Morgunblaðið - 24.11.2002, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 24.11.2002, Blaðsíða 2
2 B SUNNUDAGUR 24. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Sophus J. Nielsen kaupmaður og Árni Gíslason formaður. EIN merkustu þáttaskilsem orðið hafa í íslenskriatvinnusögu urðu hinn 25.nóvember árið 1902 þegarsexæringurinn Stanley sigldi úr höfn á Ísafirði knúinn vél- arafli, fyrstur íslenskra fiskibáta. Þessa sjóferð má með sanni kalla upphaf mestu atvinnubyltingar sem orðið hefur á Íslandi. Tímamótanna var minnst með hátíðarhöldum á Ísafirði í gær. Fyrir og um aldamótin 1900 varð töluverð breyting á fiskveiðum hér við land. Skip stækkuðu og sóttu á fjarlægari mið en áður. Hingað sóttu erlend botnvörpuskip og úti í heimi hafði vélvæðingin haldið inn- reið sína í fiskiskipaflotann. Strand- byggðir á Íslandi áttu því undir högg að sækja, afli var tregari og erfiðlega gekk að manna bátana því hluturinn var lítill. Það var því ekki við öðru að búast en að framsýnir menn myndu fyrr en seinna koma auga á nýja möguleika sem svo sannarlega áttu eftir að bylta at- vinnulífi þjóðarinnar. Og byltingin hófst á Vestfjörðum. Í III. bindi af Sögu Ísfirðinga, eft- ir Jón Þ. Þór, segir m.a: „Sigfús Bjarnason, kaupmaður og konsúll, varð fyrstur Ísfirðinga til að ákveða að ráðast í útgerð vélknúins báts. Hann dvaldist í Danmörku veturinn 1898–1899 og kynntist þar bátavél- um, sem Danir voru þá sem óðast að taka í notkun. Sigfús hreifst af þess- ari nýju tækni og gerði ráðstafanir til að fá vél. Vorið 1899 lét hann flytja til Ísafjarðar efni í bát, sem vélin átti að fara í, og hófst smíði hans síðsumars það ár. Smíðina önnuðust þeir Ásmundur Ásmunds- son og Jón Gunnlaugsson í Hnífsdal, og luku þeir verkinu veturinn 1899– 1900, en vélin kom ekki fyrr en í apríl 1903, og þar var báturinn, sem bar nafnið „Cæsar“, sjósettur.“ Töfin, sem varð á því að vél Sig- fúsar kæmi til landsins, olli því að hann varð ekki fyrstur Íslendinga til að gera út vélbát til fiskveiða. Á meðan hann beið, afréðu þeir Soph- us J. Nielsen, verslunarstjóri og Árni Gíslason formaður á Ísafirði, að panta tveggja hestafla Mölle- rups-vél í sexæring sem þeir áttu saman og Stanley hét. Í endurminningum sínum, Gull- kistunni, segist Árni hafa hrifist mjög af þessari nýju tækni sem hann sá fyrst í dönskum bátum sem stunduðu kolaveiðar frá Flateyri í Önundarfirði og einsetti sér þá að eignast slíkt farartæki. Árið 1900 ámálgaði hann þetta við félaga sinn, Nielsen verslunarstjóra, sem hugn- aðist þessi nýjung illa og lét ekki segjast þrátt fyrir ítrekaða umleit- an Árna. Síðar kom upp úr dúrnum að Nielsen átti bróður sem var starfsmaður mótorverksmiðju C. Möllerups í Esbjerg. Fyrir orð hans lét Nielsen að lokum segjast og úr varð að keypt var teggja hestafla mótor frá Möllerups. Vélin kom síð- an með flutningaskipinu Vestu til Ísafjarðar hinn 5. nóvember 1902. Með vélinni var sendur ungur vél- fræðingur, J.H. Jessen, til að að- stoða við að setja vélina í Stanley og kenna á hana. Hesti slátrað í þágu vélvæðingar Hinn 25. nóvember 1902 var búið að setja vélina í