Morgunblaðið - 20.10.2002, Side 12

Morgunblaðið - 20.10.2002, Side 12
12 SUNNUDAGUR 20. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ STÓR skjár hangir niður úr loftinu, fyr-ir aftan skreytt mahóní-skrifborðinog olíumálverkin af gengnum öld-ungum sem ljá herbergi alþjóða- tengslanefnd fulltrúadeildar Bandaríkjaþings yfirbragð sögulegs staðar. Niður af skjánum horfir næsta vitni nefnd- arinnar, þrisvar sinnum stærra en allir aðrir viðstaddir, í beinni útsendingu frá sendiráði Bandaríkjanna í Lundúnum. Nefndarformað- urinn Henry J. Hyde, repúblikani frá Illinois, sem sjálfur er engin smásmíði, lítur upp á skjáinn og segir: „Richard Perle vomir yfir okkur.“ Er Perle var aðstoðarvarnarmálaráðherra í forsetatíð Ronalds Reagans kölluðu mótherjar hann gjarnan „Myrkraprinsinn“ (Prince of Darkness) vegna afdráttarlausrar andstöðu hans við samninga við Sovétmenn um tak- mörkun vígbúnaðar. Nú er honum oft lýst sem helzta „hauk“ núverandi ríkisstjórnar í mál- efnum Íraks. Sem formaður varnarstefnuráðs- ins (Defence Policy Board), hóps áhrifamikilla utanríkismálasérfræðinga Repúblikanaflokks- ins sem veita varnarmálaráðherranum ráð- gjöf, hefur hann talsverð áhrif á stjórnarstefn- una. Hann talar reglulega við Donald H. Rumsfeld varnarmálaráðherra. Aðstoðarvarn- armálaráðherrann Paul D. Wolfowitz er vinur hans. En það er hlutverk hans utan stjórnarkreðs- anna – sem stjórnarmanns í American En- terprise Institute, stofnunar sem berst fyrir hagsmunum sjálfstæðra atvinnurekenda – sem skapar Perle aðstöðu til að geta leyft sér að hneykslast á öðrum. Á meðan frjálslyndir landar hans reyna að finna leiðir til að fá evr- ópska bandamenn í lið með sér áður en þeir ákveða að grípa til eigin ráða gegn Írak mælist Perle til þess að stríðsandstæðingurinn í þýzka kanzlarastólnum, Gerhard Schröder, segi af sér. Þegar vissir hermálasérfræðingar hvetja til að veitt verði svigrúm til að sannreyna hvort vopnaeftirlit skili árangri kemur Perle með ásakanir um friðkaupastefnu og rifjar þar með upp hvernig Neville Chamberlain, þáver- andi forsætisráðherra Bretlands, vanmat hættuna sem stafaði af Adolf Hitler. Fáir hugmyndafræðilegir skoðanabræður Perles leyfa sér að taka eins djúpt í árinni. En yfirlýsingar Perles um Írak hafa gert hann eft- irsóttan viðmælanda fjölmiðla – arabíska fréttasjónvarpsstöðin Al Jazeera hringir reglulega í hann, sem og dagblöð frá Tókýó til Toronto og fréttastöðvar úti um víða veröld. Líkt og vísir á kreddufastar hugmyndir heldur Perle áfram að skjóta orðaörvum sínum um öldur ljósvakans. Sumir þeirra sem sæti eiga í stjórninni í Washington eru þeirrar skoðunar að hamagangur hans sé til trafala. En margar af hugmyndum Perles hafa síðar reynzt enduróma í opinberum stefnumiðum ríkisstjórnar George W. Bush. Vikum saman hefur Perle fært rök fyrir því að markmiðið að eyða meintu gereyðing- avopnabúri Íraka feli óhjákvæmilega í sér það markmið að koma Saddam Hussein frá völd- um. Perle hefur varað íraska hershöfðingja við því að svo gæti farið að þeir yrðu dregnir