Morgunblaðið - 24.11.2002, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 24.11.2002, Blaðsíða 11
nn einkamál Austfirðinga. Hér er um stórkostlegt landsmál að ræða, sem varðar framtíðarhagsmuni höfuðborgarbúa. Það er t.d. ljóst að eftir að það náðist mikilvægur samningur varðandi aldraða í landinu, þá þurfum við enn frekar á vexti að halda í þjóðarframleiðslunni og að haldið verði fast við áform um uppbyggingu atvinnuveganna í landinu, því við getum ekki fengið meiri peninga til sam- neyslunnar, nema við aukum tekjur samfélagsins.“ Gaman að kosningabaráttu Það hefur vakið athygli að Páll Pétursson, ráð- herra Framsóknarflokksins, náði ekki kjöri í kosn- ingum á kjördæmisþingi í Norðvesturkjördæmi um síðustu helgi. Halldór og Páll hófu báðir þing- mennsku árið 1974 og eru því með lengstan starfs- aldur á þingi. Þar sem Páll verður ekki í framboði, stefnir í að Halldór verði að loknum næstu kosn- ingum sá þingmaður sem á lengsta þingsetu að baki - aðeins 55 ára að aldri. Halldór segist telja að niðurstaðan í kosningunni hafi hvorki komið Páli né öðrum algjörlega á óvart. „Það liggur ljóst fyrir að þegar menn eru búnir að vera svona lengi í stjórnmálum og erum komnir á ákveðinn aldur, þá verður krafan um endurnýjun sterkari. Það þýðir ekki að viðkomandi einstakling- ar hafi eitthvað á móti Páli eða öðrum á líkum aldri. Það sjónarmið getur einfaldlega verið uppi að kom- inn sé tími á yngra fólk og endurnýjun þurfi að eiga sér stað. Ég tel það hafa gerst þarna og mér finnst Páll hafa tekið því afskaplega vel.“ Annars leggst kosningaveturinn vel í Halldór. „Mér finnst alltaf gaman að kosningabaráttu og ég geng til hennar fullur bjartsýni. Mér finnst ég hafa öðlast góðan styrk upp á síðkastið og vera betur undir kosningar búinn en oftast áður. Ég held að það eigi við um flokkinn í heild, enda höfum við staðið fyrir endurskipulagningu á innra starfi hans og flokksskrifstofunni með góðum árangri. Allt held ég að þetta skili sér. Það hefur gengið vel á undanförnum árum og við höfum skilað miklu og góðu verki. Það er stöðugleiki í þjóðfélaginu, vöxtur í þjóðartekjum, og gott jafnvægi í utanríkisvið- skiptum og ríkisfjármálum. Mér finnst því sam- félagið vera vel í stakk búið að takast á við framtíð- ina.“ Markmiðið að stýra ríkisstjórn – Þú talar um stöðugleika í ríkisfjármálum, en er friður á stjórnarheimilinu? „Já, það er ágætur friður á stjórnarheimilinu. Við erum ekki sammála um allt, höfum aldrei verið og munum eflaust aldrei verða það, en okkur hefur tekist að leysa öll mál sem upp hafa komið. Þar hafa báðir aðilar þurft að gefa nokkuð eftir, eins og gef- ur að skilja og fylgir sambúð á öllum heimilum. Við settum okkur að halda áfram uppbyggingu stór- iðju. Það virðist ætla að takast. Við settum okkur að einkavæða fjármálamarkaðinn. Það ætlar að tak- ast. Við settum okkur að verja meira fjármagni til félags- og samfélagsmála. Það höfum við gert. Við ætluðum okkur að auka kaupmátt almennings og lækka skatta. Allt hefur þetta gengið eftir. Þegar vel gengur, þá getur maður ekki verið annað en ánægður og þakklátur.