Morgunblaðið - 20.10.2002, Side 49
KIRKJUSTARF
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. OKTÓBER 2002 49
Skoðið nýja heimasíðu fyrirtækjadeildar með
ítarlegri söluskrá og gagnlegum fróðleik:
www.husid.is
Höfum til sölu nokkrar stórar sérverslanir, heildverslanir og iðnfyrirtæki í
ýmsum greinum fyrir rétta kaupendur. Ársvelta 100-1000 m. kr.
Rekstrarleiga. Þekktur suðrænn veitingastaður til leigu. Fullbúinn og í
fullum rekstri. 100 sæti. Gott tækifæri fyrir duglegt fólk.
Fullbúin naglaverksmiðja með nýjum tækjum sem passar í lítið húsnæði
eða jafnvel bílskúr. Hentar til flutnings út á land. Verð aðeins 3,5 m. kr.
Gömul og þekkt sérverslun við Laugaveg með nærföt og náttföt. Góð
evrópsk umboð. Velta um 2—3 m. kr. á mánuði sem hægt er að marg-
falda. Ágætur hagnaður. Auðveld kaup.
Lítill iðnrekstur til sölu. Mjög hentugur fyrir verndaðan vinnustað. 4—6
störf.
Mjög þekkt veitingahús í miðbænum. Langt skemmtanaleyfi. Ársvelta
120 m. kr. Mikill og vaxandi hagnaður.
Rekstur bónstöðvarinnar Löðurs er til leigu. Gott tækifæri fyrir duglega
menn, sem vilja byrja eigin rekstur.
H-búðin, Garðatorgi. Rótgróin fataverslun með eigin innflutning.
Skemmtilegt tækifæri fyrir tvær samhentar konur.
Bílaverkstæði í Hafnarfirði. Gott húsnæði og vel tækjum búið. Mjög
mikið að gera. Hentugt fyrir 3—4 starfsmenn.
Lítil en þekkt smurbrauðstofa og veisluþjónusta með góð tæki og mikla
möguleika.
Stór austurlenskur veitingastaður í miðborginni. Mikil velta, góður
hagnaður.
Rekstrarleiga með kauprétti. Þekkt videósjoppa í Breiðholti með góða
veltu. Gott tækifæri fyrir byrjendur sem eiga ekki mikla peninga.
Lítil heildverslun, með góða markaðsstöðu í matvöru, óskar eftir sam-
einingu til að nýta góð tækifæri.
Þekkt íþróttavöruverslun. Ársvelta 25—30 m. kr. Auðveld kaup.
Lítil verslun og verkstæði með reiðtygi og aðrar hestavörur. Gott fyrir
laghentan hestamann.
Kaffi- og veitingahúsið Vivaldi, Borgarnesi. Ársvelta 20 m. kr. Rekstrar-
leiga kemur vel til greina.
Vel þekkt húsgagnaverslun. Eigin innflutningur. Ársvelta 24 m. kr. Mjög
hagstætt verð.
Heildverslun með tæki og vörur fyrir byggingariðnaðinn. Ársvelta 130
m. kr. Góður hagnaður um margra ára skeið. Hagstætt verð.
Traustur bifvélavirki óskast sem meðeigandi og framkvæmdastjóri að
alhliða bílaþjónustufyrirtæki á Selfossi. Gott húsnæði og vel tækjum
búið.
Rótgróin deild úr heildverslun með búsáhöld. Sala 10,2 m. kr. á ári,
framlegð 5,0 m. kr.
Innflutnings- og þjónustufyrirtæki með vinnuvélar, lyftara o.fl. Ársvelta
20—30 m. kr. Ágætur hagnaður.
Ein stærsta og besta videósjoppa borgarinnar. Ársvelta 100 m. kr. Mikill
hagnaður. Góð fjárfesting.
Rótgróið veitingahús við Bláa lónið. Góður og vaxandi rekstur í eigin
húsnæði á þessum fjölsóttasta ferðamannastað landsins.
Rótgróin deild úr fyrirtæki, sala mælibúnaðar fyrir framleiðslu- og mat-
vælafyrirtæki. Framlegð 5 m. kr. á ári.
