Morgunblaðið - 03.11.2002, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 03.11.2002, Qupperneq 12
Liggi leið til Kanaríeyja á næstunni er sniðugt að skoða fyrst slóðina www.canaryislandsinfo.com ÍSLENDINGAR sem eru á leið til EES-landa í frí eða viðskiptaerindum ættu að hafa meðferð- is vottorðið E111 frá Tryggingastofnun ríkis- ins. „Ef ferðamaður frá Íslandi veikist í EES-ríki á hann að njóta ákveðinna réttinda. Hafi hann vottorðið E111 frá Tryggingastofnun með sér á hann ekki að þurfa að borga meira en íbúar við- komandi lands fyrir þjónustu á heilsugæslu- stöðvum og sjúkrahúsum sem rekin eru á veg- um hins opinbera,“ segir Hildur Sverrisdóttir, lögfræðingur og deildarstjóri alþjóðamála hjá Tryggingastofnun ríkisins. Vottorðið staðfestir að viðkomandi sé sjúkratryggður á Íslandi og eigi rétt á sjúkrahjálp í skyndilegum veikinda- og slysatilvikum hjá heilbrigðisþjónustu hins opinbera í dvalarlandinu. Þarf ekki að framvísa á Norðurlöndum Hildur bendir á að víða á algengum ferða- mannastöðum séu bæði heilsugæslustöðvar og sjúkrahús einkarekin og þá gilda umræddir samningar ekki og fólk verður þá að bera kostnaðinn sjálft nema það sé frekar tryggt hjá sínu tryggingafélagi eða með tryggingum hjá greiðslukortafyrirtækjum. Á Norðurlöndum þarf ekki að framvísa E111-vottorði. Nóg er að sýna fram á með öðr- um skilríkjum að viðkomandi sé Íslendingur og hann á þá að njóta sömu kjara og íbúar viðkom- andi lands á opinberum heilsugæslustöðvum og sjúkrahúsum. Enn aðrar reglur gilda síðan ef farið er til landa utan EES eins og til dæmis til Bandaríkj- anna. Þar þýðir ekki að framvísa E111-vottorði. Engu að síður njóta Íslendingar einnig sjúkra- trygginga hjá Tryggingastofnun þótt ferðast sé til landa utan EES. Það eru hins vegar ekki samningar um aðgengi að læknisþjónustu hins opinbera. Ferðalangar geta fengið skriflega staðfestningu á að þeir séu sjúkratryggðir fari þeir til landa utan EES. Tryggingastofnun endurgreiðir sjúkrakostnað sem fólk hefur orð- ið fyrir í þeim ríkjum á grundvelli frumrits greiddra sundurliðaðra reikninga en þá miðast endurgreiðsla við gjaldskrárnar hér á landi þ.e.a.s. kannað er hvað sambærileg þjónusta kostar hér á landi og endurgreitt er samkvæmt því. Töluverður munur getur verið á kostnaði við þjónustuna milli landa og þarf þá fólk að greiða mismuninn sjálft eða vera með trygg- ingar sem taka að sér að greiða mismuninn. Hún segir ennfremur að Tryggingastofnun greiði ekki fyrir heimflutning ef sjúkling þarf að flytja heim t.d. á börum og hún bendir á að tryggingarnar hjá tryggingafélögum séu mis- munandi og fólk verði að kynna sér trygging- arskilmála áður en haldið er til útlanda. Helmingur fargjalds með korti Korthafar kreditkorta eins og Visa og Euro- pay þurfa að greiða að minnsta kosti helming farar með kortinu eigi tryggingar sem innifald- ar eru í árgjaldi að gilda á ferðalaginu. Þórður Jónsson, forstöðumaður þjónustu- sviðs korthafa hjá Visa, segir að tryggingar séu framt að taka með sér E111-vottorð. Hún segir að sum tryggingafélög hafi ferðasjúkratrygg- ingu innifalda í heimilistryggingum en hjá Sjóvá-Almennum geti fólk valið hvort það sé með slíka trygginu í fjölskyldutryggingu sinni. Slík trygging kostar 2.250 krónur og gildir fyrir alla fjölskylduna. Einnig er hægt að kaupa ferðasjúkratryggingu eina og sér eða sem hluta af ferðatryggingapakka. Hún