Morgunblaðið - 20.10.2002, Blaðsíða 6
FRÉTTIR
6 SUNNUDAGUR 20. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
VIKAN 13/10 – 19/10
ERLENT
INNLENT
ÍSLENSK erfðagrein-
ing hefur krafist þess að
Persónuvernd leggi fram
tímaáætlun vegna örygg-
isúttektar á miðlægum
gagnagrunni á heilbrigð-
issviði sem hafi tafist úr
hófi fram. Persónuvernd
segir á móti að ÍE hafi
ítrekað óskað eftir að
breyta hönnun gagna-
grunnsins sem hafi hægt
á úrlausn málsins.
FORSETI Íslands fór í
vikunni í þriggja daga
opinbera heimsókn í
Húnaþing. Forsetinn kom
víða við, heimsótti
Kántríbæ, slóðir Grettis
sterka og auk þess fjöl-
mörg fyrirtæki og stofn-
anir.
HALLDÓR Ásgrímsson
utanríkisráðherra gekkst
undir aðgerð vegna
meins í blöðruhálskirtli í
vikunni. Halldór verður í
veikindaleyfi um nokkurt
skeið en ekki verður skip-
aður staðgengill á meðan
ráðherra er á landinu.
ÍSLENSKA landsliðið í
knattspyrnu vann 3:0-
sigur á Litháen í und-
ankeppni Evrópumótsins
í knattspyrnu. Heiðar
Helguson skoraði eitt
mark og Eiður Smári
Guðjohnsen tvö mörk.
FLUGLEIÐIR til-
kynntu í vikunni að þær
hygðust lækka ódýrustu
fargjöld sín um tæpan
þriðjung. Þá kom m.a.
fram að írska lággjalda-
flugfélagið Ryanair hefur
verið í viðræðum við ís-
lenska aðila um að hefja
áætlunarflug til landsins
næsta sumar.
Kjaranefnd
úrskurðar um kjör
heilsugæslulækna
KJARANEFND felldi í vikunni úrskurð
um laun og önnur starfskjör heilsu-
gæslulækna sem taka á gildi 1. nóvem-
ber nk. Samkvæmt úrskurðinum geta
læknar valið á milli fastra mánaðarlauna
og samsettra launa.
Þórir Kolbeinsson, formaður Félags
íslenskra heimilislækna, segir að mis-
góðar kjarabætur felist í úrskurðinum
en að þar sé ekki tekið á meginkröfu
heimilislækna um starfsréttindi á borð
við aðra sérfræðinga. Lúðvík Ólafsson,
lækningaforstjóri Heilsugæslunnar í
Reykjavík, segir úrskurðinn fela í sér
mjög jákvæða breytingu fyrir heilsu-
gæslustöðvarnar og auka verulega svig-
rúm við skipulagningu á störfum lækna.
Að sögn Jóns Kristjánssonar heil-
brigðisráðherra má lauslega áætla að
kostnaðaraukinn vegna úrskurðarins
sé um 300 milljónir króna á ári.
Rætt um aðskilnað við
ríki og afhendingu
prestssetra á Kirkjuþingi
Á KIRKJUÞINGI sem sett var sl.
sunnudag sagði Karl Sigurbjörnsson
biskup m.a. í ræðu sinni að sér sýndist
að kirkjan þyrfti meðvitað að búa sig
undir að til lögskilnaðar ríkis og þjóð-
kirkju myndi koma. Vísaði biskup þar
m.a. í könnun Gallups sem sýndi að 68
af hundraði væru hlynnt aðskilnaði.
Sólveig Pétursdóttir, dóms- og kirkju-
málaráðherra, segir hins vegar að rík-
isvaldið muni ekki að fyrra bragði setja
aðskilnað ríkis og kirkju á dagskrá. Þá
var á Kirkjuþingi í vikunni m.a. rætt
um 150 milljóna króna tilboð kirkju-
málaráðherra vegna uppgjörs og af-
hendingar prestssetra en kirkjuþings-
menn lýstu yfir megnri óánægju með
tilboðið. Í tilboðinu felst að þjóðkirkjan
afsali sér rétti til bóta fyrir eignir sem
gengið hafa undan prestssetrum í
umsjá ríkis frá árinu 1907.
