Morgunblaðið - 20.10.2002, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 20.10.2002, Blaðsíða 28
SÚ SEM þetta skrifar erstödd á Spáni þegarþetta er skrifað. Einsog sést á ritmáli mínu er ég í fríi og vona að þessi yf- irgengilega afslappaði hjúpur sem hefur vafið sig utan um mig verði ekki til frekari traf- ala hér. Það er svolítið merkilegt að vera í fríi, innan um aðra sem eru í fríi. Sérstaklega þegar fríið snýst um lítið annað en að vera í fríi. Í þessu frí-ástandi fer maður að taka eftir öllu mögulegu sem venjulega fer framhjá manni, en er hið merkilegasta þegar að er gáð (að eigin mati að minnsta kosti). Í fríinu er myndavélin á lofti öllum stundum, þótt hún fari annars aldrei úr hulstrinu nema við hátíðleg tækifæri – hversdagurinn í fríi er ekki grár heldur í Kodak-color. Í fríum hættir náunginn líka að vera hversdagslegur og ým- islegt sem hann gerir verður furðuleg ráðgáta. Í pínulitlu strandbyggðinni þar sem ég hef dvalið und- anfarið búa ýmsir áhugaverðir karakterar. Konan sem á alla kettina, fólkið með hjólbör- urnar, síðhærði barnabókarit- höfundurinn sem situr allan daginn á strandbarnum og handskrifar bækur sínar; það er í raun ótrúlegt hvað mikið af sérstöku fólki hefur safnast saman og keypt sér hús við sömu litlu ströndina. Hér er talsvert mikið af Norður- Evrópubúum sem eru hættir að vinna og vilja eyða hvers- deginum í betra loftslagi, en einnig nokkuð af Spánverjum. Mér skilst að venjulega logi hér allt í nágrannaerjum, enda gefi þær strandlífinu spennu og lit. Fólki finnist líka ofsa- lega þægilegt að verstu áhyggjur þeirra séu af því hvort einhver reisi vegg hér eða þar, eða planti gróðri inn fyrir lóðamörkin hjá því. Þá eru illskeyttar bréfasendingar milli granna daglegt brauð og þeir hóta málsóknum í allar áttir. Að vísu var gert sögulegt vopnahlé fyrir fáeinum árum, en þá tóku allir íbúar strand- byggðarinnar sig saman og örkuðu með mótmælaspjöld upp í þorpið þar sem stjórn- sýsla héraðsins er til húsa. Til- efnið voru áform um að reisa næturklúbb við ströndina. Höfðu íbúarnir órækar sann- anir fyrir því að þar ætti að fara fram skipulagt vændi. Því gengu þeir fylktu liði að ráð- húsinu með skilti, áletruð ,,No putas!“. Gamlar svartklæddar ekkjur í þorpinu grétu af gleði yfir málstaðnum og bættust í hóp mótmælenda, þangað til héraðstjórnin sá sér engan annan kost en að afturkalla leyfið fyrir fyrirhuguðum næt- urklúbbi. Ég nefndi áðan hjólböru- fólkið, en það eru þýsk hjón sem eru stöðugt á ferðinni um strandbyggðina, hvort með sínar grænu plasthjólbör- urnar. Þau keyra þessar hjól- börur mörgum sinnum á dag milli hússins síns og bílastæð- anna þar sem litli sendi- ferðabíllinn þeirra stendur. Mér hefur aldrei tekist að sjá hvað það er sem þau eru að flytja (en eitthvað hlýtur það að vera) en ég hef margoft séð ofan í tómar hjólbörurnar. Þetta minnir á gamla sögu af Keflavíkurflugvelli um mann sem fór regulega í gegnum tollinn með tómar hjólbörur. Tollverðirnir botnuðu ekkert í því hvað maðurinn væri eig- inlega að gera, voru sann- færðir um að hann hefði óhreint mjöl í pokahorninu, en alltaf voru börurnar tómar. Einn daginn kveiktu þeir svo á perunni – hann var að smygla hjólbörum. En fólkið hér, ég veit ekki hvort það græðir eitthvað á því að keyra tómar hjólbörur milli húss og bíla- stæðis mörgum sinnum á dag. Mér hefur dottið ýmislegt í hug (hugmyndaflugið litast mjög af glæpasögunum sem lesnar eru í fríinu), og pen- ingaþvætti er uppáhalds til- gátan mín í bili, ég vil ekki hugsa um neitt verra að minnsta kosti. Svo fá sápuóperuhugs- anirnar að leika lausum hala þegar farið er inn til Marbella þar sem mjög ríkir millar halda til. Snekkjuhöfnin þar er engu lík og maður trúir því varla að ,,eitt fólk“ eigi í alvör- unni sumar þessar snekkjur sem eru á stærð við gömlu Akraborgina. Það er gaman að labba á milli