kostar fyrir hjón í hálfsmánaðarferð 1.800 krónur ef tekin er lág- markstrygging á mann 2. milljónir króna. Ferðasjúkratrygging greiðir kostnað á ferðalagi vegna slysa, veikinda eða fráfalls. Ennfremur greiðir hún ferða- og dvalarkostnað náins ættingja, ferðarof og heimflutning. Óþarfi að kaupa tryggingu ef borgað er með korti? Þegar fólk er búið að tryggja sig með því að kaupa farseðla með kreditkorti og er með sjúkratryggingar Tryggingastofnunar á bakvið sig er þá nauðsynlegt að kaupa líka sérstaka slysa- og sjúkratryggingu hjá tryggingafélagi? Anna Guðrún Auðunsdóttir hjá tjónadeild Tryggingamiðstöðvarinnar segir að slíkt velti auðvitað á því hvers konar kort fólk er með og hvert sé verið að fara. „Tryggingar á bakvið kortin eru mismunandi og einnig er misdýrt eftir löndum að leggjast á spítala, sem og að komast heim ef ekki er hægt að nýta upphaflega ferð. Í flestum tilfellum er óþarfi að kaupa sér slysa- og sjúkratryggingu ef kortatrygging er í gildi. Á hverju ári koma þó upp nokkur tilfelli sem eru dýrari en vátrygg- ingarfjárhæð kreditkortanna og við ráðleggj- um fólki því að skoða þessi mál vel áður en lagt er af stað.“ Hún bendir í lokin á að margir séu með fjölskyldutryggingar og þá sé oft innifalin sjúkra- og slysatrygging. „Í slíkum tilvikum er óþarfi að kaupa sjúkra- og slysatryggingu sér- staklega. mismunandi eftir kortum. „Við erum með ýms- ar tegundir korta, almennt kort, vildarkort Visa og Flugleiða, farkort, gullkort, svarta kortið og síðan viðskiptakort og eðalkort. Handhafar far- og gullkorta eru t.d. með miklu viðameiri tryggingar en þeir sem eru með al- mennt kort. Öll kreditkortin innifela hins vegar það sem við teljum kjarna ferðatrygginganna sem eru þrír þættir, ferðaslysatrygging, sjúkratrygging og samfylgd fyrir hinn sjúka. Mismunur á milli korta hvað þessar grunntryggingar varðar er fyrst og fremst í bótafjárhæðum og hámarki sjúkrakostnaðar. Mikilvægur hluti þessa ferða- trygginga er síðan sérhæfð þjónusta á þessu sviði sem Europ Assistance annast um heim all- an fyrir hönd tryggingafélagsins. Farkort og gullkort innihalda hins vegar forfallatryggingu, sem tekur til veikinda er verða fyrir brottför og ýmsa aðra tryggingavernd. Hjá Europay eru allir korthafar tryggðir á ferðalögum eins og hjá Visa og mismunandi eft- ir kortategund. Grétar Haraldsson, sölustjóri markaðssviðs hjá Europay, segir að munurinn felist aðallega í tryggingarupphæðum. Al- menna kortið er með lægstu vátryggingarupp- hæðina 3,6 milljónir og platínukortið veitir hæstu vátryggingarfjárhæðina sem er um 12 milljónir. Ódýrt að tryggja sig Guðný Gunnarsdóttir, ráðgjafi hjá Sjóvá-Al- mennum, segir að viðskiptavinir séu hvattir til að tryggja sig á ferðalögum erlendis, en jafn- Ef veikindi eða slys koma upp á ferðalögum erlendis Borgar sig að hafa E111-vottorð Morgunblaðið/Brynjar Gauti Þegar fara á til útlanda borgar sig að hafa með E111-vottorð sem fæst hjá Tryggingastofnun ríkis- ins. Vottorðið gildir þó ekki hjá einkareknum sjúkrahúsum né læknastofum innan EES-svæðisins nema í algjörum undantekningartilvikum.  