bátinn og var hann þá settur á flot og farið að reyna hann. „Báturinn var inni á Polli og fór formaður hans ásamt meðeig- anda sínum og nokkrum bæjar- mönnum fyrstu ferðina út í Hnífs- dal. Ferðin gekk ágætlega og gekk báturinn álíka og sex menn róa. Hann var 40 mínútur utan úr Hnífs- dal inn á Ísafjörð en fór þó sjálfsagt fimm mínútna krók inn Djúpið,“ segir í frétt Vestra af þessum at- burði og spáði ritstjóri blaðsins að fleiri myndu fara að dæmi þeirra Árna og Nielsens og verða sér úti um vélar í báta sína. Vélin reyndist afbragðsvel í þessari fyrstu ferð, þrátt fyrir að eitt og annað kæmi upp á, eins og við mátti búast. En hinir framsýnu útgerðarmenn höfðu ráð undir rifi hverju. T.a.m. hafði gleymst að senda koppafeiti með vélinni. Var því brugðið á það ráð að slátra hesti og nota makkafeiti í stað koppafeiti og reyndist hún vel. Efasemdarraddir Fjórum dögum síðar, eða 29. nóvember, reri Árni Gíslason í fyrsta sinni til fiskjar á Stanley fyrir vélarafli og reyndist vélin vel í alla staði. Árni reri síðan á Stanl- ey frá Ísafirði á vetrarvertíðinni ár- ið 1903 en fór þá út í Bolungarvík og reri þaðan á vorvertíðinni, fiskaði vel og þakkaði það að stórum hluta hinni nýju tækni. En ekki höfðu þó allir trú á þessu brölti þeirra félaga, margir sögðu það beinlínis heimsku að ætla sér að lenda vélbát upp í grjótvarir í Bol- ungarvík. Árni lét þessa gagnrýni eins og vind um eyru þjóta en varð þó ekki um sel þegar hann lenti vél- bátnum í fyrsta sinn í Bolungarvík. Stóð þó hópur manna á kambinum en aðeins fáir þeirra komu til þess að hjálpa við hífið en aðrir gengu hlæjandi á brott. En það tók ekki langan tíma að sannfæra Bolvíkinga um ágæti hinnar nýju tækni. Strax daginn eftir var gott veður og komu bátarnir allir í land um hádegi hlaðnir fiski. Árni lét hins vegar ekki þar við sitja og hélt aftur á mið- in og kom aftur með fullan bát af fiski um kvöldið, enda var vinnan um borð í vélbátnum skiljanlega mun léttari auk þess sem hann gat borið meiri afla. Vélbátarnir voru auk þess fljótari í förum en áraskip- in, gátu farið í fleiri veiðiferðir á sama tíma og þannig nýtt sér betur aflahrotur. Fiskisagan flaug fljótt um Bolungarvík, fjöldi manna til að sannreyna söguna og vildu nú óðir og uppvægir hjálpa til við lend- inguna á þessum merkilega bát. Vantrúin á vélbátana kom fram í mörgum myndum eins og merkja má í grein, sem Fridtiof Nielsen, sonur Sophusar Nielsen, ritaði í sjó- mannablaðið Víking árið 1947 en þar sagði hann frá því er vélin var sett í Stanley árið 1902 og fyrstu reynsluferðinni. „Sem dæmi um það, hve ótrúin var mikil á þessum mótorum, og þeir beinlínis álitnir manndrápstæki, man ég eftir því að löngu seinna sagði móðir mín mér frá því, að áður en þessi reynsluför var farin, hefði kona á Ísafirði spurt sig, hvort ekki væri nóg að maður- inn hennar (faðir minn) færi þessa ferð, þó svo blessaðir drengirnir væru látnir vera heima! Ferð þessi til Hnífsdals vakti mikla eftirtekt, sérstaklega meðal sjómanna, en dómarnir voru misjafnir, t.d. heyrði ég seinna, að sjómenn óttuðust að skellirnir frá útblástursröri mót- orsins myndu fæla allan fisk burt.