Morgunblaðið - 03.11.2002, Síða 24

Morgunblaðið - 03.11.2002, Síða 24
Í minningu stórleikara og lífskúnstners Róstusamt líf og litríkur ferill Richards heit- ins Harris  ÞRIÐJA gamanmyndin um gaurana Craig (Ice Cube) og Day Day (Mike Epps) ber nafnið Friday After Next og verður frumsýnd hérlendis á næstunni. Hún hefst á því að þeir félagar verða að taka á honum stóra sínum og fara út í framkvæmdir, sem eru þeim nánast ofviða. Þeir standa nefnilega í því að vera að flytja að heiman og koma sér fyrir úti í hinum harða heimi þar sem engin elsku mamma er til að- stoðar. Tilhugsunin ein veldur þeim skelfingu. Það er vitaskuld kominn föstudagur og fjölskyldan og vin- irnir hjálpa til við flutningana. Allt gengur að óskum til að byrja með og jólin nálgast. Á aðfangadagskvöld fer allt á annan endann. Leikstjóri er Marcus Raboy. Á eigin vegum í hörðum heimi  EINN sérstæðasti leikstjóri Bandaríkjanna, Tim Burton, hefur gjarnan fengist við goðsagnagerð í myndum á borð við Edda klippikrumlu og Sleepy Hollow. Hann er nú að hefjast handa við slíkt verkefni af öðru tagi þar sem er kvikmyndin Big Fish sem byggð er á skáldsög- unni Big Fish: A Novel of Mythic Proportions eftir Daniel Wallace eða Stórfiskur: Skáldsaga af goðsagnakenndri stærð. Prýðilegir leikarar hafa slegist í hópinn: Billy Crudup leikur mann sem reynir að komast að sannleikanum um deyjandi föður sinn og gerir goðsagnir úr því sem hann kemst að. Albert Finney leikur föð- urinn á banabeði en Ewan McGregor á yngri ár- um. Tim Burton gerir nýja goðsögn  KVIKMYNDIN Boy’s Don’t Cry var frumraun leikstjórans Kimberly Peirce og færði henni fjölda viðurkenninga og athygli enda afar sterk frum- raun. Hún hyggst nú taka fyrir allt öðruvísi efni þar sem er sönn saga af næturklúbba- tvíeyki í Miami, Ingrid Casares og Chris Paciello, sem ráku saman vinsælan skemmtistað að nafni Liquid. Að öðru leyti er Casares einkum þekkt fyrir að vera vinkona Madonnu og Paciello fyrir að hafa verið handtekinn 1999 vegna hæpinna viðskiptahátta. Peirce gengur í næturklúbbaliðið TÖKUR á Stormy Weather, næstu bíómynd íslensk-franska leikstjórans Sólveigar Anspach, hefjast hérlendis eftir rúma viku. Íslandstökurnar munu standa yfir í mánuð en síðan verða þriggja vikna tökur í Belgíu í desember og janúar. Með aðalhlutverk Stormy Weather fara franska leikkonan Elodie Bouchez, sem leikið hefur aðalhlutverk í fjölda bíómynda á undanförnum árum og m.a. fengið leikkonuverðlaunin í Cannes, og íslenska skáldkonan Didda. Stormy Weather er samstarfs- verkefni Frakka, Belga og Ís- lendinga. Að sögn Agnesar Jo- hansen hjá Sögn ehf., sem er íslenski meðframleiðandinn, hefur þetta verkefni verið í þróun og undirbúningi í liðlega tvö ár og er stefnt að því að myndin verði frumsýnd á Canneshátíðinni næsta vor. Stormy Weather segir frá frönskum sálfræðingi/geðlækni, Cora að nafni, sem fyrir tilviljun gengur fram á umkomulausa konu á lestarstöð í París og virð- ist hún vera í einhvers konar losti. Þar sem enginn ætlar að koma henni til hjálpar tekur Cora málið í sínar hendur og kemur henni fyrir á spítalanum þar sem hún vinnur. Ástand konunnar helst óbreytt um hríð, en hún tal- ar alls ekkert þannig að Cora veit ekki hvort hún skilur sig, hvort hún talar frönsku eða ekki eða yfirleitt nokkuð um hver konan er eða hvaðan hún kemur. Cora verður æ uppteknari af því að ná til konunnar en þarf á sama tíma að kljást við eitt og annað í eigin lífi. Þegar konan hverfur síðan af spítalanum einn góðan veðurdag fyllist Cora hálf- gerðri örvæntingu; henni finnst hún hafa brugðist skjólstæðingi sínum og verði að leita hana uppi. Eftir nokkra