fyrir rétt ákærðir fyrir stríðsglæpi ef þeir hrintu í framkvæmd skipunum Saddams um að beita efna- eða sýklavopnum. Bæði þessi atriði komu fyrir í ávarpi Bush forseta til bandarísku þjóðarinnar í liðinni viku. Áhrif Perles eru óbein. Hann er ekki í beinu sambandi við ræðuritara Hvíta hússins. Síð- asta skiptið sem hann veitti Bush ráðgjöf undir fjögur augu var á þeim tíma er hann tók þátt í herferð fyrir stækkun Atlantshafsbandalags- ins. Gagnrýnendum stjórnarstefnunnar finnst hins vegar áhrif Perles vera óhóflega mikil. „Rumsfeld, Cheney [varaforseti], Wolfowitz – þetta eru nýju íhaldsmennirnir, haukar, rök- rænir harðlínumenn,“ segir arabískur stjórn- arerindreki sem ekki vill láta nafns síns getið. „En svo er Perle, sem er algjör þráhyggju- maður. Það sem hann stendur fyrir er eins konar ný-heimsvaldastefna.“ Burtséð frá stjórnmálaumræðunni er Perle sérstakur maður – íhaldssamur áróðursmaður sem er veikur fyrir lífsins lystisemdum; virkur meðlimur í hópi heldri borgara Washington- borgar sem tekur ekki þátt í hefðbundnum vinnusýkisiðum borgarbúa, vopnabúnaðarsér- fræðingur sem á hápunkti kalda stríðsins gældi í alvöru við þá hugmynd að opna mat- gæðingsveitingastað. Það er enginn vafi á því að Perle, sem er 61 árs að aldri, nýtur nú um stundir hlutverks síns sem vandræðabarn ný-íhaldsmanna, sem eru skilgreindir á grundvelli óbilgjarnrar af- stöðu í utanríkismálum en róttækrar frjáls- hyggju í efnahagsmálum. Athugasemd Hydes þingmanns um að hann vomi yfir umræðunni um Írak lét Perle síðar svo ummælt: „Ég hefði átt að varpa þrumufleygum líka.“ En hann varar sig á því að gera ekki of mik- ið úr eigin hlutverki. „Ég hef verið í Wash- ington í mörg ár og það endar með því að mað- ur þekkir svo til alla,“ segir hann. „Svo að ef þú færð hugmynd áttu auðveldara með að koma henni fljótt í umferð. Það er í þessu sem það felst í raun að hafa áhrif í Washington. Þegar allt kemur til alls eru það gæði hugmynd- arinnar sem skipta máli, ekki að hún hafi kom- ið frá mér.“ Perle hefur haft allt á hornum sér varðandi Írak frá árinu 1987, þegar hann gagnrýndi þá- verandi Bandaríkjastjórn fyrir að hallast að því að styðja Íraka í stríði þeirra við Íran. Að- alröksemd hans var þá sú að Saddam Hussein væri hættulegri en klerkarnir í Teheran. Fyrir fjórum árum hóf hann að lýsa opinberlega efa- semdum um þá grundvallarreglu Bandaríkj- anna, að ráða ekki erlenda leiðtoga af dögum. Nú rekur hann opinskátt áróður fyrir því að hrekja Saddam frá og býður ekki upp á neinar málamiðlanir. Að afvopna Íraka án þess að skipta um stjórnarherra í Bagdad er ekki hægt, að hans mati. „Það er einfaldlega ekki hægt að láta stjórnartaumana á þessu landsvæði vera áfram í höndunum á þessum manni og ætlast til að það muni leiða til raunverulegrar afvopn- unar,“ sagði Perle í sjónvarpsviðtali hinn 6. október sl. Margir arabískir stjórnarerindrekar láta það enn fara fyrir brjóstið á sér að Perle skyldi hafa boðið þekktum andstæðingi Sádi-Araba að halda erindi fyrir Varnarmálaráðinu. Þeir telja að Perle