Morgunblaðið - 03.11.2002, Page 27

Morgunblaðið - 03.11.2002, Page 27
þetta leyti fór gjálífið fyrir alvöru að taka sinn toll og varla er hægt að segja að hann hafi leikið í einni ein- ustu mynd, sem umtalsverð er, á gervöllum áttunda áratugnum. Til marks um það endurtók hann tvisv- ar hlutverk mannsins sem kallaður var Hestur í mun síðri myndum en hinni fyrstu og lét hafa sig út í að leika í draslmyndum á borð við Orca-drápshvalnum frá 1977. Kann því kannski engan að undra að hann hafi þá lýst því oftar en einu sinni yfir að hann væri orðinn afhuga kvikmyndum. „Ég hata kvikmynd- ir,“ sagði hann eitt sinn. „Þær eru tímasóun. Ég skemmti mér mun betur með kollu í hönd á öldurhúsi í samræðum við einhverja asna held- ur en að sitja á rassinum og glápa á einhverja asna.“ Árið 1981 gekk hann meira að segja svo langt að lýsa því yfir að hann myndi aldrei framar leika í kvikmynd – enda kannski ekki nema von því hann hafði þá nýlokið við að leika í létt- blárri glansútgáfu af Tarzan the Ape Man, á móti Samúel-stjörnunni Bo Derek, undir stjórn eiginmanns hennar, hins vitahæfileikalausa Johns Dereks. En um það bil sem Harris mundaði pennann og sneri sér að nýju iðjunni sem átti að vera ritstörf fékk hann símtal frá gamla drykkjufélaganum Richard Burton, sem þá var orðinn sjúklingur og féllst á að leysa hann enn og aftur af í Arthúrs-hlutverkinu í sviðsupp- færslu á Camelot, sem vel að merkja hafði gert kauða forríkan því hann hafði vit á því á sínum tíma að tryggja sér sýningarréttinn á verk- inu. Árið 1985 er Harris kom reglu- lega fram á sviði var hann enn harð- ur á því að taka aldrei framar þátt í gerð kvikmyndar, „því þær hafa étið upp of mikinn og dýrmætan tíma úr lífi mínu“, eins og hann komst að orði í viðtali við kanadíska blaðið The Globe and Mail árið 1985. Um það leyti var Harris búinn að minnka við sig drykkjuna – sem hafði að hans eigin sögn verið tvær vodka-flöskur á dag. Sagan segir að eitt sinn þegar hann var nær dauða en lífi af ofdrykkju hafi hann hreytt hlæjandi og kokhraustur í læknana: „Ég get ekki dáið, bjánarnir ykkar!“ Þegar hann var spurður hvort þeir O’Toole og Burton, sem lést úr of- drykkju, hefðu verið haldnir sjálfs- tortímingarhvöt þá svaraði hann að þvert á móti hefðu þeir alltaf haldið sig óbilandi. En þrátt fyrir ítrekaðar viljayfir- lýsingar um hið gagnstæða tókst Harris ekki að halda sig fjarri hvíta tjaldinu lengi því landi hans Jim Sheridan, sem þá var heitasta heitt eftir að hafa sigrað heiminn með My Left Foot, taldi hann á að taka að sér veigamikið hlutverk roskins írsks landeiganda í The Field. Myndin var frumsýnd 1990 og vakti tiltölulega litla athygli að undanskil- inni frammistöðu Harris sem var hælt í hástert og færði honum aðra Óskarsverðlaunatilnefninguna. Þá gerðist það sem gjarnan á til að ger- ast með glataða og gleymda snill- inga í henni Hollywood. Það rifjaðist upp fyrir mönnum hvurslags hæfi- leikum karlinn bjó yfir og eftir- spurnin eftir kröftum hans jókst á ný. Ekki dró frammistaða hans í meistaraverki Eastwoods úr þeirri eftirspurn og hver myndin tók við af annarri, misveigamikil hlutverk í misgóðum myndum, Patriot Game, Wrestling Ernest Hemingway, Smilla’s Sense of Snow og To Walk with Lions en nær alltaf stóð hann upp úr og stal senunni, óháð því hversu