Morgunblaðið - 20.10.2002, Síða 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 20. OKTÓBER 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
Háhraðasítenging
við Netið
ÞÓTT kólnað hafi í veðri hefur
Vetur konungur ekki náð að
leggja bönd á Gullfoss enda belj-
andi atorka í þeim síðarnefnda.
Mannskepnan finnur svo sann-
arlega fyrir smæð sinni hjá þess-
um kröftuga öldungi, sem sjálfur
er nokkurs konar konungur ís-
lenskra fossa. Að minnsta kosti
má maðurinn, sem stendur á syllu
við fyssandi strauminn, sín lítils í
þessu mikla sjónarspili náttúr-
unnar. Það er því öruggast að
hafa hægt um sig þegar menn
hætta sér svona nærri þeim frum-
öflum sem þarna eru að verki.
Morgunblaðið/RAX
Staðið við kraft-
mikinn konung
SAMNINGAVIÐRÆÐUR standa
yfir milli Orkuveitu Reykjavíkur og
fyrirtækisins Enex hf. annars vegar
og fyrirtækja á vegum borgaryfir-
valda í Peking hins vegar um tækni-
ráðgjöf og hönnun á hitaveitu í norð-
urhluta borgarinnar. Um er að ræða
40 milljóna króna samning sem mikl-
ar líkur eru á að verði að veruleika,
að sögn Ásgeirs Margeirssonar, að-
stoðarforstjóra Orkuveitu Reykja-
víkur.
Fulltrúar kínversku fyrirtækj-
anna hafa verið hér á landi síðustu
daga til viðræðna við Íslendinga og
kynna sér jarðgufuvirkjanir á Nesja-
völlum og víðar. Enex hf. var stofnað
fyrir einu og hálfu ári með það að
markmiði að flytja út íslenska tækni-
og verkfræðiþekkingu á sviði orku-
mála. Nokkurs konar forveri þess
var Virkir sem m.a. hannaði aðra
hitaveitu í borginni Tanggu í Kína á
sínum tíma. Aðaleigendur Enex eru
Orkuveita Reykjavíkur, Landsvirkj-
un, Hitaveita Suðurnesja og Jarð-
boranir en meðal annarra eigenda
má nefna Nýsköpunarsjóð atvinnu-
lífsins, Norðurorku, iðnaðarráðu-
neytið og verkfræðistofur.
Áhugi fyrir annarri hitaveitu
vegna Ólympíuleikanna 2008
Að sögn Ásgeirs átti Ólafur Eg-
ilsson, sendiherra í Peking, frum-
kvæði að því að koma viðræðunum
við Kínverja af stað. Það hefði einnig
skipt máli að starfsmenn fyrirtækj-
anna í Peking höfðu sumir hverjir
verið við nám í Jarðhitaskóla Sam-
einuðu þjóðanna í Reykjavík og
þekktu vel aðstæður hér. Ásgeir
sagði það enga spurningu að þarna
væri skólinn enn á ný að sanna gildi
sitt fyrir Íslendinga. Hann taldi að
skrifað yrði undir samninga á næst-
unni. Vonast væri líka til þess að
þetta yrði upphafið að frekari verk-
efnum fyrir Enex. Umrædd hita-
veita er nálægt því svæði í Peking
þar sem reisa á ólympíuþorp vegna
Ólympíuleikanna þar í borg árið
2008. Ásgeir sagði áhuga vera fyrir
hendi hjá báðum aðilum að skoða
möguleika á jarðhitaveitu fyrir ól-
ympíuþorpið ef þetta verkefni nú
reyndist vel.
Sendiráð Íslands í Peking hefur
undanfarin misseri unnið að því að
koma á samskiptum milli þjóðanna á
sviði jarðhita. Ólafur Egilsson sendi-
herra og Pétur Yang Li viðskipta-
fulltrúi hafa leitt það starf.
Orkuveitan og Enex í viðræðum við fyrirtæki í Peking
Hönnun á hitaveitu
fyrir 40 milljónir
FRAMKVÆMDANEFND um einkavæðingu
og Samson eignarhaldsfélag ehf. náðu í gær
samkomulagi um kaup félagsins á 45,8% hlut í
Landsbanka Íslands hf. Samkvæmt tilkynningu
sem framkvæmdanefndin sendi frá sér í gær er
söluverðið rúmir 12,3 milljarðar króna. Sam-
komulagið er gert með fyrirvara um áreiðan-
leikakönnun beggja aðila en áformað er að
kaupsamningur verði frágenginn fyrir lok
næsta mánaðar. Þá hefur verið ákveðið að
ganga til viðræðna við tvo hópa fjárfesta vegna
sölu á hlut ríkisins í Búnaðarbanka Íslands.
