Morgunblaðið - 03.11.2002, Side 13

Morgunblaðið - 03.11.2002, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. NÓVEMBER 2002 B 13 ferðalög Í ALBERTVILLE, sem er lítill bær í um hálftíma akstursfjarlægð frá tvíborgunum Minneapolis og St. Paul í Minnesota, er stærsti útsölu- kjarni (outlets) ríkisins. Þar eru nú um sjötíu verslanir sem bjóða við- skiptavinum sínum að gera innkaup á lækkuðu verði allan ársins hring. Allt að 70% afsláttur Veittur er 20–70% afsláttur af upprunalegu verði og af og til eru í gangi enn hagstæðari tilboð. Vör- urnar sem verið er að selja í þessum búðum hafa yfirleitt þurft að víkja úr hillum verslana fyrir nýjum vörum. Við vorum mætt þegar opnað var um klukkan tíu á föstudagsmorgni. Fyrsta klukkutímann voru fáir á ferli og við gátum skoðað okkur um í rólegheitum. Satt best að segja kom mér þessi verslunarkjarni á óvart. Ég hafði skoðað annan slíkan versl- unarkjarna í Medford í Minnesota fyrir nokkrum árum og þar voru verslanirnar færri og úrvalið tak- markaðra. Ég hefði ekki nennt að gera mér sérstaka ferð þangað aftur. Í Albertville voru á hinn bóginn þekktar verslanir með útibú eins og Old Navy, Gap, Reebok, Nike, Adidas, Mikasa, Banana Republic, Etienne Aigner, Bombay, Tommy Hilfiger og Polo Ralph Lauren. Verslunarkjarnarnir í úthverfum Í útjaðri tvíborganna eru nú að minnsta kosti fjórir verslunarkjarn- ar eða „outlets“ sem eru með lækkað verð allan ársins hring, í North Branch, Medford, Woodbury og Al- bertville. Kjarninn í Albertville er stærstur en allir eru þeir í innan við klukkustundar akstursfjarlægð frá tvíborgunum. Nokkur hótel á næstu slóðum bjóða viðskiptavinum afslátt á gistingu og svo virðist sem fólk nýti sér þann möguleika að koma t.d. yfir helgi og gera þarna innkaupin. Yfirleitt fara Íslendingar í stærstu verslunarmiðstöð í Bandaríkjunum Mall of America þegar þeir halda í innkaupaleiðangur til Minnesota. Það er allt öðruvísi að fara í svona búðarleiðangur. Í fyrsta lagi er verð- ið lægra og úrvalið auðvitað mun takmarkaðra en í stærstu verslana- miðstöð í Bandaríkjunum. En það er líka indælt að geta andað að sér fersku lofti áður en farið er í næstu búð í stað þess að vera í loftleysinu og tívolískarkalanum í Mall of Am- erica. Þeir sem eru fótalúnir geta ferðast á milli með lítilli lest sem ek- ur á milli búða viðskiptavinum að kostnaðarlausu. Og hvað var svo hægt að kaupa í Albertville? Allt milli himins og jarð- ar. Þarna var postulín og kristall í Mikasa og meira að segja stell sem við þekkjum héðan að heiman, íþróttaskór og fatnaður í Adidas-, Reebok- og Nike-búðunum og svo leikföng, fatnaður á alla aldurshópa, ilmkerti, ýmiskonar jólavarningur, bækur, geisladiskar, DVD-myndir- handklæði og svo framvegis. Buddan léttist aðeins í þessari ferð, aðallega var það táningsstúlkan sem sá margt heillandi en aðrir gátu líka fundið eitthvað við sitt hæfi. Næst þegar ég fer á þessar slóðir ætla ég aftur að kíkja í „outlettið“ í Albertville. Útsala allan ársins hring Lítil lest ekur milli búðanna Í þessum verslunarkjarna eru margar þekktar merkjaverslanir með útibú eins og Mikasa, Nike, Adidas, Gap, Old Navy, Polo Ralph Lauren og Reebok. Í úthverfi tvíborganna í Minne- sota er risinn veglegur versl- unarkjarni með um 70 búðum og þar er útsala allan ársins hring. Guðbjörg R. Guð- mundsdóttir gerði sér ferð þangað fyrir skömmu. Morgunblaðið/GRG Skrautleg rauð lest ekur með fótalúna viðskiptavini milli verslana.  