“ Þannig vildu margir fara hægt í sakirnar. Búandkarl ritaði grein í Þjóðviljann haustið 1906 undir fyr- irsögninni Landbúnaðurinn við Djúp og mótorbátaútvegurinn. Þar segir m.a.: „En lætin í Djúpmönnum að fá sér þessa báta virðast næstum benda á, að margir ætli, að aflinn sé vís sé vélinn fengin í bátinn. Djúp- menn hefðu sér að skaðlausu vel getað farið hægar af stað í þessum mótorbátaútvegi, það er enn með öllu óséð til hvers hagnaðar hann verður fyrir útvegsmennina, en landbúnaðinum verður hann óþarf- ur, á því er enginn vafi.“ Hátt í 100 vélar á þremur árum En reynslan af vélbátnum Stanl- ey þaggaði fljótt niður í efasemd- armönnum og ekki leið á löngu uns allir vildi fá sér vél í báta sína. Árni og Nielsen gerðust umboðsmenn Möllerups á Íslandi og strax sum- arið 1903 var byrjað að panta vélar og smíða skip undir þær. „Þeir menn voru ekki fáir, sem þótti þarna geyst farið og spáðu, að þetta nýjabrum myndi skammt endast. En slíkar raddir náðu þó engu veðri. Ekkert gat stöðvað þá þungu öldu sem risin var með mótorvélunum. Eftir þrjú ár frá því að fyrsta mót- orvélin kom hingað til lands voru allir sexæringar í Bolungarvík komnir með mótorvélar, tveggja til fjögurra hestafla. Hér á Ísafirði og í Hnífsdal voru líka komnar margar mótorvélar, sumar 10 hestöfl,“ segir Árni í endurminningum sínum en hann telur að árið 1905 hafi verið komnar vélar í upp undir hundrað báta við Djúp og í næstu byggðar- lögum. Ljóst var að vélvæðing íslenska fiskiskipaflotans var hafin. En slík bylting var ekki kostnaðarlaus. Vél- in í Stanley kostaði t.a.m. 900 krón- ur sem var dágóður skildingur á þeim tíma og er þá ótalinn kostn- aður við ýmsar breytingar sem gera þurfti á bátnum. En menn gerðu sér þó fljótt grein fyrir að nú var að duga eða drepast, þróuninni yrði ekki snúið við. Kaupmenn sáu sér fljótt hag í vélvæðingunni og studdu hana með ráðum og dáð og lánuðu til vélakaupa eða skipasmíða, enda víst að með henni myndu viðskipti aukast. Eins urðu um þessar mund- ir miklar breytingar í bankamálum landins, útbúum fjölgaði úti á landi og þau, einkum Íslandbanki, lánuðu óspart til kaupa og útgerð vélbáta. Eins mun Landsbankinn hafa lánað umtalsvert fé í þessu skyni. Fjár- mögnun vélvæðingarinnar gekk því vel. Ekki spillti fyrir að útgerð bátanna gekk afar vel fyrstu árin, aflabrögð voru góð og bátarnir til- tölulega fljótir að borga sig upp. Grettistak ísfirskra sjómanna En eins og gengur var afkoma vélbátaútgerðarinnar ærið misjöfn, margir græddu talsvert fé á skömmum tíma en aðrir töpuðu meira og minna, að sögn Árna oftast fyrir sérsök óhöpp og stundum fyrir slóðaskap. Hann segir í niðurlagi æviminninga sinna að ísfirsk sjó- mannastétt hafi á þessum árum lyft grettistaki. „Tel ég, að vélbátaút- vegurinn sem nú er aðalútgerð Vestfirðinga, hafi reynst happa- drjúgur og heillaríkur. Hann hefir stöðugt færzt í aukana; skipunum hefur fjölgað og þau stækkað, eftir því sem kringumstæður hentuðu og reynzlan kenndi mönnum bæði um stærð og allan útbúnað skipanna. Undanfari þess fríða vélbátaflota, sem landsmenn eiga nú, voru litlu mótorbátarnir, sem hér bar að landi í byrjun aldarinnar.