eftirgrennslan kemst hún að því að konan hafi verið send til síns heima og að hún sé íslensk, búsett í Vest- mannaeyjum. Cora hendir frá sér öllu því sem bindur hana í París og fer á eftir henni staðráðin í því að reyna til þrautar að hjálpa þessari konu að ná tökum á til- verunni. Það sem hún áttar sig hins vegar ekki á er að í raun snýst málið ekki alfarið um vandamál íslensku konunnar heldur ekki síður þau vandamál sem Cora á við að etja í eigin lífi. Þetta rennur upp fyrir henni þar sem hún er komin á framandi stað á hjara veraldar og sam- göngur liggja niðri í aftakaveðri. Að sögn Agnesar var Sólveig Anspach, leikstjóri og einn fjög- urra handritshöfunda myndarinn- ar, á ferð hérlendis í fyrra og prófaði nær allar ungar leikkonur á Íslandi, auk nokkurra annarra sem kallaðar voru í prufur, í hlut- verk þessa skjólstæðings Coru. En eftir að Sólveig hafði hitt Diddu kom aldrei nein önnur til greina af hennar hálfu. Með helstu karlhlutverkin fara svo Baltasar Kormákur sem leik- ur lækni í Vestmannaeyjum sem kemur mikið við sögu Coru og Ingvar E. Sigurðsson sem leikur eiginmann íslensku konunnar. Tökur að hefjast á Íslandi á Stormy Weather eftir Sólveigu Anspach Didda: Skáldkon- an í fyrsta bíó- myndarhlutverki sínu. Morgunblaðið/Halldór Kolbeins Sólveig Anspach: Franskur geðlæknir eltir skjólstæðing sinn til Íslands. Elodie Bouchez og skáldið Didda leika aðalhlutverkin Elodie Bouchez: Í hópi þekktustu leikkvenna Frakka og verið verðlaun- uð á Cannes. ÞETTA er nokkuð skrautlegt lífs- hlaup og er þó aðeins hálf sagan sögð eða tæplega það. Lífshlaupinu var þar fyrir utan þjófstartað því mörgum mánuðum áður en Candice Bergen fæddist var þungun móður hennar orðin að umfjöllunarefni bandarískra fjölmiðla. Hún var Frances Bergen, fyrrum fyrirsæta, sem í seinni tíð hefur fetað í fót- spor dóttur sinnar sem leikkona. En það var faðirinn sem bar sök á allri athyglinni. Edgar Bergen var ein- hver frægasti búktalari, skemmti- kraftur og grínisti Bandaríkjanna, einkum fyrir útvarpsþætti sína. Hann var byrjaður að nota dótt- urina í auglýsingar strax ársgamla og tíu ára var hún orðin tíður gest- ur í útvarpsþætti hans, þar sem hún er sögð hafa sýnt töluverða hæfileika í búktali. Ári síðar kom hún fyrst fram í sjónvarpi; það var í getraunaþætti Groucho Marx, You Bet Your Life. Þótt æska Candice Bergen væri þannig ekki alveg hversdagsleg – hún þurfti t.d. að sætta sig við að frægasta brúða föður hennar, Charlie McCarthy, ætti stærra svefnherbergi og meira af fatnaði en hún sjálf – segist hún sjálf hafa notið hennar til fulls. „Foreldrar mínir höfðu heilbrigt gildismat og gættu þess vandlega að þótt ég æl- ist upp í geggjuðum kring- umstæðum yrði ég sjálf ekki geggj- uð.“ Hún var einbirni þar til hún var 15 ára en þá kom bróðir í heim- inn og slaknaði á þrýstingnum á viðkvæmum aldri. Þá tók hún ást- fóstri við ljósmyndun sem tóm- stundagaman en það var fyrir framan ljósmyndavélina sem hún vann fyrir sér í fríum frá skólanám- inu. Fyrirsætustörfin gerðu hana fjárhagslega sjálfstæða og eins og oft var til siðs á 7. áratugnum gerði hún uppreisn gegn foreldrum sín- um og meintri íhaldssemi þeirra með róttækni, fjörmiklu og vel kynntu ástar- og hippalífi. Fyrirsætustörfin urðu einnig til að leið hennar lá eins og sjálfkrafa í bíómyndirnar. Sidney Lumet leik- stjóri sá hana auglýsa varalit og réð hana í hlutverk ungrar, ríkrar lesbíu í kvikmyndinni The Group (1965). Þá var Candice Bergen 21 árs að aldri og föður hennar mislíkaði mjög hlutverkavalið. Þegar hún lék ári síðar á móti Steve McQueen í The Sand Pebbles fundu gagnrýnendur blóðlykt og hófu að