allra fínu búð- anna þarna og máta kjóla og kápur sem kosta milljónir (það má alveg máta) og ekki síður gaman að skoða konurnar sem eru að máta af meiri alvöru en ég. Tvær þeirra vöktu sér- staklega athygli mína á búða- rápinu. Önnur var á tíræð- isaldri og hefði getað verið Barbara Cartland ef maður vissi ekki betur. Platínuljóst hárið var eins og hjálmur sem haggaðist ekki á höfðinu á meðan hún trítlaði um búðina hálfklædd í glænýju vetrarlín- una frá Roberto Cavalli, sem er nota bene með frumskóg- arþema í ár. Á meðan hún leit- aði að enn fleiri tígrisdýra- og hlébarðamynstruðum buxum, náttkjólum og slæðum var pínulitli hvíti kjölturakkinn hennar að leika sér á buxna- skálminni hjá mér. Ég þorði ekki að hrista hann svo harka- lega af mér (hann var svo lítill og svo fínn – með demants- skreytta ól um hálsinn), reyndi að beina honum of- urvarlega burt, en þegar hann byrjaði að urra og naga hætti mér að lítast á blikuna og þá komu búðarkonurnar mér til bjargar og tóku hann burt, gamla frúin leit ekki einu sinni við. Önnur kona var á svip- uðum rúnti og ég, sá hana í nokkrum búðum. Svona tæp- lega fertug, há og grönn – örugglega fyrrverandi fyr- irsæta, íklædd nýju vetrarlínu Versace frá toppi til táar. Hún keypti sér ýmislegt, alltaf eitt- hvað í hverri búð, en fyrir utan beið maður sem var nær helm- ingi eldri en hún og náði henni upp í mitti. Hann kom bara inn til að borga. Ég held að ég segi alveg satt þegar ég held því fram að það sé miklu betra að máta bara í þykjustunni heldur en að standa í ein- hverju svona samkomulagi. Hvað veit ég annars? Flest af því sem manni dettur í hug um aðra er tóm vitleysa. Sér- staklega þegar maður er í fríi og hefur allt of mikinn tíma til að upphugsa svona lagað. Kannski þætti mér kattakon- an, hjólbörufólkið og síðhærði rithöfundurinn ekki neitt merkileg ef þau byggju við hliðina á mér í Vesturbænum – ég tæki líklega ekki einu sinni eftir þeim. Eða kannski búa þau við hliðina á mér eftir allt saman? Ég ætla að athuga það þegar ég kem heim. Birna Anna á sunnudegi Morgunblaðið/Jóra Í fríi bab@mbl.is LISTIR 28 SUNNUDAGUR 20. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ E ITT hið mikilvægasta í lista- og menningarlífi hverrar þjóðar er umræða um það sem borið er á borð fyrir listnjótendur. Svo mikilvæg er þessi umræða að hver þjóð sem nær að leiða hana verður jafnframt leiðandi í listum. Þannig var það til dæmis með Bandaríkjamenn þegar þeim auðnaðist að ná kyndlinum af Evrópumönnum á eftirstríðsárunum. Það var ekki aðeins í krafti ágætra lista- manna sem sýndu það og sönnuðu að þeir stóðu fyllilega jafn- fætis starfsfélögum sínum austan Atlansála, heldur einnig og ekki síst fyrir tilstilli skörulegra gagnrýnenda og fræðimanna. Þeir stöppuðu óspart stálinu í landa sína uns þeim skildist að þeir voru ekki lengur eftirbátar evrópskra listamanna heldur jafnokar þeirra, ef ekki fetinu framar. Það voru ekki einasta Jackson Pollock, Willem de Kooning, Franz Kline, Barnett Newman, Mark Rothko og Ad Reinhardt sem lögðu grunninn að myndlistarveldi New York í kjölfar heimsstyrjaldarinnar síðari, heldur áttu gagnrýnendurnir Clem- ent Greenberg og Harold Rosenberg drjúgan hlut að máli. Þeir þekktu sinn vitj- unartíma og áttuðu sig fyrr en aðrir á þeirri merkilegu staðreynd að Bandaríkin voru ekki lengur hjálenda Evrópu á myndlistarsviðinu heldur leiðarljós. Án skeleggra skrifa þeirra er óvíst að bandarískir safnarar hefðu sýnt byltingarkenndri list samlanda sinna eins snemmborinn skilning og raun bar vitni. Þannig aðstoðuðu þeir heila kynslóð ungra framsækinna listamanna við að finna mátt sinn og megin gagnvart listunnendum sem ekki voru vanir að líta sér nær en að Signubökkum, eins og þeir og forfeður þeirra höfðu ætíð gert frá árdögum ameríska ríkjasambandsins. S tór hluti af listmenningarlegu uppeldi hverrar þjóðarer