Morgunblaðið - 21.08.2002, Side 24
LISTIR
24 MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
LOKATÓNLEIKAR Bláu
Kirkjunnar á Seyðisfirði á
þessu sumri verða í kvöld,
miðvikudagskvöld, kl. 20.30
og eru tileinkaðir Jóni
Múla og Jónasi Árnasonum
og tónlist þeirra. Það eru
þau Ágúst Ármann Þór-
láksson, Einar Bragi
Bragason, Jón Hilmar
Kárason, Pjetur S. Hall-
grímsson og söngkonan
Anna Pálína Árnadóttir
sem flytja lögin. Ágúst er
tónlistarskólastjóri í Nes-
kaupstað og leikur á píanó
og bassa; Einar Bragi er
tónlistarskólastjóri á
Seyðisfirði og leikur á
saxófón og flautu; Jón
Hilmar og Pjetur Hall-
grímsson eru tónlistar-
kennarar í Neskaupstað
og víðar um Austfirði, Jón
Hilmar leikur á gítar og
bassa og Pjetur á slagverk.
Lög Jónasar og Jóns
Múla á Seyðisfirði
Anna Pálína
Árnadóttir
JÓHANNES Jóhannesson, fædd-
ur 1921, var einn af hvatamönnum
abstraktmálverksins á Íslandi um
miðja síðustu öld. Tók hann m.a. þátt
í fyrstu sýningu Septem hópsins árið
1947, ásamt Kristjáni Davíðssyni,
Kjartani Guðjónssyni og Valtý Pét-
urssyni. Jóhannes vann stöðugt að
listmálun þar til hann lést árið 1998.
Samhliða listmálun fékkst hann við
gullsmíðar. Var kenning hans sú að
slík iðn gæti verið þjónustugrein, þ.e.
að fást við viðgerðir, framleiðsla eða
listgrein. Gekk hann út frá forsend-
um þess síðastnefnda. Sem gullsmið-
ur tók hann til sín lærlinga og var
einn þeirra Ófeigur Björnsson, sá
hinn sami og rekur Listhús Ófeigs. Í
tilefni yfirlitssýningar á málverkum
Jóhannesar í Gerðarsafni bauð hann
aðstandendum hans að sýna hjá sér
myndir eftir lærimeistara sinn.
Sýningin nefnist „Úr fórum geng-
ins listamanns“. Sýnd eru 26 smærri
myndverk unnin með olíulitum,
gvass, vatnslitum, bleki, blýanti, krít
og í ætingu. Elstu myndirnar eru frá
námsárum Jóhannesar í Bandaríkj-
unum 1945–46. Eru þær undir mikl-
um áhrifum af verkum Pablo Pic-
asso, bæði hvað varðar formfræði og
fyrirmyndir.
Þær myndir sem eru nær okkur í
tíma eru ódagsettar. Sumar þeirra
eru forvitnileg „hliðarspor“ frá því
sem almennt þekkist eftir listamann-
inn. Ein þeirra er gvassmyndin
„Kanna“, sem ég myndi skjóta á að
hafi verið máluð snemma á níunda
áratugnum eða um það leyti sem
„Nýja málverkið“ var að ryðja sér til
rúms. Flestar eru nýrri myndirnar
þó í anda þess sem hann er þekkt-
astur fyrir. Eru það abstraktmyndir,
oft byggðar á skeifulöguðum form-
um. Reyndar blandar hann landslagi
við formin í gvass og vatnslitamynd-
unum „Nótt“ og „Án titils“ (nr. 12),
en yfirleitt er um óhlutbundnar
myndir að ræða.
Ekki sé ég annan tilgang með því
að setja upp svo litla yfirlitssýningu
á verkum Jóhannesar en til að nýta
auglýsingagildi stóru yfirlitssýning-
arinnar í Gerðarsafni til að selja
minni myndirnar. Er ágæti málarans
gert það góð skil í Gerðarsafni að
annað lítið yfirlit bætir engu við.
Hefði mátt gera áhugaverðari sýn-
ingu með því að afmarka hana við
einn þátt í sköpunarferli listamanns-
ins eða að sýna bara teikningar sem
viðbót við sýninguna í Gerðarsafni.
MYNDLIST
Listhús Ófeigs
Sýningin er opin á verslunartíma og
stendur til 28. ágúst.
MÁLVERK OG TEIKNINGAR
JÓHANNES JÓHANNESSON
Minni
myndir
til sölu
Jón B.K. Ransu
„Kanna“ Jóhannesar Jóhannessonar er máluð með gvasslitum.
