Morgunblaðið - 21.08.2002, Side 42

Morgunblaðið - 21.08.2002, Side 42
DAGBÓK 42 MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Detti- foss og Selfoss koma og fara í dag. Lómur kemur í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Sonar kom í gær, Katla fór í gær. Fréttir Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur, Sól- vallagötu 48. Sum- arlokun frá 1. júlí til 1. september. Mannamót Félagsþjónustan í Hvassaleiti, Hæð- argarði og Sléttuvegi ætlar að fara í síðustu ferð sumarsins miðviku- daginn 28. ágúst. Lagt af stað kl. 10.30 frá Hvassaleiti. Ekið verður til Þingvalla yfir Lyng- dalsheiði að Laug- arvatni. Gullfoss og Geysir heimsóttir. Máls- verður í Brattholti. Leiðsögumaður verður Hólmfríður Gísladóttir. Vinsamlegast látið skrá ykkur á skrifstofum staðanna fyrir föstudag- inn 23. ágúst eða í sím- um: 588 9335, 568 3132 , 568 2586. Aflagrandi 40. Kl. 9 og kl. 13 vinnustofa. Árskógar 4. Kl. 9–12 baðþjónusta kl. 13 spil- að, kl. 13.30 keila og frjáls spilamennska. Púttvöllurinn er opinn kl. 10–16 alla daga. Allar upplýsingar í s. 535 2700. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8– 13 hárgreiðsla, kl. 8.30– 12.30 böðun, kl. 9–16 handavinna kl. 9–17 fótaaðgerð, kl. 10–10.30 banki, kl. 13–16.30 spil- að. Félagsstarfið, Dalbraut 18–20. Kl. 9–14 baðþjón- usta, kl. 14.30 banka- þjónusta, kl. 14.40 ferð í Bónus, hárgreiðslu- stofan opin kl. 9–17 alla daga nema mánudaga. Félag eldri borgara Kópavogi. Viðtalstími í Gjábakka í dag kl. 15– 16. Skrifstofan í Gull- smára 9 opin í dag kl. 16.30–18. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Kl. 8 böðun, kl. 9.30 hjúkrunarfræð- ingur á staðnum, kl. 10 hársnyrting, kl. 10–12 verslunin opin, kl. 13 föndur og handavinna. Félagsstarf aldraðra Garðabæ. Fótaaðgerð- arstofa, tímapantanir eftir samkomulagi s. 899 4223 Félag eldri borgara Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Línudans kl. 11, pílukast kl. 13.30. Á fimmtudag Boccia og billjardsalur tekinn í notkun kl. 13.30. Orlofs- ferð að Höfðabrekku 10.–13. sept. Skráning og upplýsinga í Hraun- seli kl. 13–17. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði, Glæsibæ. Kaffistofan opin virka daga frá kl. 10–13. Kaffi, blöðin og matur í hádegi. Félagið hefur opnað heimasíðu www.feb.is. Miðviku- dagur: Göngu-hrólfar ganga frá Hlemmi kl. 9.45. Línudanskennsla Sigvalda kl. 19.15. Fimmtudagur: Brids kl. 13. Þjórsárdalur, Veiði- vötn, Fjallabaksleið nyrðri, 27.