Morgunblaðið - 03.11.2002, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. NÓVEMBER 2002 B 11
NÝR veitingastaður að nafni Heitt
og kalt var opnaður á dögunum á
Grensásvegi 10. Þetta er raunar
ekki í fyrsta skipti sem staður
með þessu nafni opnar. Á milli-
stríðsárunum var staður sem hét
Heitt og kalt starfræktur í Hafn-
arstræti 4 og mátti þar fá tveggja
rétta máltíð á eina krónu. Það eru
þau Brynjar Eymundsson mat-
reiðslumeistari og Elsa Guð-
mundsdóttir smurbrauðsjómfrú
sem reka staðinn. Þau stofnuðu á
sínum tíma veisluþjónustuna
Veisluna á Seltjarnarnesi og ráku
í 13 ár. Meðal annarra starfs-
manna eru Óli Gísli Sveinbjörns-
son matreiðslumaður og Halldóra
Eymundsdóttir smurbrauðsdama.
Brynjar og Elsa segjast telja að
nokkurra nýjunga gæti hjá þeim á
Heitt og kalt, sem ekki hafi sést
hér á landi fyrr í veitingahúsum.
Staðurinn er tvískiptur þ.e. veit-
ingasalur er með miklu úrvali
matar á hlaðborðum og svo sér-
verslun með „Taka með“ mat í
öðru rými. Helsta nýjungin á hlað-
borðum staðarins er Súpubarinn
þar sem hægt er að fá 6 mismun-
andi súpur og heimabökuð brauð.
Einnig er á staðnum salatbar og
og kaldir og heitir réttir í miklu
úrvali. Hægt er að fá hvern hluta
hlaðborðs sér eða alla rétti þess,
allt eftir óskum og greitt er eftir
því.
Þau segja að heilbrigði og holl-
usta sé í hávegum höfð á Heitt og
Kalt og staðurinn er reyklaus.
Heitt og kalt
Morgunblaðið/Áslaug
arberjakeimurinn
ríkjandi. Það er létt í
áfengi, einungis tæp 8
prósent. Vel kælt er
þetta bragðgóður
drykkur, sem hentar lík-
lega best þeim er vilja
nokkra sætu í víninu og
þykir hefðbundin freyði-
vín of þurr. Það gæti
einnig gengið með
berjaeftirréttum. Best hentar
þetta vín líklega sem fordrykkur
eða þá sem „saumaklúbbs-
drykkur“ þar sem jarðarberjalit-
urinn og bragðið gæti slegið í
gegn. Varla vín fyrir þá sem eru
hrifnir af þurru kampavíni. Kostar
890 krónur.
Fresita
Stundum stendur
maður sig að því að vera
fordómafullur. Freyðivín
bragðbætt með jarð-
arberjum? Getur maður
tekið það alvarlega? Það
var vandinn sem ég stóð
frammi fyrir þegar ég
smakkaði freyðivínið
Fresita frá Chile. Vínið
er framleitt sem freyði-
vín samkvæmt Charmat-aðferð-
inni, þ.e. tankgerjun, en jarð-
arberjum er bætt við vínið áður en
það er sett á flöskur. Þetta gerir
vínið fagurrautt og djúp og sæt
jarðarberjaangan er yfirþyrmandi
í ilm þess. Vínið sjálft freyðir
þægilega, er nokkuð sætt og jarð-
Vín
S t e i n g r í m u r S i g u r g e i r s s o n
DAGANA 24.–28. október var í
fjórða sinn haldin í Lingotto í Tórínó
stærsta matar- og vínuppákoma í
heimi, Salone del Gusto.
Um er að ræða markað með af-
urðum hvaðanæva (ekki frá Íslandi
þó og vonandi ræðst bót á því
næst?!) og hvert einasta hérað
Ítalíu býður upp á smökkun á því
besta sem hefðin býður.
Hægt er að smakka þúsundir vína
frá öllum heimshornum og boðið er
upp á hundruð námskeiða „labor-
atorio del gusto“ þar sem fólki er
kennt að meta og njóta matar og
víns á dýpri hátt með tilliti til upp-
runa, samsetningar og einkenna.
Ráðstefnur, sælkeraferðir og aðrir
stærri viðburðir eru einnig í
tengslum við matarhátíðina.
Talið er að um 140.000 gestir hafi
leitt bragðlauka sína á vit hinna
miklu matarævintýra í Piemonte
undanfarna daga.
Þeim sem vilja forvitnast um Sal-
one del Gusto er bent á vefsíðuna:
www.slowfood.com
Umfangsmesta matarsýning
heims í Tórínó
Morgunblaðið/Hanna Friðriksdóttir