Útsöluverslanir í Albertville. Verslunarkjarninn er á milli Minneapolis og St. Cloud. Leiðin er auðrötuð. Ekið er eftir I 94 í átt að St. Cloud og þegar komið er að leiðarlokum er farið út af á Westbound Exit 210 eða 202 Opið er alla daga frá kl. 10–21 nema sunnudaga frá kl. 11–19. Nánari upplýsingar um versl- anirnar í Albertville er að finna á vefslóðinni www.outlet- info.com/av.html Ísland Karabísk kvöld Farið er að bjóða upp á Karabísk kvöld á Fosshóteli Ingólfi í Ölfusi. Hópum er boðið upp á framandi rétti úr Karabíska hafinu og eyjum þess, t.d. kókosstráðan fisk með piparsósu, karríkjúkling með ban- önum og hina ýmsu framandi ávexti. Veigar svo sem Pina Col- ada og Banana Mama eru bland- aðar handa gestum og hlaðborðið og salurinn eru skreytt í karab- ískum stíl. Gestir keppa í húla hopp og limbó og leikin er tónlist við hæfi. Framkvæmdastjóri Foss- hótela, Renato Gruenefelder, rak hótel í Dóminíska Lýðveldinu og flutti með sér hingað þekkingu á matargerðarlist þeirra og venjum. Verð á Karabíska kvöldið er frá 3.490 krónum á mann. Einnig er boðið uppá gistingu frá 2.950 kr. á mann með morgunverði. Hótel Eldhestar með tilboð Hótel Eldhestar í Ölfusi bjóða gestum upp á sérstaka nóvember- og desemberpakka. Í nóvember stendur fólki til boða gisting í tveggja manna herbergi, morgunverður og þríréttaður kvöldverður auk hestaferðar fyrir þá sem það kjósa á 11.900 krónur. Í desember kostar pakkinn 12.500 krónur og innifalin er gisting í tveggja manna herbergi, morg- unverður og jólahlaðborð auk hestaferðar fyrir þá sem það kjósa. Auk þessa geta gestir komið ein- göngu á jólahlaðborð sem kostar 3.750 krónur.  Pantanir hjá Hótel Eldhest- um í síma 480 4800. Tölvupóstfang: info@eldhest- ar.is  Allar nánari upplýsingar fást á söluskrifstofu Fosshótela, Skipholti 50c, sími 562 4000, fax 562 4001 eða á bok- un@fosshotel.is www.fosshot- el.is Gildir á me›an birg›ir endast. 1.599kr./pk. www.hagkaup.is Tvöfaldur pakki Aðeins í dag, sunnudag ÁRSHÁTÍÐ Félags eldri borgara í Reykjavík og ná- grenni verður haldin í Ásgarði, Glæsibæ, föstudaginn 15. nóvember. Húsið opnað kl. 18:00 og borðhald hefst kl. 19:00. Setning: Ólafur Ólafsson, form. FEB í Rvík. Veislustjóri: Sr. Hjálmar Jónsson. Skemmtiatriði: - Söngfélag Félags eldri borgara syngur undir stjórn Kristínar Pjetursdóttur. - Hátíðarræða – Ellert B. Schram. - Þorvaldur Halldórsson syngur og stjórnar fjöldasöng. - Happdrætti. - Jóhannes Kristjánsson – Eftirhermur og gamanmál. Matseðill: - Forréttur: Sjávarréttasúpa með kremtoppi. - Aðalréttur: Lambafilé með gratineruðum kartöflum, fersku, steiktu grænmeti og villisveppasósu. - Eftirréttur: Kaffi. Hljómsveitin Upplyfting leikur fyrir dansi til kl. 01.00. Verð aðeins kr. 3.500. Miðapantanir á skrifstofu FEB, sími 588 2111. ER NEFIÐ STÍFLAÐ? Fæst í apótekum og lyfjaverslunum STERIMAR er náttúrulegur nefúði sem losar stíflur og léttir öndun. Fyrir 0-99 ára.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.