–30. ágúst. Vinsamlegast sækið far- seðilinn í síðasta lagi föstudaginn 23. ágúst. Nokkur sæti laus. Rétt- arferð í Þverárrétt 15. september. Leið- sögumaður Sigurður Kristinsson. Brottför frá Ásgarði, Glæsibæ, kl. 12. Skráning hafin á skrif- stofu FEB. Fyrirhug- aðar eru ferðir til Portú- gals 10. september í 3 vikur og til Tyrklands 30. september í 12 daga fyrir félagsmenn FEB, skráning er hafin tak- markaður fjöldi. Silf- urlínan er opin á mánu- og miðvikudögum kl. 10–12. Skrifstofa félags- ins er flutt að Faxafeni 12 s. 588 2111. Fé- lagsstarfið er áfram í Ásgarði, Glæsibæ. Upp- lýsingar á skrifstofu FEB. Félagsstarfið, Hæð- argarði 31. Kl. 9–16.30 fótaaðgerð, kl. 9–17 hár- greiðsla. Félagsstarfið Furugerði 1. Kl. 9 aðstoð við böðun, kl. 14 sagan. Föstudag- inn 23. ágúst byrjar leik- fimin kl. 10 f.h. Leikfimi- kennari er Margrét Bjarnadóttir. Allir vel- komnir. Gerðuberg, félagsstarf. Kl. 9–16.30 vinnustofur opnaðar, kl. 9.30 sund og leikfimiæfingar í Breið- holtslaug. Frá hádegi spilsalur opinn. Kl. 12. 15 mæting í ferð í Rang- áring. Veitingar í Kaffi Bergi. Allar upplýsingar á staðnum og í síma 575 7720. Gjábakki, Fannborg 8. Handavinnustofan opin, kl. 13 félagsvist FEBK, kl. 15–16 viðtalstími FEBK, kl. 17 bobb. Gullsmári, Gullsmára 13. Opið alla virka daga kl. 9–17 hádegismatur, kaffi og heimabakað meðlæti. Hraunbær 105. Kl. 9– 16.30 bútasaumur, kl. 9– 17 hárgreiðsla, kl. 11– 11.30 banki, kl. 13–14 pútt, kl. 13 brids. Hvassaleiti 58–60. Kl. 09 og kl. 10 jóga. . Fóta- aðgerð, hársnyrting. Allir velkomnir. Norðurbrún 1. Opin vinnustofa, kl. 13 banki, kl. 14. félagsvist. Fóta- aðgerðarstofan opin. Vesturgata 7. Kl. 8.25 sund, kl. 9–16 fótaað- gerð og hárgreiðsla, kl. 13–14 spurt og spjallað. Verslunarferð í Bónus kl. 12.15. Föstudaginn 23. ágúst kl. 14.30 dans- að við lagaval Sigvalda kl. 15 sýna nemendur Sigvalda línudans o.fl. Góðar kaffiveitingar, all- ir velkomnir. Vitatorg. Kl. 9 smiðjan, 9.30 bókband og hand- mennt, kl. 10 morg- unstund, kl. 12.30 versl- unarferð í Bónus. Bankaþjónusta 2 fyrstu miðvikudaga í mánuði. Kl. 9 hárgreiðsla, kl. 10 fótaaðgerð. Eldri borgarar, Vestfjarðaferð dagana 28.–31. ágúst, farið frá Hallgrímskirkju kl. 10, gist í Flókalundi, á Hót- el Ísafirði og Reykja- nesi, heimferð um Stein- grímsfjarðarheiði, í Hrútafjörð og þaðan yfir Holtavörðuheiði og heim. Uppl. og skráning hjá Dagbjörtu í s. 693 6694, 510 1034 og 561 0408, allir velkomn- ir. Minningarkort Minningarkort Sjúkra- liðafélags Íslands eru send frá skrifstofunni, Grensásvegi 16, Reykja- vík. Opið virka daga kl. 9–17. S. 553-9494. Minningarkort Vina- félags Sjúkrahúss Reykjavíkur eru af- greidd í síma 525-1000 gegn heimsendingu gíróseðils. Minningarkort Breið- firðingafélagsins, eru til sölu hjá Sveini Sig- urjónssyni s. 555-0383 eða 899-1161. Minningarkort Kven- félagsins Hringsins í Hafnarfirði. Minning- arsjóður í vörslu kven- félagsins Hringsins í Hafnarfirði. Minningarkortin fást nú í Lyfjum og heilsu, verslunarmiðstöðinni Firði í Hafnarfirði. Kortið kostar 500 kr. Minningarkort Kven- félagsins Seltjarnar eru afgreidd á bæjarskrif- stofu Seltjarnarness hjá Ingibjörgu. Minningarkort Kven- félags Háteigssóknar. Kvenfélagskonur selja minningarkort, þeir sem hafa áhuga