Morgunblaðið - 21.08.2002, Síða 27

Morgunblaðið - 21.08.2002, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚST 2002 27 ðið litlum egir hann. nnig á að ki styrki r, einung- gir fram- Ég ætla þessum raun má greiðsla á f maður n til baka rkur frá- .“ að fið laugsson, ngi ytra, gi að hjá sumarbú- séu rot- gera ráð að vinna málin við jað á ár- hann, að æjarins í um, fyrir í notkun erði fyrir Spurður muni taka hann að um viðamikið verkefni sé að ræða. „Þetta þarf að vinna í áföngum bæði vegna fjárhagslegra þátta sem og vegna tæknilegra þátta,“ segir hann. Hann segir t.d. að ekki sé búið að ákveða nákvæmlega um hvers konar skólphreinsistöð verði að ræða. Guðmundur Ingi tekur þó fram í þessu sambandi að það sé ekki vilji íbúa sveitarfélagsins að menga umhverfið. „Fólk vissi bara ekki betur fram á síðasta áratug en að allt væri í lagi í þessum mál- um,“ útskýrir hann. „Menn eru hins vegar að vakna upp við það að þessi mál séu í ólestri og að þau þurfi að leysa með öðrum hætti heldur en gert hefur verið. Og nú er unnið að því af fullum krafti, þ.e. eins og mögulegt er miðað við stærð sveitarfélagsins, að koma þessum málum í viðun- andi horf.“ Guðmundur Ingi segir eins og Ágúst Ingi að ríkið mætti taka meiri þátt í kostnaði við fráveitu- framkvæmdir þeirra sveitarfélaga sem eru langt inni í landi. „Frá- veitunefnd hefur samkvæmt lög- um í nokkur ár veitt sveitarfélög- um styrki sem hafa verið á bilinu 15 til 30% af framkvæmdakostnaði við úrbætur í fráveitumálum. Þeirri skoðun hefur aftur á móti verið haldið fram að þau sveit- arfélög sem ekki liggja að sjó þurfi að styrkja meira vegna þess að þau þurfi að fara út í flóknari og dýrari aðgerðir en þau sem liggja að sjó.“ Guðmundur Ingi tekur fram að í mörgum tilfellum sé um fámennar byggðir að ræða sem hafi tak- markaða framkvæmdagetu. Nefn- ir hann sem dæmi byggðir eins og Hveragerði, Selfoss, Hellu, Hvols- völl, sem og Egilsstaði, Varmahlíð og Reykjahlíð. „Á öllum þessum stöðum þarf að fara út í dýrar og viðamiklar framkvæmdir,“ segir hann. Taki tillit til mismunandi aðstæðna Eins og fram kom í Morgun- blaðinu í gær hafa skólpmál í Hveragerði verið tekin í gegn á síðasta ári, en í júní sl. var tekin í notkun ný skólphreinsistöð, sem er rétt neðan við byggðina. Orri Hlöðversson, bæjarstjóri í Hvera- gerðisbæ, segir að nýja skólp- hreinsistöðin skipi Hvergerðingum í fremstu röð í fráveitumálum. „Áður en skólphreinsistöðin var tekin í notkun voru þessi mál hins vegar í ólestri í Hveragerði,“ við- urkennir hann. Hann segir enn- fremur að nú sé verið að vinna að því að koma holræsakerfi bæjarins í viðunandi horf. Orri skýrir frá því að skólp- hreinsistöðin taki við skólpi frá bænum. Í stöðinni sé það hreinsað og þegar þeim ferli sé lokið skili stöðin hreinsuðu vatni út í Varmá. Hann segir að framkvæmdir við stöðina hafi byrjað á síðasta ári, en áður hafi tekið einhvern tíma að vinna að hönnun mannvirkisins. Spurður að því hvers vegna ekki hafi verið ráðist fyrr í þessar framkvæmdir segir hann að ástæðan sé m.a. sú að fólk hafi ekki verið sér meðvitandi um