Lítil en vel þekkt heildverslun með iðnaðarvélar. Hentar vel fyrir 1-2
starfsmenn, sérstaklega smiði.
Stór krá í miðborginni. Ein stærsta krá borgarinnar.
Þekkt innrömmunarfyrirtæki með eigin innflutning. Ársvelta um 20 m.
kr. Meðeign eða sameining möguleg.
Stór sérhæfð trésmiðja með góðan hagnað. Gott tækifæri fyrir fyrirtæki
í svipaðri starfsemi.
Barnavöruverslun og heildverslun. Góð umboð. Ársvelta 25 m. kr.
Trésmiðja í nágrenni Reykjavíkur. Eigið húsnæði. Ágæt tæki.
Stórt samkomuhús í nágrenni Reykjavíkur með góðri aðstöðu fyrir
dansleiki, veislur og fundi. Ársvelta 40-50 m. kr. Gott tækifæri fyrir fag-
menn.
Stór heildverslun með iðnaðarvélar. Ársvelta 200 m. kr.
Suðurlandsbraut 50 (Bláu húsin v/Faxafen)
Sími 533 4300, GSM 820 8658
DAGUR hjónabandsins verður
haldinn hátíðlegur í Akra-
neskirkju í dag, sunnudag. Er
þetta fjórða árið í röð sem guðs-
þjónusta að hausti er tileinkuð
hjónabandinu sérstaklega og
hefst hún kl. 14. Flutt verður
stutt prédikun um ástina og kær-
leikann. Kirkjukórinn syngur
brúðkaupssálma og nýráðinn org-
anisti Akraneskirkju, Sveinn Arn-
ar Sæmundsson, leikur nokkur
falleg lög. Sigríður Elliðadóttir
syngur einsöng. Að guðsþjónustu
lokinni er öllum kirkjugestum
boðið til kaffisamsætis í Safn-
aðarheimilinu Vinaminni. Þetta er
guðsþjónusta sem ástfangin hjón
á öllum aldri mega ekki missa af!
Nú býður þú ástinni þinni til
kirkju! Sýnum hjónabandinu þá
ræktarsemi sem það á skilið. Allir
velkomnir. Sóknarprestur.
Hjóna- og para-
námskeið á Akranesi
FIMMTUDAGINN 24. október nk.
verður haldið hjóna- og para-
námskeið í Safnaðarheimilinu
Vinaminni á Akranesi. Leiðbein-
andi verður sr. Þórhallur Heim-
isson – en meira en 4.000 manns
hafa setið sams konar námskeið
hjá honum á undanförnum árum.
Fjallað verður um samskipti
kynjanna; vonir, væntingar og
vonbrigði – og hvernig má
styrkja samskipti og tjáskipti.
Enginn þarf að tjá sig frekar en
hann vill. Aðeins 14 til 18 pör
taka þátt í hverju námskeiði.
Námskeiðsgjald er 3.000 kr. fyrir
parið. Súpa og kaffiveitingar
innifaldar. Námskeiðið verður
haldið frá kl. 18.30 til 22. Skrán-
ing í síma 433-1500 alla virka
daga frá kl. 10 til 16. Sýnið
hjónabandinu þá ræktarsemi sem
það á skilið og sækið þetta nám-
skeið! Akraneskirkja.
Götusmiðjumessa
í Fríkirkjunni í
Reykjavík
UM nokkurt skeið hefur Fríkirkj-
an í Reykjavík stutt starf Götu-
smiðjunnar í því mikla og góða
starfi sem þar er unnið. Starf
Götusmiðjunnar má rekja til vors-
ins 1998 þegar Götusmiðjan hóf
rekstur meðferðarheimilisins
Virkisins fyrir ungmenni á aldr-
inum 16 til 20 ára. Í lok árs 1999
flutti Götusmiðjan meðferð-
arheimilið í veglegan húsakost á
Árvöllum, Kjalarnesi, en þar er
rými fyrir 18 skjólstæðinga.
Markmið Götusmiðjunnar er að
aðstoða ungt fólk sem hefur leiðst
út úr hinum hefðbundna sam-
félagsramma og inn í heim fíkni-
efna og afbrota, til að fóta sig og
koma lífi sínu í jákvæðan farveg.