hafi sjálfur fengið því áorkað að beina hug Bush forseta að Írak og þeir gruna hann um að ganga erinda Ísraelsstjórnar. Perle vísar öllu slíku á bug og bendir á að hann hafi árum saman tekið undir með Ísraelum sem talað hafa um áhættuna sem fylgir því að steypa Saddam. Henry S. Kissinger, fyrrverandi utanrík- isráðherra Bandaríkjanna, sem viðurkennir að hafa orðið að láta í minni pokann fyrir Perle í nokkrum tilvikum í valdataflinu í Washington, kallar Perle „ einn fárra frjórra manna“ sem til sé að dreifa í kringum valdamiðstöð Banda- ríkjanna. Á fyrirspurnafundi með hermálanefnd full- trúadeildar Bandaríkjaþings nýlega baðst repúblikanaþingmaðurinn Jim Saxton frá New Jersey afsökunar: „Ég vil sífellt kalla þig dokt- or Perle,“ tjáði hann manninum sem þá sat fyrir svörum. Perle hikaði aðeins, hugsanlega til að rifja upp doktorsritgerðina um al- þjóðlega samningatækni sem hann skildi eftir ókláraða í Princeton-háskóla. Í stað þess að ljúka henni hafði hann kosið að hella sér út í að hrinda hugmyndum í framkvæmd í Wash- ington. Hann hafði kosið líf áhrifa. „Ég lauk aldrei við doktorsritgerðina,“ tjáði Perle þing- manninum, og brosti. Snjall hauk- ur vomir yfir Washington AP Richard Perle í þættinum „Meet the Press“ á NBC-sjónvarpsstöðinni hinn 6. október sl. Washington. Los Angeles Times. ’ „Rumsfeld, Cheney,Wolfowitz – þetta eru nýju íhaldsmennirnir, haukar, rökrænir harðlínumenn,“ segir arabískur stjórnar- erindreki. „En svo er Perle, sem er algjör þrá- hyggjumaður. Það sem hann stendur fyrir er eins konar ný- heimsvaldastefna.“ ‘ RÖDDIN er kurteisleg. Pirrandi hvað hún er kurteisleg. „Vinsam- legast setjið vörurnar á færiband- ið.“ Sjálfsafgreiðslukassinn í Giant-stórversluninni virðist ekki skilja hvers vegna Corinne Wied- enthal á eitt andartak í erfið- leikum með að finna skrautlegt grasker á stafrófsröðuðum vöru- myndalista kassans. „Prófaðu að ýta á g,“ segir hún við dóttur sína, Jacquie Smith, sem er níu ára. Ekkert gengur. „Þetta er kúrbítur; prófum k. Sko, þarna kom það.“ Þá segir kassinn: „Vinsamlegast settu kúrbítinn á færibandið.“ En Wiedenthal er með marga kúrbíta. Ætli maður megi setja marga í einu? „Vinsam- legast settu kúrbítinn á færiband- ið,“ tónar kassinn – en alltaf jafn kurteislega. Wiedenthal setur kúrbítinn á bandið, en tekur hann svo aftur upp. „Ef þú ætlar að kaupa þessa vöru, settu hana þá á færibandið,“ segir kassinn vinsamlega. Wied- enthal er komin á fremsta hlunn með að löðrunga vingjarnlega snertiskjáinn með kúrbítnum, en situr á sér, og eftir smá stund er starfsmaður verslunarinnar kom- inn til bjargar. Fór hægt af stað Wiedenthal, sem er 44 ára, seg- ist í rauninni kunna vel við að nota sjálfsafgreiðslukassann í Giant- versluninni í Kingstowne- úthverfinu í Fairfax-sýslu í Virg- iníu, þrátt fyrir að það geti stund- um verið pirrandi. Það sem meiru skiptir, menn í nýlenduvöruversl- un telja að mistækt fólk á borð við Wiedenthal muni með tímanum taka ástfóstri við vélvirka sjálfs- afgreiðslukassa, og byggja þá skoðun sína á