“ Heimildir Gullkistan. Endurminningar Árna Gísla- sonar um fiskveiðar við Ísafjarðardjúp árin 1880–1905. Arngrímur Fr. Bjarnason bjó til prentunar. Ísafirði 1944. Saga Ísafjarðar og Eyrarhrepps hins forna, III. bindi, eftir Jón Þ. Þór. Ísafirði 1988. Vélsmiðjur á Ísafirði fimm fyrstu áratugi þessarar aldar, eftir Jón Pál Halldórsson. Ársrit Sögufélags Ísfirðinga. Ísafirði 1985. 100 ár liðin frá því fyrsti íslenski fiskibáturinn sigldi fyrir vélarafli á miðin Árarnar lagðar til hliðar Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörns Málverk Sigurðar Guðjónssonar af Stanley, fyrsta íslenska vélbátnum, en ekki er til ljósmynd af bátnum. Fyrir hartnær 100 árum sigldi sexæringurinn Stanley frá Ísafirði knúinn vélarafli, fyrstur íslenskra fiskibáta. Helgi Mar Árnason rekur hér upphaf einnar mestu atvinnubyltingar sem orðið hefur á Íslandi. hema@mbl.is Ljósmyndir/Björn Pálsson EINS og gefur að skilja gekk mönnummisjafnlega að fara með hina nýjutækni sem vélvæðingin var. Sumir voru fljótir að læra meðferð vélanna og hirtu þær vel en aðrir voru kærulausir og lögðu sig ekki fram um meðferð vélanna og urðu hjá þeim tíðar bilanir, margar vegna trassaskapar. Það varð því fljótt ljóst að koma þyrfti á fót vélaverkstæði sem ann- aðist þjónustu við ört stækkandi vélbátaflot- ann og að kenna þyrfti sjómönnum eitt og annað um meðferð vélanna. Óhætt er að full- yrða að Jens Hansen Jessen, Daninn ungi sem sendur var með hingað til lands til að setja niður fyrstu mótorvélina, sé lærifaðir allra íslenskra vél- virkja. Jessen kom, eins og áður sagði, til að setja niður vélina í Stanley en hélt að því loknu aftur heim til Danmerkur. Hann kom hins vegar fljótlega aftur til Ísafjarðar, kvæntist íslenskri konu og setti árið 1904 á stofn vélsmiðju, hina fyrstu sinnar tegundar á Ís- landi. Jessen naut við þetta framtak sitt stuðnings útgerðarmanna á Ísafirði sem gengu í ábyrgð fyrir 15 þúsund króna láni í Sparisjóði Ísfirðinga til að koma vélsmiðjunni á laggirnar. Vélsmiðjan er án nokkurs vafa vagga inn- lendrar þekkingar í vélfræði. Fram til þessa tíma var ekki um neina vélfræðimenntun að ræða hér á landi. Með vélsmiðju J.H. Jessen var lagður grunnur að kennslu í vélfræði og hún hefur án nokkurs vafa haft mikil áhrif á uppbyggingu starfsgreinarinnar hérlendis og viðhorf manna til hennar. Nemendur Jes- sens voru margir og dreifðust víða um land að námi loknu. Margir þeirra urðu vélstjórar á fiski- og flutningaskipum og tveir af nem- endum Jessens, þeir Gísli Jónsson sem síðar varð al- þingismaður og Hallgrímur Jónsson, síðar yfirvél- stjóri hjá Eimskip, luku báðir prófi frá vélfræðideild Stýrimannaskólans í Reykjavík árið 1914 og áttu hvað mestan þátt í stofnun Vélskóla Íslands árið 1915. Þeir settust báðir þar á skólabekk og luku prófi ári síðar, tveir af þremur fyrstu nemendum hins nýja skóla. J.H. Jessen lést úr taugaveiki árið 1910, þá aðeins 27 ára gamall. Jens Hansen Jessen Vagga vélfræði- menntunar á Íslandi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.