“ Halldór sagði á haustfundi landsstjórnar og þingflokks Framsóknarflokksins í september sl. að aðalmarkmiðið ætti að vera að stýra ríkisstjórn eft- ir næstu kosningar. „Við höfðum einnig það mark- mið í síðustu kosningum að við vildum ná forystu í ríkisstjórn. Við fengum ekki kosningu sem gaf til- efni til þess síðast og því fór sem fór. En það er áfram markmið okkar, eins og annarra stjórnmála- flokka. Það hlýtur að vera eðlilegur metnaður af hálfu Framsóknarflokksins að stýra ríkisstjórn. Ég set fram það markmið af fullri einurð, m.a. vegna þess að ég tel að forystustörf Framsóknarflokksins hafi gengið vel og ég hafi öðlast nægilega reynslu á undanförnum áratugum til að taka það hlutverk að mér. Það er síðan kjósenda að ákveða hvort það verður að veruleika.“ – Hversu góður þarf árangurinn að vera? „Ég hef engar prósentur í því sambandi í huga, en það hlýtur að liggja í eðli máls að þegar slíkt markmið er sett fram, þá erum við að vonast til að fá meiri stuðning í næstu kosningum en í þeim síð- ustu.“ Morgunblaðið/Kristinn tjóra NATO, George Robertson, með Davíð Oddssyni for- nríkisráðherra. Morgunblaðið/RAX Á myndinni að neðan eru Halldór Ás- grímsson og Guðni Ágústsson í kastljósi fjölmiðla. Við munum ekki eiga sterka höfuðborg nema eiga sterka landsbyggð. Og landsbyggðin verður heldur ekki sterk nema með öflugri höfuðborg. pebl@mbl.is Til vinstri: Fundur utanríkisráðherra NATO og Rússlands í Háskólabíói í sumar. Halldór Ásgrímsson og Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, ræðast við meðan verið er að undirbúa mynda- töku af öllum ráðherrunum. Með þeim á myndinni eru ungverski utanríkisráðherr- ann og sá gríski. Ég tel t.d. fráleitt að breyta heilsugæslunni, eða grund- vallarþáttum í heilsugæsl- unni, vegna verkfalla á vinnustöðunum. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. NÓVEMBER 2002 B 11 ÍSÍÐUSTU viku ákvað Halldór Ásgrímssonutanríkisráðherra að senda embættis-menn til höfuðborga allra 15 aðildarríkja Evrópusambandsins, ESB. Erindið var að skýra frá því hvers vegna Íslendingar gætu ekki sætt sig við tillögur framkvæmda- stjórnar ESB um aukin framlög Íslands í þró- unarsjóð EFTA, vegna framlaga til fátækari ríkja sambandsins. Einnig að mótmæla þeim áformum að Ísland, Noregur og Liechtenstein leggi fram fjármagn í uppbyggingarsjóði ESB. Talað var um að þetta væri „maður á mann“- aðferðin, en hún er gjarnan notuð í handbolta þegar lið eru undir og skammt er til leiksloka. Sýnir þetta í hnotskurn hversu Ísland má sín lítils í samskiptum við risann ESB? „Það liggur ljóst fyrir að við höfum átt í vaxandi erfiðleikum með að verja EES- samninginn,“ segir Halldór. „Þetta er dæmi um tillögur framkvæmdastjórnar ESB sem eru ekki í neinu samræmi við samninginn. Lögð hefur verið á það áhersla undanfarin ár að við yrðum að gera okkur grein fyrir því að við værum ekki fullgildir aðilar og gætum því ekki notið fullra réttinda. En núna eigum við allt í einu að borga inn í sjóði ESB eins og að- ildarríkin. Við höfum borgað í styrktarstjóði, sem notaðir hafa verið vegna fátækustu ríkjanna, án þess að okkur beri skylda til þess samkvæmt EES-samningnum. Og nú á að skylda okkur til að borga í uppbyggingasjóð- ina, sem notaðir eru í öllum aðildarríkjunum. Við Íslendingar eigum nóg með okkar vandamál á þessu sviði. Við erum með sam- göngukostnað sem er langtum hærri en víð- ast annars staðar og dreifðan landbúnað sem býr við erfið skilyrði. Þessar kröfur eru því mjög ósanngjarnar og við hljótum að fara fram af fullri einurð á pólitískum vettvangi til þess að reyna að hrinda þeim. Síðan stöndum við frammi fyrir því að okk- ar sjávarafurðir njóta fulls tollfrelsis í Mið- og Austur-Evrópu, samkvæmt fríversl- unarsamningum. Útlit er fyrir að með stækk- un ESB verði lagðir tollar á þau viðskipti. Við getum ekki sætt okkur við svona upplegg og það hlýtur að vera skylda utanríkisþjónust- unnar að bregðast við af fullum krafti til þess að ná fram sanngirni í þetta samnings- umboð.