Morgunblaðið - 24.11.2002, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 24.11.2002, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. NÓVEMBER 2002 B 13 ferðalög AUK þess sýndi ég nú þá sérstöku kænsku á skrifstofunni í Baramke að ganga rakleitt inn til yfirmanns- ins og þakka honum fyrir síðast. Maðurinn mundi sýnilega ekki eftir mér enda er ég heldur ekki viss um að þetta hafi verið sami maðurinn og síðast en hvernig sem því er nú hátt- að urðu þarna óvæntir fagnaðar- fundir. Piltungar voru sendir út og suður til að útvega eyðublöð og stimpla svo ég þyrfti sem allra minnst fyrir lífinu að hafa og gæti setið ótrufluð og skraflað við minn góða kunningja. – Afleitt að geta ekki boðið te, sagði hann afsakandi. Ramadan, þú veist… Og klukkutíma síðar stikaði ég út með loforð um að leyfið fengi ég ekki síðar en daginn eftir og að hætti Sýrlendinga stóð það auðvit- að. Það er sérstakt að vera á göngu klukkan hálfsex til sex á Ramadan, þegar ekki sála er á ferli utan mín og kannski stöku villikattar. Ég verð gripin jákvæðri Palli var einn í heiminum-tilfinningu, öll hljóð borgarinnar hafa skyndilega þagn- að, matarilminnn leggur úr hverju húsi og það eina sem heyrist er kannski smjatt og vellíðunarstunur þegar menn fá nú loks að borða eftir tólf tíma föstu. Þá hef ég á tilfinn- ingunni að ég sé að læðast um, eft- irlitsmaðurinn minn sem hefur ekki haft baun að gera hafi stolist heim til sín að fá sér kjúklingabein og átt- ar sig ekki á að ég er að gera stór- merkilegar atferlisrannsóknir á borginni hans. Flugeldasýning á Kassiounfjalli Meðal annars vakti það athygli mína hvað lítið var um að vera sex- tánda nóvember en þann dag fyrir þrjátíu og tveimur árum tók gamli forsetinn við og lofaði nýrri framtíð sem stóð þar til árið 2000 að hann dó drottni sínum. Þá voru hátíðahöld í skólanum með ræðuhöldum og húrrahrópum en nú var allt með öðrum brag. Um kvöldið var þó flug- eldasýning uppi á Kassiounfjalli fyr- ir ofan Damaskus sem var æði til- komumikil, orrustuvélar flugu yfir borgina allan daginn til að sýna mátt og megin sýrlenska hersins og sjónvarpið sýndi rækilega frá fund- um fyrirmanna sem minntust tíma- mótanna af verulegri geðshræringu. En hinn almenni borgari tók engan þátt í því nema að horfa á flugelda- sýninguna án þess þó að falla í stafi. Við höfum Basjar núna, sagði sýr- lenskur kunningi. Við metum gamla manninn, hann stóð uppi í hárinu á Bandaríkjamönnum og það ríkti stöðugleiki á stjórnarárum hans. Það er allt gott og gilt. En nú erum við að hugsa um framtíðina. Og enn hefur Basjar ekkert gert nema allt heldur gott. Við erum sáttir við það og nennum ekki að vera alltaf að hugsa um það sem liðið er. Og með það förum við kötturinn heim á leið það kvöldið og fundum þennan ágæta stað PC Virus til að senda þessa grein heim. Því svona staðir spretta upp eins og gorkúlur og kostar 2 krónur mínútan og hér situr æska höfuðborgarinnar löngum stundum og fer í tölvuleiki og gramsar á Netinu við mikla ánægju. Forsetafrúnni að þakka Þetta er forsetafrúnni okkar að þakka, sagði unglingsstrákur. Hún lærði tölvufræði í Bretlandi og vissi að þetta yrði að koma í Sýrlandi. Forsetafrúin er greinilega hin elskaðasta kona, því auk þess að hafa talið manninn sinn á að leyfa sýrlenskum krökkum að fara í tölvu- leiki hefur hún gerst verndari ým- issa góðgerðarsamtaka og ýtir stíft á eftir því að öll lög og reglur um bætt réttindi kvenna séu ekki fyrir borð borin. Flugeldar og skriffinnska Stundum hef ég kvartað undan skriffinnsku í Sýrlandi, skrifar Jóhanna Kristjónsdóttir, en að þessu sinni hefur allt geng- ið með greiðum brag. Þegar upp var staðið hafði ég stimpil um dvalarleyfi til loka janúar en venjulega hefur verið veitt leyfi til fjögurra vikna. Dagbók frá Damaskus Kristján Jóhannsson óperusöngvari mun halda námskeið í söng dagana 2.-14. desember. Þar mun hann fyrst og fremst vinna með ítalska óperutónlist fyrir nemendur sem lokið hafa 5. stigsprófi í söng. Námskeiðið er opið öllum sem áhuga hafa, jafnt nemendum sem atvinnusöngvurum, en fjöldi þátttakenda takmarkast við tuttugu manns. Kennt verður í Bústaðakirkju. Sameiginlegur „Master-Class“ verður laugardagana 7. og 14. des. og mun hann fara fram í Íslensku óperunni. Þorsteinn Gauti Sigurðsson píanóleikari mun verða undirleikari á námskeiðinu. Námskeiðinu lýkur með stórtónleikum í Háskólabíói sunnudaginn 15. des. þar sem Kristján mun koma fram ásamt völdum þátttakendum og hefjast þeir kl. 14.00. Skráning fer fram á netinu og er slóðin www.utansviga.is. Einnig eru upplýsingar í síma 822 1990. „Master-Class“ Námskeið í óperusöng

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.