VÍSNASÖNGUR er svo nefnist á
Norðurlöndum hefur löngum rambað
á útjaðri áhugasviðs unnenda „fag-
urtónlistar“ eða listmúsíkur, svo tvö
þeygi gallalaus orð séu viðhöfð um
„kompositionsmusik“ – þýzkt/skand-
ínavískt hugtak sem einnig er ann-
mörkum háð á tímum stóraukinnar
skörunar ólíkra tóngreina. Frá sjón-
arhóli undirritaðs hefur vísnasöngur
að auki þann verulega galla að ein-
blína svo á textann að tónhliðin held-
ur sjaldan nægilegri athygli af eigin
rammleik. Ólíkt afurðum vel sam-
stillts „instrúmental“ þjóðlagahóps,
eins og Draupner var ágætt dæmi
um á fjölsóttum tónleikunum í Nor-
ræna húsinu s.l. fimmtudagskvöld.
Í landi þar sem bókmenntir voru
nánast eina listgreinin fram á 20. öld
(og bera enn ljónshlut af opinberum
styrkjum) má kannski spyrja hví
vísnasöngur skuli ekki hafa náð sam-
bærilegri fótfestu og í Skandinavíu.
Enda þótt alger fjarvera alþýðlegrar
spilarahefðar („spelmanstradition“)
sé öllu skiljanlegri í ljósi velheppn-
aðrar upprætingar píetískra kirkju-
yfirvalda á 18. öld, er einnig tókst að
rústa íslenzka dansarfleifð fyrir fullt
og allt. En þar er einmitt komið að
því sem ginnti undirritaðan út fyrir
vistarband sígildrar tónlistar um-
ræddan fimmtudag.
Þótt skorti yfirsýn og uppfletti-
gögn til að skera úr um það, gæti til-
raun Pálínu Árnadóttur, Aðalsteins
Ásbergs Sigurðssonar og Draupnis-
tríósins sænska til að spyrða íslenzka
sagnadansa saman við norrænan
spilarastíl nefnilega vel hafa verið
gerð í fyrsta sinn. Að minnsta kosti
hafa fordæmin farið býsna hljótt –
m.a.s. á þjóðlagatríóskeiði okkar
blómlegu en skammvinnu sem hófst
úr engu 1963 og fjaraði aftur út á of-
anverðum 8. áratug.
Um var að ræða sagnadansana
Tófu kvæði, Ásu kvæði, Draumkvæði
og Ólaf liljurós við íslenzk þjóðlög
(síðasta við lag eftir Aðalstein Ás-
berg). „Sagnadans“ er nýlegt hugtak
innan íslenzkra fornkvæða; skv.
Orðabók Menningarsjóðs haft um
„gamalt þjóðkvæði með frásagnar-
efni og viðlagi, upphaflega sungið
fyrir dansi“. Kveðskapargreinin virð-
ist aldrei hafa verið hátt skrifuð hér á
landi, enda hverfandi að vöxtum í
samanburði við rímnasæg fyrri alda.
Hún þótti líka „ódýrt“ kveðin, og er
þar e.t.v. fólgin að hluta undirrótin að
fálæti fyrri manna gagnvart verald-
legri tónmennt. Alltjent hefur sára-
lítið varðveitzt af sagnadanslögum
sem urðu nær gjörsamlega útundan
þegar kvæðin voru skráð á 17. og 18.
öld. Ólíkt því sem gerðist í lifandi
geymd hjá færeyskum frændum okk-
ar. Þeir héldu sem kunnugt áfram að
dansa og syngja hvað sem klerkar og
listaskáld tautuðu og rauluðu. Grann-
inn í útnorðri brenndi aftur á móti
skemmtitónlistarfleifð sína á iðrun-
arbáli guðsóttans og átti því af litlu að
taka þegar endurreisn spilarahefðar
reið yfir Norðurlönd á seinni hluta
20. aldar með víðtækri þáttöku ung-
menna.
Þrátt fyrir þannig vafasamar tón-
sögulegar forsendur var samt eitt-
hvað heillandi við þessa tilraun. Tón-
list spyr á endanum ekki um upphaf,
heldur hvort útkoman virki, hér og
nú. Á áðurnefndum skörunartímum
„cross-over“ tónlistar skiptir meiru
hvernig gert er en hvað. Undirleikur
Draupnismanna gerði þar gæfumun-
inn. Hann var gegnmúsíkalskur,
smekklega raddaður og hljómsettur
að hætti þaulæfðra alþýðuhljómlist-
armanna er gera slíkt upp úr sér eins
og að drekka vatn. Hljóðfærasláttur-
inn féll því ótrúlega vel að laglegum
söng Pálínu, enda þótt tempóin væru
kannski í hraðara lagi en við eigum
að venjast, mótuð af þörfum dans-
spilarans frekar en sagnaþularins.