mik- ilvægi þessara mála fyrr. „Kröf- urnar hafa aukist á síðastliðnum árum,“ segir hann. Hann segir þó að það skipti líka máli að fjárhagslega séu fram- kvæmdir sem þessar stór biti fyrir fámenn sveitarfélög. Aðspurður segir hann að kostnaður við nýju skólphreinsistöðina fari að nálgast 200 milljónir kr. „Þetta er mikið fyrir sveitarfélag sem er með skatttekjur í kringum 400 til 450 milljónir króna,“ segir hann. Þegar hann er spurður að því hvort honum finnist að ríkið ætti að taka meiri þátt í kostnaði við framkvæmdir sem þessar en nú er skv. lögum segist hann telja að ríkið eigi að taka tillit til mismun- andi aðstæðna sveitarfélaga. „Án þess að ég sé sérfræðingur í þessum málum tel ég að lausnir sveitarfélaga í fráveitumálum hljóti að vera mismunandi. Ég held t.d. að þær séu dýrari fyrir þau sveitarfélög sem eru inni í landi.“ Hann kveðst þó ekki hafa myndað sér skoðun á hversu mikil aðstoð ríkisins ætti að vera. árennslismálum í sveitarfélögum á Suðurlandi álin verði í við- orfi fyrir 2005 r þéttskip- egi opin- knar Dav- forsætis- ær. Fyrst eytið í Vil- i með Alg- sráðherra num skrif- mning um ernd fjár- ggja. klir mögu- rir og eftir , ekki síð- ma mark- menn hafi eita tæki- ar margir nú þegar. rfa hér og fi,“ sagði blaðið. ra mun deilu M. Mathie- kæmi til rfsbróður r nk. til að deilu um eykjanes- að Lithá- ar hafa sett sér einhliða veiðiheim- ildir í karfa fyrir 8.000 tonnum árið 2002, sem eru um 10% af heildarafla úr stofninum. Litháar eru aðilar að NAFO, Norðvestur-Atlantshafsfisk- veiðibandalaginu (Northwest Atlantic Fisheries Organisation) en karfinn hefur undanfarin 2–3 ár ver- ið að flytja sig af svæði Norðaustur- Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC) yfir á stjórnunarsvæði NAFO. Var ákveðið til bráðabirgða að reglur NEAFC giltu áfram um veið- ar úr stofninum. Þessu hafa Litháar mótmælt og sett sér einhliða kvóta. Það flækir málið síðan enn frekar að skipin eru skráð í Litháen og með litháískum áhöfnum en munu flest í eigu Íslendinga. Eftir fundinn með Brazauskas hélt Davíð og fylgdarlið hans til for- setahallarinnar þar sem Davíð átti fund með Valdas Adamkus, forseta Litháens. Síðan ræddi hann við Art- uras Paulauskas, forseta Seimas, litháíska þingsins. Davíð segir að fundirnir hafi allir verið ánægjulegir. „Auðvitað engir samningafundir eða neitt slíkt enda stendur það ekki til, en á hinn bóginn fróðlegar viðræður við þessa for- ystumenn litháísku þjóðarinnar.“ Meðal annars hafi verið rætt um aðildarviðræður Litháens við Evr- ópusambandið og sérstök vandamál Litháa sem hin Eystrasaltslöndin þurfa ekki að glíma við. Nefnir Davíð t.d. nábýlið við Kalíníngrad, hérað sunnan við Litháen sem tilheyrir Rússlandi, og vandamál varðandi vegabréfsáritanir og viðskipti við Rússana. „Svo eru Litháar með þetta stóra kjarnorkuver sem á að gera þeim að loka, í fyrsta áfanga árið 2005 og næsta 2009. Þetta er gríðarlegt orkuver sem framleiðir held ég helmingi meiri raforku en allt raf- orkukerfi Íslands. Þeim hefur ekki verið gerð grein fyrir því hvernig þeir eiga að bæta sér það upp.