Morgunblaðið - 25.08.2002, Síða 15
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. ÁGÚST 2002 C 15
„ÞAÐ er góður gangur í þessu hjá
okkur í Breiðdalsá, hún byrjaði vel
en svo dofnaði veiðin talsvert og
júlí var slakari en í fyrra. Síðustu
tíu dagarnir eða svo hafa hins veg-
ar verið prýðilegir og að koma
þetta fjórir til tíu laxar á land á
dag. Það komu sjö í gær og það er
alltaf að bætast við fiskur í ána.
Það eru komnir um 150 laxar á
land núna, en allt síðasta sumar
veiddust 233 laxar. Breiðdalsá er
það drjúg á haustin að ég sé ekki
annað en við förum hátt í 300 laxa í
sumar, sem er alveg viðunandi,“
sagði Þröstur Elliðason, leigutaki
Breiðdalsár, í gær. Hann bætti við
að hlutfall stórlaxa í aflanum hefði
aldrei verið meira í Breiðdalsá svo
hann vissi til. Sá stærsti í sumar
var 20 punda, dreginn í Einarshyl.
Fréttir úr ýmsum áttum
Þröstur Elliðason er einnig með
Hrútafjarðará á leigu og sagði
hann að tæplega 100 laxar væru
komnir á land úr ánni og það væri
að kroppast bærilega upp úr henni.
„Það er talsvert af laxi í ánni, en
dagarnir eru misgóðir eins og
gengur. Allt síðasta sumar veidd-
ust 130 laxar í ánni en það er ekk-
ert því til fyrirstöðu að heildarveið-
in í sumar verði mun meiri. Ef ekki
verða endalausir þurrkar og önnur
óáran gæti áin hæglega náð 200
laxa heildarveiði.
Enn eru Rangárnar langt á eftir
tölum síðasta árs, en það er úr
háum söðli að detta, því veiðin í án-
um í fyrra var með eindæmum. Í
vikulok voru komnir um 760 laxar á
land úr Eystri-Rangá og um 450 úr
Ytri-Rangá. Aflabresturinn í ánum
liggur aðallega í smálaxinum úr
sleppingunni sumarið 2001. Meðal-
þungi veiddra laxa í ánum er sam-
kvæmt því mun meiri en í fyrra.
Í gærdag voru alls komnir um
180 laxar á land af svæðum SVFR í
Soginu, Bíldsfellið drýgst með 71
lax og Alviðra með 50 stykki. Það
hefur verið að glæðast síðustu
daga og menn eru að sjá mikið af
fiski þessa dagana.
Korpa var komin með 159 laxa í
gærdag, sjö laxar veiddust þar á
fimmtudagskvöldið. Talsverður lax
er í ánni, en hún er viðkvæm vegna
vatnsleysis og veiðimöguleikar því
mjög háðir aðstæðum.
Silungaslóðir
Enn eru menn að draga vænar
bleikjur á Þingvöllum, m.a. voru
menn í þjóðgarðinum um síðustu
helgi að fá ’ann, m.a. nokkrar 2–3
punda bleikjur. Hins vegar dregur
úr sókn bleikjunnar í flugur veiði-
manna á þessum tíma vegna
hrygningar, sem byrjar síðla í
ágúst á þessum slóðum.
Fáir dagar eru síðan fréttist af
mönnum sem fóru í vötn og spræn-
ur á Skagaheiði og fengu rífandi
veiði, t.d. fengu þrír félagar alls um
70 bleikjur, flestar á þurrflugur.
Þetta voru mest 2 til 3 punda
bleikjur og voru menn gríðarlega
saddir í lok veiðidags.
Mjög hefur dregið úr sókn
manna í vötn á Arnarvatnsheiði, en
stöku veiðimaður kann betur við að
fara á þær slóðir síðsumars og
sleppa við mývarginn. Einn var þar
nýlega, veiddi á Úlfsvatnssvæðinu
og fór heim eftir tvo daga með
rúmlega 40 væna fiska, mest 1 til
2,5 punda bleikjur, en í hrúgunni
voru einnig fjórir urriðar, 2 til 3
punda. Notaðar voru bæði púpur
og þurrflugur við þessar veiðar, ut-
an að urriðarnir veiddust á spón í
Úlfsvatni er húmaði. Ekki að
spyrja að ljósaskiptunum.
