Morgunblaðið - 03.11.2002, Page 14

Morgunblaðið - 03.11.2002, Page 14
14 B SUNNUDAGUR 3. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ ÞAÐ VAR austan þræsingur og orðið haustlegt viðÞingvallavatn. Hvítfyssandi öldur skullu á braut-inni við bátaskýlið þar sem bátur SveinbjörnsJóhannessonar á Heiðarbæ stóð í sleða albúinnþess að vera rennt á flot. Í fjöruborðinu skol- uðust til gul murtuhrogn eftir stórhreingerningu á fleyinu um morguninn. Sveinbjörn hafði ekki látið leiðindaveður aftra sér frá að fara kvöldinu áður og leggja net svo blaða- maðurinn fengi milliliðalaust samband við murtuna. Golli ljósmyndari hafði áður farið í vitjun ásamt Sveinbirni og hundinum Spora, sem yfirleitt er í áhöfn murtubátsins. Í þetta sinn ætlaði Spori þó ekki með. Hvort honum þótti ekki taka því að fara þar eð þetta var tæpast alvöru murtu- túr, eða honum leist ekki á veðrið, skal ósagt látið. Sveinbjörn gerði klárt og bauð blaðamanni að stíga um borð. Svo settist hann á tunnu við rafmagnsspil innst í báta- skýlinu og slakaði bátnum í vatnið. Sveinbjörn bað mig að halda bátnum við sleðann meðan hann tiplaði eins og þaul- vanur línudansari niður sleðasporið, losaði festar og vatt sér um borð. Báturinn er nýr í murtunni frá því í vor, stór álbátur smíðaður til að vera björgunarbátur á úthöfum en bjargar nú verðmætum úr Þingvallavatni. Sveinbjörn sagðist til skamms tíma hafa notast við gamlan trébát, en sá var orð- inn gisinn af elli og lak því meir sem betur aflaðist. Það þurfti því oft að ausa. Gamli báturinn var allt öðruvísi í vatn að leggja, ekki eins kvikur og þessi. Kolbeinn, sonur Svein- björns, síkkaði kjölinn og lækkaði borðið á nýja bátnum. Þetta er því orðinn sérhannaður murtubátur og svo rúm- góður að fjórir geta auðveldlega greitt úr netum um borð. Sveinbjörn trekkti í gang nýlega utanborðsvél og bakk- aði á móti öldunni stuttan spöl þar til hægt var að venda. Svo var dólað stuttan spöl með landi undir lágværu mali fjórgengisvélarinnar. Netið lá stutt frá landi, því við vest- hefur þrengst um murtusölu og því miklu m var. Sveinbjörn segir að murtuaflinn úr Þin verið meira en 70 tonn á vertíð þegar best lé út frá fjölda bæja í Þingvallasveit, Grafning Nú eru þeir nánast einir að Sveinbjörn og J bóndi í Mjóanesi. „Þetta getur aldrei orðið ódýr vara,“ segi flokkar aflann í þrjá kassa. Vænsta murtan eldis, ýmist slægð eða flökuð. Það eru helst skammt gengnar eða geldar hrygnur. Hora smælkið fer í skepnufóður. Þá er murtan sö ásamt slógi og þetta síðan gefið fénu yfir ve búskapartíð fékk ég iðulega eitthvert fiskm fjölbreytnina við fóðrun fjárins. Stundum k tonn af síld og lét setja tonn af salti með á b ég loðnu og gotu úr ORA meðan þeir verku metið er fóðurbætir og gott með vetrarbeiti kindurnar prótein sem kemur úr fiskinum. ur af þessu,“ segir Sveinbjörn. Auk murtuveiða leggur Sveinbjörn silung arið. Þá er aflinn greiddur úr úti á vatni og l aftur. Mest fiskast af kuðungableikju og síl og einn urriði slæðist með. Silungsnetin eru dýpra en murtunetin og úthaldinu lýkur í ág bleikjan fer að hrygna. Aftur eru silungsnet haustin þegar bleikjan er búin að ná sér eft „Trúirðu því að í fyrra tók ég upp á Þorláks getað lagt fram í janúar. Það var svo góð tíð Sveinbjörn segir að þau á Heiðarbæ hafi hin síðari ár að leggja undir ís. „Við höfum b þannig. Það hefur verið svo góð veðrátta un það hefur ekki komið tryggur ís.“ Bleikjan netin er fremur smá, 400 til 600 grömm. Þau hana en nota líka til heimilisins. „Það er alv anvert Þingvallavatn er aðdjúpt og murtan gengur á grunnið að næturlagi til að hrygna. Sveinbjörn svipti dufl- inu um borð og spurði hvort undirritaður væri til í að draga. Hann gat þá einbeitt sér að andófinu. Þegar verið er fyrir alvöru í murtunni eru gjarnan lögð 30 til 40 net, þegar afla- brögð eru með besta móti eru 20 net látin nægja og í treg- fiski geta þau orðið allt að 60. Nú var eitt net látið nægja, enda veðrið ekki upp á það besta og Sveinbjörn þurfti að- eins að anna lítilli pöntun. Netið var bókstaflega bunkað af murtu. Ég segi ekki að það hafi verið fiskur í hverjum möskva, en margir voru þeir. Eftir dráttinn var aftur haldið í vör með spriklandi murturnar og netið í einni kös. Sveinbjörn las ölduna um leið og hann tók kúrsinn upp í veðrið. Svo beygði hann und- an og stýrði bátnum nákvæmlega upp í sleðann þar sem sett var fast. Aftur tiplaði hann upp brautina og dró bátinn inn í skýlið. Tvennir tímar í murtu „Ég er búinn að fara á vatnið í meira en fimmtíu ár,“ sagði Sveinbjörn og greiddi murtuna úr netinu í skut báts- ins. Hrogn og svil ullu úr fiskinum, enda hrygning í há- marki. „Ég var 13 til 14 ára þegar ég fór að fara með Þór- dísi systur minni. Pabbi fékk Akureyrarveikina og var ekki til mikilla átaka eftir það, en hann sá um allar útréttingar varðandi veiðarnar.“ Murtuvertíðin stendur ekki lengi. Sveinbjörn segir að á árum áður hafi venjulega verið byrjað á murtunni eftir fyrstu rétt; um eða eftir miðjan september. Oft þann 22. Þegar kominn var miður október dró úr veiðinni, enda hrygningin þá að mestu afstaðin. Murtan verður og rýrari því nær sem dregur hrygningu og minna varið í hana sem matfisk. Það var góður markaður fyrir murtu á árum áður, en nú Á murtumiðu Sveinbjörn fer daglega að vitja um murtunetin á vertíðinni. Á sumrin og síðla hausts leggur hann silungsnet. Hundurinn Spori fer gjarnan með í veiðiferðir. Ef hann verður var vi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.