á að kaupa minningarkort vinsam- legast hringi í síma 552- 4994 eða síma 553-6697, minningarkortin fást líka í Háteigskirkju við Háteigsveg. Minningarkort Kven- félags Langholtssóknar fást í Langholtskirkju s. 520-1300 og í blómabúð- inni Holtablóminu, Langholtsvegi 126. Gíró- þjónusta er í kirkjunni. Minningarkort Kven- félags Langholtssóknar fást í Langholtskirkju sími 520 1300 og í blóma- búðinni Holtablóminu, Langholtsvegi 126. Gíró- þjónusta er í kirkjunni. Minningakort Kven- félags Neskirkju fást hjá kirkjuverði Nes- kirkju, í Úlfarsfelli, Hagamel 67 og í Kirkju- húsinu v/Kirkjutorg. Minningarkort Kven- félagsins Hringsins í Hafnarfirði fást í blóma- búðinni Burkna, hjá Sjöfn s. 555 0104 og hjá Ernu s. 565 0152 (gíró- þjónusta). Í dag er miðvikudagur 21. ágúst, 233. dagur ársins 2002. Orð dagsins: Vingjarnleg orð eru hunangsseimur, sæt fyrir sálina, lækning fyrir beinin. (Orðskv. 16, 24.) K r o s s g á t a LÁRÉTT: 1 hræðilegur, 8 stuttum, 9 tíu, 10 keyra, 11 magr- ar, 13 kroppa, 15 málhelt- is, 18 fljót, 21 verkfæri, 22 nöldri, 23 áræðin, 24 geðvonska. LÓÐRÉTT: 2 fjöldi, 3 lofar, 4 baunin, 5 ótti, 6 heitur, 7 trygga, 12 sár, 14 kraftur, 15 heiður, 16 ilmur, 17 verk, 18 eyja, 19 mergð, 20 létta til. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 hjálp, 4 kopar, 7 næfur, 8 rætin, 9 tæp, 11 aumt, 13 ærum, 14 útlit, 15 höfn, 17 tjón, 20 þrá, 22 gæl- ur, 23 lotið, 24 arkar, 25 teina. Lóðrétt: 1 henda, 2 álfum, 3 part, 4 karp, 5 patar, 6 rún- um, 10 ætlar, 12 tún, 13 ætt, 15 hægja, 16 fölsk, 18 játti, 19 niðra, 20 þrár, 21 álit. Víkverji skrifar ... Á FERÐUM sínum um landiðhefur Víkverji oft formælt hin- um afspyrnu vonda skyndimat, sem framreiddur er af fullkomnu metn- aðarleysi og menningarskorti í flest- um þjóðvegasjoppum. Hins vegar hefur hann líka komizt að því að sé farið aðeins út fyrir þjóðveg 1, jafnvel bara nokkur hundruð metra, má nokkuð víða finna ætan mat, eldaðan af sæmilegri alúð og fram borinn í huggulegu umhverfi. Víkverji hefur reynt að gæta þess að hrósa þeim stöðum af þessu tagi, sem hann hefur dottið ofan á og hér kemur eitt hrós. Víkverji var á ferð ásamt fleirum á Norðurlandi og var ákveðið að stanza á Blönduósi og fá sér matarbita. Að þessu sinni voru þjóðvegasjoppurnar látnar eiga sig, en þess í stað leitað að kaffi- eða veitingahúsi niðri í bænum. Leitin bar skjótan árangur; við bakka Blöndu, steinsnar frá hring- veginum, stendur blámálað, snyrti- legt kaffihús, Við árbakkann. Þar pöntuðu Víkverji og ferðafélagar hans sér m.a. súpu dagsins og pilsner og greiddu fyrir um 1.000 krónur, sem þeim fannst sanngjarnt. Svo tylltu menn sér niður í sólinni úti á stórum sólpalli og lásu dagblöðin, sem þar lágu frammi. Elskulegt þjónustufólk mætti með súpuna, sem var ágætlega útilátin, bragðgóð og matarmikil. Þegar Víkverji og fé- lagar voru búnir úr skálunum, var