Morgunblaðið - 25.08.2002, Qupperneq 14
14 C SUNNUDAGUR 25. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ÞJÓNUSTA
Byggingaverktakar — húsfélög —
einstaklingar athugið!
● Tökum að okkur alla alhliða
málningarþjónustu úti og inni.
● Getum bætt við okkur verkum.
● Gerum föst verðtilboð. Vönduð
vinna. Símar 693 0660 og 693 0666.
Rauði kross Íslands Rauði kross Íslands
Námsstyrkir
Félag einstæðra foreldra auglýsir eftir umsókn-
um um námsstyrki úr námssjóði Félags ein-
stæðra foreldra.
Námssjóðurinn var stofnaður með framlagi
frá Rauða krossi Íslands árið 1995 og úthlutanir
fara fram tvisvar á ári á vor- og haustönn.
Styrkirnir eru ætlaðir einstæðum foreldrum,
sem stunda bóknám, verknám eða nám í list-
greinum.
Markmið styrkjanna er að bæta stöðu ein-
stæðra foreldra á vinnumarkaði. Styrkurinn
er fyrst og fremst ætlaður þeim, sem ekki njóta
námslána hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna
eða annarra styrkja. Allir félagsmenn í Félagi
einstæðra foreldra geta sótt um styrk. Fjár-
hagsstaða, félagslegar aðstæður og vottorð
frá skóla er lögð til grundvallar styrkveitingum.
Umsóknareyðublöð liggja fyrir á skrifstofu
Félags einstæðra foreldra. Þeir félagsmenn,
sem búa á Reykjavíkursvæði, komi á skrifstofu
og fái þar umsóknareyðublöð, en þeir, sem
búa úti á landi, er bent á að þeir geta sent fax
(562-8270) til skrifstofu félagsins og beðið um
að fá send umsóknareyðublöðin eða haft sam-
band gegnum netfang félagsins.
Umsóknarfrestur er til 15. september 2002.
F.E.F F.E.F.
TILKYNNINGAR
Barna- og
unglingakór
Dómkirkjunnar
Barna- og unglingakór Dómkirkjunnar getur
bætt við sig áhugasömu og glöðu söngfólki
í báða hópa.
Æft er á þriðjudögum og fimmtudögum í
Dómkirkjunni:
Yngri hópur 7—10 ára kl. 16.30—17.00.
Eldri hópur 10—16 ára kl. 17.30—19.00.
Skráning í kórana fer fram fimmtudaginn
29. ágúst og föstudaginn 30. ágúst kl.16.30
—18.00 í Dómkirkjunni.
Frekari upplýsingar veitir kórstjóri, Kristín
Valsdóttir, í símum 552 0967/696 0967 eða
netfang: kristinvals@islandia.is .
Reykjavíkurborg
Bókmenntaverðlaun
Tómasar Guðmundssonar
Dómnefnd um Bókmenntaverðlaun Tómasar
Guðmundssonar hefur lokið störfum og munu
úrslit verða tilkynnt í október nk.
Haft hefur verið samband við verðlaunahafa,
en aðrir, sem áttu handrit í keppninni, eru
beðnir að vitja þeirra á skrifstofu menningar-
mála Reykjavíkurborgar sem fyrst eða fyrir
1. október nk. Gefa þarf upp dulnefni. Aðeins
var opnað umslag með nafni vinningshafa.
Reykjavík, 25. ágúst 2002.
Menningarmálastjóri Reykjavíkurborgar,
skrifstofu menningarmála,
Pósthússtræti 7, 4. hæð,
sími 563 6615.
ÝMISLEGT
Frímerki - seðlar
- mynt
Thomas Höiland Auktioner A/S í
Kaupmannahöfn er stærsta fyrirtækið á
Norðurlöndum með uppboð á frímerkj-
um og mynt og heldur tvö stór uppboð á
hverju ári auk minni uppboða.
Dagana 1. og 2. september nk. munu
sérfróðir menn frá fyrirtækinu verða á
Íslandi í leit að efni á næsta uppboð sem
verður í nóvember.