Veiðin í Breiðdalsá
stefnir í góða tölu
Morgunblaðið/LAE
Guðjón Ó. Davíðsson með lax
úr Koteyrarbroti í Langá.
ERU
ÞEIR AÐ
FÁ’ANN?
LANDSMÓT í skógarhöggi var á
dögunum haldið í fyrsta sinn á Ís-
landi. Það fór eðli málsins sam-
kvæmt fram í Hallormsstaðarskógi
og var haldið á vegum Skógræktar
ríkisins. Mótið var liður í hátíðinni
Ormsteiti 2002, sem nú stendur yfir
á Fljótsdalshéraði. Íslandsmeistari í
skógarhöggi 2002 varð heimamaður-
inn Eiríkur Sigfússon.
Skömmu eftir hádegi mættu kepp-
endur til leiks í lerkiþyrpingu í svo-
kölluðum Atlavíkurstekk. Þátttak-
endur voru átta talsins og komu allir
af Fljótsdalshéraði. Keppni þeirra
var fólgin í að fella tré með keðjusög
og láta það falla nákvæmlega á til-
tekinn pinna á jörðinni, 10 m frá rót.
Þá átti að afkvista tréð upp í topp og
hluta toppinn frá á 4 sm. Endað var á
því að höggva sundur sykurmola
með öxi á fjalhöggi úr höfuðhæð.
Keppnin var mæld í sekúndum, sem
þýddi að sá sem var með fæstar sek-
úndur bar sigur úr býtum. Þá var
metið til bónus- eða refsistiga ástand
á búnaði skógarhöggsmanna og
handbragð þeirra við verkið.
Eiríkur Sigfússon varð sem fyrr
segir hlutskarpastur í skógarhögg-
inu og hlaut að launum veglegan far-
andbikar. Í öðru sæti varð Þorsteinn
Þórarinsson og því þriðja Jón Björg-
vin Vernharðsson. Við verðlaunaaf-
hendinguna var spilað á ástralska
blásturshljóðfærið didgeridoo, sem
Vilhjálmur R. Vilhjálmsson smíðaði
úr Hallormsstaðarbirki, og drukkið
sérlegt skógarhöggsmannakaffi við
varðeld fyrir heimferð.
Skógarhögg er ný keppnisgrein á
Íslandi, en á Norðurlöndunum eru
víða haldin slík mót, og þá einnig
Norðurlanda- og heimsmeistaramót.
Stefnt er að því að landsmótið hér
verði framvegis haldið á hverju
hausti og keppendur komi af landinu
öllu.
Fyrsta
Íslandsmót-
ið í skóg-
arhöggi
Egilsstaðir
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Íslandsmeistarinn í skógarhöggi 2002, Eiríkur Sigfússon, á milli Jóns
Björgvins Vernharðssonar í 3. sæti, og Þorsteins Þórarinssonar, 2. sæti.
Að höggva sundur sykurmola með öxi á fjalhöggi úr höfuðhæð
TUTTUGU dýr kepptu í þriðju feg-
urðarsamkeppni gæludýra, sem
haldin var á Egilsstöðum fyrir
nokkrum dögum. Var keppnin
hluti af héraðs- og uppskeruhátíð-
inni Ormsteiti 2002, sem fram fer í
tíunda sinn á Fljótsdalshéraði um
þessar mundir. Keppnin hefur frá
byrjun notið mikillar hylli, enda
einstök á heimsmælikvarða.
Keppt var í katta- og hunda-
flokkum og þriðji keppnisflokk-
urinn var fyrir dýr af ýmsu tagi,
svo sem kanínur, finkur, fiðrildi og
hunangsflugur. Yfirdómari var
Björn Steinólfsson dýralæknir og
gaumgæfði hann hvert dýr hauk-
fránum augum og gaf þeim verð-
ugar einkunnir. Þannig máttu
nokkrar kisur þola aðfinnslur um
flösu og skrítið vaxtarlag og
hundar yfirlýsingar um snúna fæt-
ur og óhlýðni.
Í kattaflokki sigraði kettling-
urinn Dúlla, í eign Þorvaldar Ragn-
arssonar. Dómari sagði yfirburði
Dúllu felast í mjög fallegri og sjald-
gæfri litasamsetningu og einkar
góðu hárafari. Í hundaflokki
reyndist ómögulegt að gera upp á
milli tíkanna Týru og Snoppu og
deila þær verðlaunasætinu. Týra
þótti áberandi hlýðin og báðar
þóttu þær einkar fallegar, vel
byggðar og haldnar og með skín-
andi góðan feld. Eigandi Týru er
Sigurður Þ. Sigurðsson, en Snoppu
á Steinunn Friðriksdóttir.