Í þeirri sérhæfðu unglinga-
meðferð sem boðið er upp á að
Árvöllum er lögð áhersla á að
einstaklingurinn ber alltaf ábyrgð
á sjálfum sér. Það er því skilyrði
að unglingurinn óski sjálfur eftir
því að komast í meðferð.
Meðferðin, hugræn atferl-
ismeðferð, er m.a. byggð upp af
meðferðarfundum, einstaklings-
viðtölum, fyrirlestrum, verkefna-
vinnu, AA-fundum, tómstundum,
hreyfingu og útivist. Nemendur
við Árvelli geta sinnt formlegu
námi á meðan á dvöl þeirra
stendur, hvort sem um er að ræða
nám við grunnskóla eða fram-
haldsskóla. Framkvæmd þess er
ávallt í samvinnu kennara Árvalla
og námsráðgjafa/kennara við-
komandi skóla. Að auki má segja
að meðferð við Árvelli sé í heild
sinni lífsleikninám. Lífsleiknin
gefur nemendum okkar betra inn-
sýn í hið daglega líf. Þar gefst
nemendum einnig tækifæri á að
finna ný áhugamál og/eða end-
urvekja gömul. Mörg ungmenni
hafa fundið nýjan grundvöll, og í
raun fundið lífi sínu jákvæðan
farveg eins og sjá má í eftirfar-
andi umsögn ungrar stúlku.
„Þessar níu vikur sem ég var
hjá Götusmiðjunni varð mín and-
lega vakning. Ég gerði mér grein
fyrir því að það er þess virði að
lifa þessu lífi, það er enginn ann-
ar en ég sem stjórna því hvernig
mér líður og mér hefur aldrei lið-
ið betur.
Ég er að hefja nýtt líf, flutti
aftur inn til foreldra minna og
byrjaði að vinna. Líf mitt er mjög
venjulegt í dag, það er alltaf eitt-
hvað að gerast og ég verð nið-
urdregin inni á milli og það er
allt í lagi, lífið er enginn dans á
rósum og ég veit að það er sama
hversu ömurlegt allt virðist vera,
þá verður það aldrei jafn öm-
urlegt og líf mitt var í neyslu.“
Sameiginleg guðsþjónusta Götu-
smiðjunnar og Fríkirkjunnar
verður á sunnudag klukkan 11 og
þangað eru allir velkomnir.
Hjörtur Magni Jóhannsson.
Dagur hjóna-
bandsins
á Akranesi
Hallgrímskirkja: Æskulýðsfélagið Örk
mánudagskvöld kl. 20 í kórkjallara.
Laugarneskirkja: 12 spora hópar koma
saman í safnaðarheimilinu mánudag kl.
20. Umsjón Margrét Scheving sálgæslu-
þjónn. (Sjá síðu 650 í Textavarpi)
Neskirkja: Fjölskyldufræðsla í kvöld kl. 20.
Félagsráðgjafarnir Helga Þórðardóttir for-
stöðumaður og Kristín Guðmundsdóttir hjá
Félagsþjónustunni Lausn segja frá nýrri
hugmyndafræði í ráðgjöf og fjölskyldumeð-
ferð. Kaffiveitingar að loknum fyrirlestri,
umræður og stutt helgistund sem sr. Örn
Bárður Jónsson leiðir. Kirkjustarf fyrir 6 ára
börn mánudag kl. 14. Sögur, leikir, föndur
og fleira. Tíu til tólf ára starf (TTT) mánudag
kl. 16.30. Litli kórinn-kór eldri borgara
þriðjudag kl. 16.30. Stjórnandi Inga J.
Backman. Allir velkomnir.
Seltjarnarneskirkja: Æskulýðsfélag kl. 20.
(8.–10. bekkur)
Árbæjarkirkja: Æskulýðsfélagið Lúkas
með fund í safnaðarheimilinu kl. 20. Mánu-
dagur. Kl. 15.15. TTT í safnaðarheimilinu.
Fella- og Hólakirkja: Mánudagur: kl. 13–
16.30. Kirkjustarf fyrir fullorðna í umsjón
Lilju, djákna. Spjallað, fræðst, kaffi og
spjall. Bænastund kl. 15.15 í kirkjunni. Fyr-
irbænaefnum má koma til djákna í s.