spurt hvort ekki mætti bjóða ábót. Það var vel þegið og ekki var seinni skammturinn síðri en sá fyrri. Þegar matargestirnir hugðust standa upp og fara, pakksaddir, var spurt hvort þeir vildu ekki staldra aðeins lengur við og fá sér kaffi – það væri nefni- lega innifalið í rétti dagsins. Það varð náttúrlega úr og Víkverji og félagar hans yfirgáfu Blönduós mun mettari, afslappaðri og ánægðari en hefðu þeir stanzað í einhverjum benzín- skálanum og fengið sér smurolíu- steiktan hamborgara (eða eitthvað í þá áttina). x x x VÍKVERJA hefur blöskrað einsog fleirum sá djöfulmóður, sem rann á fólk eftir að skipulagðri dag- skrá lauk á menningarnótt, með þeim afleiðingum að slysadeild Landspít- ala – háskólasjúkrahúss yfirfylltist af krambúleruðum ungmennum. Menn hafa velt upp ýmsum hugmyndum til úrbóta og Víkverji vill leggja sitt af mörkum. Hann leggur til að héðan í frá verði efnt til skipulagðra aflrauna með jöfnu millibili í miðbænum fram eftir menningarnóttu, þannig að menn geti fundið kröftunum útrás með sæmilega uppbyggilegum hætti og þannig að saklausum vegfarend- um stafi ekki hætta af. x x x DÆMALAUS della getur hrotiðút úr fólki, sem fjallar um íþróttir í útvarpi. Síðastliðinn sunnu- dag var skotið inn í kvöldfréttir Rík- isútvarpsins samtali við lýsanda, sem staddur var á knattspyrnuleik, og æpti óðamála – í tví- eða þrígang: „Keflvíkingar voru að misnota víta- spyrnu.“ Þetta var endurtekið í frétt- um síðar um kvöldið og morguninn eftir, á báðum útvarpsfréttastofun- um. Misnota vítaspyrnu? Víkverji var litlu nær og spurðist fyrir um hvað gerzt hefði í leiknum. Kunnugir sögðu að leikmaður Keflavíkur hefði reynt að skora úr vítaspyrnu en markmaður KR varið. Var ekki bara hægt að segja frá því á venjulegri ís- lenzku í stað þess að nota þennan furðulega frasa sem íþróttafrétta- menn virðast fastir í? Fjöllin í sárum ÉG ER miður mín yfir meðferðinni á Ingólfsfjalli. Í fjallinu eru tvö svöðusár, líklega eftir malarnám. Fleiri fjöll liggja undir skemmdum, s.s. við Þrengslaveginn upp við Sandskeið. Um daginn sá ég að jafnvel var búið að narta í Hafnarfjallið. Er ekki hægt að friða fjöll? Þetta blasir við öllum sem eiga leið um, fyrir ut- an það að manni þykir vænt um þessi fjöll og þyk- ir leitt að sjá þau þola svona meðferð. Ég er hissa á að enginn skuli fyrr hafa vakið máls á þessu. Þessi vandi virðist finnast í öllum landshlut- um, en ég kann ekki að nefna öll þau fjöll sem ég hef séð misþyrmt á þennan hátt. Ég skora á þá sem hafa með þessi mál að gera að fara á staðinn og skoða málin. Einnig skora ég á fjölmiðlamenn að vekja at- hygli almennings á heilsu íslenskra fjalla. Náttúruunnandi. Lýst eftir hjólreiðamanni ÞRIÐJUDAGINN 6. ágúst sl. um kl. 7.30 hjólaði ungur maður á reiðhjóli á tvær rosknar konur á göngustígnum í Fossvogi á móts við Landspítalann. Konurnar féllu báðar og