Í flokki ýmissa dýrategunda varð
kanínan Stjarna hlutskörpust.
Björn dýralæknir og dómari hrós-
aði henni á hvert reipi og sagði
hana augljóslega fá heilnæmt fæði,
því það geislaði af henni lífsþrótt-
urinn. Þá væri hún einkar vel hirt
og spök. Eigandi Stjörnu er Irma
Gná Jakobsdóttir.
Allir þátttakendur fengu við-
urkenningarskjal, en sigurvegarar
í hverjum flokki hlutu veglega út-
tekt á gæludýravörum í versluninni
Blómabæ á Egilsstöðum.
Fegurðarsam-
keppni gæludýra
Egilsstaðir
Morgunblaðið/Steinunn
Tuttugu dýr tóku þátt í fegurðar-
samkeppni gæludýra á Egilsstöð-
um á Ormsteiti 2002. Fjölmenni
var á keppninni og dýrin öll kembd
og strokin í sínu fínasta pússi.
HRAFNSUNGINN sem fréttaritari rakst á sunnanundir Hjör-
leifshöfða var óvenjulega spakur. Hann var að snæða hádegis-
verðinn sem var dauður fýll og var alls ekki ánægður með að
verða fyrir truflun í matartímanum. Hann réðst á fréttaritara og
nartaði í skóna hans, en eftir hádegismatinn settist hann upp á
spegil á bíl erlends ferðamanns og kíkti í spegilinn. Eins og gefur
að skilja vakti þetta óvenjulega háttalag krumma óskipta athygli
ferðamanna sem voru þarna og var honum færð ýmiss konar
fæða til að borða t.d. SS pylsur sem honum líkaði bara vel.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Farðu eða ég ét þig.
Ónæðissamt hádegi
hjá krumma
Fagridalur
ALÞINGISMENN hafa verið áber-
andi á götum Stykkishólms síðustu
daga. Á tæpri viku hefur meirihluti
þingmanna heimsótt bæinn. Eins og
fram hefur komið fundaði þingflokk-
ur Sjálfstæðisflokksins í Stykkis-
hólmi og þingmenn í Vestnorræna
ráðinu voru hér um helgina. Svo var
röðin komin að umhverfisnefnd Al-
þingis. Nefndin er á sínu árlega
ferðalagi um landið. Nú var komið
að Vesturlandi. Skoðaður var þjóð-
garðurinn undir Jökli og gist á Hell-
issandi. Daginn eftir, þriðjudag var
haldið til Stykkishólms. Þar tók á
móti nefndinni starfsfólk Náttúru-
stofu Vesturlands sem hefur aðset-
ur í Stykkishólmi og fulltrúar
Breiðafjarðarnefndar. Róbert Arn-
ar Stefánsson, forstöðumaður Nátt-
úrustofu, sagði frá starfsemi stof-
unnar. Hún hefur verið starfrækt í
rúmt ár og er starfsemin að styrkj-
ast og aukast. Stöðugildin eru nú
2–3. Friðjón Þórðarson, formaður
Breiðafjarðarnefndar, kynnti gest-
um lögin um verndun Breiðafjarðar
og hvert væri hlutverk Breiðafjarð-
arnefnar samkvæmt þeim. Starfs-
maður Náttúrustofu Vesturlands
starfar fyrir nefndina og sinnir þeim
verkefnum sem þarf að leysa á veg-
um hennar.
Að lokum bauð bæjarstjóri gest-
um í mat á Narfeyrarstofu.
Vel mettir og fróðari héldu um-
hverfisnefndarmenn áleiðis heim og
fóru nýja veginn yfir Vatnaheiði
sem hefur breytt samgöngumálum
Snæfellinga mjög svo til hins betra.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Umhverfisnefnd Alþingis heimsótti Stykkishólm en með henni á mynd-
inni eru bæjarstjóri, starfsfólk Náttúrustofu og fulltrúar í Breiðafjarð-
arnefnd. Merkilega er bjart yfir hópnum þrátt fyrir ausandi rigningu.
Þingmenn sækja
til Stykkishólms
Stykkishólmur