557 3280. Þeir sem óska eftir akstri láti
vita í sama síma fyrir hádegi á mánudögum.
Æskulýðsstarf fyrir 8.–10. bekk á mánu-
dagskvöldum kl. 20.
Grafarvogskirkja: Bænahópur kl. 20. Tekið
er við bænarefnum alla virka daga frá kl. 9–
17 í síma 587 9070. Mánudagur: Kirkju-
krakkar fyrir börn 7–9 ára í Engjaskóla kl.
17.30–18.30. KFUK fyrir stúlkur 9–12 ára í
Grafarvogskirkju kl. 17.30–18.30. TTT fyrir
börn 10–12 ára í Engjaskóla kl. 18.30–
19.30.
Hjallakirkja: Æskulýðsfélag fyrir 9. og 10.
bekk kl. 20. Mánudagur: Æskulýðsfélag fyr-
ir 8. bekk kl. 20.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Mánudagur: Ung-
lingar 16 ára og eldri kl. 20–22.
Bessastaðasókn. TTT-starf fyrir 10–12 ára
drengi og stúlkur kl. 17.30–18.30 í stofu
104 í Álftanesskóla. Rúta ekur börnunum
heim að loknum fundi. Skemmtileg dag-
skrá. Mætum öll.
Vídalínskirkja. Fjölbreytt æskulýðsstarf fyr-
ir 9–12 ára drengi í safnaðarheimilinu
Kirkjuhvoli kl. 17.30–18.30 í umsjón
KFUM.
Lágafellskirkja. Mánudagur: Al-Anon fund-
ur í kirkjunni kl. 21. Bænahópur á mánu-
dagskvöldum í Lágafellskirkju kl. 20.
Þorlákskirkja. TTT-starf í kvöld, sunnudag,
kl. 19.30.
Landakirkja Vestmannaeyjum. Á morgun
kl. 17.15 Æskulýðsfélag fatlaðra, eldri hóp-
ur. Hulda Líney Magnúsdóttir, Ingveldur
Theodórsdóttir og sr. Kristján Björnsson.
Krossinn. Almenn samkoma í Hlíðasmára
5 kl. 16.30. Allir velkomnir.
Vegurinn. Smiðjuvegi 5, Kópavogi.
Hátíðarsamkoma kl. 16.30. Vegurinn er 20
ára og í dag verður hátíðarsamkoma þar
sem allir eru velkomnir, Högni Valsson pre-
dikar, lofgjörð, barnastarf og kaffi og sam-
félag á eftir.
KEFAS, Vatnsendabletti 601. Samkoma
sunnudag kl. 14. Sigrún Einarsdóttir talar.
Bænastund fyrir samkomu kl. 13.30. Lof-
gjörð og fyrirbænir. Tvískipt barnastarf fyrir
1–5 ára börn og 6–12 ára. Þriðjud.: Bæna-
stund kl. 20.30. Miðvikud.: Samverustund
unga fólksins kl. 20.30. Lofgjörð, hugleið-
ingar, fróðleiksmolar og vitnisburðir. Allir
velkomnir.
KFUM & KFUK. Holtavegi 28 Haustátak.
Samkoma kl. 17. Upphafsorð:
Arna Ingólfsdóttir. Ole Lilleheim talar.
Barnastarf. Matsala að samkomu lokinni.
Vaka kl. 20. Lofgjörð, fyrirbæn.
Ole Lilleheim talar. Allir velkomnir.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía. Sunnudagur
20. október:
Brauðsbrotning kl. 11, ræðum. Jón Þór Eyj-
ólfsson. Almenn samkoma í umsjón Sam-
hjálpar. Ræðumaður Heiðar Guðnason.
Lofgjörðarhópur Samhjálpar sér um lof-
gjörðina. Vitnisburðir og drama. Allir vel-
komnir. Miðvikudagur 23. október: Fjöl-
skyldusamvera kl.18. Föstudagur 25.
október: Unglingasamkoma fellur niður þar
sem unglingarnir verða á ALFA-helgi í Kirkju-
lækjarkoti.
Safnaðarstarf