Morgunblaðið - 03.11.2002, Page 19

Morgunblaðið - 03.11.2002, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. NÓVEMBER 2002 B 19 bílar B&L fagnar 10 ára afmæli Hyundai á Íslandi með veglegri afmælisveislu sem fram fer í dag í sýningarsal fyr- irtækisins á Grjóthálsi 1 frá klukkan 12 til 16. Auk þess sem boðið verður upp á 10 metra langa afmælistertu verður haldin sýning á flestum gerð- um Hyundai bíla. Þar á meðal verður fyrsti bíllinn sem kom til landsins, Hyundai Pony árg. 1992, auk Getz 2003, nýjasta bílsins frá Hyundai sem væntanlegur er til landsins upp úr næstu áramótum. Að auki verða andlitsmálun, blöðrudýr og VRC Hyundai tölvuleikir í boði fyrir yngstu afmælisgestina. Tíu metra afmælis- terta í boði Hyundai NÝTT fyrirtæki í eigu General Mot- ors tók 17. október síðastliðinn við rekstri Daewoo í Suður-Kóreu og útibúum þess utan Kóreu og frá og með 18. október hefur nýtt dótturfyr- irtæki General Motors, sem nefnist GM Daewoo Auto & Technology Company (skammstafað GMDAT), yfirtekið bílaverksmiðjur Daewoo Motor Company í S-Kóreu. GMDAT mun reka 3 bílaverksmiðjur í S-Kóreu auk 9 dótturfyrirtækja utan Kóreu – þar á meðal fyrrverandi sölufyrirtæki Daewoo í Austurríki, í Benelux-lönd- unum, Frakklandi, Þýskalandi, á Ítal- íu, Puerto Rico, Spáni og Sviss. Auk þess mun nýtt fyrirtæki í eigu GMDAT yfirtaka varahlutamiðstöð Daewoo í Hollandi. Innan þessa nýja fyrirtækis, GMDAT, verður ennfrem- ur Hönnunar-, rannsókna-, þróunar-, sölu- og markaðs- og stjórnunarmið- stöðin í Bupyung í S-Kóreu. Æðsti stjórnandi GMDAT er Bretinn Nick Reilly sem stjórnað hefur Vauxhall Motors undanfarin ár. Í Evrópu hefur GMDAT stofnað nýtt fyrirtæki með aðsetur í Zürich í Sviss sem nefnist GM Daewoo Europe en það mun verða fulltrúi GMDAT í Kóreu gagn- vart sölufyrirtækjum og umboðum í Evrópu. Jafnframt verður Stjórnun- armiðstöðin fyrir Evrópu (EOC) hluti af GM Daewoo Europe. Bílabúð Benna verður með umboð á Íslandi fyrir Daewoo-bíla sem framleiddir verða af GMDAT. Öll þjónusta við Daewoo-eigendur verður áfram á vegum Bílabúðar Benna og þjónustu- umboða um land allt. GM stofnar fyrir- tæki um Daewoo BANDARÍSKI vélhjólaframleiðandinn Harley Davidson verður 100 ára á næsta ári og af því tilefni setur fyr- irtækið á markað hátæknivætt hjól, V-Rod. Hjólið er allt smíðað úr áli og er þar af leiðandi eitt léttasta vélhjól heims. V-Rod er götuhjól, langt og með lágan þyngdarpunkt. Gaffallinn er líka langur og beygjuhringurinn sömuleiðis. Hjólið er aflmikið og skilar vélin 105 Nm við 6.600 snúninga á mínútu. Margt er öðruvísi en menn eiga að venjast í V-Rod. Bensíntank- urinn er t.a.m. undir sætinu og felg- urnar eru úr heilsteyptu áli og þar sjást ekki teinar. Hönnunin er allt öðru vísi en menn eiga að venjast með Harley Davidson og tæknin er sömuleiðis önnur. Hjólið er t.a.m. með vatnskældum mótor. Harley-Davidson VRSCA V-Rod  Þyngd: 285 kg.  Vél: 1.130 rsm.  Afl: 115 hestöfl við 8.300 snúninga á mínútu.  Tveir v-laga strokkar.  Lengd: 2,44 cm.  Sætishæð: 66 cm.  Bensíntankur: 14 lítrar.  Hröðun: 4 sekúndur í hundraðið.  Hámarkshraði: 220 km/klst. Nýr Harley á afmælisári ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.