Leitað er eftir frímerkjum, gömlum um-
slögum og póstkortum, heilum söfnum
og lagerum svo og gömlum seðlum og
mynt.
Þeir verða til viðtals á Hótel Esju sunnu-
daginn 1. og mánudaginn 2. september kl.
10.00—12.00 og eftir nánara samkomulagi
á öðrum tímum. Það er kjörið tækifæri til
að fá sérfræðilegt mat á frímerkjaefni
þínu, og til að koma slíku efni svo og
gömlum seðlum og mynt á uppboð.
Nánari upplýsingar veitir Össur Kristins-
son í síma 555 4991 eða 698 4991 eftir
kl. 17.00 á daginn.
Thomas Höiland Auktioner A/S,
Frydendalsvej 27,
DK-1809, Frederiksberg C.
Tel: 45 33862424 - Fax: 45 33862425.
S M Á A U G L Ý S I N G A RI
DULSPEKI
Huglækningar/
Sjálfs-
uppbygging.
Samhæfing
líkama og sálar.
Áran.
Fræðslumiðlun.
Halla Sigurgeirsdóttir,
andlegur læknir.
Uppl. í síma 553 8260 milli
kl. 17.00 og 18.00.
TILKYNNINGAR Sálarrannsóknarfélag
Reykjavíkur,
Síðumúla 31,
s. 588 6060.
Miðlarnir, spámiðlarnir og hug-
læknarnir Þórhallur Guð-
mundsson, Ólafur Hraundal
Thorarensen, Bíbí Ólafsdóttir,
Ingibjörg Þengilsdóttir, Erla
Alexandersdóttir, og Garðar
Björgvinsson michael-miðill
starfa hjá félaginu og bjóða fé-
lagsmönnum og öðrum uppá
einkatíma.
Upplýsingar um félagið, einka-
tíma og tímapantanir eru alla
virka daga ársins frá kl. 13—18.
Utan þess tíma er einnig hægt
að skilja eftir skilaboð á sím-
svara félagsins.
Netfang: mhs@vortex.is .
Sálarrannsóknarfélag Reykjavíkur
starfar í nánum tengslum við Sál-
arrannsóknarskólann á sama stað.
SRFR.
Sálarrannsóknarfélag Íslands,
stofnað 1918,
Garðastræti 8, Reykjavík
Miðlarnir og huglæknarnir:
Birgitta Hreiðarsdóttir, Bjarni
Kristjánsson, Guðrún Hjörleifs-
dóttir, Hafsteinn Guðbjörnsson,
Kristín Karlsdóttir, Laufey Héð-
insdóttir, María Sigurðardóttir,
Oddbjörg Sigfúsdóttir, Rósa
Ólafsdóttir, Skúli Lórenzson og
Þórunn Maggý Guðmundsdóttir
starfa hjá félaginu og bjóða upp
á einkatíma. Einnig dulspeking-
urinn Amy Engilberts. Frið-
björg Óskarsdóttir heldur utan
um mannræktar-, bæna- og
þróunarhringi.
Tekið er á móti fyrirbænum.
ATH! Orðsending frá Frið-
björgu!! Vetrarstarfið hefst 2.
september, nemendur mæti á
sömu dögum og sama tíma og
sl. vetur. Gönguferð mánudag-
inn 26. fer Friðbjörg í gönguferð
og leggur af stað frá Olís, Mos-
fellsbæ kl. 20.00. (Mæting á bak
við Olís). Allir velkomnir.
Upplýsingar og bókanir eru í
síma 551 8130. Einnig er hægt
að senda fax s. 561 8130 eða
e-mail srfi@isholf.is. Opnunar-
tími skrifstofu í Garðastræti 8 er
9—15 alla virka daga.
SRFÍ.
FÉLAGSLÍF
Hörgshlíð 12.
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í dag kl. 14.00.
Í kvöld kl. 19.30: Bænastund.