“ Hann segir að Litháar þurfi nú að gera orkusamninga við aðra. „Þeir höfðu engar tengingar vestur á bóg- inn meðan þeir voru undir sovét- hramminum en þeir þurfa að koma því á til þess að vera ekki háðir þessu orkuveri, sem var reyndar ekki hugsað bara fyrir þá heldur allt vest- ursovéska svæðið eiginlega.“ Kjarnorkuverið er af sömu gerð og Tsjernobyl-kjarnorkuverið í Rússlandi var en að sögn Davíðs segja ráðamenn í Litháen að ráðist hafi verið í gríðarlegar endurbætur á því, einkum hvað öryggi og nýja tækni varðar. Að loknum hádegisverði í boði Algirdas Brazauskas forsætisráð- herra hélt Davíð og fylgdarlið hans í Antakalnis-kirkjugarðinn þar sem Davíð lagði blómsveig að minnis- varða um þá sem féllu í valinn í sjálf- stæðisbaráttu landsins. „Þetta var mjög hátíðleg stund, fögur tónlist spiluð og áhrifamikil,“ segir for- sætisráðherra. Sautján almennir borgarar féllu í sjálfstæðisbaráttunni, ellefu þeirra létust 13. janúar 1991 þegar sovéski herinn gerði árás á borgara sem höfðu tekið sér stöðu við sjónvarps- stöðina og sjónvarpsturninn í Vil- nius. „Þetta er nýliðin saga sem maður hefur upplifað síðan maður fór í þetta starf meira að segja og snertir mann töluvert,“ segir Davíð. Óhugnanleg heimsókn í fangelsi KGB Þá lá leiðin að fyrrverandi höfuð- stöðvum sovésku leyniþjónustunnar (KGB) í Vilnius þar sem hefur verið komið á fót safni um þá borgara sem voru leitaðir uppi eftir hernám Sovétríkjanna árið 1940, handteknir, þeim haldið þar föngnum, þeir pynt- aðir og teknir af lífi. „Þetta var hálf- óhugnanlegt allt saman, að koma á stað þar sem fólk var unnvörpum pyntað og yfir þúsund manns teknir af lífi. Þessi viðbjóðslegi staður hefur náttúrlega skapað mikinn ótta, þetta er í stórri byggingu hér í miðborg- inni. Að sjá þessa klefa, pyntingar- og aftökuherbergi og hvaðeina sem var í notkun þar til einungis fyrir 11– 12 árum er alveg með ólíkindum og mjög sláandi,“ sagði forsætisráð- herra eftir heimsóknina á safnið. Í gærkvöldi snæddi forsætisráð- herra kvöldverð í boði Antanas Val- ionis, utanríkisráðherra Litháens, í Gruto Parkas, 120 kílómetra frá Vilnius. Þar hefur um 50 styttum tengdum sovéttímanum, sem voru teknar niður eftir að landið fékk sjálfstæði, verið safnað saman frá þorpum og borgum um landið allt og þær settar upp í miðjum skógi. Í dag lýkur opinberri heimsókn forsætisráðherra til Litháens með skoðunarferð í Trakai-kastala. Frá Litháen mun Davíð og fylgdarlið hans fara til Færeyja en í kvöld mun Davíð sitja fund með lögmanni Fær- eyja og formanni grænlensku heimastjórnarinnar. Á fimmtudag hefst tveggja daga opinber heim- sókn Davíðs til Færeyja. nberrar heimsóknar Davíðs Oddssonar forsætisráðherra til Litháens sem hófst í gærmorgun mningur um efl- u og gagnkvæma nd fjárfestinga efar frá sovéttímanum í fangelsi KGB voru meðal avíð Oddsson forsætisráðherra skoðaði í gær í op- sókn sinni til Litháens. Þá lagði hann blómsveig að a um þá sem féllu í sjálfstæðisbaráttu landsins og ð forystumönnum þjóðarinnar. Nína Björk Jóns- fylgdist með fyrsta degi heimsóknarinnar. Morgunblaðið/Nína Björk Davíð segir