Danslögin sænsku úr farteski
tríósins voru hver öðru skemmtilegri.
Mörg voru frá Helsingjalandi,
kjarnasvæði sænskra þjóðlaga, og
flest þeirra pólskur í þrískiptum
takti, en oft á móti gædd skemmti-
lega ósamhverfri hendingaskipan.
Þar að auki náði Draupnir fram eft-
irtektarverðri fjölbreytni með m.a.
slyngri notkun styrkandstæðna og
úthugsaðri nýtingu á möguleikum
hljóðfæravalsins, þar sem ekki sízt
mandóluleikur Tomasar Lindbergs
bætti vel í heildina með ýmist lag-
rænum meðleik, akkorðum, bassa-
stuðningi eða allt í senn. Mandóla er
stórt mandólín, stillt áttund neðar
(G-d-a-e¹) og líkt og lúta og gítar
komin frá Márum. Hún blandaðist
sérlega vel margslungum fiðluleik fé-
laganna, enda tinkenndur hljómur
hennar á efra sviði nær fiðlutóni en
gítarsins sem einnig kom smávegis
við sögu.
Þau Pálína og Aðalsteinn Ásberg
fluttu í upphafi hvors hálfleiks nokk-
ur dönsk og sænsk vísnasönglög á
ljúfum nótum. Eitt þeirra, Sara og
Klara, var reyndar eftir Aðalstein, er
einnig þýddi eða endursamdi texta
erlendu laganna. Þótt vísnasöngs-
hluti tónleikanna höfðaði minnst til
undirritaðs, sem fyrr var að ýjað, var
snoturlega með farið og undirtektir
áheyrenda voru afar hlýjar.
TÓNLIST
Norræna húsið
Íslenzk og sænsk þjóðlög eða lög í þjóð-
lagastíl eftir kunna og ókunna höfunda.
Pálína Árnadóttir, söngur; Aðalsteinn Ás-
berg Sigurðsson, gítar; sænska spilara-
tríóið Draupner (Henning Andersson,
Görgen Antonsson, fiðlur; Tomas Lind-
berg, mandóla & gítar). Fimmtudaginn
15. ágúst kl. 20:30.
ÞJÓÐLAGATÓNLEIKAR
Jörfagleði hin nýja
Ríkarður Ö. Pálsson
HANNFRIED Lucke hóf tón-
leikana í Hallgrímskirkju sl. sunnu-
dagskvöld á umritun, sem bæði J.S.
Bach og svissneska tónskáldið og org-
elleikarinn Guy Bovet (1942) gerðu á
strengjakonsert (RV.680) op. 3, nr.
10, eftir Antonio Vivaldi. Það er í raun
rangt að segja verkið eftir J.S. Bach,
því þrátt fyrir mjög breytta hljóð-
færaskipan er tónmálið, auk smátil-
vika, að nær öllu leyti eftir Vivaldi,
þ.e. þessi skemmtilegi leikur með
„ímitasjónir og sekvensa“, sem Viv-
aldi var frægur fyrir. Vivaldi var þó
skammaður fyrir allt of fábreytilegar
milliraddir og ólagrænt bassaferli,
sem nánast var aldrei meira en ein-
faldur undirleikur. Allt þetta var eins
og hjá Vivaldi, svo að hvorki Bach eða
Bovet gerðu þar á nokkrar verulegar
breytingar. Þessi konsert eftir Viv-
aldi var mjög skemmtilega fluttur og
sérlega vel „orkestreraður“ af Hann-
fried Lucke.
Bæn fyrir bergingu, eftir Messi-
aen, er fallegt verk, lagræn hugleið-
ing, sem studd er liggandi hljómum
og var einstaklega ljúflega flutt af
Lucke. Næst á efnisskránni var verk
eftir J.S. Bach, tríó yfir Allein Gott in
der Höh’ sei Ehr’, BWV 664, fallegt
verk, er var einstaklega skýrlega
mótað af Lucke, þar sem raddleikur
meistarans, blómstrandi fagur og
margslunginn í öllum röddum, fékk
að njóta sín sérlega vel í fagurlega
mótuðum leik Lucke.
Hápunktur tónleikanna var flutn-
ingur Lucke á tveimur þáttum úr org-
elsinfóníu nr. 5 og fyrsta þættinum úr
6. sinfóníunni eftir Vidor og minnist
undirritaður þess ekki, að hafa oft
heyrt eins tilþrifamikinn leik og hjá
Hannfried Lucke í þessum leiktækni-
lega skemmtilegu verkum. Það er
nefnilega svona sem á að leika opin-
ská og stílhrein virtúósaverk, enda
var Vidor ekki síður frægur fyrir af-
burða tækni sína, en tónsmíðar. Það
var ekki aðeins að leikur Lucke var
sérlega skýr og borinn upp af mikilli
leikni, sérstaklega í tilbrigðaþættin-
um, þeim fyrri í nr 5, heldur var „ork-
estrasjónin“ einnig áhrifamikil.