Samson ehf. er í eigu feðganna Björgólfs Guð-
mundssonar og Björgólfs Thors Björgólfssonar
og Magnúsar Þorsteinssonar. Helstu atriði sam-
komulagsins við félagið eru þau að afhending
hlutabréfanna og greiðsla verður tvískipt, ann-
ars vegar 33,3% í kjölfar undirritunar kaup-
samnings og hins vegar 12,5% að ári liðnu. Nú-
virt meðalgengi hlutabréfa í viðskiptunum er
3,91, sem er 6,1% yfir svonefndu 90 daga með-
algengi og 12% hærra en gengi í útboði ríkisins í
júní síðastliðnum. Kaupverð verður að fullu
greitt í Bandaríkjadölum og einkum nýtt til
greiðslu erlendra skulda ríkissjóðs, að því er
fram kemur í tilkynningu einkavæðingarnefnd-
ar. Eftir þessi viðskipti verður eignarhlutur rík-
isins í Landsbankanum um 2,5%.
Sölu Búnaðarbankans
verði lokið á þessu ári
Í kjölfar samkomulagsins við Samson ehf.
hefur verið ákveðið að halda áfram söluferli
vegna hlutabréfa ríkisins í Búnaðarbankanum.
Ráðgert er að sölu hlutabréfa í þessum áfanga
verði lokið á þessu ári. Valdir hafa verið tveir
hópar fjárfesta til frekari viðræðna. Þessir hóp-
ar eru annars vegar Kaldbakur hf., sem er í að-
aleigu KEA og Samherja, og hins vegar S-hóp-
urinn svonefndi, þ.e. Eignarhaldsfélagið And-
vaka, Eignarhaldsfélagið Samvinnutryggingar,
Fiskiðjan Skagfirðingur, Kaupfélag Skagfirð-
inga, Ker hf., Samskip og Samvinnulífeyrissjóð-
urinn.
Í tilkynningu einkavæðingarnefndar kemur
fram að í kjölfar auglýsingar hennar 10. júlí sl.
hafi fimm fjárfestahópar skilað tilkynningum
um áhuga á kaupum á hlutabréfum í Lands-
banka og Búnaðarbanka. Með tilliti til þeirra
markmiða og skilyrða sem tilgreind hafi verið í
auglýsingu nefndarinnar hafi verið ákveðið að
ganga til viðræðna við ofangreinda hópa.
Viðunandi verð að mati
forsætisráðherra
Davíð Oddsson forsætisráðherra segist vera
ánægður með hvernig til tókst með sölu á hlut
ríkisins í Landsbankanum. Stærsti áfanginn í
einkavæðingarferlinu hafi nú orðið að veruleika
og samkvæmt samkomulaginu við Samson ehf.
hafi flest þau markmið náðst sem ríkið hafi sett
sér. Verðið sé vel viðunandi. Nú sé stefnt að því
að ljúka sölu Búnaðarbankans fyrir áramót og
þá muni efnahagslífið gjörbreytast þegar ríkið
verði horfið af fjármálamarkaðnum, líkt og
stefnt hafi verið að í næstum áratug. Davíð seg-
ist ekki eiga von á því að ríkið ætli sér að eiga
þau 2,5% sem eftir standi í Landsbankanum.
Valgerður Sverrisdóttir viðskiptaráðherra
segir söluna í samræmi við þær áætlanir sem
lagt hafi verið upp með í byrjun. Varðandi Bún-
aðarbankann segir hún að viðræðuhópum hafi
verið fækkað. Íslandsbanki sé ekki lengur inni í
myndinni af samkeppnissjónarmiðum og ófull-
nægjandi upplýsingar hafi komið frá hópi
tengdum Þórði Magnússyni.
Halldór J. Kristjánsson, bankastjóri Lands-
bankans, fagnar fenginni niðurstöðu.
Samson ehf. kaupir 45,8%
hlut í Landsbankanum
Gengið til viðræðna við Kaldbak og
S-hópinn um kaup á Búnaðarbanka
Sala Landsbankans/2