Mannskætt
tilræði á Balí
HÁTT í tvöhundruð manns fórust í
sprengjutilræði á ferðamannaeynni
Balí laugardaginn 12. október. Er
þetta skæðasta hryðjuverk sem unnið
hefur verið í Indónesíu. Flest fórnar-
lambanna voru erlendir ferðamenn og
voru þeir af yfir 20 þjóðernum; yfir 100
voru Ástralar. Alls sprungu þrjár
bílsprengjur, allar svo til samtímis. Sú
allrastærsta sprakk fyrir utan nætur-
klúbb á Kuta-ströndinni, fjölsóttum
ferðamannastað. Mörg líkin voru svo
illa brunnin og tætt að beita þarf
DNA-erfðaefnisgreiningu til að bera
kennsl á þau. Auk þeirra 188 sem stað-
fest var að hefðu farizt var enn margra
saknað og því óljóst hver heildarfjöldi
fórnarlamba var. Hátt í 300 slösuðust,
margir eru með alvarleg brunasár.
Rannsóknarlögreglumenn m.a. frá
Ástralíu, Bretlandi og Bandaríkjunum
komu indónesískum lögregluyfirvöld-
um til aðstoðar við rannsóknina á til-
ræðinu og leitina að ódæðismönnun-
um. Stjórnvöld margra vestrænna
ríkja réðu ríkisborgurum sínum frá
því að dvelja í Indónesíu. George W.
Bush Bandaríkjaforseti sagðist gera
ráð fyrir að hryðjuverkasamtökin al-
Qaeda hefðu staðið að tilræðinu. Ítrek-
aði hann kröfur um að Megawati Suk-
arnoputri Indónesíuforseti brygðist
harkalega við, en Bandaríkjamenn
höfðu, áður en voðaatburðirnir urðu á
Balí, þrúst mjög á að indónesísk
stjórnvöld tækju harðar á íslömskum
öfgahópum í landinu. Indónesíska lög-
reglan handtók á laugardag þekktan
múslimaklerk, Abu Bakar Bashir, sem
grunaður er um vera andlegur leiðtogi
Jemaah Islamiyah, samtaka öfgasinn-
aðra múslima sem talin eru vera í
tengslum við al-Qaeda. Á föstudag
undirritaði Indónesíuforseti tvær
neyðartilskipanir sem veita stjórn-
völdum auknar valdheimildir til að
uppræta starfsemi meintra hryðju-
verkahópa í landinu.
STJÓRNVÖLD í
Bandaríkjunum telja að
Norður-Kóreumenn ráði
yfir tveimur kjarnorku-
sprengjum, unnum úr
plútoni, að því er fram
kom á fimmtudag. Áður
höfðu þær fréttir vakið
sterk viðbrögð að Norð-
ur-Kóreumenn hefðu við-
urkennt að hafa unnið að
gerð kjarnorkusprengju
úr auðguðu úrani á und-
anförnum árum, þvert á
samkomulag frá 1994.
AÐ minnsta kosti þrír
létust og tuttugu til við-
bótar slösuðust þegar
sprengja sprakk í stræt-
isvagni í einu úthverfa
Manila, höfuðborgar Fil-
ippseyja, á föstudag. Sjö
manns féllu og yfir 100
slösuðust í öðru sprengju-
tilræði sem framið var í
borginni Zamboanga í
suðurhluta Filippseyja á
miðvikudag. Benti allt til
þess að hryðjuverkamenn
hefðu verið að verki.
BANDARÍKIN munu á
næstu dögum leggja fram
ný drög að ályktun um
vopnaeftirlit í Írak, sem
tekin yrði til atkvæða-
greiðslu hjá öryggisráði
SÞ, en þar verður tekið
tillit til afstöðu Rússa, að
því er greint var frá í
vikulok.
VLADIMÍR Kramník,
heimsmeistari í skák, og
Deep Fritz, sterkasta
skáktölva í heimi, gerðu
jafntefli í sjöundu einvíg-
isskákinni á fimmtudag.
Stóðu leikar þá jafnt, 3,5
vinningar gegn 3,5. Úr-
slitaskákin var tefld í
gær.
