ragna Dóra alltaf „þetta verður ekkert mál, ef við leggjum saman þá gengur þetta“. Trúin skipti mjög miklu máli í öllu okkar starfi og trúin á kær- leikann og handleiðslu var nokkuð sem við vorum vissar um að væri til staðar. Ég minnist þess þegar við stóðum frammi fyrir verkefni sem virtist ætla að verða óleys- anlegt, þá opnuðum við „Góðu bók- ina okkar“ og þar stóð: „Þegar þú stendur frammi fyrir þrek- raun, hverri sem er, minnstu þá Krists Nærverunnar, vegna þess að hún yfir- gefur þig aldrei, en færir frið og hug- rekki. Sjá ég er alltaf með þér.“ Það var ótrúlega margt sem þú lagðir til í baráttumálum einstak- linga sem greinst hafa með krabbamein og fjölskyldna þeirra. Ég vil þakka þér þann stuðning sem þú veittir mér þegar móðir mín greindist með krabbamein fyr- ir ári og lést fyrr á þessu ári, eða rétt um það leyti sem sú skelfilega staðreynd lá fyrir, að þitt krabba- mein hafði tekið sig upp aftur. Það má segja að þú hafi verið í vinnunni fram á síðustu stundu, því hugurinn þinn var ótrúlega virkur og hugmyndirnar frjóar, þannig að mín bíður það erfiða verkefni að hrinda þeim í fram- kvæmd, þótt ekki verði nema broti af því sem hugur okkar stóð til að gera. Nú hefur þú útskrifast úr Há- skóla lífsins og í mínum huga var það með láði. Ég er hins vegar enn að læra. Þegar þú hafðir kvatt þennan heim opnaði ég „Góðu bókina okk- ar“ og þar stóðu þessi orð: „Látið huggast, látið huggast kæru vin- ir. Allar sálir sem elska Guð sem er kærleikur eiga sér eilíft líf. Þar sem kærleikur er getur ekki orðið neinn að- skilnaður. Ástvinur þinn er við hlið þér. Dauðinn getur ekki aðskilið ykkur. Látið huggast og lifið í friði.“ Megi ljós og kærleikur umvefja ástvini Rögnu Dóru. Þorbjörg Ingvadóttir. ÆSKILEGT er að minningar- greinum fylgi á sérblaði upp- lýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um for- eldra hans, systkini, maka og börn, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýsingar komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletrað- ur, en ekki í greinunum sjálf- um. Formáli minning- argreina

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.