Á milli verkanna eftir Vidor lék
Lucke Adagio og Allegro (ekki fant-
asíu) K. 594, er Mozart samdi fyrir
sjálfspilandi orgel. Það er með ólík-
indum að biðja stórtónskáld um að
semja fyrir sjálfspilandi orgel og þá
ekki síður stórfurðulegt, að verkið er
vel samið. Krómatískur Adagio kafl-
inn sem er í f-moll umlykur F-dúr
sónötuþáttt, sem var lipurlega fluttur
af Hannfried Lucke.
Það sem sérlega mætti taka fram,
varðandi tónleikana í heild, umfram
það að Lucke er afburða „tekniker“,
er einstaklega skýr hendingamótun,
og sérlega gott jafnvægi í raddvali og
styrk, svo að tónleikarnir voru með
því allra besta sem heyrst hefur í
langan tíma hljóma á Klais-orgel
Hallgrímskirkju.
Jón Ásgeirsson
LEIKLIST
Hallgrímskirkja
Hannfried Lucke flutti þýska og franska
orgeltónlist. Sunnudagurinn 18. ágúst
2002.
ORGELLEIKUR
Snjall orgelleikari
Á MORGUN, fimmtudag, hefst birt-
ing á netsögu eftir Guðberg Bergsson
á heimasíðu JPV útgáfu. Slóðin er
jpv.is og geta lesendur fylgst með
gerð sögunnar meðan á ritun hennar
stendur. Sagan
ber heitið Hrylli-
leg saga og segir
Guðbergur í
ávarpi til lesenda
að sögunni hafi
verið gefin þessi
nafngift „vegna
þess að höfundur-
inn leggur með
henni út í nýja
óvissu á ferli sín-
um og er næstum því sannfærður um
að niðurstaðan verður hryllileg“. Guð-
bergur segir ennfremur, að það sé
„hyggilegast og best fyrir höfundinn,
strax í upphafi, að viðurkenna getu-
leysi sitt, til að það komi honum ekki á
óvart að einhver segi: Hvers vegna er
maðurinn að leggja út í eitthvað sem
er fyrirfram dæmt til að mistakast“?
Örlög síamstvíbura
Í samtali við Morgunblaðið segir
Guðbergur umfjöllunarefni sögunnar
vera örlög síamstvíbura, þó að það
verði að vissu leyti til meðan á ritun
sögunnar stendur. „Hún er að raða
sér niður í huganum á mér um þessar
mundir. Sagan gerist í kringum 1930
og fjallar um fólk sem kemur utan af
landi og fær inni í húsi á Fjólugötunni
í Reykjavík, húsi þar sem dönsk fjöl-
skylda bjó áður, bakarinn Fiole og
konan hans, frú Fiole, sem lék fallega
á orgel. Sveitafólkið fær inni í þessu
niðurnídda húsi og eignast samvaxna
tvíbura. Það verður að skilja þá sund-
ur. Aðeins annað barnið getur lifað af
aðgerðina. Læknirinn segir hjónun-
um að tvíburinn sem lifir muni fá öll
einkenni sem hitt hefði haft, hefði það
fengið að lifa. Smám saman fer að þjá
tvíburann sem lifði sektarkennd
vegna þess að hinn dó. Ef börnin
hefðu ekki verið skilin sundur en bæði
látin lifa samvaxin hefði annað orðið
risi með hitt lafandi úr sér eins og
æxli,“ segir Guðbergur um söguna.
Aðspurður um vinnufyrirkomulag á
netsögu sem þessari segist Guðberg-
ur vinna hana eftir því sem honum
dettur í hug og jafnvel birta daglega
nýjan hluta. Sagan verði svo birt á
Netinu eins lengi og viðfangsefnið
þurfi með. „Um leið og höfuðpersón-
an er laus við þann draug í sálarlífinu
sem varð til úr hinum lýkur henni.
Hvernig það gerist segi ég frá í sög-
unni,“ segir hann. Um titilinn og þá
skýringu sem hann hefur gefið á hon-
um í ávarpi til lesenda segist Guð-
bergur vera að slá ákveðna varnagla.
„Maður má ekki vera of bjartsýnn
þegar maður byrjar að skrifa sögu.“
Guðbergur skrifar netsögu
Hryllileg saga
í smíðum
Guðbergur
Bergsson