PÁLL Magnússon, framkvæmda-
stjóri samskipta- og upplýsingasviðs
Íslenskrar erfðagreiningar, ÍE, seg-
ir að það sé efnislega rangt hjá Per-
sónuvernd að segja að fyrirtækið
hafi sífellt viljað breyta hönnun mið-
læga gagnagrunnsins á heilbrigðis-
sviði.
Eins og fram kom í Morgun-
blaðinu á föstudag hefur Persónu-
vernd svarað bréfi sem stofnuninni
barst frá ÍE 14. þessa mánaðar þar
sem öryggisúttekt Persónuverndar
á gagnagrunninum er gagnrýnd.
„Framsetning Persónuverndar í
bréfinu lýsir mjög vel í hnotskurn
því vandamáli sem við höfum þurft
að glíma við í þessu máli. Hafa ber í
huga að það er verið að setja saman
öryggisstaðla fyrir svona gagna-
grunn í fyrsta sinn í heiminum. Eðli-
lega erum við í þessu ferli stöðugt að
rekast á tæknileg úrlausnarefni og
við höfum komið tillögum jafnharð-
an til Persónuverndar um það
hvernig við viljum leysa þau. En í
hvert sinn núllstillir Persónuvernd
verkið,“ segir Páll og líkir þessu við
ef starfsmenn ÍE væru að ganga
með starfsmönnum Persónuverndar
yfir Kjöl. Í hvert sinn sem komið
væri að einhverju vatnsfalli þá vildu
menn snúa við og hefja gönguferð-
ina frá byrjunarreit. „Í stað þess að
taka á því verkefni að komast yfir
lækinn þá er alltaf snúið við og byrj-
að upp á nýtt.“
Í svarbréfi Persónuverndar kem-
ur m.a. fram að skortur hafi verið á
gögnum frá Íslenskri erfðagrein-
ingu, engin gögn hafi borist frá síð-
astliðnu vori. Vegna þessa segir Páll
að 22. mars sl. hafi Persónuvernd
skrifað heilbrigðisráðuneytinu og
lýst því yfir að stofnunin hafi stöðv-
að öryggisúttektina vegna lögfræði-
legra álitaefna. Páll segir að eðli
málsins samkvæmt hafi ÍE ekki sent
Persónuvernd gögn eftir þetta, enda
engin úttekt í gangi samkvæmt bréfi
stofnunarinnar sjálfrar.
ÍE um svar Persónuverndar vegna gagnagrunns
Rangt að ÍE hafi viljað
breyta hönnuninni
NÝLEGA komu tíu vinir saman í
bílskúrnum heima hjá Sverri Her-
mannssyni, 13 ára, í Grafarvogi í
þeim tilgangi að spila tölvuleikinn
Counter strike (Gagnárás). Dreng-
irnir komu sér fyrir í skúrnum með
tíu tölvur og spiluðu í fóra daga
samfleytt.
Að sögn Sverris er leikurinn
mjög vinsæll meðal ungmenna en
hópurinn þeirra er eina skipulagða
liðið í Húsaskóla sem spilar leikinn
að því er hann best veit. Hann segir
að fjölmargir spili leikinn á Netinu
auk þess sem árlega komi nokkur
hundruð manns saman og spili
Counter Strike og Quake á svoköll-
uðum Skjálftamótum. Drengirnir
eru flestir á fjórtánda ári og ganga
undir nafninu RDM þegar þeir spila
saman.
Í stuttu máli er hópnum skipt í
tvö lið og á annað liðið að reyna
koma fyrir sprengjum á víð og dreif
á meðan hitt liðið á að reyna að af-
tengja þær. Gefin eru stig sam-
kvæmt árangri.
Frá árinu 1999 hafa nokkur
hundruð manns komið saman fjór-
um sinnum á ári á Skjálftamótum.
Hinn 1.–3. nóvember nk. verður
Skjálfti 4, 2002, haldið í íþróttahúsi
HK í Kópavogi þar sem fjölmörg lið
munu etja kappi hvert við annað.
Búast má við að 500–600 kepp-
endur taki þátt í því.
Ljósmynd/Hermann Sverrisson
Strákarnir æfðu sig af kappi í „Gagnárás“ um síðustu helgi í bílskúrnum hjá Sverri.
Spiluðu
tölvuleik í
bílskúrnum
10 félagar í hópi hundraða ungmenna sem spila „Gagnárás“