“ Hvorki bjartsýnn né svartsýnn Halldór segist hvorki bjartsýnn né svart- sýnn á að þessar tilraunir skili árangri. „Mér finnst við búa við vaxandi tómlæti varðandi EES-samninginn og það hefur valdið mér áhyggjum um nokkurt skeið. Þessir atburðir nú styrkja mig í þeirri trú að ég hafi á réttu að standa. Það er ekki síst ástæðan fyrir því að ég hef talið nauðsynlegt að kanna miklu betur kosti og galla aðildar að ESB og þess að hafa beinni áhrif á þróun mála. Við getum ekki ver- ið stöðugt með lífið í lúkunum og í vörn út af mikilvægustu hagsmunamálum þjóðarinnar.“ Halldór hefur sagt nauðsynlegt að komi til viðræðna um inngöngu í ESB verði að árétta sérstöðu svæðisins umhverfis Ísland með óyggjandi hætti. Það þurfi ekki að vera sett fram sem almenn undanþága frá sjávarút- vegsstefnu ESB, heldur geti það fallið undir svokallaða nálægðarreglu. Það feli í sér að ákvarðanir um nýtingu á auðlind Íslendinga, sem ekki er sameiginleg með öðrum aðildar- ríkjum ESB, yrðu teknar hér á landi. Óvíst sé hvort slík sérstaða hlyti samþykki allra aðild- arríkja ESB og ljóst að án slíks sérákvæðis myndum við um alla framtíð sigla okkar sjó utan ESB. En er ekki útilokað að slíkt sam- þykki fáist hjá fiskveiðiþjóðum á borð við Spánverja sem eiga í samkeppni við Íslend- inga? „Ég hefði talið það útilokað fyrir tíu árum, en tel ekki svo vera í dag,“ segir Halldór. „Það er til dæmis ljóst að eyríkið Malta hefur feng- ið fulla stjórn á sínum málum innan 25 mílna. Og þetta ríki er í miðju Miðjarðarhafi. Margt hefur komið fram að undanförnu, sem bendir til að sérstaða Íslands gæti hlotið viðurkenn- ingu og því er rangt að útiloka það fyrirfram.“ – Gefa þín samtöl við ráðamenn í Evrópu tilefni til þess að ætla að þetta geti gengið eftir? „Já, það er mitt mat. Ég tel fulla ástæðu til að ætla að það sé hugsanlegt.“ Halldór segir fleiri grundvallaratriði ráða afstöðu Fram- sóknarflokksins. „Ég nefni sem dæmi greiðslur til og frá ESB, m.a. í landbúnaði. Ég varð þess áskynja á Möltu að ráðamenn þar reikna með að tekið verði tillit til sérstöðu ey- ríkja í þeim samningum sem verið er að leggja lokahönd á, og ættu að skýrast á næstu tveimur vikum. Til dæmis hafa þeir fengið fram skilning á því að það sé eðlilegt að taka tillit til þess að eyríki þurfi að fara með vörur sínar gegnum tvær hafnir, fyrst á viðkomandi eyju og síðan á meginlandinu, sem skerði samkeppnisstöðu eyríkja. Ýmis svona atriði, sem eru að koma fram í þessum viðræðum, eru eftirtektarverð fyrir okkur. Við höfum ekki efni á því að útiloka allt fyrirfram og fylgjast ekki með því sem er að gerast. Ég tel að samningurinn um EES, eins og fram- kvæmdastjórn ESB leggur spilin á borðið núna, sé í mjög mikilli hættu. Það liggur alveg fyrir að mínu mati að við getum ekki gengið til samninga á þeim grundvelli sem hún er að boða. Og ef þeir samningar takast ekki, ja hvað þá?“ – Hvað þá? „Það er ekki einfalt að ráða í þá stöðu og í sjálfu sér ekki tímabært. Við verðum að nálg- ast þessi mál með opnum huga, en ekki með því að útiloka hlutina fyrirfram í allar áttir.