niðurstöðum mark- aðskannana og voninni um að vél- arnar muni draga úr kostnaði. Þessu var ýtt úr vör fyrir nokkrum árum og hefur gengið hægt, en nú telja menn að tími sjálfsafgreiðslu- kassanna sé að renna upp. Nærri lætur að fjórða hver stór- verslanakeðja í Bandaríkjunum bjóði nú upp á svona sjálfs- afgreiðslu, en þetta hlutfall var að- eins um sex prósent fyrir þremur árum. Nýleg könnun leiddi í ljós að um helmingur viðskiptavina þess- ara verslana notar sjálfs- afgreiðslukassana. Ráðgjafafyr- irtækið IHL gerir ráð fyrir að með auknum tækniframförum muni um 95% afgreiðslukassa verða sjálf- virkir í lok áratugarins. Ekki allir ánægðir „Þetta er svar við kröfum við- skiptavinanna um aukið hagræði,“ sagði Todd Hulquist, talsmaður IHL. „Þetta er til frambúðar.“ En það eru ekki allir ánægðir með þetta. „Þetta skiptir félagsmenn okkar alla máli vegna þess að þú sérð að kassaafgreiðslufólk kann að hafa minna upp og jafnvel missa vinnuna þegar fyrirtæki fara að nota þessa sjálfsafgreiðslu- kassa,“ sagði Jill Cashen, fulltrúi launþegasamtaka verslunarfólks. Sumir hafa líka áhyggjur af því sem viðskiptavinirnir kunni að missa af. Þar sem hraðbankar, sjálfsafgreiðsla á bensínstöðvum og verslun á Netinu er orðið dag- legt brauð byggist verslun sífellt minna á mannlegum samskiptum. Þjónusta við viðskiptavini „hefur sífellt orðið ópersónulegri und- anfarin fimm ár“, sagði Jeff Metzger, útgefandi fagtímaritsins Food World. „Fyrirtæki sem eru í eigu hluthafa leita sífellt að auk- inni hagkvæmni á öllum sviðum. Vinnutími er styttur, starfsfólki fækkað, þjálfun starfsfólks er ekki eins ítarleg og hún var. Það ætti ekki að koma neinum á óvart að dregið hafi úr þjónustu við við- skiptavinina.“ Borga sig á 15 mánuðum Sjálfvirki afgreiðslukassinn er að flestu leyti svipaður venjuleg- um kassa. Hann skynjar þegar við- skiptavinur kemur að honum og segir viðskiptavininum hvað hann eigi að gera. Viðskiptavinurinn rennir strikamerkjum á vörum yf- ir skynjara kassans. Þegar vigta þarf vöru, eins og t.d. kúrbít eða kál, velur viðskiptavinurinn mynd af vörunni á snertiskjá. Kassarnir taka við reiðufé, greiðslukortum, krítarkortum og ávísunum. Svo setur viðskiptavinurinn vörurnar sjálfur í poka. Samkvæmt athugunum IHL borga sjálfvirku kassarnir sig upp á um það bil 15 mánuðum, þar sem þeir draga úr launakostnaði, fjölga viðskiptavinum og taka minna gólfpláss en hefðbundnir af- greiðslukassar og gefa því meira rými fyrir vörur. Hver kassi kost- ar um 24.000 dollara, eða um tvær milljónir króna, og árlegt viðhald kostar um fjögur þúsund dollara (um 340 þús. kr). „Vinsamlegast settu kúrbítinn á færibandið“ Sjálfvirkum af- greiðslukössum í stórverslunum fer fjölgandi The Washington Post Corinne Wiedenthal og dóttirin Jacquie reyna að finna út úr því hvernig maður segir sjálfsafgreiðslukassanum að maður sé að kaupa kúrbít. ’ Það ætti ekki aðkoma neinum á óvart að dregið hafi úr þjónustu við við- skiptavinina. ‘ Washington. The Washington Post.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.