heimsókn í safn um fórnarlömb KGB á sovéttímanum hafa verið óhugnanlega. Hér kíkir Davíð inn í einn fangaklefanna. Klefarnir, og pyntinga- og aftökuherbergi, voru notuð þar til fyrir 11–12 árum. Forsætisráðherrar beggja landa skrifuðu meðal annars undir samn- ing um gagnkvæma vernd fjárfestinga milli Íslands og Litháens. nina@mbl.is Á AÐALFUNDI Skógræktarfélags Íslands í Logalandi um helgina var gengið frá samningi við ríkið, sem nemur 100 milljónum króna, um framlengingu á átakinu Land- græðsluskógar en samningurinn var fyrst gerður 1999. Sá samningur rennur út á næsta ári en Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra skrifaði undir nýja samninginn fyrir hönd ríkisins í Daníelslundi í Borgarfirði um helgina. Að sögn Magnúsar Jóhannessonar, for- manns Skógræktarfélags Íslands, tekur nýi samningurinn gildi 2004 og gildir út árið 2008. Samningurinn felur í sér að ríkis- valdið styrkir Skógræktarfélag Ís- lands til kaupa á plöntum og skóg- ræktarfélög víðs vegar um landið sjá svo um að koma þessum plöntum í jörðu. Tekist hefur að planta nálega um einni milljón plantna á ári árin 1999, 2000 og 2001 og það stefnir í það sama nú á þessu ári. „Nú eru töluvert á annað hundrað svæði á landinu sem eru í land- græðsluskógaverkefninu og mikið starf er framundan í að halda áfram skógræktinni,“ segir Magnús. Hann segir að á aðalfundinum hafi verið samþykktar 11 ályktanir um ýmis málefni. Þar megi meðal ann- ars nefna ályktun um skógvist, sem sé rannsóknarverkefni sem Nátt- úrufræðistofnun Íslands og Skóg- rækt ríkisins eru að vinna saman að, en Bjarni Diðrik Sigurðsson skóg- fræðingur kynnti verkefnið á fund- inum. Verkefnið gengur út á að gera sér grein fyrir áhrifum skógræktar á lífríkið og hugmyndin er að gera út- tekt á svæðum þar sem skógrækt hefur verið stunduð í mislangan tíma og skoða hvernig vistkerfi skógarins á þessum svæðum er, til dæmis fugla-, gróður- og skordýralíf. „Fundurinn fagnaði þessu verkefni og skoraði á stjórnvöld að tryggja nægilegt fjármagn til þess að þetta verkefni fari í gang,“ segir Magnús. Þá segir Magnús að á fundinum hafi verið til umræðu skýrsla sem nýverið barst frá Bernarsamningn- um. „Fundurinn lýsti yfir ánægju með skýrsluna og þær ábendingar og niðurstöður sem þar komu fram, en í vor var hér sendinefnd frá Bern- arsamningnum sem fór um landið og hitti sérfræðinga okkar og vísinda- menn og hefur skilað skýrslu um þá ferð.“ Magnús segir að einnig hafi verið ályktað um skógræktarþing á fund- inum og samþykkt að kanna mögu- leika á að koma reglulegu þingi á fyr- ir þá sem koma að skógrækt hér á landi, svo sem Skógræktarfélag Ís- lands, Skógrækt ríkisins og fleiri Þá var samþykkt að skora á skóg- ræktarfélög um landið að safna upp- lýsingum um trjálundi frá fyrri hluta liðinnar aldar en þessir trjálundir væru menningarverðmæti og vert að geyma upplýsingar um þá. Á fund- inum var því beint til skógræktar- félaga að auka mætti fjölbreytni í plöntuvali í skógræktarreitum. Samningur við rík- ið um 100 milljónir til skógræktar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.