Kl. 20.00: Hjálpræðissamkoma í
umsjón Elsabetar Daníelsdóttur.
Allir hjartanlega velkomnir.
Sunnud. Samkoma kl. 16.30.
Donnie Swaggart predikar og
Roy Chagon spilar á saxafón.
Þriðjud. Samkoma kl. 20.30.
Miðvikud. Bænastund kl. 20.30.
Fimmtud. Unglingarnir kl. 20.00.
Laugard. Samkoma kl. 20.30.
Smiðjuvegi 5, Kópavogi.
Bænastund kl. 16.00.
Almenn samkoma kl. 16.30.
Högni Valsson predikar. Lof-
gjörð, fyrirbænir og mjög
skemmtilegt aldursskipt barna-
starf á sama tíma.
Allir hjartanlega velkomnir.
Athugið breyttan samkomutíma.
Dagana 30. og 31. ágúst verður
Åke Carlsson gestur okkar.
Báða dagana verður samkoma
kl. 20.00 og kennsla þann 31. frá
kl. 10 til 16. Allir velkomnir.
„Mikill er Drottinn og mjög veg-
samlegur, mikilleikur hans er
órannsakanlegur.“
mbl.is mbl.is
FRÉTTIRVEÐUR
Á DÖGUNUM var brúardekkið
á brúnni yfir Lónsós í Keldu-
hverfi steypt en brúin hefur ver-
ið í smíðum frá því á vordögum.
Trésmiðjan Vík ehf. á Húsavík
er verktaki við brúarsmíðina og
það var um fjörutíu manna
vinnuflokkur frá henni og Stein-
steypi ehf. úr Aðaldal ásamt
fjórum múrurum sem vann
verkið.
Verkið var unnið sleitulaust á
vöktum og gekk vel enda veð-
urguðirnir afar hliðhollir brúar-
smiðunum á meðan á þessu stóð.
Tók rúmar fjörutíu klukku-
stundir að steypa þetta 100
metra langa dekk og í það fóru
um 640 rúmmetrar af steypu.
Framkvæmdastjórarnir Að-
alsteinn J. Skarphéðinsson hjá
Vík ehf. og Trausti Haraldsson
hjá Steinsteypi ehf. tjáðu frétta-
ritara að þetta verk væri það
langstærsta sem þeir hefðu
komið nálægt að steypa í einu.
Trausti sagði til viðmiðunar
að stærsta verk þeirra fram að
þessu hefði verið að steypa um
hundrað rúmmetra í einu.
Aðalsteinn sagði næsta verk
vera að spenna dekkið upp eins
og það á að vera og við það
myndu steypumótin falla frá. Að
því loknu væri eftir að koma
upp handriðum og klára annan
frágang og taldi hann að þetta
gæti tekið um tvær vikur.
100 metra langt
brúardekk steypt á
brúnni yfir Lónsós
Húsavík
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Aðalsteinn ánægður með gang mála.
VEGURINN milli Árneshrepps og Stein-
grímsfjarðar er mjög illa farinn og er gífurleg-
um þungaflutningum frá Norðurfirði kennt um
en fjöldi aðkomubáta hefur landað þar í sumar
vegna nálægðar við fiskimiðin. Öllum fiski er
ekið þaðan á fiskmarkaði í Reykjavík eða vest-
ur á Ísafjörð.
Fyrir stuttu var vegurinn á Bjarnfjarðar-
hálsi lagaður eftir að hann datt niður að hluta
og nú er byrjað að bera ofan í veginn norður
með Reykjarfirði, sem var mjög illa farinn, og
svo víða smá kafla frá Gjögri og norður í Tré-
kyllisvík.
Menn velta því nú mikið fyrir sér hvort það
hafi verið rétt ákvörðun að leggja niður strand-
flutninga og færa alla flutninga yfir á vegina,
því þeir standi ekki undir slíku og það sé ef-
laust dýrara í alla staði.
Vegurinn þoldi
ekki þunga-
flutningana
Árneshreppur