setja út á stirð- an, líflausan leik hennar og þurfti hún að sitja undir slíku næstu árin. Enda var það svo að Candice Berg- en lagði lítt af mörkum til leiklist- arinnar á þessum tíma utan leggja- langt fyrirsætuútlitið, sítt, ljóst hár og fagurlega hoggið andlit með dá- lítið kuldalegri útgeislun. Sumar myndir hennar í upphafi 8. áratug- arins, eins og Soldier Blue, Getting Straight og The Hunting Party, áttu þó sína smelli, en það var ekki fyrr en með Carnal Knowledge (1971), þeim skarpa samtíðar-, ef ekki framtíðarspegli Mike Nichols, og eyðimerkurrómansinum The Wind And the Lion (1975) sem Bergen fór að sýna að í henni leyndist hæfi- leikarík leikkona sem leitaði útrás- ar. Hún blómstraði hins vegar eft- irminnilega í hlutverki fyrrum eiginkonu Burts Reynolds í róm- antískri gamanmynd Alans Pakula, Starting Over (1979); atriðið þar sem hún reynir að sanna sönghæfi- leika sína fyrir fyrrum eiginmann- inum er ógleymanlegt og henni tókst að gera persónuna í senn hlægilega og brjóstumkennanlega. Þessi frammistaða skilaði henni Óskarstilnefningu. Sjálf hefur hún þakkað Burt Reynolds, „næmi hans og örlæti“ fyrir hversu vel tókst til. Um svipað leyti fór Candice Bergen að láta til sín taka við gamla tóm- stundagamanið, ljósmyndunina, og vöktu myndir hennar fyrir Life, Esquire og Playboy töluverða at- hygli. Hún sameinaði svo leiklistina og ljósmyndunina með því að leika ljósmyndarann Margaret Bourke-White í Óskarsverðlaunamyndinni Gandhi (1982). Það var einnig um þetta leyti sem rótlaust einkalífið komst í heila höfn þegar hún giftist franska leikstjóranum Louis Malle en hjóna- bandi þeirra lauk ekki fyrr en hann lést árið 1995. Þrátt fyrir 12 ára aldursmun var samband þeirra hamingjuríkt og þau eignuðust eina dóttur. Candice Bergen er nú gift fast- eignakónginum Marshall Rose. Eftir alllangt hlé frá leiklist og kvikmyndum hófst nýtt og tíu ára langt velgengnistímabil hjá Bergen árið 1988 þegar hún hóf að leika hinn skapmikla, taugatrekkta og uppþurrkaða sjónvarpsfréttaþul Murphy Brown í samnefndum gam- anþáttum sem færðu henni fimm Emmy-verðlaun. Þegar syrpan rann sitt skeið á enda árið 1998 tók hún sér frí frá störfum og endur- nærðist uns hún fór aftur að sýna kostulegan skapgerðargrínleik í myndum á borð við Miss Congen- iality (2000) og nú Sweet Home Alabama, auk þess að vera með sinn eigin viðtalsþátt í kapalsjón- varpi. Hún nýtur virðingar og vel- gengni og langur vegur síðan hún þurfti að láta í minni pokann fyrir nokkrum, allra síst búktal- aradúkku. Candice kann tökin Hún ólst upp með búktalaradúkku sem eldri bróður, var lengi vel rökkuð niður sem afleit ung leikkona en sannaði sig svo um munaði þegar hún var farin að nálgast þrítugt og fékk Óskarstilnefn- ingu rúmlega þrítug. Í áratug var Candice Bergen heimilisvinur víða um heim sem fréttaþulurinn Murphy Brown í sam- nefndum sjónvarpsþáttum. Hún er nú aftur komin á hvíta tjaldið á miðjum aldri og fer á kostum sem borgarstjóri og tannhvöss væntanleg tengdamútta Reese Witherspoon í rómantíska gamansmell- inum Sweet Home Alabama sem frumsýnd er hérlendis um helgina. Árni Þórarinsson SVIPMYND hefur þrátt fyrir allsnægtalíf ekki alveg sagt skilið við gömlu hipparóttæknina. Hún er þekkt fyrir að gagnrýna Hollywood- veldið, sem „orðið er lágkúru- legt, fyrst og fremst af völdum sjónvarpsins, sem gerir allt lágkúrulegt“. Hún, eins og fleiri sem muna lengra en nem- ur nefi sínu, saknar þess sköp- unarfrelsis sem ríkti í drauma- verksmiðjunni á 8. áratugnum, nú þegar „kvikmyndir snúast meira um tækni en innihald“. Candice Bergen

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.