stór eða smá hún var. Hæverskur, hreinskilinn og hrokafullur Bersögli Harris og hreinskilni í garð starfsbræðra, sem oftar en ekki átti rætur í kaldhæðinni og hvassri kímnigáfu hans, gerði hann að uppáhaldi fjölmiðla – hvað ann- að? Fékk hann því ófáa upp á móti sér á lífsleiðinni, oftast nær fyrir að hafa blammerað þá og móðgað um of opinberlega. Michael Caine er einna frægasta dæmið um óvildar- mann Harris og svaraði Caine óhik- að fyrir sig m.a. eitt sinn er hann sagði: „Flestar þessara mynda sem hann hefur leikið í myndi ég aldrei nenna að horfa á, ekki einu sinni á myndbandi.“ Harris veigraði sér heldur aldrei við að fara fram á háar fjárfúlgur að launum fyrir framlag sitt til kvik- mynda, ekki vegna peningagræðgi, að hans sögn, heldur fyrst og fremst vegna egósins og þeirrar sannfær- ingar sinnar að launa ætti ríkulega fyrir ríkulega hæfileika. Þannig var karl oft á tíðum æði séður samn- ingamaður og fór t.a.m. fremur fram á að fá hluta ágóðans en fasta launa- greiðslu fyrir hlutverk sitt í Harry Potter-myndunum. Upphaflega hafði hann ekki áhuga á að skuld- binda sig til að leika í myndgerðum eftir öllum sjö bókunum en hann segir barnabarn sitt 11 ára gamalt hafa talið sig á það. Þrátt fyrir að hafa leikið í all- mörgum Hollywood-myndum var honum ætíð mjög svo uppsigað við vinnuhættina í bíóborginni. „Þar á bæ vilja menn að leikari finni sér hlutverkið sitt og endurtaki það síð- an aftur og aftur … Ég hef hins veg- ar alltaf gert allt sem í mínu valdi stendur til að endurtaka mig ekki.“ Og þrátt fyrir stórmennskubrjál- æði á köflum og yfirlýsingar sem gáfu til kynna að þar færi hroka- gikkur hinn mesti sá Richard Harris ævistarf sitt í mjög svo hæversku ljósi. Það eina sem hann sagðist nefnilega ætlast til af sjálfum sér, og tókst reyndar misvel að uppfylla, væri að sýna frammistöðu sem hann skammaðist sín ekki fyrir. „Ég hef aldrei velt fyrir mér ódauðleikanum. Hef engan áhuga á því hvað mun standa áletrað á legsteininum, verð hvort eð er ekki á staðnum til að sjá það. Það sem vekur áhuga minn er hvað gerist núna, og að aðhafast það sem fær mann til að líða vel er mað- ur vaknar á morgnana.“ Harris gekk tvisvar í hjónaband en bæði voru skammlíf, fyrra varði þó 12 ár og gat af sér þrjá syni, þá Jared, Jamie og Damien, og all- nokkur barnabörn. Síðustu myndir sem hann lék í voru sjónvarps- myndaröð Julius Ceasar og svo önn- ur myndin um Harry Potter sem frumsýnd verður síðar í mánuðin- um. skarpi@mbl.is MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. NÓVEMBER 2002 B 27 bíó Lið-a-mót FRÁ H á g æ ð a fra m le ið sla Tvöfalt sterkara 25% afsláttur Staða Reykjavíkur og landsbyggðar í breyttu alþjóðlegu umhverfi Mánudaginn 4. nóvember býður Borgarfræðasetur til málstofu í hátíðarsal í Aðalbyggingu Háskóla Íslands kl. 17 Borgarfræðasetur Vísindadagar í Háskóla Íslands Framsaga: Stefán Ólafsson, prófessor. Hnattvæðing og breyttar forsendur búsetuþróunar Pallborðsumræður: Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borgarstjóri. Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri. Aðalsteinn Þorsteinsson, forstjóri Byggðastofnunar. Unnur Dís Skaptadóttir, dósent við HÍ. Stjórnandi: Sigmundur Ernir Rúnarsson, ritstjóri. Allir eru velkomnir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.