Tryggingastofnun hefur gefið út bækling með nánari upplýsingum fyrir ferðamenn um réttindi þeirra ef þeir veikjast eða slasast á ferð erlendis. VEFTORGIÐ www.whatson.is var nýlega opn- að af Guðna Ágústssyni landbúnaðarráðherra. Með tilkomu veftorgsins er nú útvíkkuð sú starfsemi sem fram hefur farið með útgáfu upp- lýsingaritsins What’s on in Reykjavík, What’s on in the North og ferðakorta á ensku. Það er fyrirtækið Ferðakort, sem er í eigu Ásprents hf. á Akureyri, sem hefur gefið út upplýs- ingaritið What’s on in Reykjavík með upplýs- ingum um ferðaþjónustu, menningarviðburði og afþreyingu á höfuðborgarsvæðinu. Ritinu er dreift til helstu fyrirtækja í ferðaþjónustu á Ís- landi og víða um heim, meðal annars á sölu- skrifstofur Flugleiða erlendis. Í fréttatilkynn- ingu frá Veftorginu kemur fram að það muni styðja við uppbyggingu ferðaþjónustu á Íslandi með því að miðla mikilvægum og tæmandi upp- lýsingum um þjónustu, menningarviðburði, hvers kyns afþreyingu og annað sem viðkemur ferðaþjónustu í landinu. Við hönnun og upp- setningu veftorgsins hefur verið haft að leið- arljósi að útlit samrýmist og endurspegli áhuga- svið vefgesta, að notkun sé auðveld og að miðlun upplýsinga sé sem einföldust. Lögð er áhersla á gagnvirkni og tengingar við aðra ferðavefi, svo sem trip.com og expedia.com, all- hotels.com og europeonrail.com. Skráning vef- torgsins á leitarvélar er jafnframt markviss og byggist á nýjustu tækni. Á www.whatson.is er meðal annars að finna vefverslun, bókunarkerfi fyrir þjónustu, sjálfvirka póstlista, spjallþræði, kannanir, próf, leiki og verðlaunagetraunir. Net-Vísir ehf. hefur útfært og byggt upp vef- torgið og sér jafnframt um almennan rekstur en Annað veldi ehf. hefur hannað veftorgið og sér um tæknilegan rekstur þess. Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra opnaði formlega veftorgið www.whatson.is. Veftorgið whats- on.is opnað  ÞEIR sem þurfa að bíða eitt- hvað á flugstöðinni í Ósló í Nor- egi á næstunni geta nú stytt sér stundirnar með því að kaupa sér þráðlausan aðgang að Netinu um breiðbandið. Fólk kaupir aðgang í gegnum fartölvuna sína og borgar með kreditkorti. Þráðlaus netaðgangur í flugstöðinni í Ósló Bílaleigubílar Sumarhús í Danmörku og Mið-Evrópu Ódýrari bílaleigubílar fyrir Íslendinga. Bílar frá dkr. 1.975 pr. viku. Innifalið í verð; Ótakmarkaður akstur, allar tryggingar. (Afgrgjöld á flugvöllum.) Sumarhús eru ódýr kostur haust og vor. Hótel. Heimagisting. Bændagisting.Tökum nú við pöntunum á sumarhúsum/húsbílum og hótelherbergjum fyrir Heimsmót íslenska hestsins í Herning 2003. Fylkir Ágústsson, Fylkir — Bílaleiga ehf. sími 456 3745 netfang fylkirag@fylkir.is heimasíða www.fylkir.is Á góðum bíl í Evrópu Hringdu til AVIS í síma 591-4000 Pantaðu AVIS bílinn þinn áður en þú ferðast – Það borgar sig (Verð miðast við lágmarksleigu 7 daga) Innifalið í verði er ótakmarkaður akstur, trygging, vsk. og flugvallargjald. Bretland kr. 3.000,- á dag Ítalía kr. 3.700,- á dag Frakkland kr. 3.000,- á dag Spánn kr. 2.200,- á dag Portúgal kr. 2.600,- á dag Danmörk kr. 3.500,- á dag www.avis.is Við reynum betur Tilvalin leið til að losa um hauststressið, eiga hressandi útiveru i Henglinum, slappa af í heitu pottunum og borða góðan og framandi mat. Nesbúð á Nesjavöllum býður upp á skemmtilega tilbreytingu í Nóvember,mjög óhefðbundið hlaðborð sem samanstendur af mörgum bleikjuréttum og framandi fiskréttum. Sérstakt tilboð sem innifelur hlað- borðið, gistingu og morgunverð, kr 6.200 á mann. Bleikja og furðufiskar Hótel Nesbúð Sími 482 3415 www.nesbud.is ATVINNA mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.