meiddust nokkuð og þurftu aðhlynningu á slysadeild. Einhver vitni munu hafa verið að atvik- inu, en hjólreiðamaðurinn hvarf af vettvangi án þess að segja til nafns. Hjól- reiðamaðurinn er hér með eindregið hvattur til að hafa samband við undirrit- aða vegna þessa atviks. Síminn er 866 8013. Sigrún Stefánsdóttir. Dýrahald Kisur fást gefins TVÆR 8 mánaða gamlar kisur vantar nýtt heimili vegna ofnæmis eins heim- ilismanna. Annar kötturinn er geldur fress, en hinn læða. Þau eru óttalega góðar kisur og vantar eig- anda til að kela við. Áhugasamir hringi í síma 695 5610. Evita í heimilisleit HÚN EVITA er þriggja ára kisa sem vantar nýtt heimili. Hún er þrifin með endemum og hvers manns hugljúfi. Hún er svört á lit, með hvítan blett á bring- unni og biður þá sem vilja taka hana að sér að hringja í síma 565 5935. Púma týndist úr Unufelli MJÖG svartur köttur með hvítar loppur, hvítt undir höku og hvítan blett fyrir neðan nef hefur verið týndur síðan 12. ágúst. Hann týndist frá Unufelli og var með rauða ól með bjöllu. Innan á ólina er rit- að nafn kattarins, sem er Púma. Þeir sem hafa orðið varir við Púmu eru beðnir að hringja í síma 867 1288 eða 587 9619. Ein blíð og góð GUL-BRÖNDÓTT 10 vikna gömul kisa fæst gef- ins á gott heimili. Hún er óttalega blíð og góð og mikil heimilisprýði. Þeir sem vilja taka hana að sér hringi í síma 565 3076 eða 862 8670. Lotta er týnd LOTTA er fremur loðin kisa, gul að lit með hvíta bringu og hvítar loppur. Hún týndist í Hafnarfirði og eru þeir sem hafa orðið varir við kött sem svarar til ofanritaðrar lýsingar beðnir að hafa samband í síma 565 1943 eða 696 6943. Tólf sænskar mýs SÆNSKAR mýs fást gef- ins á gott heimili. Þær eru litlar, með langt skott og jafnvígar á sænsku og ís- lensku. Fjórar eru svartar og hvítar en hinar ljós- brúnar og hvítar. Þetta eru skemmtileg gæludýr og ódýr í rekstri. Með þeim fylgir eitt búr. Áhugasamir hafi samband í síma 566 7476 eða 823 2750. Páfagaukur í smáíbúðahverfinu PÁFAGAUKUR fannst í smáíbúðahverfinu. Eigandi páfagauksins er vinsam- lega beðinn að hringja í síma 894 1234. Tapað/fundið Pils týndist BUNDIÐ pils týndist á Menningarnótt, líkast til á Sæbraut í nágrenni við Kolaportið. Pilsið er brúnt og gult með gulri hring- laga mynd á. Sá sem veit um pilsið er beðinn að hringja í Guðrúnu í síma 588 0140 eða 697 9914. Barnaburðarpoki týndist Á GÖNGU um Ritu- og Súluhöfða og í grennd, í Mosfellssveit, týndist blár Babyborn-barnaburðar- poki úr barnavagni. Finn- andi er vinsamlega beðinn að setja sig í samband við eiganda í síma 588 4842 eða 892 1680. Týndur sími NOKIA 3310-sími tapaðist við KR-völlinn 11. ágúst. Á honum er mynd af Köngu- lóarmanninum. Finnandi hringi í 698 2018. Fundar- laun. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15. Netfang velvakandi@mbl.is 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.