að hún finni til sín gagnvart því sem skapað er í nafnihennar. Þá tilfinningu hafa Íslendingar í ríkum mæligagnvart bókmenntum sínum, einkum fornbók- menntum. Þeir eru fáir sem ekki skilja hvílík vitundarverð- mæti eru fólgin í Njálu og öllum hinum aldagömlu ættarsög- unum, kviðunum og frásagnarbálkunum. Á öðrum sviðum lista er stolt okkar hins vegar í hálfgerðu skötulíki því að við vitum ekki hvar við stöndum í þeim efnum, né hvers við erum megn- ug. Ekki bætir úr skák að heiðarlega umræðu skortir á mörg- um sviðum lista, en hvergi eins tilfinnanlega og í myndlist. Þar má segja að hið litla sem um er rætt sé í formi digurbarkaláta, misvísandi skætings og ómengaðs dónaskapar. Það er eins og menn kunni ekki að hemja sig þegar þeir tala um þá sem eru á öndverðum meiði í skoðunum á myndlist. Heilu starfsstéttirnar eru ómaklega ataðar auri og fjöður blygðunarlaust dregin yfir þá framvindu sem mönnum er ekki að skapi. Sumir þeirra leyfa sér að hafa endaskipti á sögu- legum staðreyndum ef þróun mála er á aðra lund en þeim þykir ákjósanlegt. Þetta nær náttúrulega engri átt. Listasagan er ákveðin þróunarsaga, skjalfest og studd nákvæmum heim- ildum. Hún er ekki geðþóttaspuni hvers og eins, hversu dap- urlegur sem þeim finnst raunverulegur gangur hennar vera. Menn verða að beygja sig undir listasöguna eins og hverja aðra sagnfræði, ekki vegna þess að þeim líki eða mislíki það sem þeir sjá heldur hins, að það sem gerst hefur verður ekki máð af spjöldum sögunnar. Skætingurinn misvísandi virðist einmitt eiga sér upphaf í virðingarleysi manna fyrir sögulegum staðreyndum. Í íslensku listalífi er háður skotgrafarhernaður sem einna helst líkist kyrrstæðu og langdregnu stöðustríði eins og því sem fram fór í heimstyrjöldinni miklu fyrir hartnær níutíu árum. Öðrum meg- in víglínunnar liggja þeir sem telja að málaralistin sé dauð. Hinum megin bíða þeir færis sem álíta að öll önnur tegund tjáningar en málaralistin sé óalandi og óferjandi. Eins og nærri má geta um tilgang heimstyrjaldarinnar fyrri er skotgrafa- hernaður íslenskra listamanna til einskis annars en skemmta skrattanum. B áðar sveitir hafa nefnilega rangt fyrir sér. Málaralistiner langt frá því að vera dauð, en hún er einnig fjarriþví að vera það eina sem gefur myndlist samtímansgildi og merkingu. Hvort sem íslenskir listamenn vilja við það kannast eður ei þá lifir málaralistin í prýðilegri sátt og samlyndi við myndbandalist, ljósmyndalist, hvers konar rým- isskipan og tölvulist, eins og sannast raunar á öllum meiri hátt- ar listsýningum. Það er einungis í okkar litla og þröngsýna list- samfélagi sem heimsstyrjöldin fyrri er enn við lýði, list- unnendum til sárrar gremju og íslensku listalífi til ómælds tjóns. Máttleysi okkar og ósýnileiki á erlendum vettvangi er af- leiðing þessarar ófrjóu og afdönkuðu borgarastyrjaldar milli stríðandi listamanna. Enginn heilvita maður vill blanda sér í óheiðarlega og rætna umræðu þar sem hann á það á hættu að vera ataður auri fyrir starf sitt eða skoðanir. Fæstir Norður-Írar styðja öfgafyllstu fylkingar stríðandi afla. En þótt obbinn af Ulsterbúum kysu öðruvísi orðræðu og allt aðra tilveru eru það öfgarnar sem stjórna þar lögum og lofum. Þess vegna þegja þeir þunnu hljóði sem dreymir um betra ástand. Ástæða þagnarinnar er einföld: Þar sem hreintrúarstefna hefur náð að hreiðra um sig er allur skoðanamunur álitinn vatn á myllu kölska. Skorturinn á margbreytilegri og umburðarlyndri umræðu í íslensku myndlistarlífi virðist því standa í réttu hlutfalli við hreintrú stríðandi afla, en auðvitað á kostnað nútímalegar víðsýni. Listumræðan FULL FATHOM FIVE, frá 1947, eftir Jackson Pollock, var trúlega fyrsta slettimálverkið. Þar með hófst sigurganga bandarískrar list- ar á eftirstríðsárunum. AF LISTUM Eftir Halldór Björn Runólfsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.