“ – Kemur til greina þegar vegnir hafa verið ólíkir hagsmunir að hnika eitthvað til afstöðu Íslendinga varðandi yfirráð yfir fiskimið- unum? „Ég tel það grundvallaratriði að við höfum sjálfir stjórn á fiskveiðiauðlindinni. Ég geri mér hins vegar grein fyrir því að miðað við núver- andi fiskveiðistjórnunarkerfi og sameiginlegu fiskveiðistjórnunina hjá ESB, þá eru end- anlegar ákvarðanir um heildarkvóta teknar á sameiginlegum fundum sjávarútvegs- ráðherra allra landanna. Það er þó engin ástæða til að ætla annað, en að þar yrðu til- lögur sjávarútvegsráðherra Íslands og ís- lenskra vísindamanna samþykktar. Það liggur líka ljóst fyrir að við yrðum að gangast inn á fjárfestingarfrelsi í sjávarútveginum. Það er ekki sú sama hindrun í dag og ég taldi fyrir tíu árum. Ég tel að við höfum öðlast það mikla burði á þessu sviði, að ekki sé ástæða til að óttast það með sama hætti, enda eru íslensk fyrirtæki að fjárfesta í ríkum mæli erlendis.“ Hvers virði eru slíkir flokkar? – Nú standa fyrir dyrum miklar breytingar á ESB, m.a. er aðildarríkjum að fjölga úr 15 í 25. Knýr nokkuð á um aðild Íslands áður en ljóst verður hvað breytingarnar hafa í för með sér? „Það er alveg rétt að það er ekkert sem knýr á um endanlega afstöðu í dag. En um- ræðan er mjög nauðsynleg vegna þess að við verðum að vita hvert stefnir. Við getum ekki leyft okkur að byggja afstöðu í þessu grund- vallarmáli á ranghugmyndum og öfgum á báða bóga. Við segjum að ESB og stækkun þess sé hið besta mál fyrir Evrópu og um- heiminn. En við segjum líka að það sé gott fyrir alla nema okkur. Við verðum þá að minnsta kosti að vita af hverju það er gott fyrir alla aðra en okkur.“ Skoðanir eru skiptar í Framsóknarflokk- num um hvort sækja eigi um aðild að ESB, en Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra og varaformaður flokksins hefur lýst því yfir að fremur eigi að styrkja EES-samninginn en stefna að inngöngu í ESB. Er stefna Fram- sóknarflokksins í Evrópumálum trúverðug þegar orð forystumannanna eru misvísandi? „Ég tel orð okkar ekki vera misvísandi. Við fylgjum báðir stefnu flokksins, en höfum jafn- framt báðir lýst því yfir að opinská umræða um þessi mál sé nauðsynleg. Þetta er ekki spurning um að allir flokksmenn séu ná- kvæmlega á sama máli heldur hvaða afstöðu flokkurinn tekur. Það er skylda mín sem for- manns flokksins og utanríkisráðherra að taka á þeim málum, sem varða framtíð Íslands, og þar er ekkert mál eins mikilvægt og þetta. Ég hef enga heimild til þess að láta mig það engu skipta. Ég held áfram að gera það. Ég tel það mína skyldu. Ég tel það skyldu Framsókn- arflokksins. Ég tel það skyldu gagnvart þeim kjósendum sem bera traust til okkar. Ég tel það ekki síst skyldu gagnvart unga fólkinu sem er að hasla sér völl í flokknum í vaxandi mæli og búa sig undir að taka við honum. En það er aldrei neitt stórmál uppi í neinu sam- félagi án mismunandi skoðana og einhverra átaka. Og ég kvíði því engu. En ég geri engar kröfur til þess að hver einasti maður sé sam- mála mér, hvorki í flokknum né þjóðfélaginu. Það getur enginn gert.“ – Þú ert ekki hræddur um klofning út af þessu máli? „Nei, ég er ekki hræddur um klofning. Ég tel að framsóknarmenn séu það þroskaðir að þeir þoli það að hafa mismunandi sjónarmið. Framsóknarflokkurinn hefur aldrei skorast undan því að taka á viðkvæmum málum og leiða þau til lykta með lýræðislegum hætti í íslensku samfélagi. Ef stjórnmálaflokkar taka bara á málum sem allir flokksmenn eru sam- mála um – hvers virði eru slíkir flokkar? Ég held þeir séu einskis virði.“ Samningurinn um EES í mjög mikilli hættu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.